Morgunblaðið - 15.01.2018, Side 18

Morgunblaðið - 15.01.2018, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018 Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KOLBRÚN J. SIGURÐARDÓTTIR, Jófríðarstaðavegi 19, Hafnarfirði, lést 11. janúar. Að ósk hinnar látnu mun útförin fara fram í kyrrþey. Þökkum læknum og starfsfólki 21A og Karitas fyrir umönnun í veikindum Kolbrúnar. Elías Rúnar Elíasson Anna Dagmar Daníelsdóttir Guðmundur Arnar Elíasson Guðrún B. Árnadóttir Anna María Elíasdóttir Kjartan Sveinsson Daníel Viðar Elíasson Katrín S. Hauksdóttir ömmubörn og langömmubarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRIÐRIK MARTEINSSON - KURT MÜLLER Ketil- og plötusmiður Bröttuhlíð 15, Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, miðvikudaginn 10. janúar. Signý Egilsdóttir Elsa Backman Rúnar Skarphéðinsson Helgi Backman Marteinn Friðriksson Íris Blandon Katrín Friðriksdóttir Atli Lýðsson barnabörn og barnabarnabörn ✝ Sigurður Krist-ján Lárusson fæddist á Akureyri 26. júní 1954. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 3. jan- úar 2018. Foreldrar Sig- urðar eru Sigrún Guðný Gúst- afsdóttir húsmóðir f. 20.12. 1932 og Lárus Marteinn Marteinsson verkamaður, f. 21.2. 1930, d. 6.1. 1992. Systir Sigurðar er Ragnheiður, f. 11.3. 1953. Eiginkona Sigurðar er Valdís Ármann Þorvaldsdóttir, f. 26.5. 1955. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Kristján Jónsson, f. 11.10. 1918, d. 19.6. 2003, og María Stefánsdóttir, f. 20.2. 1920, d. 17.4. 2003. Börn Sigurðar og Valdísar eru: 1) Lárus Orri, f. 4.6. 1973, maki Sveindís Benediktsdóttir, f. 8.6. 1971. Synir þeirra eru Sigurður Marteinn Lárusson, f. hann lék knattspyrnu með ÍA um árabil. Eftir að Sigurður, Valdís og börnin fluttu til Ak- ureyrar á ný starfaði Sigurður við smíðar í Vör hf., því næst í eigin fyrirtæki, Trévís, og síðan hjá Slippnum á Akureyri í nokk- ur ár til dauðadags. Sigurður lék knattspyrnu með yngri flokkum Þórs á Ak- ureyri og síðan í meistaraflokki með Íþróttabandalagi Akureyr- ar 1971 til 1974, Þór 1975 til 1978 og Íþróttabandalagi Akra- ness 1979 til 1988. Með ÍA varð Sigurður Íslandsmeistari 1983 og 1984, bikarmeistari 1982, 1983, 1984 og 1986. Hann var fyrirliði ÍA í nokkur ár og lykil- maður í vörn. Sigurður var spil- andi þjálfari síðasta árið sem leikmaður ÍA og þjálfaði liðið einnig 1989. Sigurður lék með Þór á Akureyri á ný 1990 og tók síðan við þjálfun liðsins. Síðar meir þjálfaði hann einnig Völ- sung í eitt ár og KA í eitt ár. Sig- urður lék 11 sinnum með lands- liði Íslands frá 1981 til 1984. Útför Sigurðar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 15. jan- úar 2018, klukkan 13.30. 16.9. 1995, Aron Kristófer Lárusson, f. 17.9. 1998 og Sveinn Ármann Lárusson, f. 2.2. 2010. 2) Sigurlína Dögg, f. 7.8. 1978. Dætur hennar eru Helena Dögg Hilm- arsdóttir, f. 2.5. 1999 og Hildur Jana Hilmarsdóttir, f. 29.1. 2005. 3) Kristján Örn, f. 7.10. 1980, maki Elsa Sif Björnsdóttir, f. 27.1. 1981. Dóttir þeirra er Alís Krist- jánsdóttir, f. 7.8. 2008. 4) Aldís Marta f. 9.6. 1993, maki Guðni Rúnar Kristinsson, f. 29.6. 1985. Dætur þeirra eru Heba Katrín Guðnadóttir, f. 13.9. 2014 og Kristjana Valdís Guðnadóttir, f. 31.5. 2017. Sigurður lærði skipasmíði í Slippstöðinni á Akureyri og starfaði þar en hjá Skipa- smíðastöð Þorgeirs og Ellerts og síðar Henson, á meðan fjöl- skyldan bjó á Akranesi þar sem Þú ert farinn eftir sit ég ein aftur skilur leiti milli vega. Í mínu hjarta minning fersk og hrein mildar söknuð, léttir þungan trega. Við gengum snemma út á lífsins leið lögðum saman krafta okkar tveggja. Þó stundum virtist gatan ekki greið gæfan fylgdi ætíð starfi beggja. Þegar lífs míns orka förlast fer flyst á milli heima andans kraftur. Handan fljótsins bústað býrð þú mér og bíður mín, þá kem ég til þín aftur. (Hákon Aðalsteinsson) Blessuð sé minning þín, Siggi minn. Sjáumst síðar, ástin mín. Þín Valdís. Elsku pabbi. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. (Hugrún) Stelpurnar þínar, Lína Dögg og Aldís Marta. Elsku afi minn. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst. Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá. Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær. Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt. Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman. Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er sár. En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst, að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt. En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann. Í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú. Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt. Hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda. Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima. En eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth) Þín afastelpa, Helena Dögg. Traustur, ákveðinn, hress, hreinskilinn, þessi orð lýsa þér vel, það var gott að eiga þig að. Þú varst með eindæmum dug- legur, drífandi og nenntir ekki einhverju hangsi, það var gengið í hlutina helst korter á undan áætluðum tíma. Nú skilur leiðir og mig langar að þakka þér samfylgdina í þessi ár síðan ég kom inn í fjölskylduna þína fyrst, Siggi minn. Eftir sitja margar góðar minningar sem munu fylgja okkur alla tíð og hjálpa okkur á erfiðum stundum. Takk fyrir allt, ég kveð þig með sorg í hjarta en er ríkari að hafa þekkt þig. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín tengdadóttir Sveindís. Sigurður Lárusson ✝ Pétur Bjarna-son fæddist á Grafarbakka á Húsavík 17. júlí 1941. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akra- nesi, 31. desember 2017. Foreldrar hans voru Bjarni Ás- mundsson, f. á Húsavík 24. októ- ber 1903, d. 22. mars 1989, og Kristjana Hólmfríður Helgadótt- ir, f. í Steinholti á Húsavík 8. nóvember 1905, d. 7. ágúst 1976. Bræður Péturs eru Helgi, f. 9. október 1925, d. 28. júlí 1999, Ás- mundur, f. 17. febrúar 1927, Halldór, f. 1. janúar 1929, d. 26. janúar 2016, Hallmar Freyr, f. 21. nóvember 1931, d. 21. júlí 1987, Hreiðar, f. 11. ágúst 1934, d. 25. apríl 2002, og Jón Ágúst, f. 6. nóvember 1944. Pétur kvæntist árið 1961 Jónasínu Pétursdóttur, f. 9. október 1942, d. 26. febrúar 2016. Börn þeirra eru: 1) Pétur Helgi, f. 17. apríl 1960, kvæntur Gunnlaugu Maríu Eiðsdóttur, f. 1. apríl 1960, og eiga þau fjögur börn: Eið, kvæntur Katrínu Guð- Árna Ólaf, Pétur Helga, í sam- búð með Örnu Ársælsdóttur, og Friðrik Rúnar, í sambúð með Kristínu Kjartansdóttur. Þórdís og Friðrik eiga þrjú barnabörn. Móðir Þórdísar Súnu er Marita Jóhanna Hansen. Eftirlifandi sambýliskona Pét- urs er Elísa Vilborg Berthelsen, f. í Hafnarfirði 30. apríl 1939. Pétur ólst upp á Húsavík og gekk þar í barnaskóla og gagn- fræðaskóla. Hann fór snemma að vinna við ýmiss konar fisk- verkun og síldarsöltun; fyrst um sinn hjá föður sínum og síðar í fjölskyldufyrirtækinu Flóka. Síðar gerðist hann sjómaður. Hann lærði til fiskmatsmanns og vann við það lengst af. Pétur gekk ungur til liðs við Íþrótta- félagið Völsung og var hann mikill stuðningsmaður félagsins alla tíð. Hann var t.a.m. aðal- hvatamaðurinn að því að Völ- sungur sendi í fyrsta sinn lið á Íslandsmót í meistaraflokki karla árið 1966, auk þess sem hann spilaði sjálfur með liði Völ- sungs. Hann var félagsmaður í Karlakór Keflavíkur um nokk- urt skeið. Pétur bjó síðustu æviárin í Stillholti 19 á Akranesi. Pétur verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 15. janúar 2018, og hefst athöfn- in klukkan 11. mundsdóttur, Bjarna, kvæntur Esther Gestsdóttur, Ínu Valgerði, gift Þórarni Árna Bjarnasyni, og Snæfríði Dröfn, í sambúð með Krist- jáni Gunnari Ósk- arssyni. Pétur Helgi og Gunnlaug eiga sex barnabörn. 2) Bjarni, f. 8. maí 1962, kvæntur Lilju Sigtryggs- dóttur, f. 15. desember 1964, og eiga þau þrjár dætur: Margréti Ínu, Kareni Ýri, í sambúð með Gísla Þór Haukssyni, og Elínu Rós. Bjarni og Lilja eiga eitt barnabarn. 3) Þórunn Sif Harð- ardóttir (síðar ættleidd), f. 19. desember 1965, gift Tómasi Inga Jónssyni, f. 5. júní 1962, og eiga þau tvo syni: Arnór Orra, í sam- búð með Þórhöllu Ásgeirsdóttur, og Róbert Inga, í sambúð með Örnu Arnarsdóttur. Þórunn og Tómas eiga þrjú barnabörn. Pét- ur og Jónasína slitu samvistir ár- ið 1966. 4) Þórdís Súna, f. 16. júlí 1967, gift Friðriki Baldurssyni, f. 10. mars 1971, og eiga þau fjóra syni: Sigurð Þór, í sambúð með Sædísi Hrönn Viðarsdóttur, Í dag kveð ég elsku mág minn, Pétur Bjarnason, sem ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst. Þó svo að tíminn sem þú varst í fjölskyldunni hafi ekki verið langur, eða aðeins um níu ár, þá var hann góður og mér mjög dýrmætur. Sagan um hvernig okkar kynni byrjuðu er mjög sérstök en ég kom að því að kynna ykkur Elsu systur hvort fyrir öðru. Þó að aldur ykkar beggja á þeim tíma hafi verið um sjötugt þá skipti það ykkur engu máli. Það er sama á hvaða aldri maður er, það er aldrei of seint að eignast vin, samferðafélaga eða vera ástfanginn. Maður er manns gaman og þannig var það svo sannarlega hjá ykkur Elsu. Þið lyftuð hvort öðru upp og brölluðuð margt saman. Ferðuðust um Ísland ásamt því að fara nokkrum sinn- um saman til Noregs. Sameig- inlegt áhugamál ykkar var ým- islegt handverk sem þið síðan selduð á ýmsum handverks- mörkuðum eða gáfuð sem gjafir. Elsa prjónaði peysur en þú bjóst til tölurnar á peysurnar úr horn- um. Einnig varst þú mjög áhugasamur um að sauma út í púða, gera uglur og hrafna sem var mjög vinsælt. Ég er ein af þeim heppnu sem fengu bæði uglu og hrafna frá þér að gjöf. Mér er minnisstætt sumarið þar sem þú bauðst okkur að koma með ykkur Elsu til Húsa- víkur á Mærudaga. Þig langaði að kynna okkur fyrir þínum heimabæ og þessari skemmti- legu bæjarhátíð sem haldin er þar einu sinni á ári. Það var ynd- islegt og var þetta virkilega skemmtileg helgi. Þú varst svo ljúfur og góður, vildir allt fyrir alla gera ef þú gast hjálpað. En lífið er ekki alltaf dans á rósum og þannig var það ekki hjá þér frekar en hjá mér eða öðrum. Síðustu mánuðir eru búnir að vera þér og systur minni erfiðir vegna veikinda ykkar beggja. Þó svo að þau veikindi væru ekki af sama toga þá voru þau erfið fyr- ir ykkur bæði. Okkur samt öllum að óvörum kom að kveðjustund á gamlársdag þegar þú kvaddir þennan heim. Ég þakka fyrir þann tíma sem þú hefur gefið mér og fyrir þann tíma sem þú gafst systur minni. Takk fyrir allt. Allar góðu minningarnar um þig mun ég geyma vel. Elsku Pétur, hvíl þú í friði. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur til afkomenda, vina og vandamanna. Kær kveðja, þín mágkona, Rannveig. Ég kynntist Pétri Bjarnasyni fyrir níu árum þegar hann kom inn í líf móður minnar, Elísu Berthelsen. Við hjónin sáum fljótt að þar var drengur góður á ferð, umhyggjusamur og góð- lyndur. Ég veit að þessi níu ár í lífi móður minnar hafa verið henni mjög ánægjuleg og Péturs verður sárt saknað. Umhyggjusemin skein ekki síst í gegn þegar barnabörnin komu í heimsókn til þeirra. Mik- ið hafði hann nú gaman af því að spjalla við þau. Okkur þótti af- skaplega vænt um það hvað hon- um var annt um öll börnin og barnabörnin hennar mömmu. Við Rannveig kíktum oft við með dótturson okkar, Aron Emil, með okkur og þá var gaman hjá þeim báðum. Og þegar við kom- um bara tvö þá spurði hann allt- af eftir honum og hreinlega ljómaði bara af því að tala um Aron og dráttarvélarnar hans. Við Pétur töluðum líka oft um fótboltann. Segja má að fótbolta- hjartað hans hafi verið grænt og hvítt öðrum megin en gult og svart hinum megin því Völsung- ur og ÍA voru hans lið. Þegar hann hafði heilsu til var hann alltaf mættur fyrstur manna á völlinn í sína heiðursstúku á Jaðarsbökkunum og oftar en ekki fengu einhverjir að sitja inni í Súkkunni hjá honum. Þegar ég segi „fyrstur manna“ þá meina ég fyrstur manna því Pétur varð seint sak- aður um óstundvísi. Ef þau mamma þurftu að sinna ein- hverjum erindum í borginni, s.s. læknisheimsóknum o.þ.h., þá voru þau iðulega mætt klukku- tíma á undan áætlun og þurftu oft að bíða eftir því að opnað yrði á viðkomandi stað. Það var held- ur ekki verið að drolla neitt þeg- ar þau komu í kaffi því „jæja“ var iðulega farið að hljóma áður en maður vissi af. Pétur var nefnilega alltaf á hraðferð. Alltaf hafði Pétur mikinn áhuga á því að vita hvernig gengi í rekstrinum hjá okkur og lagði sig mjög í líma við að koma fyrirtækinu á framfæri hvar sem hann kom. Annað vinsælt um- ræðuefni voru stjórnmálin en þá gat nú aldeilis hvesst því þar vorum við oftast á öndverðum meiði því Pétur var „eldrauður“ inn að beini. Oft áttu þau Rann- veig einnig fjörlegar samræður enda höfðu þau bæði mjög gam- an af því að stríða hvort öðru. Þessara samverustunda verður sárt saknað. Við Rannveig vottum mömmu og afkomendum Péturs okkar dýpstu samúð. Guðmundur E. Björnsson. Pétur Bjarnason  Fleiri minningargreinar um Pétur Bjarnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Þú varst minn besti vin- ur, alltaf ef ég var í vand- ræðum þá hringdi ég í þig og þú gast alltaf bjargað mér. „Heyr mína bæn“ og „Litla sæta ljúfan góða með ljósa hárið“, þetta voru lög- in okkar. Síðan pabbi minn dó hef- ur þú verið pabbi/afi minn. Hvíldu í friði elsku afi minn. Ég geymi þig í hjarta mínu. Ég elska þig. Þín uppá- haldsafastelpa, Hildur Jana.  Fleiri minningargreinar um Sigurð Lárusson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær systir okkar, HALLA JÓNSDÓTTIR tanntæknir, Garðabraut 10, Akranesi, lést á heimili sínu föstudaginn 12. janúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 19. janúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimili Höfða á Akranesi. F.h. aðstandenda Kristrún Jónsdóttir Ingibjörg Jóna Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.