Morgunblaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018 Smáauglýsingar Bækur Bækur til sölu Um Urnot, bókin hennar Bjarkar, Færeyingasaga 1832, Njála 1772, Það blæðir úr morgun- sárinu, tölus., áritað, Jónas E. Svafár, Spor í sandi, ljóð 38, Steinn Steinarr, Hlutabréf í sólar- laginu, Frumskógadrottningin fórnar Tarsan, Níðstöng hin meiri, Dagur Sigurðarson, Þorp- ið, 1. útg., Jón úr Vör, Hvítir hrafnar, Þ. Þ., Árbækur Espólíns 1-12, frumútg. Sunnanfari 1-13, gott band, Galdrakver Ísleifs Einarssonar, 1857 Íslensk mynd- list 1-2 Vestur-Skaftfellingar 1-4, Eylenda 1-2, Flateyjarbók 1-4. Upplýsingar í síma 898 9475. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Askalind 4, Kóp. Sími 564 1864 www.vetrarsol.is 1100 W rafmagnsmótor Dreing 1 – 4 metrar 31cm vinnslubreidd Léur og meðfærilegur Góður við þröngar aðstæður 1131 E snjóblásari Þjónusta Faglærðir málarar Tökum að okkur öll almenn málningarstörf. Tilboð eða tímavinna. Sími 696 2749 - loggildurmalari@gmail.com Ýmislegt Fyrir bóndann á BÓNDADAGINN ARIZONA teg 00 51 701 í stærðum 36-48 á kr. 8.950,- ARIZONA teg. 00 51 461 í stærðum 36-48 á kr. 10.900,- ARIZONA teg. 05 52 111 í stærðum 36-48 á kr. 12.750,- Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán. - fös. kl. 10–18, Laugardaga kl. 10 - 14 Laugardaga 10 - 14. Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, Kraftur í KR kl. 10.30 (leikfimi allir velkomnir og frítt inn), útskurður og myndlist kl. 13 og félagsvist er spiluð í matsalnum kl. 13. Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16, ganga um nágrennið kl. 11, handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16, félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20, opið fyrir innipútt, hádegismatur kl. 11.40-12.45, kaffisala kl. 15-15.45, heitt á könnunni. S. 535-2700. Boðinn Leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13, myndlist kl. 13. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20. Opin handverks- stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl.14.30. Allir velkomnir! Furugerði 1 Morgunverður frá kl. 8.10-9.10 í borðsal, fjöliðjan í kjall- ara opin frá kl. 10, heitt kaffi á könnunni hjá Möggu Dögg. Stólaleik- fimi með Olgu kl. 11 í innri borðsal. Hádegisverður kl. 11.30-12.30 í borðsal. Ganga kl. 13 ef veður leyfir. Botsía í innri borðsal kl. 14. Síð- degiskaffi kl. 14.30-15.30 í borðsal. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16, hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617- 1503, meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45, vatnsleik- fimi Sjálandi kl. 7.40/8.20/15.15, kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.05, stóla- leikfimi Sjálandi kl. 9.50, kvennaleikfimi Ásgarði kl. 10.40, brids í Jónshúsi kl. 13, zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta. Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handa- vinna kl. 13, brids kl. 13, jóga kl. 18, félagsvist kl. 20. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spil- að brids kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, jóga hjá Ragnheiði kl. 16. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, línudansnámskeið kl. 10, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í síma 411-2790. Korpúlfar Ganga frá Grafarvogskirkju kl. 10 og frá Borgum einnig kl. 10 inni í Egilshöll, línudans í Borgum kl. 11 og skartgripagerð með Sesselju kl. 13 í Borgum, Félagsvist í Borgum kl. 13 og kóræfing Korpusystkina hefst kl. 16.30 í Borgum, fleiri velkomnir í kórinn. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest- ur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, samverustund með djákna kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, bíó á 2. hæð kl. 15.30. Uppl. í s .4112760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega vel- komnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30, jóga salnum Skólabraut kl. 11, handa- vinna Skólabraut kl. 13, vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Nk. miðvikudag 17. janúar kl. 20 býður Selkórinn eldri borgurum til söng- veislu í Félagsheimili Seltjarnarness. Heitt súkkulaði og veitingar. Allir velkomnir. Stangarhylur 4, Zumba gold kl. 10.30, undir stjórn Tanyu. STERK OG LIÐUG; námskeið fyrir dömur og herra 60 ára og eldri sem geta ekki lengur stundað hefðbundna líkamsrækt. Allir tímarnir verða sérsniðn- ir að þörfum þátttakenda. Við munum gera æfingarnar sitjandi á stól- um eða standandi við hliðina á stól. Verður tvisvar í viku og hefst í næstu viku ef næg þátttaka fæst. Skrá sig núna! ✝ Einar ÞórirGuðmundsson fæddist 5. júní 1931 á Borgarfirði eystra. Hann lést 7. janúar 2018 á Vífilsstaðaspítala. Foreldrar hans voru Guðmundur Einarsson, fæddur á Heggstöðum í Andakílshreppi 12.5. 1881, snikkari á Bakkagerði, Borgarfirði eystra, d. 10.2. 1937, og Soffía Þorsteinsdóttir húsfreyja, fædd á Gilsárvöllum, Borgarfirði eystra, 8.11. 1892, d. 14.4. 1975. Bróðir hans var Þorsteinn, húsasmíðameistari, f. 19.12. 1918, d. 4.8. 2007, kvæntur Þór- unni Jónsdóttur Thorlacius. Systir samfeðra Ásgerður Efemía, f. 20.11. 1908, d. 1.1. 1986. Einar kvæntist 5.2. 1955 Ásu Jörgensdóttur frá Reykjavík, f. 13.8. 1937. Hún er dóttir Jörg- ens Þorbergssonar tollvarðar frá Laugum í Reykjadal og Laufeyjar Jónsdóttur húsfreyju frá Akranesi. Börn Einars og 11.2. 1976, eru a) Hlini Snær, f. 20.12. 2007, b) Birkir Smári, f. 20.12. 2007, c) Karitas Ísold, f. 20.12. 2007. Langafabörn Ein- ars eru 12. Einar ólst upp í Steinholti á Borgarfirði eystra. Eftir hefð- bundið barnaskólanám á Bakkagerði flutti hann með móður sinni og bróður 12 ára til Reykjavíkur og kláraði gagnfræðaskóla. Hann starfaði sem lærlingur hjá Gissuri Páls- syni og lauk sveinsprófi í raf- virkjun í Reykjavík og síðar tók hann meistararéttindi. Einar starfaði um tíma á Keflavík- urflugvelli hjá Ormsbræðrum og Timbursölunni Víði, síðar stofnaði hann eigin atvinnu- rekstur við rafvirkjun og hafði lærlinga. Hann vann nánast til æviloka. Hann gekk í Musterisregluna 2. apríl 1954 og var þá yngsti meðlimur hennar og við andlát sitt var hann með lengstan starfsaldur í reglunni. Hann tók virkan þátt í að byggja upp Musterisregluna á Íslandi. Í Frímúrarareglunni á Íslandi fann hann einnig sinn farveg. Í hana gekk hann 1965. Hann var einnig virkur góðtemplari í IOGT. Einar verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í Reykjavík í dag, 15. janúar 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Ásu eru: 1) Guð- mundur verkfræð- ingur, f. 30.4. 1955, kvæntur Åse Marit Holtet sjúkraliða, f. 22.12. 1954, börn þeirra eru a) Einar Þorgrímur, f. 14.7. 1974, b) Jörgen Andre, f. 3.2. 1981, kvæntur Inga Fjelltveit Skagseth, c) Gunn-Sofia, f. 17.2. 1986, gift Andreas Thor- sen. 2) Agnes, f. 25.12. 1958, gift Eyþóri Péturssyni, bónda í Baldursheimi, f. 17.1. 1957, börn þeirra eru a) Pétur, f. 22.7. 1978, kvæntur Ellen Ótt- arsdóttur, f. 17.3. 1979, b) Jón Smári, f. 29.1. 1982, sambýlis- kona Íris Ósk Óttarsdóttir, f. 26.6. 1990, c) Einar, f. 29.11. 1994, sambýliskona Arnbjörg Hlín Áskelsdóttir, d) Laufey Ása, f. 31.8. 1996. 3) Ása tölv- unarfræðingur, f. 6.2. 1975, sambýlismaður hennar er Ole Oroug verkfræðingur, f. 25.6. 1980. Börn Ásu og fyrrverandi eiginmanns, Birgis Más Guð- brandssonar giktarlæknis, f. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Það er erfitt að koma öllu því í orð sem um huga okkar fer nú þegar við setjumst niður og skrifum þessar línur til að minnast þín. Eins og alltaf er þá gera slysin ekki boð á undan sér, það fengum við að sann- reyna hinn 4. júní sl. þegar þú varst uppi í bústað að mála, en þú náðir þér aldrei eftir þetta slys. Þú elskaðir að vera uppi í bústað og það sem þú og mamma áorkuðuð þar er ótrú- legt og munum við systkinin nú geta notið góðs af því sem eftir er. Það var ekkert sem þú unn- ir meir en að vera úti í nátt- úrunni. Sveitin hjá systur minni var þér svo kær og þú varst alltaf svo glaður þegar þú varst þar, einnig í þinni eigin sveit Borgarfirði eystra. Þú varst mikill veiðimaður og fóru öll sumur í stangveiði þar sem þú flakkaðir á milli áa, hér varst þú á heimavelli. Pabbi var yndislegur maður með stórt hjarta, hann vildi allt fyrir alla gera. Hann kenndi okkur börnunum eftir sinni bestu getu listina að lifa og við erum að komast að því eftir andlát þitt hversu miklu þú hefur áorkað á mismunandi víg- stöðvum. Þú eyddir miklum tíma í félagsstörf og vannst þú að þeim af alhug og mamma hafði óendanlegan skilning á öllum áhugamálum þínum. Eft- ir að þú kvaddir höfum heyrt magar yndislegar sögur af þér frá félögum þínum og vinum. Við þessi tímamót breytist svo margt, það er svo margt sem minnir á þig og vekur minningar og söknuð. Við erum þakklát fyrir þann tíma sem Guð gaf okkur saman og þau spor sem við gengum saman á lífsins vegi. Við geymum allar minningarnar um þig og þær munu alltaf fylgja okkur og veita okkur gleði. Elsku pabbi okkar, nú er komið að kveðju- stund og hjartað grætur, engin orð fá því lýst hvað við söknum þín mikið. Nú ert þú kominn í annan heim þar sem er alltaf birta og ylur, við vitum að þú munt líta eftir okkur þar til við hittumst á ný. Þú sofnað hefur síðsta blund í sælli von um endurfund, nú englar Drottins undurhljótt þér yfir vaki – sofðu rótt. (Aðalbjörg Magnúsdóttir.) Elsku pabbi okkar, við elsk- um þig og minning þín lifir sem ljós í lífi okkar. Við munum hugsa um mömmu. Ása, Agnes og Guðmundur. Ekkert líf án dauða, enginn dauði án lífs. Þessi orð komu mér í huga, þegar ég sá hvert stefndi hjá vini mínum, Einari Þ. Guðmundssyni, sem barist hefur fyrir lífi sínu síðastliðna sjö mánuði. Skákinni lauk með sigri dauðans að þessu sinni, og við það verða ættingjar hans og vinir að una, hvort sem þeim líkar betur eða ver. Við höfum fylgst að stóran hluta ævinnar, verið vinir í rúma hálfa öld og því margs að minnast. Upp í hugann koma minningarnar hver af annarri um góðan dreng, og ætla ég að að segja frá einni þeirra. Einar var mikill útivistar- maður og vildi helst af öllu standa við árbakkann, horfa á ána og fylgjast vel með hvar best væri að kasta út í til að ná góðum árangri í veiðinni. Hann langaði mikið að ég fengi veiði- bakteríuna. Við tveir og fjöl- skyldur okkar fórum einu sinni sem oftar í Stóru-Laxá í Hreppum, hann til að veiða og ég að fylgjast með. Við lögðum á okkur langa göngu því hann vildi fara á fallegasta og besta veiðisvæðið. Þegar þangað var komið fór hann að veiða og stóð við í lengri tíma, að mér fannst, og tími til kominn að fara í bú- staðinn sem við höfðum leigt okkur yfir helgi. Einar sagði þá að ég yrði að minnsta kosti að bleyta færið, fyrr færum við ekki. Ég stóð því upp og rölti til hans, tók við stönginni lítt hrifinn og kastaði út í ána eftir leiðbeiningum hans. Síðan hvarf hann frá og ætlaði að fá sér smá lúr á bakkanum á með- an. Það leið þó ekki langur tími að hann heyrði öskrin í mér því fiskur var á. Einar var óhepp- inn að vera ekki á frjálsíþrótta- móti því hann kom í þvílíkum loftköstum, að hann hefði örugglega sett Íslandsmet í há- stökki hefði hæð þeirra verið mæld! Þegar ég var búinn að koma 14 punda fiskinum á land spurði ég strax: „Hvenær för- um við næst?“ Einar hló við og svaraði: „Ég vissi að mér myndi takast að smita þig af veiðibakteríunni!“ Nú þegar þú ert horfinn yfir móðuna miklu, minn kæri vin- ur, og við fáum þig ekki augum litið framar munu minningarn- ar um góðan dreng ávallt halda nafni þínu á lofti. Ég bið hinn hæsta höfuðsmið himins og jarðar að varðveita þig að ei- lífu. Vertu sæll að sinni, kæri vinur. Ég og fjölskylda mín er- um með ykkur öllum sem stóð- uð honum næst. Björn Kristmundsson. Kveðja frá Heklu, reglu Musterisriddara Fallinn er frá góður félagi og bróðir, Einar Þ. Guðmundsson. Einar var einn af okkar elstu og dyggustu bræðrum en hann hafði starfað í reglu Musteris- riddara í yfir 60 ár. Einar starfaði í stjórn reglunnar í ná- lægt 30 ár og síðast sem meist- ari. Hann var einn af fróðustu mönnum um störf reglunnar og ætíð hægt að leita til hans um hvaðeina sem laut að starfi hennar. Þá var gott að leita til hans ef eitthvað þurfti að gera, hvort sem það var vegna raf- magns eða annarra verka, verklegra eða félagslegra. Við í reglu Musterisriddara kveðjum góðan bróður með miklum söknuði. Við vottum Ásu og af- komendum þeirra okkar inni- legustu samúð. Með bróðurkveðju, Brynjar M. Valdimarsson, meistari. Einar Þórir Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Á kveðjustund hugsa ég með þakklæti og gleði í hjarta til vináttu okkar, hlátursins, Mikka refs, ferða norður í Mývatns- sveit, útreiðartúra, orgel- tóna, vélsleðaferða, skíða- göngu í Skálafelli, páskaeggja í Hrannarskál- anum, kaffispjalls í bú- staðnum og saltkjötsins. Góða ferð í Sumarlandið, ég bið að heilsa öllum. Kristín Björnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.