Morgunblaðið - 15.01.2018, Page 26

Morgunblaðið - 15.01.2018, Page 26
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sendill er einn á ferð í gömlum kagga, með dularfullan pakka, á leið þvert yfir Bandaríkin. Hann byrjar að velta vöngum yfir eðli tilverunnar og tilgangsleysi eigin lífs og rekst á alls kyns einkennilegar persónur á vegahótelunum við þjóðveginn. Þannig hljómar sögusvið leikrits- ins The Pain Tapestry eftri Baret Magarian sem sýnt verður í Tjarn- arbíói næstkomandi föstudag. Páll Sigþór Pálsson leikari hefur veg og vanda af sýningunni en sér til halds og trausts hefur hann fengið Rúnar Guðbrandsson sem leikstýrir og bróður sinn Hauk Valdimar Pálsson sem sér um hljóð, lýsingu og mynd- band. Leikritið er splunkunýtt og verð- ur þetta í fyrsta skipti sem The Pain Tapestry er flutt á því máli sem verkið var upphaflega samið á, en að sögn Páls er Baret Magarian farinn að komast á kortið úti í heimi sem merkilegt leikskáld og bókahöf- undur. „Baret er búsettur í Flórens á Ítalíu og starfar sem enskuprófessor við háskóla þar í borg. Hann ólst upp í London og skrifaði The Pain Tap- estry upphaflega á ensku, en verkið var fyrst flutt á ítölsku og hefur ver- ið í sýningum á Ítalíu undanfarin eitt eða tvö árin.“ Súrrealísk sjálfsskoðun Páll segist hafa þurft að hafa mik- ið fyrir því að sannfæra Baret um að hann væri rétti maðurinn til að frumflytja verkið á ensku. Hann hreppti loks hnossið en svo þróuðust atburðir á þann veg að ekki var hægt að láta verða af því að sýna verkið í London eins og upphaflega stóð til. Nýlega flutti Páll aftur til Ís- lands, og ákvað að best væri að sýna þetta merkilega verk hér enda á leikritið fullt erindi við íslenska leik- húsgesti. „Þess utan vantar meira af leiksýningum á Íslandi fyrir fólk sem er ekki íslenskumælandi. Ég fékk því Rúnar og Hauk, tvo gamla og góða vini úr leiklistinni, til að hjálpa mér að gera sýninguna að veruleika.“ The Pain Tapestry er einleikur og þarf Páll að túlka bæði aðalsöguhetj- una og persónurnar sem verða á vegi hans. „Hann rekst á litríka ein- staklinga, eins og digra blökkukonu og eina huggulega Alabama-dömu sem má muna fífil sinn fegurri,“ út- skýrir Páll. „Þótt það sé oft ekki langt í húmorinn er ekki hægt að kalla The Pain Tapestry gamanverk heldur er því betur lýst sem ex- istensíalísku og léttsúrrealísku á köflum. Það sem hreif mig þó mest var að það er viss ljóðrænn eiginleiki í textanum – ákveðin músík – og skýrist kannski með því að til við- bótar við að vera kennari og skáld er Magarian tónlistarmaður og semur píanókonserta í hjáverkum.“ Ekki væri ógalið fyrir lesendur að gefa Baret Magarian gaum því hann er farinn að láta að sér kveða í leik- hús- og bókmenntaheiminum. „Auk þess að hafa gengið vel með The Pain Tapestry á Ítalíu kom nýlega út eftir hann bókin The Fabrications, sem hefur verið gefin út í Bandaríkj- unum og hlotið einróma lof gagnrýn- enda,“ ljóstrar Páll upp, en von er á höfundinum á frumsýningu leikrits- ins um helgina. Sendill, dyravörður, leikari Talið berst yfir í það sem á daga Páls hefur drifið á meðan hann bjó erlendis. Hann útskrifaðist frá Guildford School of Acting og hefur verið viðriðinn ýmis verkefni, bæði kvikmyndir og leikverk. Páll fór m.a. með hlutverk í bresku sjónvarps- þáttaröðinni Call the Midwife og í Ófærð, og bæði leikstýrði og skrifaði handrit spennumyndarinnar Cour- ier sem kom út 2010. Páll upplýsir að hann hafi fundið sér störf hér og hvar, enda ekki að því hlaupið að lifa af leiklistinni einni saman. Þannig hafi hann, rétt eins og aðalsöguhetja The Pain Tapestry, starfað sem hraðsendill og ekið á mótorhjóli vítt og breitt um England með pinkla af ýmsum stærðum og gerðum. „Oft gat ég verið heilu vikurnar og mán- uðina á ferðinni og fékkst þá nægur tími til að hugsa málin. Það er ef til vill ekki skrítið að margir höfundar hafi notað löng ferðalög á þjóðveg- unum sem sögusvið leikrita og kvik- mynda, allt frá Easy Rider yfir í Wild at Heart.“ Reglulega hefur Páll skotist til Ís- lands og m.a. unnið með leikhúsum á Akureyri og í Hafnarfirði og staðið vaktina sem dyravörður á skemmti- stöðum hér og þar í Reykjavík, en lengst hefur hann starfað með enska ferðaleikhúsinu The Rude Mechan- ical Theatre Company. „Sá hópur ferðast upp og niður Bretland og er best lýst sem „fýsískum“ leikhópi sem starfar í anda ítölsku commedia dell’arte-hefðarinnar,“ segir hann. Páll játar að það geti verið tölu- vert hark að vinna fyrir sér með þessum hætti en veiti líka ákveðið frelsi. „Þetta er tvíeggjað sverð; Harkinu fylgir frelsi  Eftir langa dvöl erlendis er Páll Sigþór Pálsson snúinn aftur til Íslands og setur glænýtt og forvitnilegt verk á svið  Hann segir þá litlu og óháðu geta tekið meiri áhættu, með djarfari og framsæknari sýningum en stóru leikhúsin Hugsjón Páll Sigþór (f.m.) með bróður sínum Hauki Valdimari hljóð- og ljósamanni og Rúnari Guðbrandssyni leikstjóra sýningarinnar. Sveiflur „Þetta er tvíeggjað sverð; annars vegar hefur maður minna atvinnuöryggi en á móti kemur að oft býð- ur þetta fyrirkomulag upp á að prufa ný, spennandi og óvenjuleg verk – það getur orðið leiðigjarnt til lengdar í atvinnuleikhúsunum,“ segir Páll Sigþór Pálsson. 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018 Frá morgnifyrir allafjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Laugarnar í Reykjavík NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL Tvær sýningar voru opnaðar á Kjarvalsstöðum Morgunblaðið/Hari Ávarp Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Gestir Árni Bergmann rithöfundur og Steinunn Marteinsdóttir listakona.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.