Morgunblaðið - 15.01.2018, Side 32
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 15. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Nafn mannsins sem lést …
2. Telja sig vita hvernig Jemtland lést
3. Besta sem hefur komið fyrir mig
4. Flugvél rann fram af kletti í Tyrklandi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fjöruverðlaunin – bókmenntaverð-
launa kvenna fyrir árið 2018 verða af-
hent við hátíðlega athöfn í Höfða í
dag kl. 16. Tilgangur verðlaunanna er
að stuðla að aukinni kynningu á rit-
verkum kvenna og hvetja konur í rit-
höfundastétt til dáða. Fjöruverðlaun-
in eru veitt árlega fyrir bækur í
þremur flokkum: fagurbókmenntum,
fræðibókum og ritum almenns eðlis
og barna- og unglingabókum.
Níu bækur eru tilnefndar til verð-
launanna, þrjár í hverjum flokki og
þeirra á meðal Lang-elstur í bekknum
eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur í
flokki barna- og unglingabóka; Elín,
ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur í
flokki fagurbókmennta og í flokki
fræðibóka og rita almenns eðlis Ís-
lenska lopapeysan: Uppruni, saga og
hönnun eftir Ásdísi Jóelsdóttur.
Morgunblaðið/Hari
Fjöruverðlaunin
afhent í Höfða í dag
Listamannaspjall gestalistamanna
SÍM, Sambands íslenskra myndlist-
armanna, fer fram á morgun kl. 16 í
galleríi sambandsins í Hafnarstræti
16. Tíu erlendir listamenn munu þar
veita gestum innsýn í ólíka menning-
arheima alþjóðlegrar myndlistar og
munu kynningarnar allar fara fram á
ensku og hver listamaður talar í um
10 mínútur. Allir eru velkomnir og
boðið upp á kaffi og með því.
Tíu gestalistamenn
í listamannaspjalli
Á þriðjudag Norðvestan 10-18 m/s með snjókomu eða éljum,
hvassast á annesjum vestast, en hægara og bjartviðri suðaustantil
á landinu. Frost víða 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan vestantil, hvassast á Vest-
fjörðum og Ströndum, en hægari suðvestlæg átt eystra. Dregur
heldur úr vindi í kvöld. Éljagangur nyrðra, en léttir víða til syðra.
VEÐUR
Tindastóll og Keflavík hrós-
uðu sigri í karla- og kvenna-
flokki í bikarúrslitunum
sem fram fóru í Laugardals-
höllinni á laugardaginn.
Tindastóll rúllaði yfir Ís-
landsmeistara KR og vann
þar með sinn fyrsta stóra
titil í sögunni. Keflavík varð
bikarmeistari í kvennaflokki
annað árið í röð og í 22.
skipti frá upphafi eftir sig-
ur gegn grönnum sínum í
Njarðvík. »4-5
Fyrsti stóri titill
Tindastóls
Albert Guðmundsson stal senunni
þegar Íslendingar lögðu Indónesíu-
menn, 4:1, í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu í Jakarta í gær. Al-
bert kom inn á sem vara-
maður á 25. mínútu
leiksins og hann gerði
sér lítið fyrir og
skoraði þrennu
fyrir íslenska
liðið. »8
Albert Guðmundsson
stal senunni í Jakarta
Íslendingar töpuðu fyrir Króötum,
29:22, í öðrum leik sínum á Evr-
ópumótinu í handknattleik í Split í
Króatíu í gærkvöld. Ísland mætir
Serbíu í lokaleik riðlakeppninnar á
morgun og það er hreinn úrslitaleikur
um það að komast áfram í milliriðil
en bæði Króatar og Svíar eru komnir
áfram eftir sigurleiki sína í gær.
»1-2
Hreinn úrslitaleikur
gegn Serbum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Það er mikilvægt að eiga sér draum
í lífinu og missa aldrei sjónar á tak-
markinu. Stundum þarf maður að
bíða lengi en viljinn nýtist alltaf.
Þetta eru mín stóru skilaboð til
krakkanna,“ segir fjallagarpurinn
John Snorri Sigurjónsson.
Mikil ögrun og einbeittur vilji
Í gær hélt John Snorri á vegum
Ferðafélags Íslands fjölskyldufyr-
irlestur og var með myndafrásögn
um göngu sína á K2, annað hæsta
fjall heims, en þangað komst hann
28. júlí á síðasta ári. Leiðangurinn
þótti mikið afrek, ekki síst með vísan
til þess hve mikla ögun og einbeittan
vilja þarf til að ná á toppinn.
Tindurinn K2 er í 8.611 m hæð, er
á landamærum Kína og Pakistans og
telst til Karakóram-fjallgarðsins.
Þetta er fjall erfitt uppgöngu og er
talið að þriðji hver maður sem legg-
ur í brekkurnar skili sér ekki aftur
til baka. Við undirbúninginn kleif
John Snorri tvö fjöll í Himalaja-
fjallgarðinum; Island Peak, 6.189 m,
og Lhotse, 8.516 m á hæð og fjórða
hæsta fjall heims. Hann varð fyrsti
Íslendingurinn til að ná þeim tindi.
Eftir að John Snorri náði tindi K2
kleif hann Broad Peak, 8.051 m hátt
og 12. hæsta fjall heims, og setti
heimsmet í hraða á milli tindanna.
Aðeins vika leið frá því hann stóð á
K2 uns hann náði Broad Peak.
Ég var ofar skýjun
Það er kalt á toppnum, en hvers
vegna? Af hverju er K2 hættulegur
staður og hvers vegna tekur margar
vikur að klífa fjallið? Hvaða búnað
þarf og hví þurfa fjallagarpar að
vera með viðbótarsúrefni? Hve víð-
sýnt er af öðru hæsta fjalli veraldar?
Frá þessu og fleiru sagði John
Snorri í fyrirlestri sínum.
„Ég var ofar skýjunum á K2 og sá
sjóndeildarhringinn. Það er magnað
að sjá hvernig jörðin kemur í boga.
Ég horfi yfir risafjöll, 6.000 til 7.000
metra há, sem virka bara lítil þarna
uppi. En þarna er fallegt útsýni þeg-
ar horft er til Kína og Pakistans,“
segir John Snorri sem kveðst vel
mettur af fjallamennsku eftir langt
úthald í fyrra. Sé ekki hættur en
muni þó í framtíðinni væntanlega
halda sig við heldur lægri fjöll en
verið hefur.
Frískandi Helgafell
„Það er mikilvægt að hreyfa sig
og núna á sunnudagsmorgni er ég
nýkominn heim með krökkunum
mínum úr göngu á Helgafell sunnan
við Hafnarfjörð. Það er fínt og frísk-
andi að byrja daginn þannig,“ sagði
John Snorri þegar Morgunblaðið
rabbaði við hann í gærmorgun. Fyr-
irlesturinn hjá Ferðafélagi Íslands í
gær sagði hann í svipuðum anda og
ýmsa sem hann hefði verið með á
síðustu mánuðum fyrir til dæmis
starfsmannahópa og íþróttafélög.
Ég sá jörðina koma í boga
John Snorri
með fyrirlestra
um fjallaferðir
Morgunblaðið/Hari
Fyrirlestur Fjallagarpurinn John Snorri sagði frá fjallapríli sínu og sýndi búnað sinn sem vakti athygli krakkanna.
Toppað John Snorri á tindi K2, annars hæsta fjalls heims, á síðasta ári.