Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 12

Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Tímabilið frá fjörutíu ogfimm ára til fimmtíu ogfimm ára er oftast nefntbreytingaaldur, tengt tíða- hvörfum kvenna. Á þessu tímabili upplifa margar konur ýmis óþæg- indi tengd því að hormónafram- leiðsla líkamans dregst saman. Helstu einkennin sem konur upplifa geta verið truflanir á blæðingum, hitakóf, kvíði, líkamleg vanlíðan, óöryggi, svefnleysi og beinþynning. Til að bregðast við þessu hefur í fjölda ára aðallega verið gripið til þess að gefa konum samsett kven- hormón. En slík hormón geta haft neikvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi, þar með talið aukna blóðtappa- áhættu og auknar líkur á brjósta- krabbameini. Þegar Arnar Hauksson fæð- ingar- og kvensjúkdómalæknir er spurður að því hversu mikil áhætt- an sé þegar konur taka inn hormón segir hann að hún sé ekki rosalega mikil. „En hún er þó marktækt aukin, og þar fer mest eftir heilsu, lifnaði og líkamlegu ástandi kvennanna sem taka hormón, hvort sem er í töflum, plástrum eða kremi. Þau virka á sömu viðtæki og hafa sömu áhættuþætti. Aðaláhættuþættirnir koma fram ef konur reykja, eru of þungar eða hafa undirliggjandi hjarta- og/eða æðasjúkdóma.“ Til langs tíma var ekki val á öðru en slíku kvenhormóni til að meðhöndla konur með mikil ein- kenni á breytingaskeiðinu, en eftir að upplýsingar komu fram árið 2001 um áhættuna sem fylgir því að taka slík hormón hefur orðið þrýstingur frá samfélaginu um að finna aðrar leiðir sem ekki innihalda hormón. Aragrúi náttúrulyfja hefur því komið á markaðinn en af þeim hafa fá verið prófuð vísindalega með til- liti til raunverulegrar virkni og áhættuþátta. Eitt af þessum nátt- úruefnum sem hafa verið prufuð er Femarelle, en í því er TOFU- peparat (virka efnið DT56a). Það hefur sýnt sig í byrjunarrann- sóknum að þetta efni virkar á sér- hæfð viðtæki í líkamanum, með sama hætti og östrógen virkar á sín viðtæki. Og getur fyrir vikið haft já- kvæð áhrif á mörg þeirra óþægilegu einkenna sem fylgja breytingaaldr- inum. Reynst betra en gervilyf Arnar fór í haust á ráðstefnu evrópskra kvensjúkdómalækna í Barcelona en þar hélt dr. Andrea R. Genazzani, fyrrverandi formaður evrópskra hormónasérfræðinga í kvensjúkdómum, erindi um fyrr- nefnt virkt efni DT56a. „Andrea Genazzani horfir mjög jákvæðum augum á Femarelle sem Einkenni stundum mikil, stundum lítil Sumar konur fá heiftarleg einkenni á breytingaskeiðinu en aðrar finna varla fyrir þeim. Arnar Hauksson læknir segir að breytingaaldurseinkenni geti dregið veru- lega úr lífsgæðum og þá skipti máli að eitthvað sé í boði fyrir konur sem þær geta tekið án þess að það skapi þeim áhættu. Morgunblaðið/Hari Læknir Arnar Hauksson fæðingar- og kvensjúkdómalæknir. Hin árlega sýning, Þetta vilja börnin sjá! verður opnuð kl. 14 á morgun, sunnudaginn 21. janúar, í menningar- húsi Borgarbókasafnsins í Gerðu- bergi. Á sýningunni gefur að líta myndskreytingar 14 íslenskra mynd- listarmanna við 17 barnabækur sem komu út 2017, ásamt bókunum sjálf- um. Þarfir barna eru sérstaklega hafðar í huga við uppsetningu sýn- ingarinnar. Sýnendur eru: Áslaug Jónsdóttir Bergrún Íris Sævarsdóttir Brian Pilk- ington Böðvar Leós Ellisif Malmo Bjarnadóttir Freydís Kristjánsdóttir Halla Sólveig Þorgeirsdóttir Högni Sigurþórsson Íris Auður Jónsdóttir Kristín Ragna Gunnarsdóttir Logi Jes Kristjánsson Ragnheiður Gestsdóttir Rán Flygenring Sigrún Eldjárn Þetta er í 16. sinn sem sýningin Þetta vilja börnin sjá! er haldin í á vegum Gerðubergs og vekur hún jafnan verðskuldaða athygli. Sýn- ingin verður í Gerðubergi til 4. mars, en fer þá í ferðalag um landið. Börn úr 3. bekkjum grunnskóla munu heimsækja sýninguna, fá leiðsögn og taka þátt í skemmtilegum leikjum. Sýningar í Gerðubergi eru opnar virka daga kl. 8-18 og um helgar kl. 13-16. Myndskreytingar 14 myndlistarmanna við 17 barnabækur Sýningin Þetta vilja börnin sjá! er haldin í 16. sinn á vegum Gerðubergs. Hvað vilja börnin sjá? Víóluleikarinn Ásdís Valdimarsdóttir og píanóleikarinn Marcel Worms flytja metnaðarfulla efnisskrá með verkum fyrir víólu og píanó eftir of- sótt tónskáld 20. aldarinnar í Salnum í Kópavogi kl. 16-18 í dag, laugardag 20. janúar. Tónleikarnir eru í Tíbrá tónleikaröðinni og er yfirskrift þeirra Sálin meðal strengjanna – víólan. Flest hafa ekki áður verið flutt á Ís- landi, en þau eru eftir tónskáld sem voru gyðingar og þurftu að flýja heimaslóðir sínar og/eða voru of- sóttir. Eru þetta verk eftir tónskáldin Mieczyslaw Weinberg, Felix Mendels- sohn, Dmitri Shostakovich og Dick Kattenburg. Sálin meðal strengjanna – víólan Verk eftir ofsótt tónskáld Morgunblaðið/Golli Víóluleikari Ásdís Valdimarsdóttir. Frumsýning hjá Leikfélagi Hveragerðis í dag Glanni glæpur Í Latabæ býr fjölskrúðugur hópur fólks , m.a. Glanni glæpur. Glæpamaður fyrir austan fjall valdsson. Næsta sýning er kl. 14 á morgun, sunnudaginn 21. janúar, og verður leikritið síðan á fjölunum laugardaga og sunnudaga næstu tvær helgar á sama tíma. Miðaverð 3.000 kr. fyrir fullorðna. 1.500 kr. fyrir börn yngri en 12 ára. Miðapant- anir í síma 863-8522 Leikfélag Hveragerðis frumsýnir leik- ritið Glanni glæpur í Latabæ eftir þá Magnús Scheving og Sigurð Sigur- jónsson kl. 14 í dag, laugardag 20. janúar, í Leikhúsinu Austurmörk 23. Söngtextar eru eftir Karl Ágúst, tónlistin eftir Mána Svavarsson og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þor- Pop-Up Ævintýraleikvöllurinn verður haldinn á Kjarvalsstöðum kl. 13-16 í dag, laugadaginn 20. janúar. Viðburð- urinn er á vegum er RIE foreldra- félagsins Meðvitaðir foreldrar og er leikvöllurinn innblásinn af uppeld- isstefnunni RIE sem stendur fyrir Re- spectful Parenting (Virðingarríkt tengslauppeldi) í tengslum við frjáls- an leik barna. Boðið er upp á efnivið sem börn fá að leika með og rann- saka á eigin forsendum og nota ímyndunaraflið. Ævintýraleikvöllur í smástund Börn Leikið af fingrum fram. FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK14.700 DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl. verð á mann frá ISK27.400 Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur. Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Taktu bílinn með til Færeyja eða Danmerkur Bæklingurinn okkar fyrir 2018 er kominn út. Í honum finnur þú fullt af tilboðum og verðdæmum. Hægt er að nálgast hann á www.smyrilline.is Bókaðu núna og tryggðu þér pláss

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.