Morgunblaðið - 20.01.2018, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
✝ BerghreinnGuðni
Þorsteinsson fædd-
ist á Siglufirði 17.
febrúar 1936.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skógarbæ 1. jan-
úar 2018.
Foreldrar hans
voru Þorsteinn
Bergmann Lofts-
son garðyrkju-
bóndi, f. 17. febrúar 1911, d.
20. maí 1946, og Vilhelmína
Theodora Tijmstra Loftsson,
náttúrufræðingur og húsfreyja,
f. 26. janúar 1912 á eyjunni
Jövu í Austur-Indíum, d. 28.
október 1998.
Albræður hans voru: Geir-
harður Jakob, f. 1934, d. 2017,
maki Guðný Helgadóttir leik-
kona, f. 1938. Þau eignuðust
fjögur börn. Vilhjálmur Þor-
steinn, f. 1943, d. 2016. Maki 1:
Harpa Möller, þau áttu þrjú
börn. Maki 2: Stefanía Júl-
íusdóttir bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur, f. 1944. Hún
átti fyrir tvær dætur af fyrra
hjónabandi og eru þær kjör-
dætur Vilhjálms. Hálfbróðir
Berghreins er Helgi Skúta list-
fræðingur, f. 1953. Með Önnu
S. Gunnarsdóttur átti hann son
en maki Helga er Sharon
Helgason Gallagher, heimspek-
ingur og útgefandi, f. 1959, þau
eiga dóttur.
Eiginkona Berghreins er
f. 18. mars 1972. Börn Þor-
steins Guðna eru Signý, f. 2005,
og Hugrún, f. 2007. Móðir
þeirra er Vigdís Einarsdóttir.
Berghreinn stundaði um
tíma nám við Bændaskólann á
Hólum. Áhuginn beindist hins
vegar að flugvirkjun og fór
hann þaðan í nám í Spartan
School of Aeronautics í Am-
eríku. Eftir að hann lauk þar
námi hóf hann flugvirkjastörf í
janúar 1958 hjá Flugfélagi Ís-
lands. Þá var hann einnig með
vélstjóraréttindi og einkaflug-
mannsréttindi. Hinn 2. maí
1961 var Berghreinn ráðinn til
Landhelgisgæslu Íslands (LHG).
Þar varð hann fyrsti flugvirki á
Íslandi sem öðlaðist réttindi til
að viðhalda þyrlum. Það var á
Bell 47 sem var fyrsta þyrlan
sem Landhelgisgæslan tók til
notkunar árið 1965 og bar hún
nafnið TF-EIR. Öðlaðist hann
jafnframt réttindi á þær þyrlur
sem Landhelgisgæslan keypti á
þeim 42 árum sem hann starf-
aði þar. Hann var einnig flug-
vélstjóri á fyrstu flugvél gæsl-
unnar, var spilmaður í
þyrluáhöfn, var yfirflugvirki,
gæðastjóri og starfaði svo við
skráningu og áætlunargerð síð-
ustu árin. Auk þess fólst í hans
starfi að fara á fjölda nám-
skeiða erlendis, til að læra á
allar nýjar þyrlur LHG, fara í
vitatúra og auk þess voru
björgunarstörf hluti af hans
vinnu. Þá kenndi hann ungum
mönnum sem þar unnu, í lengri
eða skemmri tíma, og hlúði að
þeim.
Berghreinn og Randý bjuggu
alltaf í Reykjavík.
Berghreinn var jarðaður í
kyrrþey að eigin ósk.
Randý Sigurð-
ardóttir, f. 2. apríl
1940. Átti hún fyr-
ir Sigurð Rafn
Þorgeirsson, sem
fæddist 26. sept-
ember 1959, og
gekk hann honum í
föðurstað. Sig-
urður eignaðist
fimm börn. Þau
eru Hildur Þóra
(fósturdóttir), f.
1979, og Kristín Lilja, f. 1982,
móðir þeirra er Súsanna Frið-
riksdóttir. Guðrún Randý, f.
1986, og Sara Björg, f. 1987,
móðir þeirra er Ellý Vilhjálms-
dóttir, og Daníel Pitsuk, f.
2005, móðir hans er Svetlana
Pitsuk. Maki Hildar Þóru er
Halldór Gunnlaugsson og maki
Kristínar Lilju er Karl Á.
Ágústsson. Berghreinn á sex
barnabarnabörn.
Saman eignuðust Randý og
Berghreinn fjögur börn. Þau
eru: 1) Vilhjálmur, f. 20. apríl
1962. 2) Bryndís Ósk nuddari,
f. 25. október 1963. Sambýlis-
maður hennar er Ásberg Pét-
ursson. Börn Bryndísar eru
Birkir Freyr, f. 1987, og Theo-
dóra Listalín, f. 1995, faðir
þeirra er Þröstur Sverrisson. 3)
Berglind, f. 28. ágúst 1965.
Börn Berglindar eru Fannar
Örn, f. 1996, og Guðný María, f.
1999, faðir þeirra er Torfi Arn-
arson. 4) Þorsteinn Guðni,
mannfræðingur og sérkennari,
Að finna ást á ferðalögum
við fjöll og dali, sand og hraun,
að leggja upp frá heimahögum
og hljóta síðan lífsins laun,
að eyða saman ævidögum
er yndisleg og falleg raun.
Víst leynast skin og skúrir víða,
þú skynjar fagurt ævikvöld,
þú hefur fundið faðminn blíða
á ferð í rúma hálfa öld
og sérð að lífsins laun þín bíða
er læðist að þér nóttin köld.
Þú kveður ást sem öllu breytti,
og alltaf vildi bæta hag,
sú trausta sál sem töfrum beitti
fékk tár þín þerrað nótt og dag.
Þú veist að ykkur unað veitti
hið yndislega ferðalag.
(Kristján Hreinsson)
Elsku hjartans Hreinn.
Takk fyrir allt og allt.
Góða ferð inn í Sumarlandið.
Þín eiginkona,
Randý.
Þegar ég hugsa um pabba minn
kemur margt upp í hugann.
Pabbi var jafnlyndur, réttsýnn,
sanngjarn, hlédrægur, blíður, ljúf-
ur og hlýr og hann hafði góða
kímnigáfu og gerði oft að gamni
sínu, sérstaklega orðaleiki og
slíkt. Honum var mjög illa við að
fólk væri að sletta á ensku og slíkt,
hann sagði okkur börnunum það
reglulega. Hann væri á Íslandi og
vildi að fólk heilsaði með halló og
bless, og allt í lagi, en ekki „hæ“,
„bæ“ og „ok“.
Það þurfti mikið til að fá hann
til að skipta skapi, og þá var það
helst ranglæti sem honum mislík-
aði.
Honum var ekkert um fínheit,
leiddust spariföt og óþarfa um-
stang og slíkt en naut sín best með
fólkinu sínu eða einhvers staðar á
hreyfingu, helst í vinnugalla, að
smyrja hjól eða bóna.
Hann vann mikið, en þegar
hann var heima vildi hann hafa
eitthvað fyrir stafni. Hann hjálp-
aði mér oft að setja saman hús-
gögn og fleira. Pabbi var mikill
íþróttamaður, hann hljóp, hjólaði,
fór á skíði og fleira.
Þegar mikið fjölmenni var í
Bláfjöllum kaus hann heldur að
fara á gönguskíði en svigskíði, þar
sem hann vildi ekki bíða í röðinni í
lyfturnar, hins vegar í lok dags fór
hann, þegar fólki fækkaði á svæð-
inu, oft nokkrar ferðir í brekkurn-
ar. Í þessar skíðaferðir fóru ein-
hver af börnunum iðulega með og
þegar komið var heim eftir langan
dag beið mamma með heitan góð-
an mat. Sama átti við um hjóla-
ferðir og hlaup, til dæmis Flóa-
hlaup, þá fór mamma með og
keyrði á eftir og tók á móti pabba í
markinu.
Hann hjólaði sem oftast í vinn-
una, úr Dalselinu í flugskýlið við
Nauthólsvík, og eftir því var tekið.
Hann fékk mig meira að segja
með í gönguferð úr Dalseli alla
leið á Laugarnesveginn og spjall-
aði við mig allan tímann.
Í hópinn bættist hún Skotta, en
pabbi sinnti hennar útivist mest.
Pabbi var augljóslega húsbóndi
hennar og hún hlýddi honum! Hún
var dálæti allra í fjölskyldunni og
hennar var alltaf sárt saknað.
Pabbi og mamma ferðuðust
töluvert saman og til að koma til
móts við ólíkar óskir hvort annars
var farið til skiptis í skíðaferðir og
til sólarlanda.
Pabbi tók mikið af ljósmyndum
og kvikmyndum og þar eru dýr-
mætar minningar fyrir okkur hin.
Hann kom mér af stað með að
taka myndir og það er mér dýr-
mætt því þótt tæknin hafi tekið
gríðarlegum breytingum þá er til
mikið magn af minningum og um
leið tækifærum til að nýta öðrum
til góðs og það er það sem ég vil
heiðra pabba minn með.
Ég vil, elsku pabbi minn, heiðra
minningu þína með því að hjálpa
öðrum í svipaðri stöðu að skapa
minningar og gefa öðrum tæki-
færi til að vinna með minnkandi
getu til daglegs lífs og auka lífs-
gæði þeirra.
Það er svo mikill fjöldi fólks
sem hefur engan stuðning og
vantar hjálp til að vinna með
þennan hræðilega sjúkdóm. Og
þegar getan til tjáningar og verks
minnkar og hverfur er svo mik-
ilvægt að reyna að opna fleiri leið-
ir, reyna að finna annan farveg til
að geta haft samskipti áfram.
Þetta er það sem ég vil gera,
pabbi minn, og þannig nýta sorg-
ina og söknuðinn (því kökkurinn
er fastur í hálsinum og tárin leka
endalaust) til að gera öðrum í þörf
fyrir hjálp gagn.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn, elska þig endalaust.
Þín
Berglind (Begga).
Pabbi var á margan hátt mjög
óvenjulegur.
Sumir foreldrar vilja vera ekki
of góðir vinir barna sinna: það
dragi úr virðingu barnanna. Í
mínu tilfelli virti pabbi þessa reglu
ekki enda er að mínu mati virðing
eitthvað sem er áunnið. Þar hafði
pabbi að mínu mati ótvírætt for-
skot á yfirleitt alla aðra sem ég
þekkti. Hann lifði lífinu eins og
honum fannst það best, óaðfinn-
anlega heilbrigt líferni þar sem
hann var sífellt upptekinn við að
hjálpa öðrum eða gera við eitt-
hvað. Alltaf þegar hann hafði tíma
til fór hann að leika sér við það
sem honum fannst skemmtilegast,
fara að hlaupa, hjóla eða á skíði. Í
íþróttum og útivist naut hann sín
best. Hann átti auðvelt með að fá
okkur krakkana með sér.
Fyrir hans tilstilli fór ég að
fikta við skíðaiðkun og hjólreiðar
sem síðar leiddi til þess að við fór-
um í ófáa hjólreiðatúra – ýmist
einir sér eða í félagsskap annarra.
Við fórum jafnvel að taka þátt í
hjólreiðakeppnum, ég af meiri al-
vöru en hann. Hann lýsti því alltaf
yfir að hann væri bara að fylla upp
í töluna: síðasti keppandinn væri
þá sáttur við sinn hlut. Þó var það
skilyrði á hans þátttöku að við
mættum ekki yfirgefa svæðið fyrr
en hann kæmi í mark.
Þegar hann var lagður inn
vegna veikindanna keypti ég
spjaldtölvu. Hana fyllti ég af nátt-
úrulífsmyndum og sérvöldum
íþróttamyndum handa honum.
Þannig virtist hann fá einhverja
útrás fyrir þörfina fyrir íþróttirn-
ar. Þar sem hann hafði alltaf haft
mjög gaman af ljósmyndun fengu
náttúruljósmyndir að fljóta með.
Það voru ógleymanlegir
klukkutímarnir sem hann gleymdi
sér við að horfa á þetta efni aftur
og aftur. Best naut ég þess að
fylgjast með innlifun hans. Þegar
sem mest var farið að draga af
honum hagræddi ég efninu þannig
að hann sæi það í nógu litlum
skömmtum til að þreytast ekki um
of en fá samt að njóta þess til hins
ýtrasta.
Vissulega tók þetta tíma en ég
sá ekki eftir einni mínútu af hon-
um. Ég vissi sem var að þetta voru
forréttindi, ekki kemur öllum
feðgum jafn vel saman og okkur
pabba. Þrátt fyrir að allar venju-
legar hömlur væru farnar var
hann áfram sama ljúfmennið.
Þegar ég kvaddi hann gat ég ekki
varist að hlakka til næstu heim-
sóknar.
Betri föðurímynd er vandfund-
in. Mikið á ég eftir að sakna þessa
tíma.
Vilhjálmur Berghreinsson.
Meira: mbl.is/minningar
Sérhvert upphaf nýs árs mun
héðan í frá, óhjákvæmilega, vekja
upp sterka minningu um pabba og
öll þau góðu gildi sem hann stóð
fyrir. Hann andaðist að morgni
nýársdags aðframkominn eftir
áralanga sligandi samfylgd alz-
heimers sem miskunnarlaust yfir-
tók alla starfsemi hægum skref-
um. Það sækir á mann ónotaleg
vanmáttarkennd við tilhugsunina
um það hvernig maður eins og
pabbi, sem dag hvern ræktaði
heilsu sína af alúð, svona ótrúlega
sanngjarn og gegnheill maður,
skyldi á tiltölulega skömmum
tíma tapa heilsunni, í hugarþoku.
Í minningunni leiftra samt ótal
myndir af einstaklega góðri
manneskju sem alla tíð lagði sig
fram af miklum heilindum um að
reynast fjölskyldu sinni og öðrum
samferðamönnum vel. Pabbi var
glettinn og hafði sérstaka ánægju
af orðaleikjum og útúrsnúningum
og gat lengi hlegið að góðum
brandara. Hann var líka hreysti-
menni og okkur börnunum mikil
fyrirmynd í lífsstíl og hollum lífs-
háttum. Aðspurður hvers vegna
hann tæki ekki þátt í skemmtana-
lífinu af sama krafti og aðrir,
svaraði hann einatt: „Ég er
áhugamaður um vellíðan.“
Hann hafði einfaldan smekk og
var látlaus í orðum og æði. Á
sama tíma var hann óttalegur
dellukarl og bjó að ríkum sjóði
áhugamála sem spönnuðu vítt
svið, allt frá ljósmyndun yfir í kaj-
akróður með tíðum skíðaferðum
upp í Bláfjöll og hjólatúrum í ná-
grenni Reykjavíkur. Pabbi fór
oftast sínar eigin leiðir og var lítið
fyrir það að sýnast. Yfirborðs-
mennska, einkennisföt og glys-
girni áttu ekki upp á pallborðið
hjá honum.
Hann var nærgætinn en líka
afar réttsýnn og átti erfitt með að
umbera óheiðarleika í fari fólks.
Hann stundaði af þeim sökum
frekar einstaklingsíþróttir en
hópíþróttir og hafði óbeit á
stjórnmálum. Pabbi hafði einfald-
ar en skýrar lífsskoðanir. Hann
var jarðbundinn og aðhylltist
hvorki háleita heimspeki né sér-
stakar trúarskoðanir. Sjálfur
sagðist pabbi einfaldlega vera
„skynsemistrúar“. Hann gat ver-
ið hlédrægur, steig varlega til
jarðar í allri ákvarðanatöku og
var akkerið í samvinnu hans og
mömmu (sem bjó í staðinn yfir
meiri félagslegum drifkrafti).
Saman bættu þau hvort annað
upp svo eftir var tekið og báru
virðingu fyrir þörfum hvort ann-
ars. Pabbi var alla tíð mikill dugn-
aðarforkur. Það var því þeim mun
sársaukafyllra að horfa upp á
hann, klettinn í fjölskyldunni,
veikjast smátt og smátt og fylgj-
ast með hvernig kvarnaðist upp
úr sjálfsmyndinni þegar hann
hætti að ráða við venjubundin
verkefni. Við fórum, eftir því sem
veikindin ágerðust, að hlífa hon-
um við reddingum svo að hann
upplifði ekki hugarvíl af óvissu og
ráðaleysi.
Þrátt fyrir allt hélt hann bless-
unarlega áfram að vera gamli
góði pabbi; vinnusamur, rólyndur
og notalegur. Það var alltaf und-
arlega mikill friður yfir honum
síðustu æviárin. Það var nánast
eins og hann fyndi fyrir nýju jafn-
vægi, án orða. Þannig ferðaðist
hann á endanum, yfirvegað, yfir í
nýjan heim á nýársdag.
Ég er þakklátur. Ég þakka
fyrir að hafa átt góðan pabba. Ég
þakka fyrir að hafa haft hann
svona lengi með mér og ég er feg-
inn því að hann þjáðist ekki mikið
undir það síðasta. Ég er líka
þakklátur fyrir tækifærin sem ég
fæ á hverju nýju ári héðan í frá til
að endurnýja stolt mitt yfir að fá
að bera einstakt föðurnafn. Berg-
hreinsson.
Takk fyrir pabbi. Takk fyrir
allt.
Þorsteinn Guðni
Berghreinsson.
Meira: mbl.is/minningar
Berghreinn Guðni
Þorsteinsson
Elsku amma.
Það lifir í minn-
ingum okkar þegar
við komum í heimsókn hvað þú
varst dugleg að spila við okkur og
spjalla. Þegar dyrabjallan eða
síminn hringdi, hljópstu til að
ansa, eins og þú sagðir, enda hafð-
ir þú einstaklega gaman af því að
spjalla í símann og fá heimsóknir.
Það var alltaf gaman að koma í
Goðheima. Það má þó bæta því
góðlátlega við að oftast þurfti
maður að hringja nokkrum sinn-
um til að ná í gegn, enda var mikið
talað í símann á þessum bæ.
Þvílíkur nagli og fyrirmynd
Ingigerður
Guðmundsdóttir
✝ IngigerðurGuðmunds-
dóttir fæddist 1.
febrúar 1921. Hún
lést 12. janúar
2018.
Útför Ingigerðar
fór fram 19. janúar
2018.
sem þú varst og
veittir þú okkur mik-
inn innblástur í að
fylgja eigin höfði og
sannfæringu. Sjálf
settir þú gott for-
dæmi með því að
halda stórt heimili
og vinna utan heim-
ilis, sem þótti
kannski óvenjulegt í
þinni tíð. Þess á milli
varstu dugleg að
fara í húsmæðraorlof í Skaga-
fjörðinn, hitta systur þínar og vin-
konur. Það var aðdáunarvert hvað
þú varst dugleg að prjóna á barna-
barnabörnin þín. Guðrún Fjóla
hefur fengið ófáa vettlinga frá þér.
Það er meira að segja ennþá til
skúffa af vettlingum og ullarsokk-
um niðri í Goðheimum svo engum
verði nú örugglega kalt. Meira að
segja yngstu tvö barnabarnabörn-
in í okkar legg, Árdís Ósk og Þór,
hafa fengið sérsaumuð tuskudýr
frá þér núna síðustu jól.
Elsku amma, þín verður sárt
saknað og við hugsum til þín með
hlýju og kærleik.
Þín barnabörn,
Fanney, Sindri, Þórdís,
Magni Mar
Elsku amma.
Þegar við lokum augunum og
hugsum um þig, sjáum við þig
standa í dyragættinni með þitt
einlæga og fallega bros um leið og
við hlaupum upp stigann til þess
að faðma þig. Við höldum áfram að
leyfa huganum að reika, og hugs-
um um allar yndislegu minning-
arnar frá Goðheimum. Við finnum
fyrir hlýjunni þegar þú faðmar
okkur þétt. Við finnum lyktina af
nýbökuðum pönnukökum þegar
við komum inn um dyragættina.
Við finnum bragðið af kleinunum
og flatkökunum sem við fengum
heim með okkur í poka því þú bak-
aðir svo mikið. Við hlæjum yfir
minningunum þegar þú leyfðir
okkur að gramsa í fataskúffunum
þínum og leika leikrit fyrir ykkur
afa með fallegu sjölunum og
hönskunum þínum. Við finnum
bragðið af súra rabarbaranum
sem við rifum upp saman úti í
garði og ekki má gleyma glæru
sykurskálinni til að dýfa honum í.
Við munum eftir öllum stundun-
um við að spila. Ekki má heldur
gleyma því þegar við fylgdumst af
aðdáun með þér sauma og dáð-
umst að hæfileikum þínum þar
sem þú gast töfrað fram fallega
flík á stuttum tíma og prjónað
hlýja vettlinga á okkur öll á örfá-
um dögum. Við munum eftir því
þegar þú leyfðir okkur að búa til
royal-búðing alveg sjálf og þú
sagðir ekkert þó við borðuðum á
okkur gat, enda var mikilvægt að
enginn kæmi svangur út frá
ömmu og afa.
Þegar hugurinn reikar nær
fullorðinsárunum sjáum við þig á
fleygiferð í Kringlunni og hlaup-
andi um í Bónus af því að setning-
arnar „sitja kyrr“ og „slappa af“
eru ekki til í þinni orðabók. Við
sjáum þig dansa í brúðkaups-
veislu, með mikla útgeislun og
gleði í hjarta, og hugsum það sem
allir hugsa: „Vá hvað ég á glæsi-
lega ömmu.“ Við hættum ekki að
spila saman þótt við værum orðin
eldri. Þér fannst svo gaman að
spila og það voru ófá ólsen ólsen
og rommí-spil tekin, bæði með
okkur og langömmubörnunum.
Við endum þetta minningaferða-
lag á rólegu spjalli í stofunni í Goð-
heimum þar sem við síðan kyssum
þig bless og þökkum fyrir daginn.
Þegar við göngum út og snúum
okkur við, þá sjáum við þig vinka
með bros á vör.
Elsku amma, við erum enda-
laust þakklát fyrir alla þína ást og
umhyggju sem þú hefur veitt okk-
ur. Þú ert fyrirmynd okkar og þín
er sárt saknað.
Ingigerður Guðmundsdóttir,
Edda Guðmundsdóttir,
Rannveig Ása
Guðmundsdóttir,
Magnús Ari Guðmundsson.
Elsku amma mín, vinkona, fyr-
irmynd og stoð og stytta í gegnum
ævina, er fallin frá. Ég á eftir að
sakna hennar alveg rosalega mik-
ið – meira en orð fá lýst. Hún er
sterkasta manneskja sem ég hef
kynnst.
Amma var hversdagshetja.
Hún var aldrei mikið fyrir sviðs-
ljósið eða gort af afrekum sínum
þótt afrekin hafi verið mörg og
stór og haft áhrif á fjölmarga í
kringum hana. Hún gerði bara
það sem hún taldi sig þurfa að
gera til að aðrir hefðu það gott.
Hún kallaði sig aldrei femínista í
mín eyru en er mesti kvenskör-
ungur sem ég veit um. Hún hvatti
fólk til að elta drauma sína og var
alltaf til staðar til að hlusta og
veita manni stuðning af öllu tagi.
Sem móðir og amma barðist hún
alla ævi fyrir því að fjölskylda
hennar stæði saman, hefði það
sem best og kæmist sem lengst í
lífinu.
Það er óhætt að fullyrða að hún
hafi náð öllum sínum markmiðum
fyrir löngu enda talaði hún sjálf á
þeim nótum.
Gjafmildi hennar var gríðarleg
og einskorðaðist ekki við tíma og
fé. Hún gaf og gaf og gaf og virtist
samt alltaf eiga nóg eftir, hvort
sem það var kærleikur eða kaffi.
Og bannaði öðrum að gefa sér eitt-
hvað. Meira að segja þegar hún lá
sjálf í sjúkrarúmi var hugur henn-
ar fyrst og fremst hjá öðrum.
Amma, þín verður sárt saknað
en minningar mínar um þig, kær-
leika þinn og þann stuðning sem
þú veittir mér alla tíð munu fylgja
mér til æviloka. Þú gerðir mig að
betri manni en ég hefði annars
verið. Hvíl í friði, elsku amma mín.
Geir Ágústsson.