Morgunblaðið - 20.01.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.01.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kynnti í gær nýja stefnu landsins í varnarmálum. Sagði hann meðal annars að Banda- ríkjunum stafaði aukin ógn frá Kín- verjum og Rússum og að yfirburðir Bandaríkjahers væru ekki lengur jafnmiklir og þeir hefðu verið. „Herinn er ennþá sterkur, en sam- keppnishæfni hans hefur minnkað á öllum sviðum hernaðar – lofti, láði, legi, í geimnum og á netinu – og mun halda áfram að minnka,“ sagði Matt- is og kallaði eftir því að Bandaríkja- þing myndi ekki minnka fjárframlög alríkisins til hersins á næstu árum. Þá þyrfti að mati stjórnvalda að fjölga í herliði Bandaríkjahers og undirbúa hann betur undir hugsan- leg átök. Þurfa að bregðast við Það vakti athygli að hryðjuverk voru ekki lengur talin helsta ógnin við öryggi Bandaríkjanna, líkt og raunin hefur verið nánast frá alda- mótum. Þess í stað sagði Mattis að Kínverjar og Rússar sæktust eftir því að breyta skipan alþjóðamála svo að hún yrði meira í takt við stjórnar- farið í þessum ríkjum. Sagði Mattis að bæði þessi ríki hefðu á síðustu ár- um byggt upp herlið sitt og við því þyrfti að bregðast. Breytingarnar á varnarmálastefn- unni þóttu í takt við þjóðaröryggis- stefnu Donalds Trump Bandaríkja- forseta sem hann kynnti í desember, þar sem þessi tvö ríki voru sérstak- lega nefnd. Bæði Kínverjar og Rúss- ar mótmæltu þá, og sögðu Kínverjar stefnuna bera vott um „hugsunar- hátt kalda stríðsins“. Loftslagsbreytingar ekki ógn Þá vakti það athygli að í hinni nýju varnarmálastefnu var búið að fjar- lægja loftslagsbreytingar sem hugs- anlega ógn við öryggi Bandaríkj- anna. Fyrirrennari Trumps, Barack Obama, ákvað að loftslagsbreytingar ættu að teljast til ógna við öryggi Bandaríkjanna, en Trump hefur sjálfur lýst yfir efasemdum um vís- indin sem liggi að baki og jafnvel haldið því fram að loftslagsbreyting- ar séu ekkert annað en gabb. Mattis hefur hins vegar haldið því fram að breytingar á loftslagi jarðar geti ýtt undir óstöðugleika í löndum þar sem Bandaríkin séu með her- stöðvar, og þannig ógnað varnar- málahagsmunum landsins. Hryðjuverk ekki helsta ógnin  Ný varnarmálastefna Bandaríkjanna kynnt í gær  Loftslagsbreytingar ekki lengur talin öryggisógn  „Aukin ógn“ frá Kínverjum og Rússum í fyrirrúmi AFP Varnarmál Donald Trump Bandaríkjaforseti (t.h.) og Mike Pence varafor- seti (fyrir miðju) funduðu með Jim Mattis varnarmálaráðherra (t.v.) um varnarmálastefnu landsins í fyrradag, en stefnan var kynnt í gær. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hélt upp á skírn Jesú Krists í gær að hætti rétttrúnaðarkirkjunnar með því að dýfa sjálfum sér í ískalt vatn, en milljónir manna gerðu slíkt hið sama víðsvegar um Rússland. Fimm gráðu frost var í lofti þegar forsetinn steig of- an í sérútbúna laug í Seliger-vatni, sem er um 350 km norðvestan við Moskvu. „Er kalt?“ spurði blaðamaður Pútín og fékk svarið: „Nei, þetta er frábært.“ AFP Pútín dýfir sér í kalt vatn Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, tilkynnti í gær að hún ætti von á sínu fyrsta barni. Hún verður að öllum líkindum fyrsti forsætis- ráðherra lands- ins til þess að fæða barn á miðjum valdatíma sín- um. Ardern á von á sér í júní. Ardern tók við embættinu í októ- ber síðastliðnum, en hún tók við leiðtogaembætti nýsjálenska Verkamannaflokksins fyrr á árinu. Vakti Ardern meðal annars at- hygli í kosningabaráttunni fyrir að segja að ólétta og barnsburður ætti ekki að hafa nein áhrif á atvinnu- möguleika kvenna. Svaraði hún þar með spurningum þeirra, sem vildu vita hvort hún hygði á barneignir í embætti. Ardern og lífsförunautur hennar Clarke Gayford voru himinlifandi með tíðindin og sagði Ardern að þau hefðu verið mjög óvænt, þar sem efasemdir höfðu verið uppi um hvort þau gætu eignast börn. Forsætisráðherrann tilkynnir um óléttu Jacinda Ardern NÝJA-SJÁLAND Vísindamenn við Johns Hopkins há- skólann í Bandaríkjunum tilkynntu í fyrrinótt að þeir hefðu þróað nýja tegund af blóðprufu, sem myndi gera læknum kleift að finna átta mismun- andi tegundir af æxlum áður en þau fá tækifæri til þess að dreifa sér víð- ar um líkamann. Aðferðin gæti liðk- að fyrir því að greina krabbamein snemma og þar með aukið líkurnar á bata. Það mun þurfa frekari prófanir á aðferðinni áður en hægt verður að bjóða sjúklingum upp á blóðprufuna, en vísindamennirnir gerðu ráð fyrir því að rannsóknin myndi einungis kosta um 500 bandaríkjadali, eða sem nemur rúmlega 50.000 íslensk- um krónum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í tímaritinu Science og kom þar fram að aðferðin ætti að geta fundið krabbamein í um 70% til- vika. Meinin sem um ræðir voru krabbamein í eggjastokkum, lifur, maga, brisi, vélinda, görnum, lung- um og brjóstum. Ekkert próf hefur hingað til verið til til þess að finna fimm fyrstnefndu meinin fyrir fólk sem býr við meðalhættu á að fá slík mein. Þá kom fram í rannsókninni að í 83% tilfella gat blóðprufan sagt fyr- ir um hvar í líkamanum krabbamein- ið var. Hin nýja aðferð sameinar grein- ingu á 16 mismunandi krabbameins- genum við magn tíu mismunandi prótínlífmerkja í blóðinu. „Endan- legt markmið er að finna krabba- mein ennþá fyrr, jafnvel áður en nokkurra annarra einkenna er vart,“ sagði í rannsókninni. Finna meinið í blóðinu  Ný aðferð til þess að skima fyrir krabbameinsfrumum með blóðprufu  Stefnt að því að greina mein fyrr en áður AFP Geislatæki Ný blóðrannsókn gæti greint krabbamein fyrr. H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr. og EBITDA 25-40 mkr. • Þekkt verslun með tölvur, síma og fylgihluti á frábærum stað. Velta yfir 300 mkr. • Vel innréttað kaffihús í miðbæ Reykjavíkur. Tækifæri fyrir öfluga aðila að byggja enn frekar upp. • Fjölskyldufyrirtæki sem vinnur að hönnun, prentun og framleiðslu vara og lausna til fyrirtækja. Velta um 70 mkr. og hátt hagnaðarhlutfall. • Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda. • Sérhæfð fiskvinnsla í vönduðu 350 fm leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Velta um 260 mkr. Hagnaður af rekstri. • Verslun sem byggir á erlendri skartgripalínu með tvær verslanir í borginni. Stöðugur rekstur og góð afkoma. • Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug undanfarin ár og jákvæð afkoma. • Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting. • Hótelfasteign á Norðausturlandi. Um er að ræða 17 herbergja hótel á stórri lóð með mikla stækkunarmöguleika. Herbergi hafa nýlega verið endurnýjuð. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is ICQC 2018-20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.