Morgunblaðið - 20.01.2018, Síða 16
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Vitnaleiðslur í markaðsmisnotkun-
armáli Glitnis héldu áfram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Ingi Rafnar
Júlíusson, fyrrverandi forstöðumað-
ur verðbréfamiðlunar Glitnis, sagði í
vitnisburði sínum að hann hefði verið
með allar sínar eignir undir í hluta-
bréfum bankans, „sem mér fannst
vera mjög góð ráðstöfun á þessum
tíma, enda hafði ég trú á því sem var
að gerast í þessu fyrirtæki“. Hann er
einn fjórtán starfsmanna Glitnis sem
fengu lán frá bankanum í maí árið
2008 til kaupa á hlutabréfum í bank-
anum sjálfum. Ingi sagðist ekki
muna nákvæmlega hvernig þau við-
skipti komu til, en grunar að hann
hafi fyrst heyrt af þeim í gegnum
sinn næsta yfirmann, Jóhannes
Baldursson, sem er ákærður í mál-
inu. Alls voru 6,77 milljarðar kr. lán-
aðir til 14 einkahlutafélaga í eigu
starfsmanna Glitnis 15. og 16. maí
2008 og fyrir þessi útlán er Lárus
Welding, þá forstjóri Glitnis, ákærð-
ur í tveimur liðum, fyrir markaðs-
misnotkun og umboðssvik. Ingi
sagði dóminum að starfsmenn bank-
ans á þessum tíma hefðu haft mikla
trú á bankanum og hefðu „suðað“ um
að fá að kaupa hlutabréf í honum. Á
þessum tíma hefði verið „kúltúr“ fyr-
ir því innan íslenskra fjármálastofn-
ana að starfsmenn ættu eignarhluti
og gætu notið þess persónulega ef
það gengi vel. Hann telur að bankinn
hafi boðið starfsmönnum að kaupa
hlutabréf til þess að festa þá í sessi á
erfiðum tímum og tengjast fyrirtæk-
inu sterkari böndum. Bjarni Ár-
mannsson, sem var bankastjóri
Glitnis fram til ársins 2007, bar einn-
ig vitni og sagðist aldrei almennilega
hafa skilið þá umræðu að Glitnir
hefði ekki verið með formlega við-
skiptavakt á viðskiptum með eigin
hlutabréf. „Ég hef alltaf litið á það
þannig að bankinn hafi verið með
viðskiptavakt á eigin hlutum,“ sagði
Bjarni, sem í aprílmánuði 2007 sendi
FME bréf þess efnis að Glitnir væri
með virka viðskiptavakt með sínum
eigin hlutabréfum.
Magnúsi mátti vera ljóst að
hann yrði ekki ákærður
Grímur Grímsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu, var meðal vitna. Athygli
var vakin á því að Magnús Pálmi
Örnólfsson, fyrrverandi yfirmaður
deildar eigin viðskipta hjá Glitni, var
ekki ákærður í markaðsmisnotkun-
armáli bankans, en þrír starfsmenn
eigin viðskipta eru ákærðir í málinu
og var Grímur spurður út í samskipti
lögreglu við Magnús Pálma af verj-
anda Jóhannesar Baldurssonar,
Reimari Péturssyni. Grímur greindi
frá því að Magnúsi hefði mátt vera
ljóst er hann gaf framburð sinn að
hann yrði ekki ákærður í þessu máli,
frekar en í Stím-málinu. Legið hefði
fyrir að ef hann myndi breyta fram-
burði sínum í Stím-málinu á þá vegu
sem hann hafði lýst sig viljugan að
gera á fundum með lögreglu, yrði
fallið frá saksókn á hendur honum.
Hins vegar kom fram í svörum
Gríms við spurningum Björns Þor-
valdssonar saksóknara að ekki hefði
sérstaklega verið samið við Magnús
Pálma um fráfall sakargifta í þessu
máli. Spurði Björn Grím einnig að
því hvort framburður Magnúsar
Pálma við rannsóknina hefði mögu-
lega litast af því að hann hefði talið
svo vera. Þá greip Arngrímur Ísberg
dómsformaður inn í og sagði við
Björn saksóknara að hann gæti nú
ekki beðið Grím sem vitni um að
leggja mat á það hvort framburður
Magnúsar væri litaður af því á ein-
hvern hátt.
Reimar Pétursson, verjandi Jó-
hannesar, spurði Grím út í misbresti
sem virðast hafa orðið á eyðingu
upptakna af símtölum á milli hans og
skjólstæðings síns. Grímur viður-
kenndi að þeim hefði verið eytt of
seint, en ákvæði laga segir til um að
þeim skuli eytt jafnóðum.
Reimar fullyrti að símtöl á milli
sín og Jóhannesar hefðu verið hlust-
uð. „Ég veit ekki til þess að það hafi
verið hlustað á símtöl á milli verj-
enda og sakborninga. Þau eru tekin
upp, en ég hygg að þau hafi ekki ver-
ið hlustuð,“ sagði Grímur við því.
Vitnaleiðslur í málinu halda áfram
á mánudaginn.
Höfðu mikla trú á Glitni
Vitnaleiðslur í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis Starfs-
menn Glitnis töldu hlutabréf í bankanum góða ráðstöfun
Morgunblaðið/Hari
Glitnir Aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is
Allt fyrir raftækni
Hljómtæki
Cambridge Audio Air 100 - Bluetooth hátalari
Verð
59.900 kr.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég fagna þessari umræðu sem
loksins er farin af stað. Fólk gerir
sér grein fyrir því að hreina loftið og
hreina vatnið er ekki sjálfgefið.
Staðan er ekki eins góð og við
kannski héldum. Við berum mikla
ábyrgð,“ segir Sabine Leskopf, for-
maður heilbrigðisnefndar Reykja-
víkur.
Á síðasta fundi heilbrigðisnefndar
létu fulltrúar Samfylkingar, Bjartr-
ar framtíðar og Vinstri grænna bóka
ítrekun fyrri ábendingar um að lög-
festa bæri heimildir fyrir heil-
brigðisnefndir sveitarfélaga til að
grípa til tímabundinna ráðstafana
þegar líklegt sé að ástand loftgæða
fari yfir heilsuverndarmörk eða sé
heilsuspillandi.
„Þetta getur til dæmis falið í sér
að banna umferð stórra vörubíla eða
bíla á nagladekkjum á ákveðnum
dögum þegar nauðsyn er talin á,“
segir Sabine. Í téðri bókun segir
jafnframt að auka þurfi heimildir og
auðvelda boðleiðir til að fyrirskipa
hreinsun gatna og rykbindingu.
Þá er líka mælst til þess að tak-
marka frekar notkun flugelda sem
innihalda mikið magn af þung-
málmum og veita heimild til að tak-
marka almennt notkun á flugeldum
þegar aðstæður benda til þess að
heilsufarsleg hætta geti skapast af
þeim.
„Farið verði í átak um að tak-
marka neikvæð áhrif flugelda á loft-
gæði innan marka borgarinnar, á
nærliggjandi svæði eins og vatns-
verndarsvæði og sjó, slysahættu
sem og velferð dýra. Heilbrigðis-
nefnd leggur mikla áherslu á að
Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík fái
fjárveitingu fyrir búnaði til að vakta
fína svifrykið PM2,5 sem er hvað
hættulegast heilsu,“ segir í bók-
uninni.
„Þetta ástand um áramótin var al-
veg fyrirsjáanlegt. Við vissum að
veðuraðstæður yrðu með þessum
hætti. Þegar vindáttin er óhagstæð
þá bönnum við brennur en það er
ekki einu sinni hefð fyrir því að ráð-
leggja fólk að sprengja minna. Þó
var alveg bókað að mengun færi yfir
heilsuverndarmörk,“ segir Sabine.
Vilja geta tak-
markað umferð
Heilbrigðisnefnd vill rýmri heimildir
Morgunblaðið/Hari
Mengun Flugeldasprengingar orsökuðu mengun í Reykjavík á gamlárs-
kvöld. Heilbrigðisnefnd vill takmarka neikvæð áhrif þeirra á loftgæði.
Það ræðst 3. mars hvaða lag fer fyrir
hönd Íslands í Eurovision-söng-
keppnina þegar úrslitakvöld
Söngvakeppni 2018 verður haldið í
Laugardalshöll að viðstaddri er-
lendri Eurovision-stjörnu.
Rúmlega 200 lög bárust í Söngva-
keppnina 2018 og hefur dómnefnd
valið 12 lög sem keppa til úrslita.
Lögin 12 eru flutt bæði á íslensku
og ensku á songvakeppni.is. Lögin
hafa líka verið gefin út á spotify.com,
tonlist.is og youtube.
Flytjendur laganna í ár verða: Ar-
on Hannes, Áttan, Sonja Valdín og
Egill Ploder, Ari Ólafsson, Fókus-
hópurinn, Dagur Sigurðarson, Stef-
anía Svavars, Agnes Marinósdóttir
og Regína Lilja Magnúsdóttir, Þór-
unn Antonía, Guðmundur Þórarins-
son, Þórir Geir Guðmundsson og
Gyða Margrét Kristjánsdóttir, Tóm-
as Helgi Wehmeier og Sólborg Guð-
brandsdóttir, Rakel Pálsdóttir og
hljómsveitin Heimilistónar.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
er kynnir keppninnnar.
Undanúrslit fara fram í Háskóla-
bíói 10. og 17. febrúar. Almenningi
gefst færi á að kaupa miða á undan-
úrslit og úrslitin og hefst miðasala
25. janúar á tix.is. ge@mbl.is
Eurovision Heimilistónar komust í undankeppni Söngvakeppni 2018 með
lagið Kúst og fæjó. Sigurvegari keppninnar fer með lagið í Eurovision 2018.
Heimilistónar keppa
í Eurovision 2018
RÚV tilkynnti 12 lög til þátttöku í ár