Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Áþján ungrafíkla ogþáttur fíkniefnaneyslu í fjölgun öryrkja í samfélaginu er umfjöllunarefni Ingu Sæland, þingmanns og formanns Flokks fólksins, í pistli á leið- arasíðu Morgunblaðsins í gær. Í pistli sínum segir Inga frá heimsókn til SÁÁ fyrr í mán- uðinum og hrósar starfinu sem þar er unnið. Síðan segir hún: „Hugsið ykkur að árið 2017 létust 32 áfengis- og vímuefna- sjúklingar undir fertugu, 14 þeirra voru undir þrítugu. Dauðsföllin voru fimm fleiri en árið áður. Þessa auknu dánar- tíðni má rekja til aukningar á notkun sterkra ópíóða eða morfínskyldra lyfja í æð.“ Inga vitnar til orða Þórarins Tyrfingssonar um að stíflan sé brostin í þessum málum og á síðustu tveimur árum hafi yf- irvöld misst stjórn á vand- anum. Peninga vanti til að bregðast við og biðlistinn á Vogi hafi aldrei verið lengri. Fjallað hefur verið um þennan vanda í fréttaskýr- ingum í Morgunblaðinu und- anfarið. Í byrjun mánaðar kom fram að mikil fjölgun hefði orðið í þeim hópi sem leitar sér þjónustu í verkefni sem nefnist Frú Ragnheiður og snýst um að hjálpa fíklum að takmarka skaðann af neysl- unni. Frú Ragnheiður er bíll sem sex kvöld í viku er á ferð í borginni og veitir heimilis- lausum og þeim, sem nota vímuefni í æð, hjúkrunar- og nálaskiptaþjónustu. Í grein- inni er rætt við Svölu Jóhann- esdóttur, verkefnastýru Frú Ragnheiðar, og kemur fram í máli hennar að 120 ein- staklingar leiti nú til Frú Ragnheiðar á mánuði. 80% þeirra noti vímuefni í æð og meirihlutinn sé heimilislaus. Hún segir að frá 2012 til 2017 hafi heimilislausum fjölgað um 95% í Reykjavík og nú séu 349 skráðir heimilislausir í borg- inni. Fleiri sofi nú úti en áður og við það geti líkamlegu og andlegu ástandi hrakað mikið. Ópíóðar eða morfínskyld lyf á borð við Oxycotin, Contalgin og Fentanyl hafa valdið mikl- um skaða í Bandaríkjunum. Í sumum landshlutum er ástandið þannig að í heilu bæj- arfélögunum er vart að finna fjölskyldu, sem ekki hefur misst einhvern nákominn vegna þessara lyfja. Um 90 manns láta lífið á degi hverj- um í Bandaríkjunum af völd- um ópíóða eða svipaður fjöldi og í bílslysum og er talað um faraldur. Þessi lyf eru notuð til að stilla verki og eru einstaklega ávana- bindandi. Þeir, sem ánetjast þeim, byrjuðu oft að neyta þeirra við verkjum eftir slys. Vandinn er rakinn til þess að lyfin hafi verið gefin í of miklum mæli. Notkun þeirra leiðir síðan iðu- lega út í heróínneyslu. Hér á landi hefur verið brugðist við með því að tak- marka aðgengi að morfín- skyldum lyfjum. Það voru tímabærar aðgerðir og nauð- synlegar. Hins vegar hefur það valdið erfiðleikum meðal þeirra, sem eru háðir þessum lyfjum. Svala Jóhannesdóttir segir að minna komi af morfín- skyldum lyfjum inn á ólöglega markaðinn eftir að nýr lyfja- gagnagrunnur var tekinn í notkun og þar með hert á eft- irliti með lyfjaávísunum. Nú kosti ein 100 mg tafla af Con- talgin 8.000 krónur, en hafi fyrir rúmu ári kostað 4.000 til 5.000 krónur. Þetta hafi leitt þess að sumir hafi skipt yfir í Fentanyl-plástra. Þá fáist meira fyrir peninginn, en um leið sé það hættulegasta efnið til að sprauta sig. Afleiðingin hafi verið aukning á of- skömmtun af morfínskyldum lyfjum hér á landi og í fyrra hafi nokkrir skjólstæðingar Frú Ragnheiðar dáið úr of- skömmtun. Svala segir að bregðast þurfi við. Með því að leyfa Frú Ragnheiði að nota lyfið Nalox- one mætti til dæmis koma í veg fyrir dauðsföll af völdum of stórra skammta. Naloxone kemur í veg fyrir ofskömmtun morfínskyldra lyfja, en er hættulaust og víða dreift til fíkla. Hún nefnir einnig að með því að opna neyslurými hér yrði til athvarf þar sem fólk geti komið með sín vímuefni og notað í öruggu, hreinu og áhættulausu umhverfi þar sem sérþjálfað starfsfólk er til taks. Nú er hafinn undirbún- ingur í velferðarráðneytinu á vegum Svandísar Svavars- dóttur að opnun slíkrar að- stöðu fyrir langt leidda vímu- efnaneytendur. Það þarf að horfast í augu við það að samhliða aðstoð við að fara í meðferð og hætta neyslu þarf að hjálpa þeim fíklum sem ekki ráða við að stíga það skref. Með slíkri að- stoð væri hægt að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma og draga úr þeim skaða sem neyslan veldur og veita at- hvarf án þess að dæma. Neysla morfínlyfja eykst og dauðs- föllum vegna of stórra skammta hef- ur fjölgað} Aðstoð við fíkla H inn 12. janúar árið 1993 var spenna á Alþingi. Greidd voru atkvæði um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES). EES var í upphafi hugsað sem biðstofa fyrir fulla aðild að Evr- ópusambandinu, því með samningnum var Evrópulöggjöf samræmd á flestum sviðum. Þrír menn eiga öðrum fremur heiðurinn af því að skipa Íslandi í fylkingu Evrópusam- bandsþjóða, með aukaaðild að sambandinu: Davíð Oddsson forsætisráðherra, Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra og Björn Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Samningurinn er mesta pólitíska afrek þeirra allra. Þar var við ramman reip að draga og andstæðingar fóru með fleipur eins og oft vill verða í slíkum umræðum. Páll Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins, var stóryrtur: „Við afsölum okkur frumburðarrétti okkar Íslendinga til landsins og auðlinda þess til lands og sjávar. Þessi samningur kemur til með að færa okkur ósjálfstæði, atvinnuleysi, fátækt og auðnuleysi.“ Eggert Haukdal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði samninginn jafngilda innlimun: Það liggur nú fyrir að við höfum látið undan þrýstingi EB sem krefst auð- linda okkar í stað tollfríðinda. Það blasir við að EB fái aðgang að landhelginni. Spyrja má: Til hvers var þá barist fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögu ef EB á að móta fiskveiðistefnu Íslendinga hér eftir? Og til hvers var barist við Dani fyrir sjálfstæði og lýðveldi um aldarað- ir?“ Ragnar Arnalds, þingmaður Alþýðubandalagsins, taldi sig geta séð fyrir óorðna tíma. „Séð út frá hagsmunum Íslendinga er Evrópska efnahagssvæðið tilraun sem mistókst.“ Allir vita að þetta reyndust hrein öf- ugmæli. EES-samningurinn færir Íslend- ingum mikla velsæld og sem og fjórfrelsið um frjálsa för fólks, fjármagns, vöru og þjónustu. Jafnframt tryggir hann að hér er sama löggjöf og annars staðar á svæðinu. Enn vantar okkur samt evruna, betri land- búnaðarstefnu og sæti við ákvarðanaborðið. Björn Bjarnason skýrði aðalatriðin: „Þátt- takan í Evrópska efnahagssvæðinu kallar á ný vinnubrögð, meiri aga og virðingu fyrir almennum reglum. Geðþóttaákvarðanir stjórnvalda verða að víkja fyrir almennum skilyrðum sem öllum eru sett. Á svæðinu eiga stórir og smáir að sitja við sama borð. Komið er á fót sameiginlegum stofnunum til að tryggja það. Það hljómar því eins og argasta öfugmæli að heyra íslenska þingmenn hallmæla þessum stofnunum eða telja þátttöku í þeim brjóta í bága við íslenska stjórnskipun.“ Það þarf hugrekki til þess að vera þjóð meðal þjóða. Alþingi sýndi djörfung árið 1949 þegar Ísland gekk í NATO, árið 1970 þegar þjóðin gekk í EFTA og árið 1993 þegar samþykkt var aukaaðild að Evrópusam- bandinu í gegnum EES-samninginn. Sérhagsmunir viku fyrir almannaheill. Takk, Davíð, Jón Baldvin og Björn. Til hamingju með 25 ára afmælið! Benedikt Jóhannesson Pistill Til hamingju með afmælið Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Lærdómurinn fyrir íslenskaunglinga, sem eru enda-laust að senda nekt-armyndir af sér í gegn- um Snapchat, er sá að þegar fólk áframsendir nektarmyndir af fólki sem er börn í lagalegum skilningi, þá er það að deila barnaklámi,“ segir María Rún Bjarnadóttir, doktorsnemi í lögfræði við háskól- ann í Sussex á Bretlandi. Tvö mál er snúast um staf- rænt kynferðisofbeldi hafa vakið athygli að undanförnu. Í Dan- mörku hafa 1.004 ungmenni verið ákærð fyrir að hafa deilt kynlífs- myndbandi af 15 ára krökkum í gegnum Facebook Messenger. Á Norður-Írlandi fór 14 ára stúlka í mál við Facebook eftir að maður birti nektarmynd af henni á svo- kallaðri „skammar“-síðu. Í báðum tilvikum hefur Face- book sýnt að miðillinn hefur stjórn á efni sem þar birtist. Því vakna spurningar um hvort hægt sé að lögsækja Facebook vegna óviður- kvæmilegra myndbirtinga. María Rún telur að bæði þessi mál eigi sér mikilvægan samnefnara og að ekki sé endilega hægt að líta svo á að þetta eigi við öll mál. Flokkað sem barnaklám „Lykilatriðið í þessum tveimur málum er að þarna er um myndir af börnum að ræða. Þetta er flokk- að sem barnaklám og löggjöfin í öllum ríkjum er miklu stífari þegar um slíkt er að ræða. Nektarmyndir af börnum undir 15 ára flokkast sem barnaníð. Ef þessi mál hefðu varðað fullorðna einstaklinga þá hefðu þau ekki endilega farið svona.“ María segir að af fréttaflutn- ingi frá Danmörku að dæma virðist sem Facebook hafi látið lögregluna vita að verið væri að dreifa þessu efni á Messenger-forriti miðilsins. „Sem er athyglisvert því það sýnir að fylgst er með innihaldinu. Þeir eru að fylgjast með því hvort verið sé að brjóta þeirra reglur. Það gilda sömu reglur um Facebo- ok og Messenger en aðeins aðrar reglur um Whatsapp og Instagram. Þetta kemur almennum notendum við. Ef þú ert að dreifa einhverju ólöglegu máttu vita að Facebook er á vaktinni. Þetta er merki um það að miðillinn er vakandi fyrir því hvort það eigi sér stað lögbrot í gegnum hann eða ekki.“ María segir að málið á Norð- ur-Írlandi sé öðruvísi, það hafi ver- ið einkamál sem samið var um áð- ur en það fór fyrir dóm. Því sé ekki hægt að vita nákvæmlega hvað lá til grundvallar niðurstöð- unni. „Dreifing þessarar myndar er í andstöðu við reglur Facebook. Þar er kerfi sem virkar þannig að ef mynd er hlaðið inn og einhver tilkynnir að hún sé barnaklám og hún er í kjölfarið merkt sem slík, þá eigi ekki að vera hægt að hlaða viðkomandi mynd aftur inn á Fa- cebook. En í þessu tilviki var það hægt. Það er kannski ekki hægt að draga víðtæka niðurstöðu af þessu máli en það er hins vegar áhuga- vert hvort samfélagsmiðlar verði látnir sæta ábyrgð á efni sem aðrir einstaklingar hlaða inn á þá. Hug- myndafræðin á bakvið þá hefur grundvallast á því að miðillinn beri ekki ábyrgð á því sem þriðji aðili setur upp.“ Ábyrgð samfélags- miðla nú til umræðu AFP Facebook Margir velta fyrir sér ábyrgð samfélagsmiðla á dreifingu efnis eftir að tvö mál er snúa að stafrænu kynferðisofbeldi komu upp. „Ég held að þetta ár og það næsta verði tíma- mótaár í um- ræðum um ábyrgð fyr- irtækja sem starfa á net- inu. Það var fyrirséð að það myndi sjóða upp úr þessum potti fyrr en síðar,“ segir María Rún Bjarnadóttir í samtali við Morgunblaðið. María nefnir sem dæmi að ný- lega hafi Þjóðverjar sett stranga löggjöf um hatursorðræðu á net- inu. Þá séu fyrir dyrum meiri- háttar breytingar á persónu- verndarlöggjöf í Evrópu. Í Bandaríkjunum sé nú mikil um- ræða um ábyrgð netmiðla. „Það er sótt að þessu kerfi beggja vegna Atlantshafsins.“ Sýður upp úr pottinum TÍMAMÓTAÁR FRAM UNDAN María Rún Bjarnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.