Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
Horft fram veginn Sólin gyllir ský á suðurhimni yfir veginum frá Krýsuvík í átt að suðurströnd Reykjanesskagans.
RAX
Ófremdarástand ríkir
í húsnæðismálum í
Reykjavík. Undir stjórn
Samfylkingarinnar og
annarra vinstri flokka
hefur sú stefna verið
mótuð að framboð lóða
eigi að vera takmarkað
og íbúðaverð hátt.
Þetta hefur þær af-
leiðingar í för með sér að
ungt fólk á í miklum
vandræðum með að
eignast eigið húsnæði og neyðist annað
hvort til að búa hjá foreldrum sínum
óeðlilega lengi eða leigja íbúð á háu
verði. Vegna margra ára aðgerðaleysis
meirihluta borgarstjórnar í húsnæðis-
málum er uppsöfnuð þörf orðin svo
mikil að framboð nýrra íbúða annar
engan veginn eftirspurn. Verð á nýjum
íbúðum miðsvæðis er svo hátt að það
er yfirleitt ekki á færi venjulegs launa-
fólks að ráða við það.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
ber mikla ábyrgð á ástandi húsnæðis-
mála í Reykjavík. Þegar hann var for-
maður skipulagsráðs borgarinnar á of-
anverðum valdatíma R-listans var
húsnæðisverð stórhækkað með hand-
afli, þ.e. með lóðaskorti annars vegar
og uppboðum á lóðum hins vegar.
Ótrúlegt er að helsti hugmyndafræð-
ingur þeirrar húsnæðisstefnu, sem
ungt fólk í Reykjavík sýpur nú seyðið
af, telji sig jafnframt vera rétta mann-
inn til að leysa vandann.
Leysum húsnæðisvandann
Reykjavík á mikið landsvæði sem
auðvelt er að breyta í lóðir með
skömmum fyrirvara. Á valdatíma
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
lagði hann metnað sinn í að tryggja
fjölbreytilegt framboð lóða á góðu
verði. Áhersla var þá vissulega lögð á
þéttingu byggðar en á sama tíma var
almenningi gefinn kostur á að kaupa
ódýrar lóðir í nýjum hverfum. Margir
byggðu sjálfir eða keyptu íbúðir í fjöl-
býlishúsum sem reist voru á vegum
byggingarsamvinnufélaga án hagn-
aðarsjónarmiða. Flestum var þannig
gert kleift að eignast eig-
ið húsnæði. Ýmsum
hentaði betur að leigja
og var leiga þá til-
tölulega lág miðað við
það sem nú er, enda
helst hún í hendur við
húsnæðisverð.
Úrbótatillaga felld
Á fyrsta borgarstjórn-
arfundi nýs árs flutti ég
tillögu fyrir hönd Sjálf-
stæðisflokksins, um að
hafist yrði handa við
skipulagningu nýs hverfis í Úlfars-
árdal í því skyni að draga úr lóðaskorti
í Reykjavík. Ég vil að borgin tryggi
gott framboð af íbúðum á hagstæðu
verði til einstaklinga sem vilja festa
kaup á fyrstu íbúð, t.d. með samstarfi
við félög og samtök sem rekin eru án
hagnaðarsjónarmiða.
Gagnvart núverandi íbúum Úlfars-
árdals er einnig mikilvægt að borgar-
stjórn standi við áður gefin fyrirheit
um uppbyggingu í hverfinu svo það
verði sjálfbært varðandi margvíslega
þjónustu. Í skipulagsvinnu vegna nýs
hverfis er því brýnt að eiga gott sam-
starf við íbúasamtökin í Grafarholti og
Úlfarsárdal sem og Knattspyrnu-
félagið Fram sem hefur tekið að sér að
reka íþróttastarfsemi í þessum hverf-
um.
Borgarstjórnarmeirihluti Samfylk-
ingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og
Vinstri grænna felldi umrædda tillögu
og ítrekaði þannig húsnæðisstefnu
sína sem byggist á lóðaskorti og háu
íbúðaverði.
Eftir Kjartan
Magnússon
»Ég vil að borgin
tryggi gott framboð
af íbúðum á hagstæðu
verði til einstaklinga og
fjölskyldna sem vilja
búa í eigin húsnæði.
Kjartan
Magnússon
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
kjartan@reykjavik.is
Eign fyrir alla
Það er engum vafa undirorpið
að í aðdraganda síðustu kosn-
inga til Alþingis kölluðu kjós-
endur eftir úrbótum í sam-
göngumálum þjóðarinnar. Það
er því ekki að undra að sú aukn-
ing á fjárveitingum til slíkra
verkefna sem samþykkt var á
Alþingi skömmu fyrir áramót
hafi valdið almenningi von-
brigðum.
Í þessari grein og þeim sem á
eftir munu fylgja mun ég leitast
við að greina þann vanda sem við blasir og
benda á þau verkefni sem ráðast verður í fyrr
en síðar svo unnt verði að byggja upp kerfi
samgangna sem svarar kröfum nútímans um
greiðar leiðir og umferðaröryggi.
Borgaryfirvöld hafa brugðist
Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu verð-
um vör við það á hverjum degi að dregist hefur
úr hömlu að bæta umferðarflæði og auka
greiðfærni, þótt umferð hafi aukist um 25% á
árunum 2006-2016. Með vaxandi fjölda bíla og
þá ekki síst bílaleigubíla sem fjöldi ferða-
manna nýtir sér, verða tafir sífellt meiri. Á
álagstímum myndast langar raðir bíla vegna
flöskuhálsa í Reykjavík með stóraukinni
mengun vegna útblásturs.
Það er augljóst að borgaryfirvöld hafa al-
gerlega brugðist skyldum sínum í þessu mál-
efni. Í stað þess að byggja upp umferðarmann-
virki til þess að mæta vaxandi umferð hafa þau
farið í gagnstæða átt, þrengt götur og torveld-
að greiðar og öruggar samgöngur – og í
þokkabót lagst gegn tillögum um mislæg
gatnamót á stofnbrautum – sem sannarlega
hefðu aukið umferðaröryggi og greitt fyrir
umferðarflæði. Minna má á að hættulegustu
gatnamót landsins eru á höfuðborgarsvæðinu
og öll ljósastýrð. Einnig er rétt að
halda því til haga að árið 2012 var
gert samkomulag á milli rík-
isstjórnar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og Samtaka sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu um að verja
allt að einum milljarði króna ár-
lega í að bæta þjónustu almenn-
ingssamgangna með það að mark-
miði að fjölga farþegum í
strætisvögnum. Um leið féllu
borgaryfirvöld frá óskum um ný
umferðarmannvirki í Reykjavík.
Óhætt er að segja að þessi tilraun
hefur algerlega mistekist, fjölgun
farþega í almenningssamgöngum
hefur nær engin orðið, en á meðan lengjast
biðraðir hvarvetna. Framtíðarsýn um þróun
samgangna virðist algerlega skorta hjá yf-
irvöldum í Reykjavík, en þess í stað er einblínt
á leiðir sem reynslan hefur sýnt að eru ill-
færar. Vonandi tekst íbúum í Reykjavík að
reka núverandi stjórnvöld í borginni af hönd-
um sér. Tækifæri til þess gefst í borgarstjórn-
arkosningum 25. maí nk.
Torvelda lagningu
Sundabrautar
Öllum er ljóst að umferðarþungi, t.a.m. á
Miklubraut er orðinn slíkur að óviðunandi er.
Á álagstímum á morgnana og síðdegis fara um
Ártúnsbrekku tugir þúsundir bifreiða. Sólar-
hringsumferð þar er nær 100 þúsund bílar.
Neðan brekkunnar eru umferðarþyngstu
gatnamót landsins, en jafnframt þau örugg-
ustu. Þau eru mislæg. Öllum ætti að vera ljóst
að þetta ástand getur ekki varað öllu lengur.
Brýnt er að draga úr umferð á þessum kafla og
augljósa leiðin til þess að svo megi verða er
bygging Sundabrautar. Umræða um Sunda-
braut hefur staðið allt of lengi. Ákvarðana og
athafna er þörf. Rétt er að halda því til haga að
yfirvöld í Reykjavík hafa ekki talið í sínum
verkahring að stuðla að lausn þessa máls. Síð-
asta aðgerð þeirra var reyndar sú að torvelda
lagningu Sundabrautar með því að selja land-
skika undir íbúðabyggð þar sem Sundabraut
átti að liggja frá landi við Elliðavog. Að mati
Vegagerðarinnar mun sú ákvörðun ein og sér
hækka kostnað við Sundabraut um 10 millj-
arða króna. Mögulegt er að sá kostnaðarauki
muni lenda á herðum skattgreiðenda í Reykja-
vík, enda kveða vegalög á um að standi sveitar-
félag í vegi fyrir að hagkvæmasti kostur legu
þjóðvegar verði valinn að mati Vegagerð-
arinnar, sé mögulegt að rukka sveitarfélagið
um mismuninn.
Ljósastýrðu gatnamótin
á Miklubraut hættulegust
Ég nefndi að hin mislægu gatnamót Reykja-
nesbrautar og Miklubrautar við Elliðaárnar
eru umferðarþyngstu gatnamót landsins, en
jafnframt einhver þau öruggustu. Öðru máli
gegnir um nálæg gatnamót sem eru slysa-
mestu gatnamót landsins, svo sem Reykjanes-
brautar og Bústaðavegar, Miklubrautar og
Grensásvegar, Miklubrautar og Háaleitis-
brautar, svo ekki sé talað um Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar. Þessi gatnamót eru öll
ljósastýrð og brýnt að bæta þar úr með gerð
mislægra gatnamóta og huga jafnframt að því
að leggja Miklubraut í stokk niður fyrir gatna-
mót Lönguhlíðar, líkt og hugmyndir hafa verið
uppi um. Vinstri meirihlutinn í borgarstjórn
Reykjavíkur hefur ekki léð máls á þessum
samgöngubótum og ber þannig pólitíska
ábyrgð á hárri slysatíðni á þessum leiðum.
Útrýmum ljósastýrðum
gatnamótum
Það er mjög brýnt að þegar verði farið í að
útrýma ljósastýrðum gatnamótum á stofn-
brautum í Reykjavík og hljóta áðurnefnd
gatnamót og vegarkaflar að vera þar í for-
gangi. En það verður ekki gert án sam-
komulags við borgaryfirvöld – sem lítinn sam-
starfsvilja hafa sýnt. Ég treysti því að sú
forysta sem Sjálfstæðisflokkurinn velur sér
fyrir komandi borgarstjórnarkosningar setji á
oddinn að gert verði átak í að útrýma slysa-
mestu gatnamótum borgarinnar og byggja
mislæg gatnamót í stað ljósastýrðra. Kostn-
aður við gerð mislægra gatnamóta á áð-
urnefndum stöðum er sambærilegur kostnaði
við Dýrafjarðarjarðgöng – og skal þó ekki gert
lítið úr þeirri mikilvægu samgöngubót.
Áætlað er að kostnaður vegna slysa á áð-
urnefndum fernum gatnamótum sé á annan
tug milljarða króna á síðustu 5 árum og þannig
samsvarandi eða ívið hærri en kostnaður við
gerð mislægra gatnamóta á þessum stöðum.
Og á meðan við horfum framan í þessar stað-
reyndir, þá leyfa borgaryfirvöld sér að láta
sem ekkert sé. Útbætur í almennings-
samgöngum á höfuðborgarsvæðinu eru sann-
arlega mikilvægar, en þær einar og sér geta
ekki leyst þann vanda sem við blasir. Þess
vegna verður að líta til fleiri leiða.
Í fréttum þessa dagana hefur komið fram að
slysatíðni í umferðinni árið 2017 var með því
mesta sem orðið hefur á síðustu árum, þegar
litið er til slysa þar sem fólk slasaðist alvar-
legra eða beið bana. Sá skerfur sem Reykja-
víkurborg á í þeim hörmungum er óskemmti-
legur vitnisburður um pólitíska stjórn og
forgangsröðun borgarinnar. Kostnaður við
umferðarslys er gríðarlegur, bæði vegna tjóns
á eignum og slysa á fólki, að ekki sé talað um
banaslysin. Og aldrei verður settur verðmiði á
mannlegar hörmungar sem eru óhjákvæmileg-
ur fylgifiskur slysa á fólki.
Eftir Jón
Gunnarsson » Það er augljóst að borgar-
yfirvöld hafa algerlega
brugðist skyldum sínum í
þessu málefni.
Ákall um aðgerðir
Jón
Gunnarsson
Höfundur er alþingismaður og fyrrverandi
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.