Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 30

Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, skrifar grein í Morg- unblaðið síðastliðinn laugardag, að því er virðist vegna já- kvæðra undirtekta ráðamanna við tillögu sem Landssamband smábátaeigenda lagði fram um þrepaskipt- ingu veiðigjalds. Þar er lögð áhersla á að bregðast við vanda smárra og meðalstórra útgerða með það að meginmarkmiði að við- halda fjölbreytileika í útgerð og stöðva frekari samþjöppun afla- heimilda. Heiðrún leggur upp með að það felist mismunun í því að „stærri greiði enn meira en hinir smærri minna“ og nefnir það að tengja veiðigjald við afkomu „felst alvar- leg hugsanavilla“. Veiðigjald á botnfisk vegna yf- irstandandi fiskveiðiárs er reiknað út frá afkomu veiða 2015 og nem- ur það þriðjungi af hagnaðinum, sem var samkvæmt Hagstofunni rúmir 28 milljarðar. Af þessum 28 milljörðum voru smá- bátar undir 10 brt að stærð með 71 milljón í hagnað. Þessi stærð- arflokkur greiðir á yf- irstandandi fisk- veiðiári 350 milljónir í veiðigjald að teknu tilliti til afslátta, sem allir njóta af fyrstu 9 milljónum. Í ljósi þess að veiði- gjald er lagt á sem hlutfall af afkomu er kostulegt að telja að verið sé að mismuna fyrirtækjum þegar lagt er til að þeir sem skiluðu góðri afkomu greiði í samræmi við afkomuna. Það er hins vegar mismunun að smábátaeigendum er gert að borga fimmfalda afkomu sína 2015 til baka vegna þess hvernig stór- útgerðin hefur forskot í arðsemi út frá stærð og með því t.d. að geta með kjarasamningum látið sjómenn borga fyrir nýsmíði, olíu á skipin og skertan aflahlut við löndun til eigin vinnslu. 170 milljóna lækkun strax Halda þarf til haga að tíu pró- sent af veiðigjaldinu í ár eru til- komin vegna hagnaðar af vinnslu afla á vinnsluskipum og önnur tvö prósent eru vegna hagnaðar í landvinnslu. Smábátaeigendur munu að óbreyttu greiða rúmar 1.400 milljónir í veiðigjald á yf- irstandandi fiskveiðiári. Um 170 milljónir af þeirri upphæð eru vegna vinnslu sem þeir eiga enga aðild að og það hljóta allir að átta sig á að þetta verður að leiðrétta strax. Heiðrún nefnir að „Á síðastliðnu fiskveiðiári greiddu 20 stærstu að- ilar í sjávarútvegi um 73% heildar- fjárhæðar veiðigjalds, en ríflega 980 aðilar greiddu um 27% heild- arfjárhæðarinnar.“ Rétt er að benda á að 20 stærstu aðilarnir eru með um 74% aflaheimilda í þorskígildum 2015 og því skýtur það skökku við að þeir greiði ekki til samfélagsins í samræmi við magn aflaheimilda. Það að 20 aðilar hafi yfir að ráða 74% aflaheimilda er gott fyr- ir stjórnmálamenn að hafa í huga þegar umræða um veiðigjaldið og samþjöppun í sjávarútvegi fer af stað á Alþingi. Stórútgerðin hirðir afsláttinn Varðandi talnaæfingar Heiðrún- ar um 15 og 20% afslátt á veiði- gjaldi á fyrstu 9 milljónum hvers gjaldenda, þá er gott að halda til haga að efstu 100 gjaldendur veiðigjalds fá samtals 84 milljónir í afslátt vegna þessa afsláttar, eða um 840.000 kr. á fyrirtæki. Hinir 890 gjaldendurnir eru samtals með 82 milljónir í afslátt, eða um 92.000 kr. á fyrirtæki. Og áfram um afslætti. Á síðasta fiskveiðiári fengu efstu 20 gjald- endurnir 452 milljónir í afslátt vegna lántöku, eða 22,6 milljónir á fyrirtæki og 100 efstu fengu sam- tals 895 milljónir í samskonar af- slátt, eða um 9 milljónir á fyrir- tæki. Hinir 890 voru með samtals 31,5 milljónir í þennan afslátt, eða um 35.000 kr. að meðaltali á fyrir- tæki. Heiðrún nefnir að „ef tryggja á þjóðinni réttlátan hlut af arðsemi auðlindarinnar, eins og lög og nýr stjórnarsáttmáli kveða á um, verð- ur því markmiði aldrei náð ef umbunað er sérstaklega fyrir lak- ari rekstur í formi sérmeðferðar þegar kemur að greiðslu veiði- gjalds“. Bagalegt er að Heiðrún virðist ekki átta sig á ólíku umhverfi og rekstrarforsendum. Því er áhuga- vert að velta fyrir sér hve stór hluti hagnaðar við veiðar 2015 er vegna eftirtalinna þátta sem hvorki eiga við um hefðbundna út- gerð smábáta né stóran hluta hennar umbjóðenda: Bakfærð virðisrýrnun aflaheim- ilda: gengishagnaður, gjaldeyr- isbrask, söluhagnaður eigna, vaxtakjör í evrum upp á 0-0,5%, þátttaka sjómanna í nýsmíði. Kjarasamningar þar sem sjómenn borga olíukostnað og þurfa að sætta sig við að gert sé upp við þá á fiskverði sem er 20-25% lægra en það verð sem fæst á fiskmark- aði, og fleira. Framtíð smábátaútgerðar? Það er algjörlega ljóst að álögur á smábátaeigendur í formi veiði- gjalda munu verða til þess að margir munu hætta útgerð og selja frá sér aflaheimildir. Þessi þróun er hafin og virðist vera að stærstur hluti þeirra aflaheimilda sem seldar hafa verið undanfarið, hafi farið til stærri útgerða sem einnig eru í aflamarki. Þessa þró- un þarf að stöðva og ein leið til þess er að stjórnmálamenn taki umræðuna um hvort það sé vilji til að stöðva samþjöppun í greininni og að ein tegund útgerðar verði ekki látin borga auðlindagjald út frá forsendum sem ekki eiga við. Að umbuna fyrir lakari rekstur Eftir Axel Helgason » Það er hins vegar mismunun að smá- bátaeigendum er gert að borga fimmfalda af- komu sína 2015 til baka. Axel Helgason Höfundur er formaður Lands- sambands smábátaeigenda. axel@smabatar.is Eins og kunnugt er hefur íslenska heil- brigðiskerfið mátt þola viðvarandi sam- drátt um áratuga- skeið og á tíðum sinnuleysi af hálfu stjórnvalda. Raddir sem kallað hafa eftir úrbótum hafa eðlilega orðið æ háværari en því miður hefur um- ræðan um heilbrigðis- mál verið þversagnakennd, fremur yfirborðsleg og á stundum ein- kennst af hagsmunagæslu. Þannig hefur heilbrigðiskerfið ýmist verið sagt vera á heljarþröm vegna manneklu, húsnæðisvanda og fjár- skorts eða þá að fregnir berast af góðum árangri eða vænlegri stöðu íslenskrar heilbrigðisþjónustu í al- þjóðlegum samanburði. Það kemur því ekki á óvart að stjórn- málamenn og almenningur eigi erfitt með að átta sig á raunveru- legri stöðu þessa mikilvæga mála- flokks. Nú virðist loks hilla undir lang- þráð umbótaskeið á vettvangi heil- brigðismála því ríkisstjórnin, sem nýlega tók við völdum, hefur lagt fram aðgerðaráætlun þar sem hæst ber mótun heilbrigðisstefnu fyrir Ísland, skilgreiningu á hlut- verki einstakra þátta heilbrigð- iskerfisins, eflingu heilsugæsl- unnar, styrkingu geðheilbrigðis- þjónustu, auk áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Jafnframt hefur ver- ið boðuð veruleg aukning útgjalda til málaflokksins sem gefur tilefni til bjartsýni. En það er ekki nóg að auka einungis fjárframlög til heilbrigðismála. Nauðsynlegt er að tryggja sem besta nýtingu fjár- veitinga og því er forgangsröðun verkefna óhjákvæmileg. Að mati undirritaðra er heildstæð endur- skoðun íslenska heilbrigðiskerfis- ins löngu tímabær en það er um- fangsmikið verkefni sem krefst samhents átaks stjórnvalda, stjórnenda heilbrigðisstofnana og fagstétta í heilbrigðisþjónustunni. Það er því ánægjuefni að nýskip- aður heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur lýst því yfir að á næstunni verði ráðist í mótun framtíðarstefnu fyrir heilbrigð- iskerfið. Afar mikilvægt er að vel verði haldið á málum því áður hafa verið gefin fögur fyrirheit en lítið orðið um efndir. Við munum í tveimur greinum hér í blaðinu reyna að varpa ljósi á stöðu mála og setja fram tillögur um aðgerðir sem við teljum sérlega brýnar á þeirri vegferð sem fram undan er. Í þessari grein reifum við helstu styrkleika og veikleika heilbrigð- iskerfisins og og leitumst við að skilgreina áherslur sem við teljum að hafa þurfi að leiðarljósi við stefnumótun. Styrkleikar Enginn vafi leikur á að ýmsir veigamiklir þættir í íslenska heil- brigðiskerfinu eru í ágætu horfi og sumir geta jafnvel talist fram- úrskarandi. Við búum sannarlega yfir vel menntuðu og öflugu starfsfólki sem leggur sig fram af alúð. Þá hefur Ísland komið vel út í alþjóðlegum samanburði á lýð- heilsuvísum eins og ungbarna- dauða og langlífi auk nokkurra sérhæfðari árangursvísa, t.d. 30 daga lifun eftir kransæðastíflu og lifun krabbameinssjúkra. Við höf- um þó ekki nýtt árangursmæl- ingar við mat á gæðum heilbrigð- isþjónustunnar nema að mjög takmörkuðu leyti fram til þessa. Enn fremur hefur búseta stærsta hluta þjóðarinnar á suðvestur- horni landsins án efa haft sitt að segja þar sem vegalengdir eru stuttar og aðgengi að þjónustu vegna bráðra vandamála alla jafna gott. Síðast en ekki síst hefur al- menn hagsæld hérlendis, ásamt góðum aðbúnaði og háu mennt- unarstigi þjóðarinnar haft jákvæð áhrif á heilsufar landsmanna. Veikleikar Þótt margt sé vel gert finnast víða brotalamir í heilbrigðisþjón- ustunni sem að verulegu leyti má rekja til langvarandi skorts á heildarskipulagi og verkstjórn. Lykileiningar heilbrigðiskerfisins hafa að verulegu leyti þróast án samhengis við aðra hluta kerfisins og jafnvel á forsendum ákveðinna starfsstétta. Það hefur leitt til óskilvirkni, skorts á yfirsýn yfir málefni sjúklinga og án efa um- talsverðrar sóunar. Smæð samfélagsins og takmark- að framboð heilbrigðisstarfsmanna hefur hamlandi áhrif og gerir það að verkum að við þolum verr að missa starfsfólk í önnur störf hér- lendis eða til annarra landa. Ásókn hjúkrunarfræðinga í störf flugfreyja, sem rekja má til slakra launakjara og ófullnægjandi vinnuaðstöðu á sjúkrahúsum, hef- ur t.a.m. reynst þungur baggi. Óhætt er að segja að uppbygg- ing grunnþjónustu á vettvangi heilsugæslunnar hafi ekki tekist sem skyldi, þrátt fyrir yfirlýsta stefnu þar að lútandi um áratuga- skeið. Langvarandi skortur lækna er ein helsta skýringin og útlit er fyrir að enn muni syrta í álinn því allstór hluti heilsugæslulækna mun komast á eftirlaunaaldur á næstu árum. Þetta er mikið áhyggjuefni á landsbyggðinni þar sem erfiðlega hefur gengið að manna stöður lækna. Þjónusta sjálfstætt starfandi sérfræðilækna hefur að nokkru leyti komið til móts við vanda heilsugæslunnar en þessi þáttur heilbrigðisþjónustunnar, sem hef- ur vaxið hratt á undanförnum ára- tugum, hefur að mestu þróast fyr- ir tilstuðlan læknanna sjálfra. Það ber þó að hafa í huga að þótt sjálf- stætt starfandi sérfræðilæknar veiti yfirleitt góða og hagkvæma þjónustu er hætta á að þjón- ustustigið kunni að vera of hátt fyrir hluta sjúklinga. Þá hefur aukin sókn sérfræðilækna í störf á eigin stofum skapað erfiðleika við skipulagningu þjónustu margra sérgreina á Landspítala þar sem alvarlegustu og flóknustu verkefn- unum er jafnan sinnt. Það er enn fremur mikill veik- leiki innan heilbrigðisþjónust- unnar að rafræn sjúkraskrá skuli ekki enn vera að fullu samtengd milli stofnana. Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikið það myndi bæta yfirsýn yfir málefni sjúklinga og auka öryggi þeirra ef samtengd sjúkraskrá yrði að veru- leika á landsvísu. Þá hefur gæðaeftirliti innan heilbrigðisþjónustunnar verið ábótavant. Notkun gæðavísa á sjúkrahúsum hefur verið fábrotin samanborið við hjá nágrannaþjóð- um og lítið eftirlit verið með gæð- um starfsemi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna sem starfa utan spítala. Loks verður ekki komist hjá því að nefna það óhagræði sem hlýst af því að starfsemi Landspítala sé dreifð á marga staði. Húsakostur spítalans er löngu úreltur og legu- rými víða ófullnægjandi. Vart þarf að ítreka enn einu sinni nauðsyn þess að nýr Landspítali rísi sem allra fyrst, enda mun það skila stóraukinni hagræðingu í skipu- lagi og rekstri, auk þess að laða starfsfólk að stofnuninni. Skilgreina þarf lykiláherslur Við stefnumótun í heilbrigð- ismálum vakna áleitnar spurn- ingar sem nauðsynlegt er að leita svara við. Viljum við leggja meg- ináherslu á öfluga grunnþjónustu, þ.e. öfluga heilsugæslu, almenna sérfræðiþjónustu og bráðaþjón- ustu sjúkrahúsa, eða viljum við byggja upp fjölþætta og sérhæfða þjónustu þar sem flest tæknivædd inngrip eru í boði? Þetta skiptir miklu máli þegar tekin er ákvörð- un um hversu miklum hluta af vergri þjóðarframleiðslu eigi að verja til heilbrigðismála. Vegna smæðar þjóðarinnar munum við áfram þurfa að leita til grannþjóða okkar þegar sérhæfð meðferð við fátíðum sjúkdómum er annars vegar. Spurningin er hins vegar hve langt við eigum að teygja okk- ur til að veita slíka meðferð hér- lendis. Það er okkar tilfinning að flestum Íslendingum sé umhugað um að hér sé til staðar alhliða heilbrigðiskerfi þar sem þjónustan er í hæsta gæðaflokki en hafa verður hugfast að því fylgir mikill kostnaður. Það hefur stundum viljað gleymast í umræðunni að fyrsta flokks heilbrigðisþjónusta er mjög kostnaðarsöm. Að mati okkar er óhjákvæmilegt að skýr forgangsröðun ríki varð- andi nýtingu fjármuna og úrræða sem í boði eru innan heilbrigðis- þjónustunnar. Það verður aldrei unnt að veita alla þá þjónustu sem fólk óskar eftir. Auk þess er talið að umtalsverð sóun eigi sér stað innan heilbrigðisþjónustu vest- rænna ríkja. Í Bandaríkjunum hefur t.d. verið áætlað að sóun nemi um 30% af útgjöldum til heilbrigðismála. Samtök lækna og önnur fagfélög heilbrigðisstétta verða að leggja yfirvöldum lið við að skilgreina viðeigandi þjónustu og skynsamlega nýtingu úrræða ásamt því að upplýsa og fræða al- menning þar að lútandi. Gæta verður sérstaklega að hagsmuna- árekstrum í því samhengi. Af ofanskráðu má ljóst vera að það nægir ekki að veita einungis meiri fjármunum til heilbrigðis- þjónustunnar, heldur er þörf fyrir víðtæka endurskoðun og aðgerða- áætlun með markvissa nýtingu fjárveitinga að leiðarljósi. Í ann- arri grein, sem birtast mun í blaðinu á næstu dögum, hyggj- umst við setja fram tillögur um stefnumótandi aðgerðir sem við teljum að eigi að vera í fyrirrúmi á þeirri vegferð að koma íslenska heilbrigðiskerfinu í fremstu röð. Heilbrigðiskerfi á tímamótum – hver er staðan? Eftir Davíð O. Arnar og Runólf Pálsson »Heilbrigðiskerfið hefur ýmist verið sagt vera á heljarþröm vegna manneklu, hús- næðisvanda og fjár- skorts eða þá að fregnir berast af góðum árangri eða vænlegri stöðu ís- lenskrar heilbrigðis- þjónustu í alþjóðlegum samanburði. Það kemur því ekki á óvart að stjórnmálamenn og al- menningur eigi erfitt með að átta sig á raun- verulegri stöðu þessa mikilvæga málaflokks. Davíð O. Arnar Davíð er yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala og formaður Félags ís- lenskra lyflækna. Runólfur er yf- irlæknir nýrnalækninga á Landspít- ala (í leyfi) og forseti Evrópusamtaka lyflækna. Runólfur Pálsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.