Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 35

Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 ✝ Arndís Salvars-dóttir, ljós- móðir, húsfreyja og bóndi í Norður- hjáleigu í Álftaveri, fæddist 14. maí 1929 á Bjarnastöð- um við Ísafjarð- ardjúp. Hún lést 7. janúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Salvar Ólafsson, bóndi í Reykjarfirði, f. 4.7. 1888 í Lága- dal, Nauteyrarhr., d. 3.9. 1979, og Ragnheiður Hákonardóttir, húsfreyja í Reykjarfirði, handa- vinnukennari og matráðskona í Héraðsskólanum í Reykjanesi, f. 16.8. 1901 á Reykhólum, d. 19.5. 1977. Systkini Arndísar voru Gróa, Hákon, Sigríður, Arnheið- ur og Ólafía. Arndís giftist 24.1. 1953 Júlíusi Jónssyni, f. 26.2. 1920, bónda og hreppstjóra í Norðurhjáleigu, d. 25.7. 2009. Börn Arndísar og Júlíusar eru:1) Salvar, f. 29.12. 1952, barnsm. Lilja Bjarnadóttir, dótt- ir Elísabet Hrund, maki Smári Hrólfsson, sonur Birkir Jan. Fv. eiginkona, Soffía Gunnars- dóttir, sonur Gunnar Símon. 2) Jón, f. 30.8. 1954, maki Helga Gunnarsdóttir, börn: a) Júlíus börn Birta Lára Evlalía, Arn- grímur Reynir. b) Berglind. c) Harpa. 6) Jóhanna Sólveig, f. 1.5. 1961, samb.m. Einar Traustason. Börn hennar og fv. eiginmanns Ólafs Þ. Hansen: a) Hafsteinn, samb.k. Hulda Bjarnadóttir, börn Víkingur Elí, Freyja Mist. b) Atli, d. 1993. c) Aníta Rún, barnsf. Birgir Þórð- arson, sonur Atli Þór. Samb.m. Anítu, Danival Stefánsson, son- ur Kristófer Ólafur. 7) Þórunn, f. 1.7. 1962, d. 18.10. 1964. 8) Símon Þórir, f. 12.4. 1966, d. 17.5. 1986. Á æskuárum vann Arndís við bústörf í Reykjar- firði. Síðan fór hún í nám í Hús- mæðraskólanum á Löngumýri. Lauk ljósmæðraprófi frá LÍ 1952. Hún var húsfreyja og bóndi í Norðurhjáleigu frá 1953, ásamt Júlíusi, foreldrum hans og seinna meir Böðvari bróður hans. Hún var héraðsljósmóðir Álftavers- og Skaftártunguum- dæmis 1953-93. Þá vann hún sem ljósmóðir, við afleysingar í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði og á Kirkjubæjarklaustri og um tíma sat hún í stjórn Heilsugæsl- unnar á Klaustri. Arndís og Júl- íus sáu um veðurþjónustu í Norðurhjáleigu í um 21 ár. Hún var félagi, síðar heiðursfélagi í Kvenfélaginu Framtíðinni í Álftaveri og sat í stjórn þess á tímabili. Útför Arndísar fer fram frá Þykkvabæjarklausturskirkju í Álftaveri í dag, 20. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. Ingi, maki Ragn- hildur Ágústs- dóttir, synir Jón Ágúst, Viktor Ingi. b) Gunnar Örn, samb.k. Inga A.Hasan, dóttir Amanda. c) Arndís Eva, samb.m. Ólaf- ur Guðmundsson, dætur Helga Dís, María Dís. 3) Gísli Þórörn, f. 13.1. 1956, maki Rakel Þórisdóttir, börn: a) Vala Rún, samb.m. Árni L. Stefánsson. b) Jón Símon, maki Dagmara Adamsdóttir, dóttir Árelía Ósk. c) Tumi Snær, samb.k. Berglind Guðbrands- dóttir. 4) Ragnheiður Guðrún, f. 13.12. 1957, barnsf. Birgir Sig- fússon, sonur Júlíus Arnar, samb.k. Hildur B. Pálsdóttir, synir Arnar Ingi, Alexander Orri. Fv. eiginmaður Kári Gunn- arsson, börn: a) Sæunn, samb.m. Þormar E. Jóhannsson, dóttir Signý Heiða. b) Valgerður, maki Collin A. Pryor, sonur óskírður. c) Elín Erla. f) Bergsteinn, samb.k. María H. Karlsdóttir. 5) Ólafur Elvar, f. 14.11. 1958, börn hans og fv. samb.k. Önnu Þ. Skúladóttur eru: a) Birkir, maki Gyða B. Sigurðardóttir, Það eru forréttindi að fá að alast upp með ömmu og afa. Ég bar til þess gæfu í mínum upp- vexti, slíkt var hið sama með börnin mín. Þau hafa áður kvatt móðurafa sinn með sóma, nú er- um við öll saman að kveðja aldr- aða móður og ömmu, eftir langa samfylgd. En minningabrotin um móður og ömmu eru mörg hver svo nátengd föður og afa, að það er erfitt að aðskilja þau. Það er margs að minnast við andlát ástvinar. Um hugann flögra ótal minningabrot, mörg hver sveipuð hlýju brosi, hlátri, veisluborði, kökuhlaðborði. Spila- stokkur skammt undan. Spjallað fram og til baka, spjallað meira, sagðar sögur úr bernskunni vest- an úr Djúpi, stálminnug fram á gamalsaldur. Fróðleiksþráin var mjög sterk, ættfræðibækurnar til taks, ef á góma bar nafn ein- hvers sem þurfti að kanna betur. Hann gat verið skyldur okkur. Á stóru heimili var oft margt um manninn, húsfreyjan rösk að reiða fram góðgjörðir, enda lengst af létt á fæti og snör í snúningum. Sálmabókin aldrei langt undan, iðulega hlustað á sunnudagsmessuna í útvarpinu. Söngæfingar með kirkjukór, oft var presti og söngfólki boðið heim í veitingar að lokinni guðs- þjónustu. Gestrisnin í blóð borin. Fallega garðinum alltaf vel sinnt, uppskeran eftir því. Á haustin melskurður og berjat- ínsla. Börnin mín eru öll fædd heima, ljósmóðirin amma þeirra, það finnst mér svo fallegt og sér- stakt. Handlagnin var einstök, hannyrðir spruttu fram, oftar en ekki gefnar. Gjafirnar frá ömmu ylja enn. Við Júlíus Arnar vorum svo lánsöm að eiga okkar skjól hjá foreldrum mínum í Norð- urhjáleigu. Síðar bjuggum við öll fjölskyldan í kjallaranum, það kom sér oft vel. Það var gott að geta skottast upp í hlýjuna, jafn- vel á náttfötunum, horfa á barna- tímann, fá nýsteiktar kleinur og annað góðgæti á meðan foreldr- arnir voru í útiverkunum. Eftir að fjölskyldan flutti norð- ur á Akureyri fóru börnin oft suð- ur í sveitina til ömmu og afa, dvöldu þar sumarpart, aðstoðuðu þau við ýmis störf, bæði sér og gömlu hjónunum til yndis og ánægjuauka. Eldri systurnar, Sæunn og Valgerður, dvöldu eitt sinn um jólin hjá ömmu og afa, sömuleiðis Júlíus Arnar ein jól með sína fjölskyldu. Sæunn fékk einnig að búa hjá þeim þegar hún var í 10. bekk, það eru perlur í minningabandið. Seinna voru það svo barnabarnabörnin sem nutu gleðinnar og ánægjunnar að um- gangast og kynnast langömmu og langafa. Eftir að faðir minn lést og móðir mín flutti á Klaust- urhóla áttum við dýrmætar stundir með henni þar, einnig úti í Norðurhjáleigu, á Selfossi, sem og annars staðar þar sem öll fjöl- skyldan kom saman, síðast í brúðkaupi Valgerðar og Collins í sumar. Hún samgladdist alltaf og umvafði sitt fólk. Elsku mamma, amma og langamma. Að lokum er efst í huga okkar hjartans þakklæti fyrir alla um- hyggjuna, ástúðina, og eljuna. Far þú í friði. Ragnheiður Guðrún Júlíusdóttir, Júlíus Arnar Birgisson, Sæunn Káradóttir, Valgerður Káradóttir, Elín Erla Káradóttir, Bergsteinn Kárason og langömmubörnin. Sumarmorgunn við Djúp. Kyrrt veður. Léttskýjað. Lómur lætur í lofti yfir lygnum firði og selir bylta sér á skerjum. Angan af hálfþurru heyi berst frá grund- inni ofan við fjósið. Dísa frænka leiðir mig sér við hönd út að heyf- lekknum. Þetta sumar hafði hún tekið mig að sér meðan móðir mín, Sigga systir hennar, átti í einhverju veikindabasli sem kall- aði á nokkuð langa spítalavist í Reykjavík. Svo sannarlega sinnti Dísa mér vel; ól mig á skyri og rjóma svo að móðir mín sagðist ekki hafa séð feitara barn þegar hún kom aftur heim úr spítalavistinni. Æ síðan fannst mér að Dísa frænka væri einskonar fóstur- móðir mín. En nú er lífsljós henn- ar slokknað – og okkur systur- börnum hennar þykir þar vera komið skarð fyrir skildi. Arndís Salvarsdóttir var næst- yngst fjögurra systra frá Reykj- arfirði við Djúp. Stórheimili að fyrri alda sveitasið, sambýli kyn- slóðanna og athvarf fólks sem einhverra hluta vegna þurfti skjól í því samfélagi sem leystist að mestu upp eftir miðbik síðustu aldar. Systurnar giftust og héldu burt úr föðurgarði. Sigríður móð- ir mín út í Vigur; Arndís austur í Norðurhjáleigu í Álftaveri. Gróa fór víða en Ólafía í Vatnsfjörð. Hákon bróðir þeirra bjó alla tíð í Reykjarfirði. Mikið var langt austur í Norð- urhjáleigu þegar horft var vestan úr Djúpi. Samskiptin stopul og strjál meðan ekki voru komnar þær tengingar sem nú er stólað á. Ekki var legið í símanum á þeirri tíð heldur. Engu að síður var stundum farið í heimsóknir á báða bóga og ætíð fagnaðarfund- ir. Það var gott að koma í Norð- urhjáleigu til Arndísar og Júl- íusar. Þau voru góð hjón, nokkuð ólík en samofin í gæsku og kær- leiksríkri glaðværð sem vann úr öllum áföllum og læknaði flest sár. Frásagnir Júlíusar, kryddaðar hógværri kímni og svipbrigðum gleymast engum sem vitni voru að. Arndís lagði til sögur af fólki og minningar úr Djúpinu. Það rifjaði upp þann tíðaranda sem þar ríkti á uppvaxtarárum henn- ar. Þrátt fyrir vegalengdir héldu systraböndin vel. Hnökralaus þráðurinn var tekinn upp hvenær sem þær hittust. Skipti þá engu máli hvort þær væru allar fjórar, þrjár eða tvær saman komnar. Sögurnar og upprifjanir af við- burðum unglingsáranna treind- ust lengi með viðbótum, innskot- um og leiðréttingum eins og verða vill í glaðværum systra- hópi. Oft gekk þetta langt fram á nóttina ef allar gistu. Nú hefur hljóðnað í sagna- brunni þeirra systra. Arndís kvaddi síðust móðursystkina minna. Blessuð sé minning henn- ar. Við Vigursystkin sendum af- komendum hennar og ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Ást og hlýja umvefji ykkur öll. Hafsteinn Hafliðason. Elskuleg föðursystir mín, Arn- dís í Norðurhjáleigu, er hér kvödd hinstu kveðju, elskulega frænka mín. Dísa var næst yngst fimm barna Ragnheiðar og Salvars í Reykjarfirði. Milli systkina ríkti ávallt rík vinátta og ástúð og var hugurinn ávallt hjá ástvinum heima sem í fjarlægð. Arndís bjó í Norðurhjáleigu, ljósmóðir og bóndi, Gróa austur á Dalatanga og Eiðum og hin systkinin, Hákon í Reykjarfirði, Sigríður í Vigur og Ólafía í Vatns- firði. Samskipti þessa tíma voru sendibréf og eða símasamband eftir að það komst á. Fáar en mikilvægar heimsóknir þar sem fólk náði að hittast og fagna eða syrgja saman. Margt er því frá- brugðið því sem áður var. Dísa frænka mín ólst upp á stóru heimili, mannmörgu og var mikill gestagangur í Reykjarfirði og ekki örgrannt um að þar hafi ver- ið stærsta umferðarmiðstöð með gistingu við Djúp. Rætur úr þessu umhverfi, skólagöngu frá Reykjarnesi, húsmæðraskóla frá Löngumýri og ljósmóðir, und- irbúin fyrir framtíðina. Árið 1953 giftist hún Júlíusi Jónssyni frá Norðurhjáleigu og tekur við stórbúi á hans æsku- heimili. Dísa og Júlíus eignuðust átta börn, Salvar, Jón, Gísla Þór- örn, Ragnheiði G., Ólaf Elvar, Jó- hönnu S., sem nú syrgja móður sína. Í öllum orðum sínum og minn- ingum dásamaði hún virðingu og vináttu þeirra við sig. Þau Þór- unn og Símon eru látin, var það Dísu mikill missir og erfiður og sóttu minningar oft þar á. Dísa starfaði alla tíð sem ljós- móðir, við búrekstur, vaktaði veðurstöð, rak stórt heimili og tók þátt í félagsstarfi. Hún var hamhleypa til allra verka. Dísa kom vestur og dvaldi nokkurn tíma eftir að hún var orðin ein áð- ur en hún flutti á Klausturhóla. Þessi dvöl var okkur kærkomin og styrkti góðar stundir. Dísa var ljóðelsk og vel lesin og skemmt- um við okkur oft við að rifja upp sögu fjölskyldunnar, samfélags- þætti, samferðamenn, sögu Djúps og nágrennis. Ekki síður sagði hún frá bú- skap og lífi, lífsbaráttu í sinni sveit, starfi sínu sem ljósmóðir, sem hún elskaði. Far þú sæl, elsku frænka mín, og takk fyrir alla þína elsku og tryggu vináttu gegnum lífið. Út við fagran fjörðinn fuglinn syngur dátt, strýkur golan svörðinn, stúlka krýpur sátt, grær og glóir jörðin, glitrar blómið blátt. (RH) Samúðarkveðjur til barna, fjölskyldna og vina. Ragnheiður Hákonardóttir og fjölskyldurnar frá Reykjarfirði. Arndís Salvarsdóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BERGHREINS GUÐNA ÞORSTEINSSONAR flugvirkja, Dalseli 34. Þeim sem vilja minnast hans bendum við á Alzheimersamtökin. Randý Sigurðardóttir Vilhjálmur Berghreinsson Bryndís Ósk Berghreinsdóttir, Ásberg Pétursson Berglind Berghreinsdóttir Þorsteinn Guðni Berghreinsson Sigurður Rafn Þorgeirsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐRIKS SÓFUSSONAR, Safamýri 46, Reykjavík. Ingunn Hlín Björgvinsdóttir Björgvin S. Friðriksson Adda Björk Jónsdóttir Friðrik M. Friðriksson Gunnrún Gunnarsdóttir Guðný Hlín Friðriksdóttir Karl Ómar Guðbjörnsson Friðgerður M. Friðriksdóttir Ófeigur Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÁSGEIRS LÁRUSSONAR, Hlíðargötu 4, Tungu, Neskaupstað. Unnur Bjarnadóttir Heimir Ásgeirsson Freyja Theresa Ásgeirsson Sveinn Ásgeirsson Hólmfríður Th. Brynjólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BÖÐVARS SIGVALDASONAR, Barði, Miðfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu, Reykjavík, fyrir góða umönnun og hlýhug. Eva Thorstensen Anna Rósa Böðvarsdóttir Sigurður Benedikt Stefánsson Sigríður Klara Böðvarsdóttir Steindór J. Erlingsson Sigvaldi Vilmar Böðvarsson Tina Jeanette Holm Þorvaldur Óli Böðvarsson Louise Skovholm Christiansen og barnabörn Elskulegur sonur okkar, bróðir minn og barnabarn, ÍSAK BREKI STEFÁNSSON, Funafold 7, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 13. janúar. Útför fer fram frá Grafarvogskirkju, föstudaginn 26. janúar klukkan 13. Stefán Þór Gunnarsson Elísa Rós Jónsdóttir Daníel Máni Stefánsson ömmur og afar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS STEINGRÍMSDÓTTIR sjúkraliði, Þangbakka 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 15. janúar. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. janúar klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Sigurður Guðjónsson Guðrún B. Kristmundsdóttir Sigrún Guðjónsdóttir Ásmundur Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.