Morgunblaðið - 31.01.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 31.01.2018, Qupperneq 1
Kristín Eiríksdóttir, Unnur Þóra Jökulsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin 2017 sem afhent voru í gærkvöldi á Bessastöðum af Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands. Hann sést hér klappa fyrir verðlaunahafanum Kristínu að lokinni ræðu hennar en hún hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt. »30-31 Klappað fyrir kátum bókmenntaverðlaunahöfum Morgunblaðið/Árni Sæberg Íslensku bókmenntaverðlaunin 2017 voru afhent á Bessastöðum í gærkvöld M I Ð V I K U D A G U R 3 1. J A N Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  26. tölublað  106. árgangur  LEIKSTJÓRN- ARVERÐLAUN OPNA DYR GAMLI MIÐINN GILTI VIÐTAL VIÐ KRISTJÁN ANDRÉSSON JÓN OG KRISTÍN 12-13 ÍÞRÓTTIR ÍSOLD UGGADÓTTIR 33 Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is „Þetta endurspeglar þverrandi sam- keppnishæfni íslenskra fyrirtækja, vegna styrkingar krónunnar og mik- illa launahækkana á undanförnum ár- um. Ég hef talað um að ég meti stöð- una þannig að það séu hagræðingar framundan í vetur og ég tel því miður að þetta sé ein birtingarmynd þess,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, um 86 manna hópuppsögn hjá Odda í gær og horfurnar í atvinnulíf- inu almennt. Fram hefur komið að þessi atriði tvö hafi verið veigamikil í ákvörðun um uppsagnirnar hjá fyr- irtækinu. Hann segist vera nýbúinn að fara hringinn um landið og ræða við at- vinnurekendur. „Sagan er alltaf sú sama, það hefur gengið ágætlega, en hins vegar hafa kostnaðarhækkanir verið miklar á undanförnum þremur árum og það er ekkert rými til frekari kostnaðar- hækkana, þar með talið launahækk- ana. Ef við höldum áfram á sömu braut, þá er augljóst fyrir mér að at- vinnurekendur muni þurfa að grípa til uppsagna. Við vonum auðvitað að til þess komi ekki, en við erum komin mjög nærri hengifluginu,“ segir Hall- dór, sem telur svikalogn ríkja í hag- kerfinu hérlendis. Krónan styður ekki stöðugleika „Við þekkjum alveg þennan tón,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um afstöðu framkvæmdastjóra SA. Hann segir heimilin í landinu ekki geta tekið á sig kostnaðinn við of sterkt gengi krónunnar, sem stjórn- völd hefðu þurft að bregðast við. „Við vorum snemma farin að tala um það, árið 2015 og 2016, að hleypa til dæmis lífeyrissjóðunum út til þess að sporna gegn þessari miklu styrk- ingu krónunnar, en það var ekki gert,“ segir Gylfi. Hann hefur áhyggjur af stöðu innlendra samkeppnisgreina, sem ólíkt ferðaþjónustu hafa ekki notið vaxandi tekna samfara styrkingu krónu. Laun hafa að hans mati ekki hækkað of mikið á undanförnum árum. Launahækkanir hafi verið viðbragð við kreppuástandi, en innstreymi gjald- eyris vegna velgengni ferðaþjónustu með tilheyrandi hækkunum á nafn- gengi krónunnar sýni það að gjaldmið- illinn geti illa stutt við væntingar okkar um stöðugleika. »16  Sterkt gengi krónu og launakostnaður vógu þungt í uppsögn hjá Odda  Forseti ASÍ segir hátt gengi vandamál Halldór Benjamín Þorbergsson Samkeppnishæfni fyrirtækja minnkar Gylfi Arnbjörnsson Yfir 100 milljarðar » Að sögn SI og Félags ráð- gjafarverkfræðinga þarf að fjárfesta fyrir yfir 100 milljarða í vegum á næstu fimm árum. » Þar af eru yfir 60 milljarðar vegna uppsafnaðs viðhalds. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samtök iðnaðarins (SI) vara við því að slæmt ástand vega landsins kunni að draga úr hagvexti á næstu árum. „Hagstofan spáir um 17% hag- vexti til ársins 2023. Það er ljóst að erfitt verður að knýja hagvöxt á inn- viðum í lélegu ásigkomulagi, þ.m.t. þjóðvegakerfinu,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdatjóri Sam- taka iðnaðarins, og bendir á að slæmt ástand vega sé farið að standa vexti ferðaþjónustu fyrir þrifum og dreifingu ferðamanna um landið. Þá kosti tafir á umferð á höfuð- borgarsvæðinu þjóðarbúið orðið milljarða ár hvert. Þar komi m.a. til tímatap og aukinn rekstrarkostnað- ur bifreiða sem eru fastar í umferð. „Gerðar hafa verið margar rann- sóknir á tengslum hagvaxtar og fjár- festinga í vegakerfi. Niðurstöður þeirra eru að fjárfesting í vegainn- viðum auki hagvöxt marktækt.“ Samkvæmt greiningu SI hefur fjárfesting í vegakerfinu sem hlutfall af landsframleiðslu verið í sögulegu lágmarki síðustu ár. Lítið viðhald hafi aukið viðhaldshallann frekar. Mun bitna á hagvextinum  Samtök iðnaðarins vara við afleiðingum lítils viðhalds á vegum  Viðhaldsleysi muni hamla vexti ferðaþjónustunnar  Tafir á umferð í Reykjavík kosti milljarða MViðhaldsleysið bitnar … »10 Morgunblaðið/Sunna Gjögur Hópur fólks kom með flugi að sunnan til að sitja fundinn. Enn eitt skrefið í undirbúningi Hval- árvirkjunar var stigið á fundi hreppsnefndar Árneshrepps í gær er skipulagstillögur vegna virkj- unarinnar voru samþykktar. Fimm nefndarmenn í fámennasta sveitar- félagi landsins bera þá ábyrgð að ákveða framhaldið. Þrír þeirra eru nú fylgjandi virkjun en tveir eru á móti. Fjölmenni var á fundi hrepps- nefndarinnar í gær. Hópur sérfræð- inga og annarra gesta að sunnan kom með flugi til fundarins. Í þeim hópi var Sigurður Gísli Pálmason en tillögu hans um kostamat á virkjun annars vegar og verndun hins vegar var hafnað á fundinum. Í umræðum um tillöguna sagði oddviti Árnes- hrepps að það vistspor sem Hval- árvirkjun myndi setja á landið væri svo lítið, „svo örlítið“. sunna@mbl.is »14 Höfnuðu boði um kostamat  Oddviti: Vistspor virkjunar örlítið  Karlmaður sem starfaði fyrir Barnavernd Reykjavíkur á skamm- tímaheimili í Breiðholti og situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um gróf kynferðisbrot gegn ungum skjól- stæðingi, hefur áður verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn barni. Það var árið 2013, en þau brot sem þá voru kærð áttu sér stað upp úr alda- mótum, á árunum 2000-2006. »4 Áður kærður fyrir brot gegn barni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.