Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018
Útsölustaðir:
• Guðsteinn Eyjólfsson – Laugavegi
• Heimkaup.is
• Hagkaup
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Laugavegi
• Karlmenn – Laugavegi
• Vinnufatabúðin – Laugavegi
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga
• Kaupfélag V-Húnvetninga
• Skóbúð Húsavíkur
• Haraldur Júlíusson – Sauðárkróki
• Blómsturvellir – Hellissandi
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Bjarni Eiríksson – Bolungarvík
• Grétar Þórarinsson - Vestmannaeyjum
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Láttu þér
líða vel
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Yfirvöld í Höfðaborg, næststærstu
borg Suður-Afríku, búa sig undir að
skrúfa fyrir rennandi vatn til flestra
íbúanna í apríl vegna mestu þurrka í
eina öld. Yfirvöldin óttast glundroða
í borginni þegar skrúfað verður fyrir
vatnsleiðslur í íbúðahverfunum og
tekin upp hörð vatnsskömmtun.
Miðað við vatnsnotkunina nú er
gert ráð fyrir að grípa þurfi til þess-
ara ráðstafana 12. apríl og sá dagur
er kallaður „núlldagurinn“. Höfða-
borg verður þá fyrsta stórborgin í
heiminum sem þarf að skrúfa fyrir
rennandi vatn á friðartímum vegna
vatnsskorts, að sögn tímaritsins
Nature.
Íbúar Höfðaborgar eru um fjórar
milljónir og gert er ráð fyrir að frá
og með núlldeginum þurfi þeir að
sækja drykkjarvatn sem verður af-
hent á 200 stöðum í borginni. Að
meðaltali verður vatn skammtað til
5.000 fjölskyldna á hverjum þessara
staða og gert er ráð fyrir að her- og
lögreglumenn verði á varðbergi til
að hindra óeirðir í biðröðunum, að
sögn fréttaveitunnar AFP.
Fá 25 lítra á dag
Meginástæða skömmtunarinnar
er sú að lítið sem ekkert vatn hefur
bæst í vatnsforða borgarinnar í rúm
þrjú ár vegna mestu þurrka á þess-
um slóðum í eina öld. Vatnsskortinn
má einnig rekja til þess að uppbygg-
ing vatnsveitna og annarra innviða
hefur ekki haldist í hendur við íbúa-
fjölgunina í Höfðaborg. Íbúunum
hefur fjölgað um 80% frá árinu 1994,
eða frá fyrstu þingkosningunum í
Suður-Afríku eftir afnám kynþátta-
aðskilnaðarstefnunnar í landinu.
Borgaryfirvöldin höfðu vonast til
þess að geta komið í veg fyrir vatns-
skortinn með því að hvetja íbúana til
að minnka vatnsnotkunina og með
því að finna ný vatnsból, fjölga bor-
holum og reisa hreinsistöðvar til að
endurnýta vatn. Ljóst er nú að þetta
tekst ekki og borgaryfirvöldin hafa
verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki
gert ráðstafanir fyrr til að draga úr
vatnsnotkuninni og virt að vettugi
viðvaranir sérfræðinga sem höfðu
árum saman hvatt til ráðstafana til
að afstýra vatnsskorti vegna þurrka.
Vatnsnotkunin í borginni hefur þó
minnkað í 586 milljónir lítra á dag úr
1,1 milljarði lítra á meðaldegi á síð-
asta ári. Hvern dag sem vatns-
notkunin fer yfir 500 milljónir lítra
færist núlldagurinn nær.
Íbúunum hefur verið bannað að
nota meira en 87 lítra af vatni á dag
og á morgun ganga í gildi nýjar regl-
ur sem kveða á um að hver borgar-
búi megi aðeins nota 50 lítra. Frá og
með núlldeginum verða hverjum
íbúa skammtaðir 25 lítrar á dag. Til
samanburðar má nefna að í Reykja-
vík notar hver íbúi um 155.000 lítra
af köldu vatni á ári, eða meira en 420
lítra á dag. Þegar fólk fer í sturtu
notar það 15 lítra af vatni á mínútu
og venjulegt salerni tekur allt að 15
lítra þegar skolað er niður, að því er
AFP hefur eftir borgaryfirvöldum í
Höfðaborg.
Yfirvöldin gera ráð fyrir því að
þótt skrúfað verði fyrir vatnsleiðslur
til íbúðahverfanna verði áfram hægt
að nota kranavatn í sjúkrahúsum
borgarinnar. Ennfremur verða
gerðar ráðstafanir til að tryggja að
nægilegt drykkjarvatn verði fyrir
nemendur skóla í borginni. Í nokkr-
um þeirra er hægt að dæla vatni úr
borholum.
Margir borgarbúanna eiga heima
í hreysahverfum þar sem íbúarnir fá
vatn úr sameiginlegum krönum á
götunum. Líklegt er að reynt verði
að tryggja nægjanlegt vatn í þessa
krana til að koma í veg fyrir smit-
sjúkdóma sem berast með menguðu
vatni. Hugsanlegt er einnig að nokk-
ur hverfi í miðborginni fái áfram
rennandi vatn til að koma í veg fyrir
að vatnsskorturinn verði til þess að
ferðamönnum fækki og loka þurfi
fyrirtækjum.
Á ári hverju koma milljónir ferða-
manna til Höfðaborgar og fréttir um
vatnsskortinn hafa þegar orðið til
þess að fólk hefur afpantað ferðir
þangað, að sögn AFP. Atvinnurek-
endur hafa áhyggjur af vatnsskort-
inum og óttast að starfsmenn þeirra
geti ekki unnið ef þeir þurfa að bíða í
löngum röðum á hverjum degi til að
sækja vatn handa fjölskyldum sín-
um.
Nota enn vatn í sundlaugar
Umhverfisverndarsamtökin
WWF hafa varað íbúa borgarinnar
við því að vatnsskömmtunin gæti
þurft að standa í þrjá til sex mánuði,
en ekki er víst að þurrkunum linni á
því tímabili. Borgaryfirvöldin segja
að þrátt fyrir neyðarástandið sem
blasi við hafi um 60% íbúanna ekki
farið eftir fyrirmælunum um vatns-
sparnað. Yfirvöldin hafa fylgst með
vatnsnotkun heimilanna, sektað þá
sem hafa brotið reglurnar og jafnvel
birt lista yfir þá sem nota mest af
vatni. Íbúar eru einnig farnir að
kæra fólk, sem virðir reglurnar að
vettugi, meðal annars með því að
vökva garða eða fylla sundlaugar
sínar af vatni.
Óttast glundroða vegna vatnsskorts
Stefnir í harða vatnsskömmtun í Höfðaborg eftir metþurrka Skrúfað fyrir rennandi vatn til
íbúðahverfa Óttast óeirðir í biðröðum á 200 skömmtunarstöðvum fyrir fjórar milljónir íbúa
AFP
Vatnsskömmtun Fólk sækir vatn úr leiðslu frá neðanjarðarlind í einu út-
hverfa Höfðaborgar. Íbúunum verða skammtaðir 25 lítrar af vatni á dag.
AFP
Metþurrkar Sandauðn og uppþornuð tré við stíflu sem sér Höfðaborg fyrir
vatni. Methitar og þurrkar hafa verið á þessum slóðum síðustu þrjú árin.
Fær martraðir
» Sumir íbúar Höfðaborgar
hafa virt fyrirmæli um vatns-
sparnað að vettugi en aðrir
taka þau mjög alvarlega.
» „Ég er alltaf að hugsa um
vatnsskortinn,“ sagði 26 ára
kona í samtali við bandaríska
sjónvarpið NBC. „Ég fæ jafnvel
martraðir um vatnssóun. Eina
nóttina dreymdi mig að ég
hefði farið í langa sturtu fyrir
mistök!“
Rakmat Akilov, 39 ára hælisleitandi
frá Úsbekistan, var ákærður form-
lega í Stokkhólmi í gær fyrir hryðju-
verk í apríl á síðasta ári þegar fimm
manns biðu bana.
Akilov hefur játað að hafa stolið
flutningabíl, ekið á vegfarendur á
Drottningargötu, fjölfarinni
verslunargötu í Stokkhólmi, og
reynt að sprengja heimatilbúna
sprengju í bílnum. Í ákæruskjalinu
segir að markmiðið með árásinni hafi
verið að valda ótta meðal almennings
og neyða stjórn landsins til að binda
enda á þátttöku Svía í þjálfun her-
manna sem berjast gegn Ríki íslams,
samtökum íslamista, í Írak.
Réttarhöldin í málinu hefjast í
héraðsdómstóli í Stokkhólmi 13.
febrúar. Ákæruvaldið krefst þess að
hryðjuverkamaðurinn verði dæmdur
í lífstíðarfangelsi.
Í ákæruskjalinu kemur fram að
hann undirbjó árásina mánuðum
saman og tók upp tvö myndskeið
daginn fyrir ódæðisverkið þar sem
hann vottaði Ríki íslams hollustu
sína. Á öðru myndskeiðanna sagði
hann að kominn væri „tími til að
drepa“.
Talið er að hryðjuverkamaðurinn
hafi verið einn að verki. Saksóknar-
inn Hans Ihrman sagði á blaða-
mannafundi um ákæruna í gær að
hryðjuverkamaðurinn hefði verið í
sambandi á netinu við alls fjórtán
menn sem tengjast íslömskum öfga-
samtökum og haldið sambandi við
tvo þeirra þar til hann framdi
hryðjuverkið.
Þeir sem létu lífið í árásinni voru
þrír Svíar, þeirra á meðal ellefu ára
stúlka, 41 árs breskur karlmaður og
31 árs belgísk kona. Tíu aðrir vegfar-
endur særðust.
Ódæðið undir-
búið í mánuði
Hryðjuverkamaður ákærður í Svíþjóð
AFP
Ákæra Sænski saksóknarinn Hans
Ihrman (t.h.) ræðir við blaðamenn.