Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 27
tæknifræðingur hjá norsku vega- gerðinni í tvö ár. Aftur var flutt í Borgarnes þar sem Bjarni var fyrst um sinn deildarstjóri vinnuflokka og síðar þjónustustjóri Vegagerðarinnar á Vesturlandi þar til hann fór á eftir- laun árið 2011. Árið 1999 keyptu Bjarni og Kristín jörðina Fljótstungu í Hvítársíðu og ráku þar ferðaþjónustu um nokkurra ára skeið. Bjarni starfaði í ungmennafélaginu Skallagrími, Björgunarsveitinni Brák og Rauða kross deild Borgarfjarðar- læknishéraðs, sat í stjórn Norræna félagsins og var formaður deildar Norræna félagsins í Borgarnesi, er félagi í Frímúrarastúkunni Akri, hinu virðulega íslenska Wayfarer- vinafélagi og í Rotarýklúbbi Borgar- ness. Bjarni hefur unnið til ýmissa verð- launa, m.a. í siglingakeppnum, og varð Íslandsmeistari í kjölbátasigl- ingu sem einn af áhöfn bátsins Frás. Bjarni hefur mörg áhugamál, s.s. siglingar, smíðar, hestamennsku, út- skurð og rennismíði. Þegar hann komst á eftirlaunaaldurinn fengu áhugamálin meiri byr í seglin. Ferða- lögum hans hefur fjölgað á síðari ár- um og dvelur hann reglulega í París þar sem sambýliskona hans býr og starfar. Fjölskylda Eiginkona Bjarna var Kristín Þor- björg Halldórsdóttir, f. 9.3.1950, d. 2.11.2004, rekstrar- og markaðs- fræðingur, leiðsögumaður og síðast ferðaþjónustubóndi í Fljótstungu. Foreldrar hennar voru Guðrún Pál- ína Bergþórsdóttir, f. 9.2. 1920, d. 1.5. 2015, vefnaðarkennari í Borgarnesi og Halldór Bjarnason, f. 20.2. 1922, d.18.12. 2010, kjötmatsmaður í Hafn- arfirði. Núverandi sambýliskona Bjarna er Francoise Bureau, f. 15.11.1964, sérfræðingur í banka í París. Börn Bjarna og Kristínar Þor- bjargar eru 1) Anna Björk Bjarna- dóttir, f. 7.10. 1967, framkvæmda- stjóri hjá Expectus í Reykjavík en maður hennar er Tómas Albert Hol- ton og barnabörnin eru Tómas Heið- ar, f. 1991; Bergþóra, f. 1994, og Bryndís, f. 2011; 2) Guðrún Harpa Bjarnadóttir, f. 12.6. 1969, endur- skoðandi hjá PWC í Reykjavík en maður hennar er Erlendur Pálsson og barnabörnin eru Kristín María, f. 1993; Bjarni Magnús, f. 1995 og lang- afabarnið Matthildur Harpa, f. 2017; 3) Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, f. 15.2. 1974, kennsluráðgjafi hjá mið- stöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og eru barnabörnin Að- algeir, f. 1999; Katrín, f. 2002; og Dagur, f. 2004, og 4) Halldór Heiðar Bjarnason, f. 17.3. 1983, nemi í fjöl- miðlafræði í Reykjavík en kona hans er Lilian Pineda de Avila Systkini Bjarna: Jóhann R. Joh- ansen, f. 30.3. 1947; Henry Berg Joh- ansen, f. 18.6. 1948, d. 9.8. 1950; Jenny Johansen, f. 16.9. 1949; Henry Berg Johansen, f. 15.6. 1951, d. 20.11. 2004, og Ragnar B. Johansen, f. 9.6. 1953. Hálfsystkini Bjarna, sammæðra, eru Karl Geir Arason, f. 4.5. 1959, og Hólmfríður Helga Jósefsdóttir, f. 9.9. 1960. Foreldrar Bjarna voru Antonía Jóna Bjarnadóttir, f. 22.11. 1920, d. 1.10. 2015, verkakona í Hafnarfirði, og Harding Johansen, frá Lofoten í Noregi, f. 15.9. 1921, d. 6.2. 1992, sjó- maður í Neskaupstað. Þau skildu. Bjarni Heiðar Johansen Snjólaug Guðbjörg Magnúsdóttir húsfr. á Eyjólfsstöðum Magnús Jónsson b. á Eyjólfsstöðum í Beruneshr. Ragnheiður Magnúsdóttir húsfr. í Borgarnesi Bjarni Ragnar Jónsson kennari og skipstj. í Bræðraborg og Brekkugerði á Fáskrúðsfirði Antonía Jóna Bjarnadóttir verkak. í Hafnarfirði Rebekka Þórarinsdóttir húsfr. á Núpi á Berufjarðarströnd Jón Bjarnason b., smiður, vefari og sjóm. á Berufjarðarströnd Þórarinn Jónsson kennari og hagyrðingur á Kjaransstöðum við Akranes Magnea Bjarnadóttir húsfr. á Borg í Skötufirði í Djúpi Magnús Guðmundsson lögreglum. í Rvík og b. á Hrísum í Helgafellssveit Gyða Guðmundsdóttir b. í Langadal á Snæfellsnesi Bergþóra Bjarnadóttir húsfr. á Dalvík, síðast á Akureyri Bjarni Torfason hjartaskurðlæknir í Rvík Stefán Svanur Torfason kennari og siglingam. í Kaupmannahöfn Þórlaug Bjarnadóttir verkak. í Rvík Hjördís Magnúsdóttir skrifstofum. í Rvík Sara Bergitte Hansen búsett í Noregi Rasmus Johannessen vinnum. og sjóm. í Noregi Ragnhild Sofie Edvardsen, f. Rasmussen, húsfr. í Gimsöy í Lofoten Johan Bernhard Anton Edvardsen b. og sjóm. í Gimsöy í Lofoten í Noregi Nikoline Olsen búsett í Lofoten Edvard Anton Berg Olsen vinnum. í Lofoten Úr frændgarði Bjarna Heiðars Johansen Harding Kristian Johansen sjóm. í Neskaupstað Valborg Guðmundsdóttir ljósmóðir á Tungufelli í Breiðdal Eyþór Guðmundsson b. og húsasmiður í Fossárdal í Djúpadalshr. Hermann Guðmundsson skólastjóri Guðmundur Magnússon b. á Eyjólfsstöðum ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018 Jakob Tryggvason fæddist áYtra-Hvarfi í Svarfaðardal31.1. 1907, sonur Tryggva Jó- hannssonar, bónda þar, og Guðrúnar Soffíu Stefánsdóttur húsfreyju. Kona Jakobs var Unnur Tryggva- dóttir sem lést 1987 og eignuðust þau þrjú börn, Nönnu fiðluleikara sem lést 1988; Soffíu leikkonu, og Tryggva Kristin landafræðing. Jakob var um fermingaraldur er hann hóf nám í orgelleik hjá Tryggva Kristinssyni, síðar tengda- föður sínum, sem þá var organisti í Vallaprestakalli. Hann fór til Reykjavíkur 1927, stundaði nám við Samvinnuskólann og sótti tíma hjá Sigurði Frímannssyni organista, lauk samvinnuskólaprófi 1927, flutti þá norður aftur og starfaði á skrif- stofu Kaupfélags Eyfirðinga. Árið 1931 fór hann í einkatíma til Páls Ís- ólfssonar í Reykjavík, var í Tónlist- arskólanum þar til 1938 og starfaði jafnframt á Skattstofu Reykjavíkur. Jakob varð organisti við Akureyr- arkirkju 1941 og sinnti því starfi til 1945. Þá fór hann til framhaldsnáms við The Royal Academy of Music í London til 1948. Frá þeim tíma var hann organisti við Akureyrarkirkju óslitið til ársins 1986. Jakob var kennari og skólastjóri við Tónlistarskóla Akureyrar um árabil, frá 1950-74, stjórnaði Lúðra- sveit Akureyrar um tuttugu ára skeið, Lúðrasveit Barnaskóla Akur- eyrar um árabil og kenndi tónmennt við Oddeyrarskóla. Hann þjálfaði Smárakvartettinn á Akureyri og síð- ar Geysiskvartettinn og lék undir með þeim báðum. Þá stjórnaði hann kvennakórnum Gígjunum á Akur- eyri. Eftir Jakob liggur fjöldi útsetn- inga á sönglögum og kirkjutónlist, auk nokkurra frumsaminna verka. Jakob var kjörinn heiðursfélagi Lúðrasveitar Akureyrar 1967, Fé- lags íslenskra organleikara árið 1991 og Kórs Glerárkirkju árið 1994. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1980. Jakob lést 13.3. 1999. Merkir Íslendingar Jakob Tryggvason 85 ára Alfa Guðmundsdóttir Hildur Þórisdóttir Þóra Þorgeirsdóttir 80 ára Gunnhildur Gíslín Guðjónsdóttir Kristján Ágústsson Lára Ágústa H. Kolbeins María H. Jónsdóttir 75 ára Bjarni Heiðar Johansen Borghild Hansen Guðrún Sigurðardóttir Kristín Magnússon Ólöf Sigurðardóttir Sólveig Jóhannesdóttir 70 ára Grétar Þorsteinsson Ingibjörg Kristjánsdóttir Sævar Tjörvason 60 ára Árni Arason Berglind Guðbrandsdóttir Finnur Sveinbjörnsson Ingibjörg J. Þorsteinsdóttir Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir Ómar Einarsson Rósa Þorvaldsdóttir Sigrún Gróa Skæringsdóttir Steinunn Björg Elísdóttir Valgerður Karlsdóttir 50 ára Arnþór Ragnarsson Ásgeir Hinrik Þórisson Fanney Kristjánsdóttir Fjóla Þórdís Friðriksdóttir Gabriel Horendeu Ingibjörg Smáradóttir Jón Ágúst Berg Jónsson Lára Þuríður Pétursdóttir Renata Elzbieta Lesniewska Sigurbjörg Tryggvadóttir Sigurborg Chyntia Karlsdóttir Sigurður H. Alfreðsson Þuríður Jónsdóttir 40 ára Edda Lilja Guðmundsdóttir Finnur Ingi Erlendsson Hafdís Sparkes Ríkarðsdóttir Haraldur Ludvig Haraldsson Hermann Þór Gíslason Liga Dusa Lilja Sædís Sævarsdóttir Marcin Boguslaw Jaroszynski Ragnar Gestsson Þórdís Arna Benediktsdóttir 30 ára Aníta Sólrún Hreiðarsdóttir Böðvar Sigurvin Björnsson Darren Leslie Povall Elísa Guðjónsdóttir Guðmunda Rós Guðrúnardóttir Guðmundur Sævar Halldórsson Kristján Birgisson Lee Ambar Sigrún Hanna Ómarsdóttir Löve Til hamingju með daginn 30 ára Kristján ólst upp á Akureyri, býr þar og starf- ar hjá Tölvulistanum á Glerártorgi á Akureyri. Unnusta: Guðlaug Ragna Magnúsdóttir, f. 1989, heimavinnandi. Dóttir: Kristrún Lea, f. 2012. Stjúpsonur: Magn- ús Adrian, f. 2006. Foreldrar: Alma Axfjörð, f. 1968, húsfreyja, og Birgir Pálsson, f. 1966, öku- og leiðsögumaður. Þau búa á Akureyri. Kristján Birgisson 30 ára Elísa ólst upp í Vestmannaeyjum, býr í Garðabæ, lauk BA-prófi í félagsráðgjöf frá HÍ og er í fæðingarorlofi. Maki: Guðmundur Ómar Linduson, f. 1989, stýri- maður. Dóttir: Hrafnhildur Lind Guðmundsdóttir, f. 2017. Foreldrar: Guðjón R. Rögnvaldsson, f. 1950, og Ragnheiður Einarsdóttir, f. 1954, sem reka Net- hamar í Eyjum. Elísa Guðjónsdóttir 30 ára Böðvar ólst upp á Akranesi, býr í Reykjavík, lauk matreiðslumeistara- námi frá MK og starfar hjá Landsvirkjun. Maki: Aníta Róberts- dóttir, f. 1990, nemi. Börn: Logi, f. 2010, Aþena Líf, f. 2013, og Benjamín Elí, f. 2016. Foreldrar: Björn Sigurður Vilhjálmsson, f. 1967, múrari, og Guðrún Hlíf Gunnarsdóttir, f. 1972, starfsmaður hjá Olís. Böðvar Sigurvin Björnsson Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.