Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSÖLULOK 30%-50%-70%afsláttur
Bolir - Peysur - Túnikur - Kjólar - Buxur - Treflar
Allar töskur 20% afsláttur
50% afsláttur af útsöluvörum
Nýjar vorvörur daglega
Suðurlandsbraut 30 • sími 553 3755
1.915 farþegar fóru um Reykjavík-
urflugvöll í fyrra í einkavélum sem
komu erlendis frá. Þeim hefur
fækkað nokkuð milli ára og hafa
ekki verið færri síðan árið 2010.
Þetta kemur fram í tölum sem
Isavia tók saman fyrir Morgun-
blaðið.
Tölurnar ná til alls flugs sem
hingað kemur frá útlöndum í öðrum
tilgangi en reglubundnu áætlunar-
eða leiguflugi. Þetta flug er allt sett
undir einn hatt, ekki er sundurliðað
hvað eru einkaþotur, litlar einka-
vélar í eigu Íslendinga eða ferju-
flugvélar sem koma við hér á leið
sinni yfir hafið.
Umferð einkaþotna um Reykja-
víkurflugvöll vakti mikla athygli á
árunum fyrir hrunið. Sambærilegar
tölur Isavia sýna að árið 2007 fóru
5.316 farþegar um völlinn. Þeim
fækkaði svo hratt næstu árin en
botninum var náð árið 2010 þegar
1.383 fóru um völlinn með þessum
hætti. Árið 2011 fjölgaði þeim í
1.932 og árin 2012 og 2015 voru
þeir í kringum 2.500. Árið 2016
fækkaði aftur niður í 2.301 og í
fyrra voru þeir 1.915 eins og áður
sagði. Þegar horft er til „hreyf-
inga“, sem eru fjöldi flugtaka og
lendinga, má greina sömu þróun.
Þær voru 3.046 árið 2007. Árið 2016
voru þær 1.846 en þeim fækkaði
niður í 1.552 í fyrra. hdm@mbl.is
Færri komu í einka-
vélum en síðustu ár
Ekki færri farþegar síðan árið 2010
Morgunblaðið/Golli
Einkaþotur Algeng sjón á Reykjavíkurflugvelli 2007 en síður í dag.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fólk verður að tileinka sér ný
vinnubrögð með þrif og aðgengi að
garðyrkjustöðvunum verður tak-
markað frá því sem verið hefur,“ seg-
ir Guðjón Birgisson á Melum í
Hrunamannahreppi, einn af um-
svifameiri tómataræktendum lands-
ins. Nú í haust greindust tveir
plöntusjúkdómar í tómatarækt hér-
lendis, það er veiran Pepino Mosaic
Virus (PepMV) og spóluhnýðissýk-
ing. Niðurstöður nákvæmari rann-
sókna, sem nú liggja fyrir, segja að
veirusmitið af völdum PepMV, sem
er af afbrigðinu Chile 2, eigi sér í öll-
um tilvikum sama uppruna og sé út-
breitt á garðyrkjustöðvum á Suður-
landi, samkvæmt tilkynningu frá
Matvælastofnun.
„Reynslan segir að í 80% tilvika
berist smitið inn í gróðurhúsin með
fólki. Framtíðin er væntanlega því sú
að starfsmenn sem eru við plönturn-
ar séu í hlífðargöllum og öðrum bún-
aði sem þarf. Svo þurfum við að gera
gangskör á stöðvunum með sótt-
hreinsun og annað. Að taka á vand-
anum er fyrst og síðast vinna og
hana förum við bændur í með okkar
fólki,“ segir Guðjón.
Ekki er vitað til þess að veiran hafi
áður náð fótfestu í garðyrkju hér-
lendis. Þá er tekið fram í tilkynningu
frá Matvælastofnun að sé smitið ekki
skaðlegt fólki eða dýrum en spólu-
hnýðissýking geti aftur á móti borist
í kartöflur og því verði að sýna að-
gát. Þá er sömuleiðis vakin athygli á
því að innfluttir tómatar geti borið
með sér smit.
„Það er engin hætta á ferðum, fólk
getur áfram borðað íslenska tómata
óhrætt,“ segir Guðjón.
Greina sýkingu og
veiru í tómötum
Aðgengi að garðyrkjustöðvum tak-
markað Starfsmenn í hlífðargalla
Morgunblaðið/Þorkell
Grænmeti Tómatar eru gæðafæða.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis hefur borist 21 umsögn um
frumvarp til laga um breytingar á
kosningum til sveitarstjórna, þar sem
kosningaaldur verði lækkaður úr 18
árum í 16. Andrés Ingi Jónsson, þing-
maður VG, er fyrsti flutningsmaður
en 13 aðrir þingmenn eru meðflutn-
ingsmenn. Frumvarpið er nú endur-
flutt en það var Katrín Jakobsdóttir,
formaður VG, sem var fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins á síðasta
þingi.
Umsögn UNICEF á Íslandi og
ungmennaráðs UNICEF er jákvæð í
garð frumvarpsins, en þar er þó bent
á að aukin þátttaka barna leggi jafn-
framt auknar skyldur á herðar stjórn-
valda, skóla og samfélagsins alls um
að virða rétt barna til skoðana, tján-
ingar og félagafrelsis.
Umsagnir frá ungmennahreyfing-
um eins og Landssambandi ung-
mennafélaga, nemendafélögum, Sam-
bandi íslenskra framhaldsskólanema,
Ungum vinstri grænum, ungmenna-
ráðum sveitarfélaga og Ungmenna-
ráði UMFÍ eru flestar jákvæðar og
mælt með því að frumvarpið verði
samþykkt.
Í umsögn Sambands íslenskra
sveitarfélaga kemur fram að stjórn
sambandsins telji almennt óheppilegt
að breyta lögum um kosningar til
sveitarstjórna þegar örfáir mánuðir
séu til sveitarstjórnarkosninga.
„Hvað varðar kjörgengi 16 ára
ungmenna telur sambandið vera til-
efni til þess að skoða sérstaklega
hvort rökrétt sé að ungmenni sem
ekki hafa öðlast sjálfræði og fjárræði
geti tekist á hendur þá ábyrgð að taka
sæti í sveitarstjórn,“ segir m.a. í um-
sögninni.
Þá minnir Samband íslenskra
sveitarfélaga á að ÖSE hafi um árabil
fylgst með framkvæmd kosninga hér
á landi. Stofnunin hafi almennt varað
við því að ráðast í breytingar á kosn-
ingalöggjöf skömmu fyrir kosningar.
Benda á Danmörku
Í niðurlagi umsagnarinnar kemur
fram það mat sambandsins að grund-
vallarbreytingar á reglum um kosn-
ingarétt þurfi að byggjast á vönduð-
um grunni og styðjast við veigamikil
rök. Samhliða mati á því hvort lækka
eigi kosningaaldur þurfi að skoða
hvort aðrar aðgerðir séu nauðsynleg-
ar til að styðja við slíka breytingu og
hvort aðrar aðgerðir séu jafnvel betur
til þess fallnar að ná markmiði um
aukna lýðræðislega þátttöku. Vakin
er athygli á þeim árangri sem náðst
hafi í Danmörku í sveitarstjórnar-
kosningum 2013 þar sem tekist hafi
að auka kosningaþátttöku almennt
um 6% og meðal ungmenna 18-21 árs
um 13%. Þar í landi hafi lækkun kosn-
ingaaldurs ekki verið í forgangi, frem-
ur en í öðrum norrænum grannríkj-
um, við skoðun á úrræðum til að auka
kosningaþátttöku.
Skiptar skoðanir á
lækkun kosningaaldurs
Unga fólkið almennt jákvætt í garð frumvarpsins um
lækkun kosningaaldurs til sveitarstjórna í sextán ár
Morgunblaðið/Eggert
Frumvarp Alþingi hefur fengið 21
umsögn um lækkun kosningaaldurs.