Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú finnur til sterkrar samkenndar
með vini þínum í dag. Reyndu að hafa hlut-
ina á hreinu og láta ekki stressið ná tökum á
þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt þér sé illa við að vera í sviðsljós-
inu koma þær stundir í þínu starfi að þú
verður að ganga fram fyrir skjöldu. Gerðu
þitt besta og leggðu þig fram.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér gengur margt í haginn og áhrif
þín eru mikil. Sérstaklega á þetta við um
fjármálin en einnig flest svið önnur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur augastað á einhverjum lúx-
usvarningi til eigin nota þessa dagana.
Gerðu ráð fyrir einhverju óvæntu og reyndu
að fyrirbyggja slys.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er líklegt að yfirmenn þínir setji
fram ákveðnar hugmyndir um breytingar í
dag. Reyndu að breyta þeim aðstæðum sem
þú ert ósátt/ur við.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þig langar til að vinna afrek, og þú
hefur kraftinn til að gera það fljótt og vel.
Gerðu það sem til þarf og ræddu svo við fjöl-
skylduna um þau vandamál sem þarf að
leysa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur verið skemmtilegt að krydda
hversdagsleikann með smávægilegum uppá-
tækjum. Listir, leiksýningar, kvikmyndir,
skemmtanir og ástarævintýri geta glatt þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Kannski þarftu að takast á við
erfiða manneskju eða við erfitt verfkefni í
dag. Haltu þínu striki og láttu athugasemdir
sem vind um eyru þjóta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að taka þig saman í
andlitinu og einbeita þér að því sem fyrir
liggur. Skrifaðu hugsanir þínar niður áður en
þú deilir þeim með öðrum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur verið varasamt að
hlaupa upp til handa og fóta af minnsta til-
efni. Gerðu allt sem þú getur til þess að
auka víðsýni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ferðaáætlanir vekja áhuga þinn.
Það getur alltaf eitthvað farið úrskeiðis á
ferðalögum svo þú skalt vera við öllu búinn.
Spenntu beltið og haltu af stað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú færð tækifæri til að koma þér á
framfæri svo nú er að bretta upp ermarnar.
Árangurinn er sumum allt en sjálfum finnst
þér mestu varða hvernig þeim árangri er
náð.
Robert Altman var einn af virtustuleikstjórum síns tíma og er enn í
miklum metum. Ein af hans þekkt-
ustu myndum er MASH með Donald
Sutherland og Elliot Gould í aðal-
hlutverkum. Myndin gerist á sjötta
áratugnum í hersjúkrabúðum
skammt frá víglínunni í Kóreustríð-
inu. Aðalsöguhetjurnar eru skurð-
læknar, sem kvaddir hafa verið í
herinn. Þeir leggja sig fram í skurð-
stofunni, en bera litla virðingu fyrir
titlatoginu og aganum í hernum og
taka upp á ýmsu til að halda sönsum.
Vinsældir myndarinnar má ugglaust
rekja til þess að Víetnamstríðið stóð
sem hæst þegar hún var sýnd og
ádeilan hitti í mark.
x x x
MASH var sýnd í Ríkissjónvarp-inu á laugardagskvöld og ákvað
Víkverji að setjast fyrir framan sjón-
varpið og athuga hvernig þessi 48
ára gamla mynd hefði elst. Þegar í
upphafi kom í ljós að hún er barn
síns tíma. Í einni af fyrstu senunum
sest einn læknirinn niður hjá blá-
ókunnugri hjúkrunarkonu og byrjar
að áreita hana kynferðislega. Áreitn-
in heldur síðan áfram og nær há-
marki með því að yfirhjúkrunarkona
búðanna er niðurlægð þegar tjaldi
er svipt frá þar sem hún er kviknak-
in í sturtu fyrir framan alla í búð-
unum.
x x x
Víkverji var búinn að gefast upp ámyndinni og skipta um rás áður
en að þessu atriði kom (og kannski
kom það ekki – í einhverjum út-
gáfum hennar mun það hafa verið
klippt út), en helst datt honum í hug
þótt útilokað væri að Harvey Wein-
stein hefði verið framleiðandi.
x x x
Víkverji hefur oft hugsað með sérað sumum bíómyndum sé best
að leyfa að lifa í minningunni, þær
þoli ekki að horft sé á þær aftur
mörgum árum ef ekki áratugum síð-
ar. Víkverji var hrifinn af MASH
þegar hann sá myndina í Nýja bíói á
sínum tíma, reyndar ekki enn kom-
inn á táningsaldur, en er kominn að
þeirri niðurstöðu að hún þoli ekki
einu sinni að fá að lifa bara í minn-
ingunni. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn
kross og fylgir mér getur ekki verið
lærisveinn minn.“
(Lúk: 14.27)
LAUS VIÐ VERKI VEGNA SLITGIGTAR
FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐA
„Ég hef verið að kljást við slitgigt í hnjám og mjóbaki í fjölmörg ár og
prófað margt, bæði lyf og náttúrulyf . bæklunarlækni r benti mér á
að huga betur að lífstílnum og taka innNUTRILENKGOLD Ég
fór að hans ráðum og batinn er ótrúlegur. Ef ég sleppi því að taka inn
NUTRILENKGOLDþá finn ég verkina koma aftur.
Ég mæli heilshugar meðNUTRILENKGOLD.“
Hinrik Ólafsson leikari, kvikmyndagerðarmaður og leiðsögumaður
Nutrilenk fyrir liðina
Náttúrul
egt
fyrir liðin
a
GOLD
NNA
Vertu laus við
LIÐVERKINA
Eitt mest selda efnið fyrir liðina hér á landi
Ólafur Stefánsson er trúrLeirnum og setur svip á
hann. Um daginn afsakaði hann að
meira hefði farið út í loftið en ætl-
að var en sá póstur hafði raunar
misfarist. Svo að Björn Ingólfsson
spurði: „Hvað ertu að afsaka,
Ólafur? Ég hef ekki séð neitt fara
í loftið frá þér lengi, hvorki mynd
af Pétri né nokkuð annað:“
Á Leirnum gerist ekki oft,
enda bannað,
að Ólafur sendi út í loftið loft
og lítið annað.
Ólafur brást vel við og nú úr
óvæntri átt: „Það er eins og hver
önnur vitleysa þegar Björn á
Grenivík kallar sig gamlan mann
en gott að hann fari út til að skófla
snjó og liðka sig á þorranum,“
segir hann og skírskotar til vísna
eftir Björn, sem hér birtust á
mánudag:
Af því fæ aldrei nóg
orðinn þetta gamla hró
að kafa mjöll í mitti og þjó
og moka snjó.
Eftir streðið oft er þó
af því fró
að komast inn í kaffibolla
og korríró.
Hér er vísa Ólafs:
Þorra karlinn þrýtur vörn,
þreyta í bili dokar,
er Grenivíkur-gamli-björn,
gengur út og mokar.
Þessu svaraði Björn um hæl:
Með talsverðu brauki og bramlan
bragfræðin setti á mig hamlan
og upp á mig ló
þessum leiðinda róg.
Það var rímið sem gerði mig gamlan.
Og Ólafur lét ekki standa upp á
sig:
Þetta’ eru þægileg rök.
En þykir Birni slíkt gott,
að rímið reynist oft skrök
og ryðji sannleika brott?
Og áfram hélt hann:
Það rekja má fyrir því rök
að rímið sé barasta skrök.
Skrum eða skreyti
að langmestu leyti,
og vitónýt vettlingatök.
Krummi Hrafns yrkir á Boðn-
armiði:
Nú er úti regn og rok,
raun ég greini þunga.
Hvenær verða vetrarlok,
vor með lóuunga?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þorri karlinn og
Grenivíkur-Björn
„OG ALLIR MENN KÓNGSINS OG ALLIR
HANS HESTAR SPILLTU SÖNNUNAR-
GÖGNUM Á VETTVANGI.“
„VÁ, ÞETTA VEKUR GAMLAR MINNINGAR!
ÉG HEF EKKI SÉÐ SVONA JAKKAFÖT
Í 30 ÁR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hitta bestu
vini þína.
HVERNIG HAFIÐ
ÞÉR HAFT ÞAÐ,
HR. ÁRDAL?
ÉG? Ó, ÞÚ ÞEKKIR MIG… DAGA-
TALIÐ MITT ER PAKKAÐ…
BARA PAKKAÐ
Æ, ÞAÐ ER
SLÆMT
NEI SKO, HVAÐ HELDURÐU?
ENGLANDSDROTTNING
VAR AÐ FRESTA FUND -
INUM OKKAR!
HRÓLFUR, SPYRÐ ÞÚ
ÞIG EINHVERN TÍMANN
SPURNINGA UM ÞAÐ
SEM VIÐ GERUM?
JÁ! ÉG SPYR MIG
ALLTAF…
HVERNIG VARÐ ÉG SVONA HEPPINN?
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann