Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018
mikið við Mývatn. Mig langaði til
að láta textann vera í fyrirrúmi og
styðja hann með þessum frábæru
vatnslitamyndum sem hann Árni
minn gerir. Hann nær fuglunum
afar vel með næmni sinni og þekk-
ingu.“
Spurð hvað taki við í framhald-
inu segir Unnur í gamansömum
tón að kannski ætti hún bara að
hætta á toppnum. „Ég er frekar
hægur rithöfundur. Það líður yf-
irleitt fremur langt á milli bóka hjá
mér. Ég er með hugmyndir og við-
fangsefni í tölvunni, en ég er ekk-
ert búin að ákveða eitthvað eitt,“
segir Unnur. En er hún búin að
eyrnamerkja verðlaunaféð í eitt-
hvað? „Er ekki alltaf gaman að
ferðast fyrir verðlaunafé? Þetta má
að minnsta kosti ekki fara í hítina,
heldur verður að nýtast í eitthvað
eftirminnilegt,“ segir Unnur.
Kallar eftir meiri umræðu
„Ég er afskaplega ánægð með að
myndabók hafi orðið fyrir valinu í
ár. Mér fannst við vera í góðum
hópi, enda hinar tilnefndu bæk-
urnar alveg frábærar. Ég er sann-
færð um að þær bækur eigi líka
eftir að sjást víða,“ segir Áslaug
Jónsdóttir, einn þriggja höfunda
bókarinnar Skrímsla í vanda. Frá
því byrjað var að verðlauna í flokki
barna- og ungmennabóka árið 2013
hafa aðeins skáldsögur unnið flokk-
inn og er Skrímsli í vanda fyrsta
myndabókin sem sigrar.
Innt eftir því hvort Íslensku bók-
menntaverðlaunin muni hjálpa
skrímslabókaflokknum á erlendri
grundu bendir Áslaug á að bók-
unum vegni nú þegar vel erlendis.
„Þær eru komnar út á yfir 15
tungumálum, þeirra á meðal kín-
versku og arabísku og senn á rúss-
nesku. Ég er sannfærð um að verð-
launin muni hjálpa bókunum enn
frekar. Það besta við viðurkenn-
ingar er að þær leiða til aukinnar
umræðu,“ segir Áslaug og kallar
eftir enn meiri umræðu, bæði um-
fjöllun og gagnrýni, um barnabæk-
ur í íslenskum fjölmiðlum.
Snýst um samkenndina
Skrímsli í vanda er níunda bókin
í bókaflokknum um skrímslin, sem
hóf göngu sína árið 2004 með Nei!
sagði litla skrímslið. Spurð hvort
nýjasta bókin sé sú besta að mati
höfundar svarar Áslaug: „Þetta er
sú bók sem stendur hjarta mínu
næst út af efninu. Þarna erum við
að skoða tilfinningar sem geta ver-
ið erfiðar, þ.e. sjálfselska, af-
brýðisemi og ótti við missi. Þegar
þriðja skrímslið kemur í heimsókn,
illa til reika, kemur í ljós að það er
heimilislaust og vill fá að búa hjá
litla skrímslinu. Við erum að skoða
hvaða tilfinningar bærast með
þeim sem fá vin í vanda í heimsókn
og hvernig við bregðumst við. Ég
held að allir þurfi að viðurkenna og
skoða þær blendnu tilfinningar
sem slíkar aðstæður vekja. Í
grunninn snýst þetta um getuna til
að geta sett sig í spor annarra. Við
getum öll lent í þeim aðstæðum að
verða heimilislaus. Það hefur gerst
hér á Íslandi út af náttúruhamför-
um. Ég held að við verðum að
horfa á heiminn út frá okkur sjálf-
um – viljum við sjálf fá hjálp ef við
lendum í erfiðum aðstæðum?“ spyr
Áslaug og bendir á að öll stjórn-
umst við af tilfinningum og því sé
mikilvægt að skoða þær vel.
Óþrjótandi brunnur
„Það er svo gott að nota skrímsli
til að skoða tilfinningar. Skrímsli
eiga oft að vera hræðileg, en þau
eru sjálf hrædd við margt. Þegar
þau eru hræðileg þá eru þau birt-
ingarmynd þess hræðilega í okkur
sjálfum, enda eru skrímsli fulltrúar
okkar mannfólksins á einn eða ann-
an hátt.“ Spurð hvort höf-
undaþríeykið sé þegar farið að
leggja drög að næstu skrímslabók
svarar Áslaug því játandi.
„Þetta virðist vera óþrjótandi
brunnur. Við erum þegar tilbúin
með tvö handrit sem við eigum eft-
ir að leggjast betur yfir. Í sam-
starfi okkar leggjum við fram
handrit hvert og eitt sem fer síðan
í gegnum umræðu og gagnrýni hjá
hinum tveimur. Þannig eignumst
við öll hlutdeild í textanum,“ segir
Áslaug og tekur fram að oft sé ein-
faldast að fá góða hugmynd. „Að-
alvinnan fer í að útfæra hugmynd-
ina í það form sem við erum sátt
við, þannig að frásögnin standi sem
sjálfstætt verk.“
Aðspurð segist Áslaug hafa unn-
ið skrímslabækurnar á starfs-
launum. „Ég er svo ljónheppin að
hafa fengið starfslaun til að vinna
við barnabækur, sem er ómet-
anlegt því annars hefðu þessar
bækur ekki orðið til,“ segir Áslaug
og tekur fram að hún sæki ávallt
um starfslaun til að skila heild-
arverki. „Ég skrifa, myndlýsi, brýt
um bækurnar og kem þeim í prent-
smiðjuna. Allt á að hanga saman.
Myndirnar fæðast um leið og text-
inn,“ segir Áslaug og bendir á að
það taki oft nokkra mánuði að
myndlýsa bók á borð við skrímsla-
bækurnar. „Sumir halda að þetta
sprautist út úr prentanum hjá
manni. Á bak við hverja hugmynd
sem maður notar eru ótal hug-
myndir sem maður hefur hafnað.
Öll sú vinna sem liggur að á bak við
hverja bók er ósýnileg,“ segir Ás-
laug.
Spurð hvort höfundarnir þrír séu
búnir að ákveða í hvað verðlauna-
fénu verði varið svarar Áslaug kím-
in: „Kannski ég noti minn hlut til
að borga niður námslánin. En að
öllu gamni slepptu, þá verður verð-
launaféð nýtt í áframhaldandi
skrif. Þetta fer allt í það að vera
skapandi manneskja,“ segir Ás-
laug.
Fjögurra manna lokadómnefnd valdi vinningsverkin úr
hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verð-
launanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur
voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skip-
uðu Helga Ferdinandsdóttir, Hulda Proppé, Sigurjón
Kjartansson og Gísli Sigurðsson, sem var jafnframt var
formaður nefndarinnar.
Athygli vekur að þetta árið er meirihluti verðlauna-
hafa konur. Það hefur aðeins einu sinni áður gerst í
sögu verðlaunanna, en það var í fyrra þegar Auður Ava
Ólafsdóttir hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta,
Hildur Knútsdóttir í flokki barna- og ungmennabóka og
Ragnar Axelsson í flokki fræðirita og bóka almenns
efnis. Aðeins einu sinni í sögu verðlaunanna hafa allir
verðlaunahafar verið konur, en það var árið 1994 þegar
Vigdís Grímsdóttir hlaut verðlaunin í flokki fagur-
bókmennta og Silja Aðalsteinsdóttir í flokki fræðirita
og bóka almenns.
Alls tilnefndar 15 bækur í þremur flokkum
Auk verðlaunaverksins Elín, ýmislegt eftir Kristínu Ei-
ríksdóttur sem Mál og menning gaf út voru í flokki fag-
urbókmennta tilnefndar í stafrófsröð höfunda: Flórída
eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur sem Benedikt bókaút-
gáfa gaf út; Saga Ástu eftir Jón Kalman Stefánsson
sem Benedikt bókaútgáfa gaf út; Kóngulær í sýning-
argluggum eftir Kristínu Ómarsdóttur sem JPV útgáfa
gaf út og Handbók um minni og gleymsku eftir Ragnar
Helga Ólafsson sem Bjartur gaf út.
Auk verðlaunaverksins Undur Mývatns – um fugla,
flugur, fiska og fólk eftir Unni Þóru Jökulsdóttur sem
Mál og menning gaf út voru í flokki fræðirita og bóka
almenns efnis tilnefndar Málarinn og menningar-
sköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið 1858-
1874 í ritstjórn Karls Aspelund og Terry Gunnell sem
Þjóðminjasafn Íslands og Bókaútgáfan Opna gáfu út;
Leitin að klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í fimm
aldir eftir Steinunni Kristjánsdóttur sem Sögufélag
gaf út í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands; Líftaug
landsins: Saga íslenskrar utanlandsverslunar 900-
2010 í ritstjórn Sumarliða R. Ísleifssonar sem Skrudda
gaf út og Sjálfstætt fólk: Vistarband og íslenskt sam-
félag á 19. öld eftir Vilhelm Vilhelmsson sem Sögu-
félag gaf út.
Auk verðlaunaverksins Skrímsli í vanda eftir Áslaugu
Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal sem Mál
og menning gaf út voru í flokki barna- og ungmenna-
bóka tilnefndar Er ekki allt í lagi með þig? eftir Elísu
Jóhannsdóttur sem Vaka-Helgafell gaf út; Fuglar eftir
Hjörleif Hjartarson og Rán Flygenring sem Angústúra
gaf út; Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ishmaels eftir
Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem Mál og menning gaf
út og Þitt eigið ævintýri eftir Ævar Þór Benediktsson
sem Mál og menning gaf út.
Verðlaunaféð nemur einni milljón króna
Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón
króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi
íslenskra bókaútgefenda. Auk þess eru verðlauna-
höfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlauna-
gripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á
gullsmíðaverkstæði Jens; opin bók á granítstöpli með
nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.
Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið
1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bóka-
útgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889.
Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en til-
nefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóð-
skáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin
fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Árið eftir var tilhögun
verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skipt-
ust í tvo flokka, fagurbækur annars vegar og fræðirit
og bækur almenns efnis hins vegar. Þannig hafa verð-
launin haldist óbreytt til ársins 2013 að við bættist
flokkur barna- og ungmennabóka.
Tveir höfundar hafa unnið þrisvar sinnum
Alls hafa 64 höfundar hlotið verðlaunin í gegnum tíð-
ina, þar af 19 konur og 45 karlar. Þrír höfundar hafa
hlotið verðlaunin tvisvar. Þetta eru þau Guðbergur
Bergsson í flokki fagurbókmennta árin 1991 og 1997;
Hörður Ágústsson í flokki fræðirita og bóka almenns
efnis árin 1990 og 1998 og Silja Aðalsteinsdóttir í
flokki fræðirita og bóka almenns efnis árin 1994 og
2005. Tveir höfundar hafa hlotið verðlaunin þrisvar
sinnum. Þetta eru Guðjón Friðriksson í flokki fræðirita
og bóka almenns efnis árin 1991, 1997 og 2003 og
Andri Snær Magnason sem hlaut þau 1999 í flokki fag-
urbókmennta, 2006 í flokki fræðirita og bóka almenns
efnis og 2013 í flokki barna- og ungmennabóka og er
hann eini höfundurinn sem hlotið hefur verðlaunin í
fleiri en einum flokki.
Kristín Eiríksdóttir er níunda konan sem hlýtur verð-
launin í flokki fagurbókmennta, en alls hafa 19 karl-
menn hlotið verðlaunin í sama flokki.
Unnur Þóra Jökulsdóttir er sjötta konan sem hlýtur
verðlaunin í flokki fræðirita og bóka almenns efnis, en
alls hafa 25 karlmenn hlotið verðlaunin í sama flokki.
Áslaug Jónsdóttir og Rakel Helmsdal eru þriðja og
fjórða konan sem hljóta verðlaunin í flokki barna- og
ungmennabóka, en alls hafa þrír karlmenn hlotið verð-
laun í sama flokki.
Konur í meirihluta verðlaunahafa í ár
ALLS HAFA 64 HÖFUNDAR VERIÐ VERÐLAUNAÐIR Á 29 ÁRUM
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Mið 7/2 kl. 20:00 aukas. Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Sun 11/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Fim 8/2 kl. 20:00 13. s Fös 16/2 kl. 20:00 16. s
Fim 1/2 kl. 20:00 11. s Sun 11/2 kl. 20:00 14. s Fim 22/2 kl. 20:00 17. s
Fös 2/2 kl. 20:00 12. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 2/2 kl. 20:00 49. s Fös 9/2 kl. 20:00 51. s Lau 17/2 kl. 20:00 53. s
Lau 3/2 kl. 20:00 50. s Sun 11/2 kl. 20:00 52. s Mið 21/2 kl. 20:00 54. s
Draumur um eilífa ást
Medea (Nýja sviðið)
Mið 31/1 kl. 20:00 8. s Fim 1/2 kl. 20:00 9. s Fös 2/2 kl. 20:00 Lokas.
Stuttur sýningatími. Allra síðustu sýningar!
Lóaboratoríum (Litla sviðið)
Mið 31/1 kl. 20:00 3. s Sun 4/2 kl. 20:00 5. s Lau 10/2 kl. 20:00 7. s
Fim 1/2 kl. 20:00 4. s Mið 7/2 kl. 20:00 6. s Fim 15/2 kl. 20:00 8. s
Í samvinnu við Sokkabandið.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Allra síðustu sýningar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Lau 10/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Mið 21/2 kl. 19:30 Fors Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 22/2 kl. 19:30 Fors Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn
Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn
Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn
Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 20.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 21.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Hafið (Stóra sviðið)
Sun 4/2 kl. 19:30 11.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 LOKA
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Faðirinn (Kassinn)
Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn
Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn
Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 13.sýn
Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn
Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn
Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn
Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Fim 22/2 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 4/2 kl. 13:00 7.sýn Sun 11/2 kl. 13:00 9.sýn
Sun 4/2 kl. 15:00 8.sýn Sun 11/2 kl. 15:00 10.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00
Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 1/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 22:30
Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 22:30 Lau 24/2 kl. 20:00
Fös 2/2 kl. 22:30 Fim 15/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 22:30
Fös 2/2 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 20:00 Sun 25/2 kl. 20:00
Lau 3/2 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30 Fim 1/3 kl. 20:00
Lau 3/2 kl. 22:30 Lau 17/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 20:00
Sun 4/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 22:30 Fös 2/3 kl. 22:30
Fim 8/2 kl. 20:00 Sun 18/2 kl. 21:00
Konudagur
Lau 3/3 kl. 20:00
Fös 9/2 kl. 20:00 Fim 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 22:30
Fös 9/2 kl. 22:30 Fös 23/2 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!