Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018 Ármúla 24 • S. 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16 – www.rafkaup.is Rósa Þorvaldsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Snyrtimið-stöðvarinnar, á 60 ára afmæli í dag. Hún stofnaði fyrirtækið ár-ið 1979, aðeins 21 árs gömul, og verður Snyrtimiðstöðin því 40 ára á næsta ári. Fyrirtækið er ein elsta snyrtistofa landsins og býður upp á nudd, fótaaðgerðir og alla almenna snyrtingu og húðflúr. Þar á meðal er orð- ið vinsælt að húðflúra á sig augabrúnir. „Við byrjuðum á því árið 1998 þegar við vorum með kínverskan snyrtifræðing hjá okkur. Það hefur ýmislegt bæst við hjá okkur síðan á þessum 39 árum, alls konar með- ferðir og tæki. Þegar við byrjuðum var verðskráin hjá okkur hálft A4- blað en nú er hún orðin sex blaðsíður. Það var allt svo miklu einfaldara árið 1979.“ Sjálf gengur Rósa í öll störf. „Ég er í fótaaðgerðunum og tattúinu m.a. Ég er búin að vinna við þetta í 41 ár, byrjaði 19 ára, og þetta starf byggist á stöðugri endurmenntun sem ég hef verið dugleg við að afla mér. Þegar ég er ekki að vinna þá ferðast ég mikið og fer á skíði. Ég er einnig að gera upp gamla sveitabæinn sem ég ólst upp í á Bíldsfelli í Grafningi. Svo hef ég til fjölda ára sinnt stjórnarstörfum í Félagi ís- lenskra snyrtifræðinga og Félagi íslenskra fótaaðgerðafræðinga og tók virkan þátt í stofnun þessara félaga og ég er í Félagi kvenna í atvinnu- lífinu. Svo á ég fimm börn og fjögur barnabörn.“ Eiginmaður Rósu er Sturla Pétursson til 40 ára, fasteignasali hjá Val- höll. Þau hjónin reka líka Next Apartments íbúðaleigu. Börn þeirra eru Þórarinn Ingi, Íris Friðmey, Ívar Freyr, Helena Rós og Sóley Rún. Rósa verður með opið hús í dag að heimili sínu í Fossvoginum fyrir vini og vandamenn frá kl. 16 og fram eftir kvöldi. Fjölskyldan Rósa og Sturla ásamt börnum og tveimur barnabörnum. Hefur rekið snyrti- stofu í tæp 40 ár Rósa Þorvaldsdóttir er sextug í dag B jarni Heiðar Johansen fæddist á Búðum í Fá- skrúðsfirði 31.1. 1943 og ólst upp þar og í Nes- kaupstað til níu ára ald- urs. Þá flutti fjölskyldan til Hafn- arfjarðar. Bjarni fór tíu ára í sveit til Magneu Bjarnadóttur, móðursystur sinnar, á Borg í Skötufirði. „Þar kynntist ég bú- skap og lærði að vinna. Eftir þrjú sumur þar fór ég til annarrar móður- systur, Bergþóru Bjarnadóttur á Dal- vík. Þar lærði ég að hlaupa á skautum á Svarfaðardalsá og tók fullnaðarpróf á Dalvík. Næsta sumar fór ég í sveit að Bakka í Svarfaðardal þar sem áhugi minn á vinnuvélum vaknaði. Eftir fermingu var ég að Neðra- Vatnshorni hjá Guðrúnu Magnús- dóttur og Braga Sigurðssyni og vann þar í þrjú sumur og einn vetur.“ Bjarni lauk búfræðingsprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1961 og prófi frá íþróttaháskólanum í Ollerup á Fjóni í Danmörku 1964. Bjarni starfaði hjá Ræktunar- sambandi Borgarfjarðardala 1961-63. Vorið 1964 stofnaði hann, ásamt tveimur Borgnesingum, Þungavinnu- vélar Borgarfjarðar og var þar jarð- ýtustjóri til 1970. Þá hóf hann störf hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi, vann þar fyrst á skrifstofu og síðan við mælingar í sex ár. Árið 1976 flutti Bjarni og fjöl- skylda hans til Noregs þar sem hann stundaði nám við Gjøvik Ingeniør- høgskole og lauk þaðan prófi í bygg- ingartæknifræði árið 1979. Fjöl- skyldan flutti síðan aftur í Borgarnes þar sem Bjarni varð umdæmis- tæknifræðingur hjá Vegagerðinni í sex ár og síðan bæjartæknifræðingur hjá Borgarnesbæ til 1989. Enn lá leiðin til Noregs þar sem eiginkona Bjarna, Kristín Þ. Hall- dórsdóttir, stundaði nám í rekstrar- og markaðsfræðum, en hann var Bjarni H. Johansen, fv. þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni – 75 ára Í safnaferð Bjarni, ásamt börnum sínum, tengdabörnum, barnabörnum og sambýliskonu, í Louvre-safninu í París. Á fullu í fjölbreytilegum áhugamálum sínum Afmælisbarnið Bjarni Heiðar. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.