Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 7

Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið hefur birt drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum laga- ákvæðum um fiskeldi. Frumvarpið grundvallast að mestu leyti á til- lögum starfshóps um stefnumótun í fiskeldi sem fram kom sl. sumar. Ráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarpsdrögin og þurfa þau að berast í síðasta lagi 9. febrúar. Markmið frumvarpsins er að styrkja lagaumgjörð fiskeldis þann- ig að því séu sköpuð bestu mögulegu skilyrði til uppbyggingar og það verði öflug atvinnugrein, að því er fram kemur í tilkynningu ráðuneyt- isins. Því er jafnframt ætlað að leggja grunn að öflugu og skilvirku eftirliti með fiskeldi og stuðla að ábyrgu fiskeldi þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkisins er höfð að leiðarljósi. Þá er frumvarpinu ætlað að mæta kröfum um náttúruvernd, gegnsæi, aukna upplýsingagjöf og betra aðgengi almennings að upplýs- ingum um fiskeldi. Með frumvarpinu er fest í sessi áhættumat Hafrannsóknastofnunar vegna erfðablöndunar eldislax við náttúrulegan lax. Meðal annarra nýmæla er að fallið er frá „fyrstur kemur, fyrstur fær“ aðferðinni við úthlutun eldisleyfa. Frumvarpið gerir ráð fyrir að aug- lýsa skuli úthlutun eldissvæða og taka hagstæðasta tilboði. Auðlindagjald boðað Fram kemur í tilkynningu ráðu- neytisins að unnið er að gerð frum- varps til laga um auðlindagjald í fiskeldi. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, greinir frá því á Facebook- síðu sinni að gengið sé út frá því að stærstur hluti gjaldsins renni til uppbyggingar innviða á þeim svæð- um sem nýtt verða til uppbyggingar fiskeldis. Markmiðið sé að styrkja stoðir atvinnulífs á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stund- að. helgi@mbl.is Fiskeldis- svæðum út- hlutað til hæstbjóðanda  Frumvarpsdrög eru til umsagnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Breytingar á lögum um fiskeldi eru í bígerð. Mynd úr safni. Dreifingardögum bréfapósts Pósts- ins í þéttbýli fækkar frá og með morgundeginum og verður borið út annan hvern virkan dag og A-póst- ur, sem, borinn hefur verið út dag- lega, verður aflagður. Sama tíðni verður nú á bréfadreifingu um allt land. Í fréttatilkynningu frá Póstinum kemur fram að sú staðreynd að eft- irspurn eftir bréfadreifingu sé sí- fellt að minnka kalli á að dreifing- ardögum fækki. Frá árinu 2007 hafi bréfum fækkað um meira en 56% og um 9% á síðasta ári. Á sama tíma hafi kostnaður við bréfadreifingar aukist, m.a. vegna fjölda nýrra íbúða og fyrirtækja. „Póstburðargjöld hafa að undan- förnu ekki staðið undir þjónustunni og með því að bréfum sé safnað og fleiri borin út í hverri ferð verður dreifingin bæði umhverfisvænni og hagkvæmari,“ segir orðrétt í til- kynningu. Fram kemur að Pósturinn muni áfram bjóða upp á að dreifa bréf- um næsta virka dag en í boði verði nýr valkostur, svokallað forgangs- bréf. Þar kemur jafnframt fram að áframhaldandi vöxtur sé í pakka- sendingum og verði pökkum áfram dreift daglega virka daga vikunnar. „Þetta er nauðsynlegt skref í takt við breyttar þarfir fólks... Það er búið að vera fyrirséð lengi að bréfadreifing alla virka daga er of- þjónusta,“ er m.a. haft eftir Ingi- mundi Sigurpálssyni, forstjóra Póstsins, í tilkynningu. agnes@mbl.is Dreifingardögum bréfapósts fækkar  Bréfum hefur fækkað um meira en 56% frá árinu 2007 50,6 48,7 43,9 39,1 35,1 32,2 30,1 27,7 26,0 24,2 22,0 Magn bréfapósts 2007 til 2017 Milljónir bréfa 50 40 30 20 10 0 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 Heimild: Pósturinn Breyting 2016-2017: -9,0% Breyting 2007-2017: -56,5%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.