Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
Helga Vala Helgadóttir, þing-maður, taldi „þrjá fjölmiðla“
langbesta á Íslandi. Þetta kom fram
í athugasemd við orð Óla Björns
Kárasonar alþingismanns. Helgu
Völu þótti Óli Björn ekki tala af
nægjanlegri aðdáun
um „RÚV“: „...okkar
sameiginlegu menn-
ingarstofnun, þessa
ævagömlu stofnun
sem nýtur algerrar
sérstöðu í fram-
leiðslu upplýsinga
og menningarefnis
hér á landi, að mað-
ur gapir bara.“
Svo nefndi hún„fjölmiðlana
þrjá“: „RÚV Sjón-
varp, Rás 1 og Rás 2,
innir af hendi hvern
dag árið um kring. Það er enginn
fjölmiðill á pari við þá þrjá fjölmiðla
þegar kemur að upplýsinga- og
menningarhlutverki.“
Í umræðu um „RÚV“ sem þarna erkölluð „þrír fjölmiðlar“ tala sum-
ir á vinstri kantinum af trúarhita og
með tilburðum til að þagga niður
gagnrýni. „RÚV“ hefur flutt og
geymt margvíslegt stórgott menn-
ingarefni, sem illt væri ef týndist.
Aðrir ljósvakamiðlar eru nú færirum að gera það ef það væri
fjárhagslega fært. Fjórir milljarðar,
sem mokað er í ríkisstofnun sem er
ófær að uppfylla forsenduna um
rekstur hennar, hlutleysið, myndu
gera meira en duga öðrum.
Fjölmiðill, eins og hið 104 áraMorgunblað (mun eldra en hin
„ævagamla stofnun“) hefur birt
ógrynni menningarefnis og varð-
veitir það og það gera fleiri. Þegar
flett er bókum um sögulegt efni sem
nær yfir síðustu 104 árin sést að í
þeim er oftar vitnað í Morgunblaðið
en nokkurn annan miðil. Sjaldan er
vitnað í „RÚV.“
Helga Vala
Helgadóttir
Þreföld stofnun
STAKSTEINAR
Óli Björn
Kárason
Veður víða um heim 30.1., kl. 18.00
Reykjavík -1 skýjað
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri -7 skýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 2 heiðskírt
Ósló 0 heiðskírt
Kaupmannahöfn 4 skýjað
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki -3 snjókoma
Lúxemborg 6 alskýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 6 rigning
London 7 skýjað
París 10 alskýjað
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
Berlín 5 skýjað
Vín 8 heiðskírt
Moskva 0 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 14 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 15 heiðskírt
Winnipeg -13 snjókoma
Montreal -11 skýjað
New York 0 snjókoma
Chicago -6 heiðskírt
Orlando 13 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:11 17:12
ÍSAFJÖRÐUR 10:33 17:00
SIGLUFJÖRÐUR 10:17 16:43
DJÚPIVOGUR 9:45 16:37
Það bar til tíðinda á síðasta fundi í
Hverfisráði Vesturbæjar að lögð var
fram harðorð bókun vegna slakrar
mætingar fulltrúa á fundi ráðsins.
Fram fór umræða um fundi hverf-
isráðs og í framhaldinu lagði ráðið
fram svohljóðandi bókun:
„Áréttuð skal skylda fulltrúa í
Hverfisráði Vesturbæjar til að mæta
á fundi eða boða öðrum kosti vara-
mann. Á síðasta boðaða fundi ráðs-
ins gerðist sá fáheyrði atburður að
fulltrúa vantaði á fundinn og skorti
því ályktunarbærni fundarins. Sér í
lagi er bagalegt að gestgjöfum fund-
arins sé boðið upp á slíka framkomu
en fundurinn fór fram þar sem verið
var að kynnast þjónustustofnun
Borgarinnar í hverfinu. Formaður
ráðsins vonast til að fulltrúar í
ráðinu bæti ráð sitt.“ Formaður
ráðsins er Sverrir Bollason.
Á sama fundi var lagt fram bréf
stjórnkerfis- og lýðræðisráðs varð-
andi tillögu um breytta skipan
hverfisráða. Tillagan féll í grýttan
jarðveg hjá hverfisráðinu sem taldi
hana að mestu leyti ótímabæra
vegna ýmissa ósvaraðra spurninga
er varða verkefni og starfssvæði
hverfisráðanna. Valaðferðin sem
lögð sé til sneiði hjá mikilvægri að-
komu íbúasamtaka að hverfisráðinu
í þágu persónukosninga og slembi-
vals. sisi@mbl.is
Ávítaðir
fyrir slaka
mætingu
Reykjavíkurborg hefur hætt við
byggingaráform við Þjórsárgötu í
Skerjafirði. Umhverfis- og skipu-
lagssvið tók þessa ákvörðun vegna
athugasemda sem bárust þegar
áformin voru kynnt.
Reiturinn markast af Þjórsár-
götu, Njarðargötu, Þorragötu og
Reykjavíkurvegi. Kynning stóð til
og með 12. janúar 2018.
Athugasemdir bárust frá íbúum í
nágrenninu og frá Isavia, sem rekur
Reykjavíkurflugvöll, en hann er
skammt frá umræddum reit. Benti
Isavia á að skipulagssvæðið við
Þjórsárgötu væri innan öryggis-
svæðis flugbrautar. Með vísan til
reglugerðar um kröfur og stjórn-
sýslumeðferð er varða flugvelli sam-
kvæmt reglugerð Evrópuþingsins,
lagði Isavia til að fyrirætlanir um
byggingu á þessu svæði verði dregn-
ar til baka.
Íbúar við Þjórsárgötu töldu að
áform um að reisa fjölbýlishús á
reitnum væri í ósamræmi við bygg-
ingar við götuna sem einkennist að-
allega af timbur- og bárujárns-
húsum. Þeir bentu einnig á að þessi
reitur hafi nýst börnum að leik og
fuglar nýti svæðið í fæðuleit.
Reiturinn sem um ræðir tilheyrir
Litla-Skerjafirði og er um 1.670 fer-
metrar að stærð. Þarna var áformað
að reisa íbúðarhús, 2-3 hæðir.
sisi@mbl.is
Borgin hætti við byggingaráform
Ekki verður byggt við Þjórsárgötu Isavia og íbúar gerðu athugasemdir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Reiturinn er nálægt vellinum.