Morgunblaðið - 31.01.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
ÚTSALA ÚT JANÚAR 2018
HEIMAVINNSLUVÖRUR - MIKIÐ ÚRVAL
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ!
Reykjavík: 414-0000 - Akureyri: 464-8600
30%
AFS
LÁT
TUR
Morgunblaðið/Kristinn MagnússonKristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g átti í fórum mínum
þrjá ónotaða miða, frá
því við hjónin fórum í
Disneyland með börn-
in okkar fyrir 27 árum,
eða árið 1991. Mér fannst alveg til-
valið að taka þá með og freista þess
að nota þá,“ segir Jón Hálfdanarson
sem er ekki mikið fyrir að henda
nokkrum sköpuðum hlut, en hann
tók þessa næstum þrítugu aðgöngu-
miða með sér til Bandaríkjanna um
síðustu jól þegar hann og kona hans,
Kristín Steinsdóttir, heimsóttu son
sinn Stein og fjölskyldu hans sem
þar eru búsett.
„Við lukum ferðinni með því að
fara til Orlando og skelltum okkur í
Disneyland. Ég rétti stúlkunni í af-
greiðslunni hjá fyrri garðinum sem
við heimsóttum, Epcot Center, tvo af
þessum gömlu miðum og sagði henni
hversu gaman hefði verið að koma
með börnin mín þangað fyrir 27 ár-
um. Hún brosti og horfði lengi á mið-
ana en hringdi svo til að komast að
því hvort þeir væru enn í gildi. Sem
reyndist vera. Hún bað mig afsök-
unar á að þurfa að halda þessum
sögulegu miðum eftir, en henni varð
hughægara þegar ég tók mynd af
þeim til minningar,“ segir Jón og
bætir við að þegar þau hjónin hafi á
öðrum degi farið í Disneygarðinn
Animal Kingdom, með þriðja mið-
ann, hafi önnur stúlka tekið á móti
þeim og sú hafi velt miðanum fram
og til baka en sagt þeim svo að gjöra
svo vel. „Þetta var alveg vandræða-
laust, og við spöruðum okkur 300
dollara með þessum gömlu miðum.
Og ekki var einu sinni búið að reisa
Animal Kingdom þegar við keyptum
þá.“
Svona kassi er guðsgjöf
Þegar Jón er spurður að því
hvar hann hafi gengið að miðunum
vísum eftir allan þennan tíma, segist
hann hafa geymt þá í litlum pen-
ingakassa.
„Þar geymi ég vegabréfin okk-
ar, gömul og ný, og ýmislegt annað
dýrmæti, gömul fimmtíu ára öku-
skírteini, erlenda peningaseðla og
fleira.“ Þegar Jón dregur fram kass-
ann kemur Kristín kona hans ask-
vaðandi og segir að því skuli haldið
til haga að hún hafi keypt þennan
forláta peningakassa þegar þau
hjónin fluttu heim til Íslands frá
Þýskalandi árið 1978.
„Svona kassi er guðsgjöf, hér
leynist ýmislegt,“ segir Kristín og
fer að gramsa í innihaldinu og rekst
þar meðal annars á eldgamlar
bankabækur „sem eru löngu sofn-
aðar“, eins og hún orðar það sjálf.
Við skeindum okkur á
dagblöðum í þá daga
Kristín segir að þau hjónin séu
bæði fastheldin og að börnin þeirra
stríði þeim og segi að ef eitthvað fari
upp á vegg hjá þeim þá
sé það þar fyrir lífstíð.
„En ég er ekki eins
slæm og Jón, hann vill
alls ekki henda
neinu,“ segir Kristín
og hlær og Jón
gengst fúslega við
því. „Ég hef stundum
borið kassa aftur inn
sem hefur átt að fara
með á öskuhauga, af
því mér finnst margt
geta mögulega kom-
ið að notum seinna,
sem hefur oft verið
raunin. Og það
kemur margt dýr-
mætið fram þegar
gruflað er í
geymslum, þó dótt-
ir mín kalli það sumt
frá forsögulegum
tíma,“ segir Jón
sem var alinn upp í
nýtni, rétt eins og
flestir af hans kynslóð, þó ekki hafi
verið fátækt á heimilinu. „Við
skeindum okkur til dæmis á dag-
blöðum á mínu bernskuheimili, sem
er góð endurnýting á pappír.“
Kristín grípur þetta á lofti og
segist líka hafa verið alin upp í mikilli
nýtni. „Allt var heimasaumað og föt-
um var vent. Svo maður hendir ekki
svo glatt frá sér.
Pabbi keypti Þjóð-
viljann og safnaði
honum, og ekki
mátti snerta hann.
En ef Mogginn
kom inn á heimilið
fyrir einhverja
slysni, fór hann að
sjálfsögðu beint á
klósettið,“ segir
Kristín og hlær.
Jón segir
Þjóðviljann aftur á
móti hafa verið
sjaldgæfan á hans
heimili, enda er
hann alinn upp á
„bláu heimili“. „En
samt voru grund-
vallarlífsskoðanir
föður míns og
tengdaföður mjög
svipaðar, þó þeir
væru á öndverðum
meiði í pólitíkinni.“
Skiptumst á hasarblöðum í
anddyrinu í þrjúbíói
Jón segir að bílskúrinn þeirra sé
vissulega fullur af dóti sem hann
geymi. „Meðal annars úr dánarbúi
föður míns sem var kaupmaður í
Kjöti og fiski á Þórsgötu. Þessi upp-
söfnun getur verið erfið fyrir þá sem
taka við og þurfa að fara í gegnum
þetta. En það leynist heilmikill fróð-
leikur í ólíklegustu hlutum, til dæmis
geymir Jakob bróðir minn bókhald
verslunar pabba, sem er mikil heim-
ild um þann tíma. Þar sést að fólk
keypti upp á krít hjá kaupmann-
inum. En þegar kreppan reið yfir
gekk ekki vel að innheimta,“ segir
Jón og bætir við að faðir hans hafi
staðið að stofnun Tónlistarfélags
Reykjavíkur, einn af postulunum tólf
eins og þeir voru kallaðir. Þeir settu
upp og sýndu óperettur.
„Við áttum öll gömlu prógrömin
og upplýsingar um atburðina. Það
fór allt á Tónminjasetrið. Ég safnaði
líka hasarblöðum sem strákur, við
krakkarnir stóðum í anddyrinu í þrjú
bíó og skiptumst á hasarblöðum. Þar
var verðmætið misjafnt, Dell blöðin
amerísku þóttu verðmætari en Andr-
ésblöð á dönsku. Samt fannst mér
Andrés miklu skemmtilegri. Ég er
hræddur um að þessi blöð mín séu
glötuð.“
Bréf geyma sögu fólks
Kristín og Jón eiga bæði í fórum
sínum heilu möppurnar af gömlum
handskrifuðum sendibréfum frá ætt-
ingjum, enda finnst Jóni mestu verð-
mætin vera í þeim.
„Þau geyma sögu fólks og líðan.
Ég geymi til dæmis sagnaþætti sem
Fengu að
nota tæplega
30 ára miða
Nýtni getur komið sér vel, maður veit jú aldrei hve-
nær eitthvað gæti komið að góðum notum. Jón og
Kristín sannreyndu það um síðustu jól í Disneylandi.
Jón hendir helst engu og lumar því á ýmsu, m.a göml-
um sendibréfum og löngu sofnuðum bankabókum.
Verðmætur Einn miðanna frá
1991 sem þau notuðu um jólin.
Grúsk Kristín og Jón gramsa hér í peningakassanum góða þar sem leynist m.a gamalt vegabréf frá Kristínu þar
sem hún er með permanent í hárinu. Á borðinu er líka mappa með gömlum sendibréfum frá fjölskyldumeðlimum.
Dans er sérlega fagurt listform og
nú er lag fyrir þá sem kunna að
meta það, því í kvöld, miðvikudag,
kl. 18 verður þrefaldur ballett-
viðburður í Háskólabíói í tengslum
við frönsku kvikmyndahátíðina. Byrj-
að er á því að sýna heimildamyndina
Endurfæðinguna en hún fjallar um
Benjamin Millepied, sem lengi var
aðaldansari New York City Ballet.
Benjamin varð heimsfrægur fyrir
hlutverk sitt í Óskarsverðlauna-
myndinni Svarta svaninum. Hann
stýrði Óperuballettinum í París
2014-2016 og sýnir myndin hvernig
hann setur á svið fyrsta ballettinn
sinn þar, en hann fór ekki hefð-
bundnar leiðir. Eftir sýninguna koma
fram dansarar úr Íslenska dans-
flokknum og leiða gesti inn í heim
ballettsins. Að því loknu, kl. 21, verð-
ur sýnd leikna kvikmyndin Polina.
Hún fjallar um rússneska dansmey
sem nær miklum frama á sviði
klassísks balletts en snýr sér að nú-
tímadansi.
Fyrir þá sem ekki vilja missa af
þessum kvikmyndum er vert að taka
fram að myndirnar verða ekki sýnd-
ar nema í þetta eina skipti.
Aðeins í þetta eina sinn
Stilla úr kvikmyndinni Polina.
Fegurð Kvikmyndin Polina geymir sannarlega margt augnakonfektið.
Nú er lag að skella sér á
þrefaldan ballettviðburð