Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Blaðsíða 22
Grunnurinn er frá Taílandi en þetta er „fusion“. Þettaeru íslenskar núðlusúpur,“ segir Sigurður Jónas Ey-steinsson sem rekið hefur Núðluskálina á Skóla-
vörðustíg ásamt manninum sínum síðan 2009. Hann segir
staðinn hafa gengið vel en hugmyndina fékk hann eftir dvöl í
Asíu.
„Ég var skiptinemi í Taílandi árið 1991-92 og bjó í Hong
Kong árið ’95 og ég saknaði matarins frá þessum stöðum.
Það voru engir núðlubarir á Íslandi og ég var alltaf að bíða
eftir að einhver annar myndi opna slíkan stað. Ég var búinn
að hugsa mikið um það hvernig ég myndi vilja hafa slíkan
stað en ég hef gaman að mat og elda mikið sjálfur. Þegar ég
var í Taílandi lærði ég að gera marga mína uppáhaldsrétti á
mínum uppáhaldsstöðum þar,“ segir Sigurður sem sá það
að hann yrði sjálfur að opna núðlustað. „Svo kom hrunið
2008 og við ákváðum að slá til en besti tíminn til að opna
svona stað er í kreppu. Þá losna góð pláss sem annars eru
umsetin,“ segir Sigurður og segir líka henta fólki að kaupa
ódýran en góðan mat.
Sigurður segir ekki flókið að búa til góða núðlusúpu.
200 g shiitake-sveppir eða aðrir umami-ríkir sveppir eins
og ostrusveppir
1 dós kókosmjólk, 400 ml
2-4 msk. fiskisósa eftir smekk (má nota jurtakraft
og smá salt fyrir vegan-útfærslu eða annan
kraft)
1 msk. kókossykur, hrásykur eða púður-
sykur
2-8 stk. rauður chili-pipar (eftir smekk)
1-2 bakkar af baunaspírum
1 búnt kóríander, smátt skorinn
Skerið kjúklinginn í bita og steikið
á pönnu og kryddið með salti og
pipar eftir smekk. Gott er að
kreista smá límónusafa yfir.
Setjið til hliðar.
Saxið hvítlaukinn og engifer-
rótina smátt.
Setjið smá olíu í góðan súpu-
pott og léttsteikið hvítlaukinn,
chili-piparinn og sveppina. Hellið
kókosmjólkinni yfir og leyfið
henni að hitna nóg til að jafnast út
á meðan hrært er í. Bætið rúmum
lítra af vatni eða 3 kókosmjólkur-
dósum af vatni út í og leyfið suðunni að
koma upp.
Takið ysta lagið af sítrónugrasinu af og
skerið restina í 3-4 bita og bætið út í ásamt
kafír-límónulaufinu. Einnig má bæta við
viðeigandi grænmeti eftir smekk, t.d.
strengjabaunum, baunaeggaldini eða taí-
lensku eggaldini. (Gott er að skera kross
ofan í taílenska eggaldinið hálft til þess að
flýta fyrir suðu.)
Á meðan súpan fær að sjóða, í u.þ.b.
15-20 mínútur, eða þangað til grænmet-
ið og sveppirnir eru fullsoðnir, er gott
að hafa núðlurnar til.
Best er að nota hrísnúðlur sem búið er að útvatna í ísskáp
yfir nótt. Þá dugir að dýfa þeim í sjóðandi vatn í u.þ.b. mín-
útu. Fylgið annars leiðbeiningum á pakkanum.
Gott er að snöggkæla núðlurnar í köldu vatni um leið og
þær eru orðnar „al dente“ til að stöðva suðuna, hella af
þeim og setja til hliðar í skál. Setjið smá jarðhnetuolíu yfir
og veltið þeim til að fyrirbyggja að þær klesstist saman.
Saxið kóríanderinn smátt, sérstaklega stilkana. Skerið
vorlaukinn smátt, chili í þunnar sneiðar og límónu í báta.
Skammtið núðlurnar og kjúklinginn í skálar sem gott er
að súpa úr. Setjið súpuna yfir og toppið svo með bauna-
spírum, vorlauk og kóríander. Setjið límónusneið á topp-
inn og sáldrið rauðum chili yfir eftir smekk. Verði ykkur
að góðu.
Sigurður hjá
Núðluskálinni segir
ekki flókið að búa
til góða núðlusúpu.
Íslenskar
núðlusúpur
MATUR Ef það stendur á núðlupakkanum að þær eigi að liggja í bleyti í 20mínútur er enn betra að láta þær liggja yfir nótt. Þá þarftu bara rétt
að dýfa þeim ofan í sjóðandi vatn og þær verða „al dente“ og góðar.
Betri núðlur
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018
Núðlu-
súpur sem
slá í gegn
Á köldum janúarkvöldum er fátt
betra en heit núðlusúpa full af fram-
andi bragðtegundum frá Asíu.
Hvernig væri að koma matargestum
á óvart og laga slíka súpu frá
grunni? Hún mun slá í gegn!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Fyrir 2
1 lítri af góðu nautakjötssoði
3 stk. stjörnuanís
1 kanilstöng
1 rautt chilli, skorið í þunnar sneiðar
3 msk. fiskisósa, t.d. Fish sauce frá Blue dragon
1 tsk. sykur
3 cm engifer, skorið í þunnar sneiðar
200 g Blue dragon hrísgrjónanúðlur (má nota
eggjanúðlur)
½ bakki baunaspírur
6 sveppir, skornir í sneiðar
300 g nautafillet eða lund, skorin í þunna
strimla
Sjóðið nautakjötssoðið upp með með chilli,
anís, sveppum, fiskisósu, kanil, sykri og engifer.
Leyfið súpunni að malla á meðan þið sjóðið
núðlurnar skv. leiðbeiningum á pakka.
Deilið núðlunum, baunaspírum og
nautakjöti í tvær skálar. Hellið súpunni yfir
og stráið síðan ferskum kryddjurtum, t.d.
kóríander eða myntu, vorlauk, salthnetum
eða því sem hugurinn girnist yfir allt.
Víetnömsk
núðlusúpa
„Þetta eru allt soðnúðlur, það er ekkert steikt og eggjanúðl-
urnar okkar eru heimalagaðar,“ segir hann.
„Það er auðvelt að búa til núðlusúpu, trikkið er að fá rétt
jafnvægi í soðinu. Svo að velja þau krydd sem þér finnst best.
Það eru einhverjar búðir farnar að selja tilbúið soð en það
er alveg hægt að redda sér með teningi,“ útskýrir Sigurður
og segir það ráð fyrir fólk sem ekki hefur tíma til að búa til
soð frá grunni.
DTOM KHA GÆ NÚÐLUSÚPA
fyrir 4
2 vænar kjúklingabringur
jarðhnetuolía eða hlutlaus jurtaolía
1 vænn hnúður af engiferrót (u.þ.b. 50 g)
2 hvítlauksrif
8 kafír-límónulauf (fást frosin í Mai Thai og fleiri asískum búðum)
2 stilkar sítrónugras (fást í Mai Thai og víðar)
3 límónur (safi úr 1-2 safaríkum límónum og ein skorin í báta)
Morgunblaðið/Ásdís