Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Blaðsíða 19
unum fyrir þrívíddarmyndir,“ segir hann. „Sá sem býr til hreyfingar fyrir fuglinn er í rauninni leikarinn. Það voru sextíu manns í Belgíu og á Íslandi að hreyfa fugla, síðasta eitt og hálfa ár, ef ekki lengur.“ Það er alveg ljóst að teiknimyndagerð er flóknari en hún var í gamla daga, þegar ein- ungis þurfti að teikna hvern ramma fyrir sig. „Það þarf að búa til allt umhverfi, alla karakt- era og setja bein í þá, og þá ertu kominn með strengjabrúður í tölvunni. Og þær hreyfast ekki nema einhver hreyfi þær. Það eru ansi margir sem koma að þessu; mér skilst að það séu um 400 manns sem koma að þessari mynd,“ segir hann og flestir í fullri vinnu, sér- staklega á síðustu tveimur árum. Næstdýrasta mynd Íslands Lói – þú flýgur aldrei einn kostaði rétt rúman milljarð og er þar með næstdýrasta mynd Ís- landssögunnar á eftir Þór, fyrri mynd þeirra GunHil-félaga. Gunnar segir mikinn tíma hafa farið í að fjármagna verkið. Löndin 55 sem munu sýna myndina í sínum kvikmyndahúsum hafa keypt sýningarréttinn fyrirfram og með því fjármagni er hægt að gera mynd af þessari stærðargráðu. Gunnar segir Bandaríkin ekki vera eitt af þessum löndum. „Þeir eru svolítið sér, þeir vilja frekar kaupa myndir og endurgera. En við sjáum til hvernig það fer. Þeir eru að skoða málið. Það er mikið erfiðara að selja til Bandaríkjanna, en þar eru eitt eða tvö fyr- irtæki sem ráða markaðinum. En við erum að hugsa um restina af heiminum,“ segir Gunnar. „Það er mjög spennandi að myndin sé að fara í bíóhús í öllum þessum löndum, ekki bara í sjónvarp.“ Aðstandendur myndarinnar vonast að sjálf- sögðu eftir góðum viðtökum og hagnaði. „Það er ólíklegt að við töpum á þessu af því að það er búið að selja sýningarréttinn til allra land- anna. Þó við höfum stundum þurft að gangast í ábyrgð og svona, veðsett húsin okkar,“ segir hann og brosir út í annað. Enginn þekkir lóuna Nú er sex ára vinna að baki, dettur þá allt í dúnalogn? Hvað tekur nú við? „Ég veit það ekki. Við erum með ýmsar hugmyndir. En ef allt tekur sex ár er það svolítið mikið þegar maður er farinn að eld- ast, maður þarf að vanda valið. En það er ýmislegt í bígerð. Það hefur verið rætt að gera Lóa 2,“ segir Gunnar en er annars frek- ar þögull um fyrirhugaðar hugmyndir. Blaða- maður stingur upp á að gera næst mynd um sköllóttan kött; þá þurfi hann ekki að teikna feld eða fjaðrir. Gunnar segir fátt en brosir. Hann þarf líklega að fylgja þessari teikni- mynd úr hlaði áður en hann ákveður næstu skref. „Við vorum í raun bara að sjá myndina í fyrsta sinn tilbúna um daginn,“ segir hann og var ánægður með útkomuna. „Þetta er ansi falleg mynd. Þetta er upp- lifun í bíó. En þetta er búið að vera mjög erf- itt, á tímabili. Tæknilega erfitt og eins að halda hópnum saman,“ segir hann. „Svo gerir Atli Örvarsson tónlistina. Það er mjög falleg og þétt tónlist í gegnum myndina. Myndin getur verið sorgleg á köflum og hún getur verið dramatísk en þetta er samt góð upplifun fyrir börn,“ segir Gunnar og tekur fram að myndin sé fyrir alla fjölskylduna. „Svo er mikið íslenskt landslag í myndinni og mikið af bæði góðu og vondu veðri. Sem er góð landkynning því maður finnur það erlend- is að allir eru mjög spenntir fyrir Íslandi. Þessi mynd er mjög íslensk. Reyndar veit enginn hvaða fugl lóa er, hún er ekkert fræg úti í heimi,“ segir Gunnar og brosir. Hver veit nema Gunnar og félagar komi lóunni okkar loksins á kortið. 28.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Sími 775 1832 | Happie furniture - húsgögn Sérsmíðuð húsgögn fyrir heimili og fyrirtæki Happie furniture Draumasmíði

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.