Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Blaðsíða 14
Fordæmalaus samningur Með nýjum samningi Lionels Messi við Barcelona fær knattspyrnumaðurinn rúm- an milljarð króna á mánuði næstu fjögur árin og enn meira ef liðinu gengur vel. Samningur sem þessi hefur aldrei áður verið gerður í knattspyrnuheiminum og fær Messi margfalt meira en hæst launuðu félagar hans innan knattspyrnunnar, svo sem Zlatan, Neymar og Ronaldo. Rannsaka minnisbók Lögreglurannsókn er hafin á minnisbók í eigu Roberts Downey, sem hlotið hefur dóm fyrir kynferðisbrot, en þar mun vera að finna nöfn 330 stúlkna. „Við munum at- huga hversu langt við komumst með þau gögn sem við höfum í höndunum.“ Hulda Elsa Björgvinsdóttir, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Umferðaröryggi í umræðunni Umferðaröryggi á Kjalarnesi var í umræðunni í vik- unni, meðal annars á fjölmennum borgarafundi á Akranesi. „Í hverri einustu stórfjölskyldu á Akranesi er sjálfsagt einhver sem hefur orðið vitni að háskalegum akstri þar, lent í umferð- aróhappi eða komið að slysi.“ Bjarnheiður Hallsdóttir, íbúi á Akranesi. Þarf að vera í 9 til 5 vinnu „Þegar maður er rokkari á Íslandi þá þarf maður að vera í 9 til 5 vinnu.“ Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari og texta- höfundur málmbandsins Skálmaldar, sem hélt upp á fertugsafmæli sitt í vikunni. Launin hækkuðu fimmfalt Bandaríska óskarsverðlaunaleikkonan Octavia Spencer greindi frá því í vikunni að laun henn- ar fyrir leik í nýrri gamanmynd hefðu hækkað fimmfalt eftir að stalla hennar Jessica Chasta- in gekk í málið fyrir hana. Þess má geta að Spencer er svört en Chastain hvít. Gjaldþrota Kísilverksmiðja United Silicon lýsti sig gjaldþrota í vik- unni eftir þungan róður undanfarna mánuði. Óvíst er hvað verður um verksmiðjuna. Ljósmynd/Víkurfréttir Bassaleikari Íslands kvaddur Tómas Magnús Tómasson, bassaleikari Stuðmanna, Þursaflokksins og fleiri hljómsveita lést í vikunni. Tómas var 63 ára gamall og ein ástsælasti tónlist- armaður þjóðarinnar. Morgunblaðið/ÞÖK VIKAN SEM LEIÐ VETTVANGUR 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018 UMMÆLI VIKUNNAR „Við erum þannig að mörgu leyti eins og maurar í mauraþúfu – að hluta til einstaklingar og að hluta til erum við hluti af heild.“ Kári Stefánsson um nýja rannsókn ÍE. Ég er hrekkjalómur og hef alltaf gengist upp íþví að hrekkja fólk. Það er heilbrigð og góðskemmtun – ef það er gert rétt. Ég er ekkert að grínast með þetta, eða þannig, enda hef ég skrifað bók og haldið fjölda fyrirlestra á vinnustöðum um grunnreglur í góðum vinnustaðahrekkjum. Ein af reglunum sem ég kenni er að maður megi ekki verða fúll þegar manni er svarað. Það er mjög mikilvæg regla, enda fátt meira pirrandi en grínarar sem hafa ekki húmor fyrir því ef einhver svarar fyrir sig. Mér finnst reyndar fólk of sjaldan svara fyrir sig í þessum efnum. En í vikunni gerðist það. Á Facebook var stofnuð síða um „Persónulegt framboð Loga Bergmanns til borgarstjóra.“ Mér fannst hún ekki fá nógu mörg læk en það dugði mér samt til að velta því fyrir mér hvað ég nenni hrikalega mikið ekki að blanda mér í þessa borgarpólitík. Ég held að ég myndi frekar borða glerbrot. Vandamál borgarinnar er að hún er í raun tvískipt: Sléttan og hæðirnar. Þessir tveir hópar virðast eiga sáralítið sameiginlegt, svo við dettum aðeins í alhæfingarnar: Fólkið á sléttunni vill hjóla milli kaffihúsa og taka notalega borgarlínu þegar það á erindi útfyrir hverfið sitt. Fólkið í hæðunum væri sjúklega til í að gatan þess væri einhvern tímann mokuð og það sæi mögulega í gangstétt yfir veturinn. Það segir sig kannski soltið sjálft að þessir hópar verða ekki sammála. Það er allt í lagi. En er ég sá eini sem hugsar með hryllingi til þriggja mánaða þrass um borgarlínu, mislæg gatnamót, hraðahindr- anir og sjálfkeyrandi bíla? Nú tek ég það fram að ég hef ekkert vit á þessu. Það eina sem ég veit er að þið getið gleymt þessari sjálfkeyrandibílavitleysu. Við verðum öll dauð áður en það gerist. Það er ekki einu sinni búið að hanna þytbrettið úr Back to the future. Haldið þið í alvöru að við ætlum að fara að leyfa sjálfkeyrandi bíla þegar við leyfum ekki einu sinni hunda í strætó? Nú bý ég sjálfur í Vesturbænum og er búinn að ráða mig til starfa á Morgunblaðinu í Hádegismóum. Sem mér finnst vera hálfa leiðina á Blönduós. Og vissulega getur verið ógurlega pirrandi að sitja fast- ur í umferð og komast ekki áfram. Sérstaklega þegar maður er orðinn of seinn, sem er reyndar frekar venjulegt ástand hjá mér. Ég er alls ekki að draga úr mikilvægi samgöngumála og við verðum að hafa alvöru almenningssamgöngur. En ég spyr: Getum við ekki talað um eitthvað fleira? Það er svo margt sem skiptir máli fyrir okkur borgarbúa. Mér finnst til dæmis akkúrat núna stærra vandamál að við fáum ekki fólk til að vinna á leik- skólum og frístundaheimilum. Getum við talað um það í smástund? Kannski líka um fjármál borgar- innar sem virðist stundum reka sig eins og unglingur á smálánum. Ég væri líka alveg til í að tala aðeins um Orku- veituhúsið sem menn ákváðu að byggja með tánum og rassgatinu og senda okkur svo reikninginn þegar það þarf nánast að rífa það. Og ég gæti jafnvel gefið mér nokkrar mínútur til að tala um borgarskipulag. Hversu mikið er hægt að þétta byggð og hvort við viljum fleiri skuggahverfi. Bara eitthvað annað, svona í bland. Ég held nefnilega að borgarmál séu í raun skemmtileg. Þau varða umhverfi okkar, eru ekki jafn lituð af hefðbundinni flokkapólitík og landsmálin og Reykjavík er í alvöru frábær borg. Ef við tækjum höndum saman, og ræddum um eitthvað fleira en þessa blessuðu borgarlínu, gætum við örugglega gert hana enn betri. Þá skal ég kannski verða borgar- stjóri. Ef það er ekki rosalega mikil vinna. Borgarstjóri í hálfan dag Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’ Á Facebook var stofnuð síða um „Persónulegt framboð Loga Berg-manns til borgarstjóra.“ Mér fannst hún ekki fá nógu mörg læk enþað dugði mér samt til að velta því fyrir mér hvað ég nenni hrikalegamikið ekki að blanda mér í þessa borgarpólitík. /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.