Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Blaðsíða 6
Örlög rúmlega einnar millj-ónar Þjóðverja sem hurfu íseinni heimsstyrjöld, eru enn óljós og verða það líklega að ei- lífu. Þetta segir forstöðumaður leit- ardeildar Rauða krossins Þýska- lands. Þegar formleg deild um leit að einstaklingum sem hurfu í stríðinu var upphaflega sett á stofn innan DRK (Deutsches Rotes Kreuz) var verkefnið risavaxið en þá var ekki vitað um örlög um 20 milljóna. Þetta voru bæði hermenn, sem kom svo á daginn að hefðu látist í bardaga eða verið teknir til fanga en einnig venjulegir borgarar, börn og full- orðnir, sem höfðu orðið viðskila við ættingja sína í upplausnarástandi stríðsins. Nú er ljóst að botninn verður sleginn í þessa formlegu leit, þrátt fyrir að enn séu svo margir týndir, en sú ákvörðun var tekin í samráði við innanríkisráðuneyti Þýskalands. Þýski Rauði krossinn segir að formleg störf deildarinnar er snúi að seinni heimsstyrjöld verði lögð niður eftir fimm ár, árið 2023, eftir áratuga starf, en deildin var sett á stofn fljótlega eftir að stríðinu lauk. Í fréttatilkynningu frá innanrík- isráðuneytinu á þriðjudag segir að líkurnar á að finna fólk, enn á lífi, frá þessum tíma minnki með hverju árinu sem líði en í viðtali við þýsku fréttastofuna DPA sagði forstöðu- maður leitardeildarinnar, Thomas Huber, að áhuginn á að vita hver ör- lög þessa fólks urðu væri þó vissu- lega enn til staðar. Enn berast fyr- irspurnir til DRK um fólk sem hvarf í heimsstyrjöldinni síðari, á árunum 1939-1945. Á síðasta ári voru þær 9.000, eða 24 á dag. Áhugi á fortíð á efri árum Mál stórs hluta þessara 20 milljón einstaklinga sem voru á listanum strax eftir stríð skýrðust fljótt. Engu að síður voru örlög tveggja milljóna manna enn óljós árið 1959, í dag eru það 1,2 milljónir sem ekki er vitað hvað varð um. Þrátt fyrir þennan fjölda er ljóst að Rauði krossinn hefur unnið mikið afrek þann tíma sem leitardeildin hefur verið að störfum, við að hafa uppi á fólki og ná utan um hver örlög þess urðu. En af hverju eru enn að berast svo margar fyrirspurnir, meira en 70 árum eftir að stríðinu lauk og er einhver von til að fólk finni ættingja sína svo löngu seinna? DRK hefur fjallað um þetta í leggja inn fyrirspurnir um horfna ættingja. Ný verkefni Einnig má segja að leitarbeiðnir frá löndum Austur-Evrópu hafi rekið mun síðar á fjörur Rauða krossins, bæði vegna pólitískra aðstæðna og aðgangs að opinberum gögnum þeim megin. Þjóðverjar sem eru kannski að velta einhverju fyrir sér í hljóði eru því hvattir til að leggja inn fyrirspurnir sem fyrst þar sem sér fyrir endann á að þessi mál verði sérstaklega rannsökuð innan DRK. Það er ljóst að það er enn von. Allra síðustu ár hefur DRK haft milligöngu um að koma systkinum, sem urðu viðskila í stríðinu, í sam- band og hjartnæmir fagnaðarfundir ættingja ratað í heimsfréttirnar. Í dag á þetta að sjálfsögðu fyrst og fremst við um Þjóðverja sem voru á barns- eða unglingsaldri eða rétt skriðnir yfir tvítugt. Rauði krossinn í Þýskalandi mun áfram reka þessa tilteknu deild þrátt fyrir að heimsstyrjöldin síðari verði ekki formlega á hans borði. Ný verk- efni bíða Rauða krossins er snúa að nútímanum en börn og fjölskyldur, einkum frá Sýrlandi, Afganistan og Sómalíu eru enn að verða viðskila á flótta og margar fyrirspurnir þess efnis berast DRK sem reynir að greiða götu örvæntingarfulls flótta- fólks. Slá botninn í leit að þeim sem hurfu Rauði kross Þýskalands tilkynnti í vikunni að þrátt fyrir að 1,2 milljónir Þjóðverja væru enn týndar eftir síðari heimsstyrjöld yrði leit að þeim formlega hætt eftir fimm ár. AFP Enn berast þúsundir fyrirspurna til þýska Rauða krossins, frá fólki sem leitar ættingja sem hurfu í síðari heimsstyrjöld. Hér má sjá skjölin sem þýski Rauði krossinn geymir í München um Þjóðverja sem saknað er eftir heimsstyrjöldina. ýmsum greinaskrifum og segir að mjög algengt sé að áhugi á erfiðri og brotinni fortíð fólks kvikni á efri árum. Fólk hafi líka oft einfaldlega skort getuna til að horfast í augu við fortíðina. Þannig eru börn og ung- lingar þriðja ríkisins, sem í dag eru orðin vel fullorðin, oft fyrst núna að KÍNA Tveir apar hafa verið klónaðir í Kína og er aðferðin svipuð og þegar kindin Dolly var klónuð árið 1996. Aparnir komu í heiminn á vísindastofu fyrir nokkrum vikum og eru makaí-smáapar af ættkvísl markatta. Þeir sem gagnrýna klónunina segja að heimurinn sér nær því að klóna menn en áður án þess að siðferðilegum álitamálum hafi verið svarað. FRAKKLAND Allt er á floti í París og víðar í Frakklandi en vatnsdýpt Signu hefur verið allt að sex metrar í vikunni, en er í venjulegu árferði tveir metrar. Flóðaviðvaranir gilda víða og samgöngur eru lamaðar en veðurfræðingar spá áframhaldandi úrkomu og er talið að ár muni flæða yfir bakka sína í víða í Norður- og Austur-Frakklandi en Signa hefur þegar flætt yfir bakka sína. FÆREYJAR Færeyingar eru undrandi og argir yfir ummælum stjórnmálafræðiprófess- ors við Kaupmannahafnarháskóla en í viðtali við katalónskan fjölmiðil sagði prófessorinn, Marlene Wind, að ástæðan fyrir því að Danir veittu sambands- ríkjum sínum ríkan rétt til sjálfsákvörðunar væri sú að ríkin væru mjög fátæk og Dönum væri í raun og veru ekki mjög umhugað um þau. „Þau fá svo mikla peninga frá okkur að þau myndu fara rakleiðis í niðurfallið ef þau myndu fara.“ BANDARÍKIN Ólympíunefnd Banda- ríkjanna ætlar að gera sjálfstæða rannsókn á kynferðislegri misnotkun innan fimleikaheims- ins en tilkynnt var um ákvörðunina eftir að fyrr- verandi læknir bandaríska fimleikalandsliðsins, Larry Nassar, var dæmdur í allt að 175 ára fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á fjölda fimleikakvenna. Rannsókninni mun beint að því hver vissi hvað og hvenær og af hverju hún fékk að viðgangast í svo langan tíma. 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018 Á árunum 1945-1950 bárust Rauða krossinum í Þýskalandi 14 milljónir erinda frá fólki sem var í leit að ættingjum eða vinum sem horfið höfðu í stríðinu. Rauði krossinn gat strax svarað um 8,8 milljónum erinda. Upplýsingar bárust svo einkum næstu árin þegar þýskir fyrrverandi hermenn komu heim úr fangabúðum Sovétmanna og gátu upplýst um örlög félaga sinna, sem höfðu til dæmis látist í fangabúðum. Stór hluti þeirra sem er saknað í dag eru hermenn en einnig nokkrir tugir þúsunda almennra borgara. Meirihlutinn hermenn ’ Fortíðin er aldrei dauð. Hún er ekki einu sinni fortíð. William Faulkner rithöfundur ERLENT JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR julia@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.