Morgunblaðið - 27.02.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Alvöru atvinnubíll
Dacia Dokker
Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl.
Dacia Dokker er með 1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l í blönduðum akstri*. Dacia
bílarnir hafa komið einskalega vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri.
Verð: 2.340.000 kr. m. vsk.
Verð án vsk.:
1.887.000 kr.
*
V
ið
m
ið
u
n
a
rt
ö
lu
r
fr
a
m
le
ið
a
n
d
a
u
m
e
ld
s
n
e
y
ti
s
n
o
tk
u
n
í
b
lö
n
d
u
ð
u
m
a
k
s
tr
i.
/
B
ú
n
a
ð
u
r
b
íls
á
m
y
n
d
k
a
n
n
a
ð
ve
ra
fr
á
b
ru
g
ð
in
a
u
g
lý
s
tu
ve
rð
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
6
8
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Olíudreifing hefur samið um smíði á
nýju olíuskipi við Akdeniz-skipa-
smíðastöðina í Tyrklandi sem koma
mun í stað Laugarness. N. Metin
Akbasoglu, framkvæmdastjóri
Akdeniz, og Hörður Gunnarsson,
forstjóri Olíudreifingar, skrifuðu
undir samning þess efnis á skrif-
stofu Olíudreifingar 16. janúar sl.
Hið nýja skip mun dreifa olíu á
hafnir landsins eins og Laugarnesið
hefur gert um árabil.
Þetta er fyrsta nýsmíði á olíuskipi
fyrir Íslendinga síðan olíuflutninga-
skipið Keilir var smíðað í Kína fyrir
Olíudreifingu árin 2000-2002. Það
var mun stærra skip og tók fimm
milljón lítra (6.000 DWT) saman-
borið við 750 þús. lítra í nýja skip-
inu. Keilir var síðar seldur úr landi.
Væntanlegt í lok ársins
Smíðatími nýja skipsins er áætl-
aður 10 mánuðir frá undirritun
samnings. Við smíðatímann bætist
svo 15-16 sólarhringa sigling frá
Adana í Tyrklandi til Íslands. Gangi
það eftir mun Olíudreifing eignast
nýtt skip áður en árið er liðið.
Laugarnesið var smíðað í Dan-
mörku árið 1978 og verður því 40
ára á þessu ári.
Að sögn Harðar Gunnarssonar er
komið að lögbundinni skoðun á
skipinu. Kostnaður við slíka skoðun
er töluverður samhliða því að ekki
verði horft fram hjá því að skipið
uppfyllir ekki lengur þær kröfur
sem gerðar eru til slíkra skipa í dag.
Jafnframt eru dæluafköst skipsins
oft umkvörtunarefni en þau eru að-
eins 125 m³/klst, sem uppfyllir ekki
þarfir margra viðskiptavina. Aðal-
vél Laugarness er einungis 500
hestöfl og því er ganghraði skipsins
mjög háður veðurskilyrðum.
Að sögn Harðar var töluverð
vinna sett í að leita að nýju skipi á
síðasta ári. Var bæði horft til þess
að kaupa notað skip sem og að láta
smíða nýtt. Fljótlega varð ljóst að
framboð af notuðum skipum var
mjög takmarkað.
„Við leituðum því eftir tilboðum í
smíði á nýju skipi og fengum verð
frá nokkrum aðilum en jafnframt
fylgdumst við náið með smíði á 750
m³ skipi fyrir norska félagið Bunker
Oil í Akdeniz-skipasmíðastöðinni í
Tyrklandi. Eftir að hafa rætt
nokkrum sinnum við stjórnendur
Oil Bunker og heyrt hversu góð
samskipti þeirra voru við Tyrkina
og síðan skoðað þeirra skip, sem ber
nafnið Kystbunker II, ákváðum við
að ganga til samninga við Akdeniz
um smíði á nýju skipi,“ segir Hörð-
ur.
Nýja skipið verður búið átta
farmgeymum og mun geta flutt all-
ar tegundir eldsneytis sem eru í
boði hérlendis, frá bensíni og upp í
svartolíu, sem er sérstakt fyrir skip
af þessari stærð. Skipið verður með
tvöfaldan botn og tvöfaldan byrð-
ing. Burðargeta skipsins verður um
230 rúmmetrum meiri en Laugar-
ness. Það mælist 499 brúttótonn en
Laugarnesið er 378 brúttótonn.
Öflugur vélbúnaður
Vélbúnaður skipsins verður mjög
öflugur. Það verður búið tveimur
750 kw Yanmar-aðalvélum, ásamt
tveimur skrúfum og tveimur stýr-
um sem og bógskrúfu að auki.
Hörður segir að þetta fyrirkomulag
auki mjög allt öryggi og geri skipið
mun auðveldara í allri stjórnun.
Áætlaður ganghraði á nýju skipi er
um 10 sjómílur. Allur stjórnbúnað-
ur fyrir farmdælur verður í brú
skipsins og hægt að dæla þremur
tegundum eldsneytis samtímis.
Dæluafköst aukast verulega frá
því sem nú er í Laugarnesi eða frá
125 m³/klst upp í 400 m³/klst í nýju
skipi.
Skipasmíðastöðin Akedeniz í
Tyrklandi er í borginni Adana, 1,7
milljóna manna borg í suðurhluta
Tyrklands. Akdeniz hefur smíðað
sambærileg skip og þeir munu
smíða fyrir Olíudreifingu fyrir aðila
í Danmörku, Spáni, Svíþjóð og Nor-
egi.
Þegar líða tekur á árið verður
reynt að selja Laugarnesið í því
ástandi sem það þá verður. Ekkert
hefur verið aðhafst varðandi sölu á
skipinu ennþá.
Olíudreifing pantar nýtt skip
Öflugt olíuskip til strandsiglinga verður smíðað í Tyrklandi Mun leysa Laugarnesið af hólmi
Nýja skipið Útlitsteikning af skipinu sem verið er að smíða í Tyrklandi. Það verður mun öflugra en Laugarnesið.
Samningur Hörður Gunnarsson og
N. Metin Akbasoglu handsala.