Morgunblaðið - 27.02.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 27.02.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018 ROYAL VANILLUBÚÐINGUR ... OG FÆST Í ÖLLUM BETRI MATVÖRUVERZLUNUM LANDSINS A�taf góður! Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Við viljum sjá sem flesta ogþeir krakkar sem áhugahafa á málþinginu getafengið frí frá kennslu til þess að mæta. Það eru líka allir vel- komnir sem áhuga hafa á lestri,“ segja framtakssamir unglingar í bókaráði nemenda í 8. til 10. bekk í Hagaskóla í Reykjavík. Unglingarnir eru ósáttir við skort á úrvali unglingabóka á ís- lensku og standa því fyrir málþingi undir yfirskriftinni Barnið vex en brókin ekki. Á málþinginu verður vakin athygli á lestri unglinga og fjallað um skort á íslensku lesefni fyrir þá. „Þetta er málefni sem snertir alla en það verður að skrá sig á hagaskoli.is,“ segja sjö af þrettán virkum meðlimum í bókaráði Haga- skóla. Bókaráðið var stofnað í fyrra fyrir hvatningu Helgu Birgisdóttur, bókmenntafræðings og fyrrverandi kennara Hagaskóla, og hefur Helga verið bókaráðinu innan handar sem og Inga Mjöll Harðardóttir íslenskukennari. Málþingið er fyrsti viðburður bókaráðsins. Málþingið í umsjá unglinga „Við sjáum um allt í kringum málþingið en það er gott að geta leitað til Ingu þegar það þarf að hóa saman krökkunum í ráðinu sem eru út um allan skóla,“ segir Eir Ólafsdóttir. Hún segir að kveikjan að málþinginu hafi komið við kvöld- verðarborðið heima hjá henni. ,,Ég kem úr mikilli bókafjöl- skyldu og er alin upp við lestur og bækur,“ segir Eir og bætir við í fimm tíma hléi á fimmleikamóti hafi allir farið að fá sér pitsu en hún kosið að vera eftir og nota tímann til lesturs. Iðunn Björg Arnaldsóttir blandar sér í samtalið og segir að hún hafi lesið svo mikið á tímabili að hún hafi þrisvar misst af strætó og þegar hún var að keppa í kúlu- varpi þá las hún bók á milli kasta þegar henni fannst biðin of löng. „Ég var reyndar ekki eins mik- ill lestarhestur og ég er í dag en ég er mikil keppnismanneskja og lang- aði til þess að lesa mest í bekknum og þá uppgötvaði ég hvað það var gaman að lesa,“ segir Iðunn. Bókaráðið undirbjó málþingið í Hagaskóla af metnaði og fékk Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menn- ingamálaráðherra, Dröfn Vilhjálms- dóttur, bókasafnsfræðing og þýð- anda, Kristínu Helgu Gunnars- dóttur rithöfund og Egil Örn Jóhannsson frá Félagi íslenskra bókaútgefenda til þess að halda er- indi. Þrír nemendur Hagaskóla flytja erindi á málþinginu, þau Ásta Hlíf Harðardóttir sem ræðir um skort á þýddum bókum fyrir ung- linga, Eir Ólafsdóttir fjallar um við- horf unglingasamfélagsins til lest- urs, sem er ekki alltaf jákvætt, og Helgi Hrafn Erlendsson mun fjalla um hvaða áhrif það geti haft á bókaforlögin í framtíðinni þegar unga fólkið sem fékk ekki nægt úr- val af bókum verður fullorðið. Eftir erindi sitja flestir frummælenda í pallborði. Lítið úrval unglingabóka Það sem brennur helst á ung- lingunum í bókaráði Hagaskóla að sögn Ástu Hlífar Harðardóttur er lítið úrval bóka fyrir unglinga, bæði íslenskra og ekki síður þýddra. Bókaráðið segir ófært þegar for- lögin þýða aðeins tvær bækur af þremur og ekki sé hægt að klára að lesa seríuna. „Við erum ekki að gagnrýna bókaútgáfurnar því þær eru bara einkarekin fyrirtæki sem eru að reyna að græða eins og öll fyrir- tæki,“ segir Selma R. Kattoll og hópurinn tekur undir það að það sé nauðsynlegt að vekja athygli á skorti á fjölbreytni þegar kemur að unglingabókum í stað þess að ræða málin úti í horni. Helgi Edwald Einarsson segir að Bókatíðindin fyrir jól sanni skortinn. „Það var aðeins ein opna fyrir unglingabækur, en barna- og ung- lingabækur fylltu margar opnur,“ segir Helgi og Eyrún Úa Þor- björnsdóttir bætir við að sér hafi aðeins fundist tvær af þeim bókum sem í boði voru fyrir jól áhugaverð- ar. Bókaráðið segir að það megi ekki gleyma að unglingar séu á milli þess að vera börn og fullorðin. „Við getum lesið bækur fyrir fullorðna en í þeim er oft fjallað um vandamál þeirra sem við getum ekki samsamað okkur við. Við þurf- um bækur sem þroskast með okk- ur,“ segir Ásta „Við erum skynsöm og sjáum hlutina frá öðru sjónarhorni og stundum erum við þroskaðri en full- orðnir,“ segir bókaráðið og bætir við að þau séu fyrsta kynslóðin sem elst upp í tæknibyltingunni. Vöntun á rafbókum er áþreifanleg að mati bókaráðsins, sérstaklega á íslensku. „Mér finnst rafbækur snið- ugar, þær eru bæði ódýrari og um- hverfisvænni. En það er alltaf best að finna fyrir pappírnum í hönd- unum,“ segir Eir. Helgi bætir við að rafbækur geti breytt ímynd bók- arinnar og aukið vinsældir lesturs. „Það er ekki eins nördalegt að lesa í tölvu eða síma sem allir eru með,“ segir Helgi og hópurinn er sammála um að bækur þurfi að þróast eins og annað á rafrænni öld. Öll hafa unglingarnir í bóka- ráðinu ástríðu fyrir lestri. Nína Sol- Unglingar í Hagaskóla með málþing um lestur Unglingar í Hagaskóla hafa áhyggjur af skorti á útgáfu á innlendum og erlendum bókum fyrir þeirra aldur. Í stað þess að sitja úti í horni og kvarta ákvað hópur unglinga í bókaráði Hagaskóla að taka málin í sínar hendur og skipuleggja metnaðarfullt málþing þar sem þau taka sjálf til máls auk sér- fræðinga. Mennta- og menningarmálaráðherra er meðal þeirra sem flytja erindi á málþinginu. Áminning Barnið vex en bókin ekki er áminning um að gera þurfi bragarbót í útgáfu á fjölbreyttum bókum bæði íslenskum og erlendum fyrir unglinga. Rokkkór Íslands sýnir á sér nýja hlið á tónleikum í Salnum í Kópavogi 2. mars. Á þeim tónleikum mun kórinn slaka aðeins á keyrslunni sem hann hefur verið þekktur fyrir hingað til og bjóða upp á órafmagnaða tón- leika. Á tónleikunum verður flutt góð blanda af þekktum rokklögum frá áttunda (70’s), níunda (80’s) og tí- unda áratugnum (90’s) sem flestir ættu að kannast við. Stórlög eins og Bohemian Rhapsody, Stairway To Heaven og November Rain munu fá að njóta sín. Matthías V. Baldursson kórstjóri stofnaði kórinn ásamt nokkrum áhugasömum söngvurum sem lang- aði til þess að stofna öðruvísi kór sem hentaði popp- og rokkröddum. Rokkkór Íslands er rétt tæplega þriggja ára gamall og fer óhefð- bundnari leiðir en gengur og gerist í kórsöng að söng Matthíasar. Hann segir að í kórnum syngi í kringum 35 söngvarar sem flestir eigi það sam- eiginlegt að hafa mikla reynslu í kór-, popp-, rokk- og dægurlagasöng og þannig fáist kraftmikil blanda og einstakur hljómur sem sé nýr sinnar tegundar hér á landi og nokkuð sem vert sé að hlusta á. Með kórnum spila þeir Sigurgeir Sigmundsson á kassagítar, Ingólfur Magnússon á kontrabassa, Þorvaldur Kári Ingveldarson á trommur og slagverk og stjórnandi kórsins, Matt- hías V. Baldursson (Matti sax), spilar á píanó. Um hljóðið sér Hrannar Kristjánsson. Fyrsta verkefni Rokk- kórs Íslands fyrir þremur árum var Rokk og rólegheit í Salnum Rokkkór Ís- lands sýnir á sér aðra hlið á órafmögnuð- um tónleikum Rokkarar Reynslubolt- ar í kór-, popp-, rokk- og dægurlagasöng syngja rokklög frá áttunda til tíunda áratugnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.