Morgunblaðið - 27.02.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 27.02.2018, Síða 13
veig Andersen segir að hún hafi gaman af því að lesa og víkka sjón- deildarhringinn með lestrinum. „Það er gaman að kynnast mis- munandi persónum og samfélagi og ég les mér til gagns í sögum og líka til skemmtunar,“ segir Nína Sol- veig. Bókaráðið hefur mikinn áhuga á því að breyta við- horfi unglinga til lesturs og breyta viðhorfi fullorðinna til unglinga. „Við þurfum oft að sanna fyrir fullorðna fólkinu að við vitum margt og það er stundum ekki nógu mikið mark tekið á okkur,“ segir bókaráð- ið og Helgi bætir við: „Það er alveg augljóst þegar fullorðna fólkið tekur ekki mark á okkur.“ Það er kalt mat bókaráðsins að skortur á bókmenntum leiði til þess að unglingar lesi minna og ef þeir lesa minna þá verði minna framleitt af bókum og þá gæti orðið til víta- hringur. Tala við unglinga, ekki um þá Bókaráðið er ósátt við það að of oft sé talað um unglinga og það gleymist að tala við þá. Þau segja líka að það sé ekki hægt að alhæfa um það að þeir sem hafi áhuga á lestri séu betri námsmenn, en það sé ljóst að með lestri aukist orða- forði, lesskilningur og einbeiting. Hóp- urinn tekur sér orð J.K. Rowling, höf- undar Harry Pot- ter-bókanna, í munn en hún sagði: ,,Ef þér finnst ekki gaman að lesa, þá hefur þú ekki fundið réttu bókina (e. If you don’t like to read, you haven’t found the right book)“. Unglingarnir í bókaráðinu segja að lestur sé hvíld frá hversdagsleik- anum og gott að komast í annan heim. Þau kynnist fullt af nýjum persónum og eignist jafnvel vini í bókunum. Lestur geri þau líka víð- sýnni. „Okkur vantar tvo til þrjá tíma í sólarhringinn því hann dugar ekki til þess að gera það sem okkur er ráðlagt að gera. Við eigum að læra, hitta vini, lesa og sofa nóg. Lest- urinn er stundum á kostnað svefns- ins,“ segja unglingarnir sem auk þess að lesa mikið spila flestir á hjóðfæri og eru í hjómsveitum. Í íþróttum, listdansi, unglingadeild- um björgunarsveita og Rauða krossins. Þau taka þátt í því að sauma poka í frístundum til þess að minnka plastnotkun og spila tölvu- leiki svo eitthvað sé nefnt af því sem unglingar í bókaráði Haga- skóla taka sér fyrir hendur utan skóla. Unglingarnir í bókaráðinu bíða spennt eftir 28. febrúar og vonast til þess að fá góða mætingu á mál- þingið sem haldið verður í sal Hagaskóla frá klukkan 12.30 til 14.30. „Við þurfum oft að sanna fyrir fullorðna fólkinu að við vitum margt og það er stund- um ekki nógu mikið mark tekið á okkur“ Framtakssöm Hluti af bókaráði unglinga við Hagaskóla sem tóku til sinna ráða vegna skorts á unglingabókum. Morgunblaðið/Árni Sæberg DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla Aukin lífsgæði án verkja og eym Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. „Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar. Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6 töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir nú horfnir. Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum. Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“ Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt NUTRILENK ACTIVE sla Borgarbókasafnið Menningarhús Grófinni býður upp á leikritunar- smiðju í tilefni af samkeppninni Sög- ur, sem KrakkaRúv stendur fyrir, mið- vikudaginn 28. febrúar. Í smiðjunni hjá Borgarbókasafninu einbeita börn 9 til 12 ára sér að leik- ritun, hvort sem er fyrir leiksvið, út- varpsleikhús, til þess að senda í sjón- varpið eða til KrakkaRúv en frestur til þess að senda handrit til KrakkaRúv rennur út 15. mars. Í smiðjunni fá börnin aðstoð við að semja handrit að leikriti og skiptir ekki máli hvort verið er að fullvinna handrit eða að koma sér af stað með skrifin. Fleiri en einn geti verið sam- an um handrit. Leikarar úr Borgarleikhúsinu verða fengnir til að leika leikþættina, á sviði eða í útvarpinu, eftir handritinu sem verður hlutskarpast í leikrit- unarsamkeppninni. Smiðjan verður haldin miðviku- dagana 28. febrúar, 7. mars og 14. mars frá kl. 15.30-17.00. Leiðbein- andi er Ólöf Sverrisdóttir, leikkona og rithöfundur. Skráning fer fram í gegnum tölvupóstinn olof.sverris- dottir@reykjavik.is. Leikritunarsmiðja í Grófinni Sköpun Í leikritunarsmiðju í Grófinni býðst krökkum leiðsögn í handritagerð. Krakkar sem vilja semja leikrit að fara í hljóðver og taka upp nokkur vel valin lög, sem hlotið hafa mjög góðar viðtökur að sögn Mattíasar. „Kórinn kom fram í fyrsta sinn í Eldborg í Hörpu haustið 2015 á af- mælistónleikum Sniglabandsins og eftir það varð ekki aftur snúið enda Rokkkór Íslands kominn til að vera. Kórinn hélt fyrst eigin tónleika í Kaldalóni í Hörpu í febrúar 2016 þar sem tónlist níunda áratugarins (80’s) voru gerð góð skil en vegna eftirspurnar voru haldnir tvennir tón- leikar það kvöld,“ segir Matthías og bætir við að þegar séð varð að kór- inn þyrfti stærri sal hafi hann fært sig yfir í Norðurljós haustið 2016 með seventís-tónleika og næntís- tónleika vorið 2017 á sama stað. „Í þetta sinn verðum við með tón- leikana í Salnum og þar sem alltaf hefur verið uppselt á tónleika Rokk- kórsins borgar sig að krækja sér í miða á salurinn.is,“ segir Matthías og bendir á að tónleikarnir á föstu- daginn hefjist kl. 20.00. Ljósmynd/Eva Ágústa Aradóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.