Morgunblaðið - 27.02.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.02.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Norski álframleiðandinn Norsk Hydro hefur lagt fram skuldbindandi tilboð um kaup á álverinu í Straums- vík sem er í eigu Rio Tinto. „Fyrirhuguð kaup falla vel að stefnu Norsk Hydro. Málmurinn á Íslandi er framleiddur með endur- nýjanlegri orku eins og raunin er með framleiðslu okkar í Noregi. Ál er málmur framtíðarinnar. Eftirspurn eftir honum mun vaxa mest af öllum málmum,“ segir Ola Sæter, fram- kvæmdastjóri hjá Norsk Hydro, í samtali við Morgunblaðið. Tilboðið til Rio Tinto nær einnig til 53% hollensku skautverksmiðjunnar Aluchemie og 50% hlutar í sænsku álflúoríð-verksmiðjunni Alufluor. Ef af kaupunum verður mun Norsk Hydro eignast hollenska fyrirtækið og hið sænska að fullu því það á þegar hinn helminginn í félögunum. Sam- anlagt nemur tilboðið til Rio Tinto 345 milljónum dollara, jafnvirði tæp- lega 35 milljarða króna. Sæter segir að til skamms og með- allangs tíma muni fjöldi starfsmanna ekki taka breytingum. „Skuldbind- andi tilboði fylgja viðræður við full- trúa starfsmanna álversins og sam- keppnisyfirvöld.“ Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, segist taka tilboðinu fagn- andi. „Það er af hinu góða að fá bind- andi tilboð frá alvöru álframleiðanda og vinaþjóð okkar,“ segir hún í sam- tali við Morgunblaðið. Að sögn Sæter er starfsemin á Ís- landi vel rekin og tækjabúnaður hafi verið uppfærður á liðnum árum til að mæta ýtrustu kröfum frá bílafram- leiðendum. „Við teljum að Norsk Hydro geti lagt hönd á plóg til dæmis er varðar áframhaldandi tækniþróun álversins,“ segir hann. Rio Tinto á Íslandi tapaði 28,8 milljónum dollara árið 2016 eða 2,9 milljörðum króna samanborið við 1,9 milljóna dollara tap árið áður. Sam- kvæmt ársreikningi Rio Tinto á Ís- landi árið 2016 var álverð lágt það ár. Sæter sagði að reksturinn hefði batn- að umtalsvert að undanförnu en hann gæti ekki farið nánar út í þá sálma. Rio selur eignir Fram kom í frétt á Bloomberg í október að Rio Tinto hefði selt eignir fyrir meira en sjö milljarða dollara frá árinu 2013. Forstjóri félagsins sagði að hækkandi verð á málmum og raforku hefði gert það fýsilegt að selja eignir sem féllu ekki að rekstr- inum. Norsk Hydro er skráð á hluta- bréfamarkað í Noregi. Stærsti hlut- hafi félagsins er norska ríkið með um 34% hlut. Félagið er með 35 þúsund starfsmenn í 40 löndum.  Norsk Hydro lagði fram skuldbindandi tilboð í Rio Tinto á Íslandi  Fjöldi starfsmanna á Íslandi mun ekki taka breytingum til meðallangs tíma  Móðurfélag Rio Tinto hefur selt eignir frá árinu 2013 Norðmenn vilja álverið í Straumsvík Morgunblaðið/Hari Ál „Ál er málmur framtíðarinnar. Eftirspurn eftir honum mun vaxa mest af öllum málmum,“ segir Ola Sæter, framkvæmdastjóri hjá Norsk Hydro. Hins vegar eru samningar ekki frá- gengnir um verð fyrir hinn svokallaða keypta kvóta, en hann er í ár ákveðinn alls 2.646 tonn. Með honum fylgir einn- ig 30% meðafli, en þar eru takmörk á ýsu 265 tonn. Síðustu tvö ár hafa ekki náðst samningar um verð á þessum kvóta. Búist er við verðtilboði frá Rúss- um fyrir 1. apríl samkvæmt samningi þjóðanna. Aðspurður sagði Jóhann Guð- mundsson, formaður samninganefnd- ar Íslands, að á fundinum hefði ekki verið rætt á formlegan hátt um við- skiptabann Rússa á sjávarafurðir frá Íslandi. aij@mbl.is Í nýjum samningi Íslendinga og Rússa um framkvæmd svokallaðs Smugu- samnings frá 1999 er samið um að Rússar fái 1.500 tonn af makríl til veiða á úthafinu af makrílkvóta Íslands. Kemur það til viðbótar við heimild Rússa til að veiða 1.500 tonn af kol- munnakvóta Íslendinga. Samkvæmt reglugerð verður kol- munnakvóti Íslands í ár 293 þúsund tonn, sem er 21,1% af ráðlögðum heild- arafla alþjóðahafrannsóknaráðsins. Kvóti Íslendinga í makríl hefur ekki verið gefinn út, en engir samningar strandþjóða eru í gildi um veiðar úr þessum stofnum. Ekki samið um keypta kvótann Á fundi í Moskvu 19.-20. febrúar um þorskveiðar íslenskra skipa í lögsögu Rússlands fyrir árið 2018 var samið um magn á grundvelli Smugusamn- ingsins og verður heildarafli þorsks sem ekkert er greitt fyrir alls 4.409 tonn. Með þessum þorskafla verður heimill 30% meðafli en þó má magn ýsu ekki nema meiru en 352 tonnum. Rússar fá að veiða 1.500 tonn af makríl  Samið um þorskveiðar í lögsögu Rússa Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Sólberg ÓF Hefur sótt í Barentshaf. Norsk Hydro hefur áður horft til þess að reka álver á Íslandi, að því er fram hefur komið í frétt- um Morgunblaðsins. Árið 2002 stóð til að semja um álver í Reyðarfirði, en Norð- mennirnir viku nokkuð skyndi- lega frá borðinu. Það tengdist þó ekki Íslandi sem starfsvett- vangi, heldur kom upp tækifæri í öðrum heimshluta sem fyrir- tækið taldi eðlilegra að beina athygli sinni að, sagði í fréttum. Árið 2007 kom sendinefnd frá fyrirtækinu til Þorlákshafnar til að kanna staðhætti vegna hugsanlegra stóriðjufram- kvæmda. Haft augun á Íslandi lengi REYÐARFJÖRÐUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.