Morgunblaðið - 27.02.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Nærri tugur heimilislausra hefur
króknað úr kulda á meginlandi Evr-
ópu síðustu daga og því er spáð að
frostið muni herða á næstu dögum.
Ástæðan er kaldur vindur sem berst
vestur yfir álfuna frá Síberíu.
Á Íslandi er hins vegar spáð frekar
mildu veðri fram á miðvikudag en síð-
an mun kólna í veðri.
Appelsínugul viðvörun
Breskir fjölmiðlar hafa nefnt þetta
veður „ófreskjuna að austan“. Breska
veðurstofan sendi frá sér gula veður-
viðvörun í gær og appelsínugula fyrir
daginn í dag og miðvikudag. Spáð er
snjókomu og frosti á austurhluta
landsins.
Veðurstofan sagði að útlit væri fyr-
ir kaldasta veður á Bretlandseyjum,
jafnvel frá árinu 1991.
Í Póllandi komst frostið í 26,2 gráð-
ur aðfaranótt mánudags í bænum
Goldap. Að minnsta kosti tveir krókn-
uðu úr kulda í landinu um helgina og í
Litháen létu að minnsta kosti þrír líf-
ið. Þar er spáð miklu frosti.
Spáð er allt að 18 stiga frosti í
Frakklandi. Þar hafa neyðarskýli
verið opnuð fyrir heimilislausa. Að
minnsta kosti tveir heimilislausir
menn fundust látnir í gærmorgun,
annar í Valence og hinn í úthverfi
Parísar, og talið er kuldinn hafi orðið
þeim að aldurtila.
Talið er að í það minnsta 3.000 séu
heimilislausir í Berlín, höfuðborg
Þýskalands. Þar voru öll athvörf full
um helgina og búist er við að svo
verði áfram en spáð er allt að 20
gráðu frosti í vikunni.
Bæjarstjórinn í Etterbeek í Belgíu
fyrirskipaði í gær að handtaka heim-
ilislausa ef þeir neituðu að leita skjóls
í athvörfum.
Í Rússlandi sendi veðurstofan frá
sér viðvörun um mikið frost, allt að 14
gráður á daginn og 24 stig á nóttunni.
Í Austurríki mældist frost víða um
20 gráður. Lagðar voru gönguskíða-
brautir í almenningsgörðum í Vínar-
borg. Svell myndaðist á Dóná en
borgaryfirvöld vöruðu fólk við því að
svellið væri ótraust og því væri ekki
heppilegt að renna sér þar á skaut-
um.
Það snjóaði í Rómaborg í fyrrinótt,
í fyrsta skiptið frá árinu 2012. Hitinn í
Róm var um frostmark en á næstu
dögum er spáð allt að sex stiga frosti í
borginni og meiri snjókomu.
Afar slæm færð var á vegum í Sví-
þjóð í gær og mikið um umferðar-
óhöpp. Stefan Löfven forsætisráð-
herra lenti í einu slíku þegar hann var
á leið til Uppsala á ráðstefnu. Bíll
hans rann til á veginum og lenti á
vegriði. Engan sakaði og Löfven hélt
ferð sinni áfram í öðrum bíl.
Þá olli snjókoma því að aflýsa varð
fjölda flugferða á Arlandaflugvelli við
Stokkhólm. Svíar virtust þó í gær
vera nokkuð ánægðir með veðrið
enda er sérstakt vetraríþróttafrí í
þarlendum skólum í vikunni. Um
fimm gráðu frost mældist í Stokk-
hólmi en í fjöllunum við Östersund,
þar sem margir Svíar renna sér nú á
skíðum, mældist allt að 20 stiga frost.
Kuldinn bítur í Evrópu
Snjóaði í Róm í fyrsta skipti frá árinu 2012 Frost fer víða yfir 20 stig
Kaldur vindur frá Síberíu ræður veðrinu í vikunni Óttast um heimilislausa
Þegar ofkæling er yfirvofandi ver líkaminn mikilvæg líffæri
Hvernig líkaminn ver sig gegn kulda
Væg
34°C35°C37°C 28°C
Mikil
SkjálftiLíkamshiti
í meðallagi
Ofkæling
Hár blóð-
þrýstingur
Minnistap
Kal
Óreglulegur hjartsláttur
Dá
Andnauð
Vöövakrampi
Dauði
Meðal
Undirstúkan
Stjórnar
líkamshita
Önnur
líffæri
verða fyrir
áhrifum:
þ.á.m.
lungun,
maginn og
nýrun
Heili
Dregur úr blóðflæði
minni virkni
Æðasamdráttur
Æðar
dragast
saman
Minna
hita-
tap
Hjartað
Hraðsláttur
Hægsláttur
1
2
3 Gáttatif
Hjartsláttur og blóð-
þrýstingur aukast
Varnir verða óvirkar.
Hægir á hjartslætti
Óreglurlegur hjartsláttur
getur leitt til hjartastopps Súrefnisupptakaeykst og blóðið
súrnar
Vöðvar dragast saman
Skjálfti
(vörn
líkamans)
Blóðið
beinist til
mikilvægra
líffæra
Kristilegir demókratar (CDU) í
Þýskalandi samþykktu á sérstökum
fundi í Berlín í gær stjórnarsáttmála
kristilegu flokkanna (CDU og CSU)
og sósíaldemókrata (SPD). 975
fulltrúar greiddu atkvæði með sátt-
málanum, en aðeins 27 á móti. Það
veltur því á niðurstöðu atkvæða-
greiðslu, sem nú stendur yfir hjá
SPD, hvort af stjórnarsamstarfinu
verði og verða úrslit hennar kynnt á
sunnudag.
Angela Merkel, kanslari og leið-
togi CDU, skoraði á flokkssystkin
sín fyrir fundinn að samþykkja sátt-
málann. Merkel hefur verið gagn-
rýnd innan flokksins fyrir að gefa of
mikið eftir í stjórnarmyndunar-
viðræðum. Um helgina birti hún
lista yfir væntanlega ráðherra í
stjórninni. Á honum er einn helsti
gagnrýnandi hennar, Jens Spahn,
verðandi heilbrigðisráðherra. Á
fundinum í gær studdi hann Merkel
og sagði stjórnarsáttmálann „traust-
an grunn“. Flokkurinn yrði að end-
urvinna traust kjósenda, sem snúið
hefðu við honum baki.
AFP
Styðja kanslarann Angela Merkel og Jens Spahn á fundi kristilegra
demókrata þar sem nýr stjórnarsáttmáli var samþykktur.
Kristilegir samþykktu
stjórnarsáttmálann
Morð á blaðamanninum Ján Kuci-
ak og Martinu Kusnirovu, sam-
býliskonu hans, sem fundust skotin
til bana á heimili sínu í gær, hefur
vakið óhug í Slóvakíu. Kuciak var
skotinn í brjóstið og Kusnirova í
höfuðið. Sagði Tibor Gaspar
lögreglustjóri að allt benti til
morðs að yfirlögðu ráði. Líklega
hefðu þau verið myrt vegna skrifa
Kuciaks.
„Ef í ljós kemur dauði rannsókn-
arblaðamannsins Jans Kuciaks
tengist blaðamennsku hans væri
það fordæmalaus árás á fjölmiðlun
og lýðræði í Slóvakíu,“ sagði í yfir-
lýsingu Roberts Ficos, forsætis-
ráðherra landsins.
Kuciak skrifaði einkum um ásak-
anir um skattsvik og fjárglæfra-
starfsemi háttsettra embættis-
manna og auðjöfra og tengsl
skipulagðra glæpa og stjórnmála.
Síðasta fréttin, sem hann skrifaði
fjallaði um kaupsýslumanninn
Marian Kocner. Kocner er þekktur
fyrir að hóta blaðamönnum og
hafði sagt að hann myndi birta
„allt óhreint“ sem hann fyndi um
Kuciak og fjölskyldu hans.
Lögregla telur að morðin hafi
verið framin á milli fimmtudags og
sunnudags. Slóvakíska lögreglan
sagði að allt kapp yrði lagt á að
finna hina seku í málinu.
AFP
Pólitískt morð Lögregla á vakt þar
sem Jan Kuciak var myrtur.
Blaðamað-
ur myrtur í
Slóvakíu
Talið að ástæðan
sé skrif um skattsvik