Morgunblaðið - 27.02.2018, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
✝ Ægir Bach-mann Bessason
fæddist í Hafnar-
firði 15. nóvember
1935. Hann lést 17.
febrúar 2018 á
Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Foreldrar hans
voru Bessi Bach-
mann Gíslason
skipstjóri og Lilja
Eyjólfsdóttir hús-
móðir. Ægir ólst upp með for-
eldrum sínum og systrum,
Erlu, Sjöfn og Elsu í Hafn-
arfirði.
Ægir kvæntist Guðnýju Sig-
ríði Arnbergsdóttur 26. ágúst
1962. Dætur þeirra fimm eru
Stefanía, f. 7. mars
1963, Lilja, f. 10.
maí 1965, Íris, f.
13. ágúst 1968,
Ragnhildur, f. 23
mars 1976, og Ing-
veldur, f. 2. janúar
1978. Barnabörn
Ægis og Guðnýjar
eru 16 og
barnabarnabörnin
eru sex. Ægir
starfaði sem loft-
skeytamaður á sínum yngri ár-
um, en hóf fljótlega versl-
unarrekstur í Hafnarfirði sem
hann sinnti í yfir 50 ár.
Útför Ægis fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 27.
febrúar 2018, klukkan 14.
Elsku Ægir minn,
Líkt og ástarljóð sem enginn fékk að
njóta,
eins og gulnað blað sem geymir óræð
orð,
eins og gömul hefð sem búið er að
brjóta,
þar er ég, þar ert þú, þar er allt það
sem ástin okkur gaf.
Þannig týnist tíminn, þannig týnist
tíminn,
þannig týnist tíminn þó hann birtist
við og við.
Líkt og sumarást sem aldrei náði að
blómstra,
líkt og tregatár sem geymir falleg
bros,
þarna er gömul mynd sem sýnir glað-
ar stundir,
þar er ég, þar ert þú, þar er allt það
sem ástin okkur gaf.
…
Líkt og mynd sem bjó í vonarlandi
þínu,
eins og æskuþrá sem lifnar við og
við,
býr þar sektarkennd sem ennþá nær
að særa,
þar er ég, þar ert þú, þar er allt það
sem ástin okkur gaf.
…
Líkt og ástarljóð sem enginn fær að
njóta
endar sem gulnað blað er geymir
óræð orð,
eins og gamalt heit sem búið er að
brjóta,
þar er ég, þar ert þú, þar er allt það
sem ástin okkur gaf.
(Bjartmar Guðlaugsson)
Þín
Guðný.
Elsku besti pabbi minn.
Það er sárt að kveðja þig og
söknuðurinn er mikill en ég er
full af stolti og þakklæti fyrir að
hafa átt þig sem pabba minn.
Þú hefur hjálpað mér af stað í
lífinu og passað vel upp á mig og
börnin mín og ég verð þér æv-
inlega þakklát fyrir það.
Mér þykir svo vænt um að þú
baðst fyrir Lovísu minni dag-
lega og ég efast ekki um að þú
hafir verið bænheyrður, elsku
pabbi. Það var mikill léttir fyrir
þig að heyra að hún væri orðin
betri og var svo gott að þú gast
kvatt áhyggjulaus vegna henn-
ar.
Síðustu ár hafa verið þér erf-
ið, elsku pabbi, vegna veikinda,
en alltaf var stutt í húmorinn
þinn og hláturinn enda ekki við
öðru búist af þér, brandarakall-
inum mikla.
Það er huggun í sorginni að
nú sért þú laus úr veikum lík-
amanum og kominn í sumar-
landið fagra.
Ég er svo stolt af þér, pabbi
minn, þú varst mín fyrirmynd
og hetja og börnin mín elskuðu
þig heitt, þú varst hinn mesti
barnavinur og barnabörnin þín
voru þér svo dýrmæt. Innilegar
þakkir fyrir allt, elsku pabbi
minn, ég mun sakna þín sárt.
Þótt minn elskulegi faðir
og kæri vinur
hafi nú kallaður verið heim
til himinsins sælu sala
og sé því frá mér farinn
eftir óvenju farsæla
og gefandi samferð,
þá bið ég þess og vona
að brosið hans blíða og bjarta
áfram fái ísa að bræða
og lifa ljóst í mínu hjarta,
ylja mér og verma,
vera mér leiðarljós
á minni slóð
í gegnum
minninganna glóð.
Og ég treysti því
að bænirnar hans bljúgu
mig blíðlega áfram muni bera
áleiðis birtunnar til,
svo um síðir við ljúflega
hittast munum heima á himnum
og samlagast í hinum eilífa
ljóssins yl.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Þín dóttir,
Ingveldur.
Í dag kveð ég elsku pabba
minn með söknuði og ást í hjarta.
Margt kemur í hugann þegar ég
hugsa til baka þar sem ég sit í
sætinu þínu í eldhúsinu. Ég
minnist þess hvað það var gaman
að fá að fara með þér í sendiferð-
ir til Reykjavíkur þegar ég var
lítil þegar þú sprengdir kínverj-
ana út úr bílnum og við hlógum
dátt.
Ég man líka eftir því þegar þú
sýndir okkur systrunum og vin-
konum mínum töfrabrögð og
kenndir mér nokkur til að sýna
bekknum mínum í Víðistaða-
skóla. Ég minnist þess með hlýju
þegar þú spilaði á orgelið heima,
hvað þú varst góður kokkur, og
hvað þér fannst gaman að elda
og borða.
Ég minnist líka allra smá-
sagnanna sem þú skrifaðir af
mikilli list og húmor og sendir
mér á faxi til Bandaríkjanna. Það
sem við hlógum af þessum sög-
um!
Sögurnar af Mána ketti og af
gervigæsunum á ég enn og mun
varðveita vel.
Elsku pabbi minn, þú varst
þúsundþjalasmiður og áttir ráð
við öllu.
Þú varst langt á undan þinni
samtíð varðandi vitamin og
fæðubótaefni og margt sem þú
sagðir fyrir 30 árum er viður-
kennt í dag. Það sem stendur
uppúr í minningunni er hversu
góðhjartaður maður þú varst,
hvað þú vildir öllum vel, og
hversu mörgum þú hjálpaðir
með tækjunum þínum í Heilsu-
búðinni.
Elsku besti pabbi minn, ég
veit að þér líður betur þar sem
þú ert núna eftir veikindi þín síð-
ustu ára. Þú ert laus úr fjötr-
unum.
Takk fyrir allt. Takk fyrir að
vera alltaf hjá mér þrátt fyrir að
ég hefði flutt búferlum til Banda-
ríkjanna. Takk fyrir að vera góð-
ur tengdafaðir, afi og langafi. Ég
elska þig elsku pabbi minn. Hvíl
þú í friði.
Stefanía Ægisdóttir
Elsku besti pabbi minn. Að
skrifa þessi orð fyllir hjarta mitt
af sorg, en ég veit að þér líður
vel núna og ert á góðum stað. Þú
varst svo góðhjartaður og vildir
öllum vel, enda varstu síðustu ár-
in á meðan þú hafðir heilsu til að
hjálpa fólki. Það var svo ynd-
islegur tími að vinna í Heilsubúð-
inni hjá þér og mömmu í 25 ár.
Sá tími gleymist aldrei. Alltaf
vastu til staðar ef eitthvað bját-
aði á. Þú varst með lausnir á öllu
sama hvað var, enda svo milli
snillingur og þúsundþjalasmiður
eins og sagt er. Ójá þú varst það
svo sannarlega. Mér er minnis-
stætt þegar ég stóð hjá þér sem
lítil stelpa þegar þú spilaðir á
Hammond orgelið þitt og söng
með. Ég tala nú ekki um þegar
þú varst að kenna mér að morsa
nafnið mitt og hvað ég hafði
gaman að því að fylgjast með
þegar þú morsaðir til fólks um
allan heim. Ég gæti talið upp
endalaust fleiri minningar. Elsku
besti pabbi minn ég veit að þú
vakir yfir okkur og gefur okkur
styrk á þessum erfiðu tímum.
Yndislegi pabbi minn mundu það
alla daga að þér finnst þú ein-
stakur og þú varst kletturinn
minn.
Þín dóttir
Íris Ægisdóttir.
Ægir móðurbróður minn er
allur, ég minnist hans sem mikils
áhrifavaldar á barns og ung-
lingsárum mínum. Hann var 17
árum eldri en ég, hann nennti að
hafa mig með sér á allskonar æv-
intýra brölti.
Hann kenndi mér að skjóta af
riffli og skammbyssu, búa til
sprengjur sem við gerðum svo
tilraunir með, ég hef svo ekki lát-
ið reyna á þessa kunnáttu mína
síðan þá, og margt gerðum við
fleira. Ægir bjó á neðstu hæðinni
á Hringbrautinni þar sem ég bjó,
hann var með þeim fyrstu sem
voru með kanasjónvarpið í okkar
hverfi, sátum við krakkarnir í
hverfinu oft þar og fengum að
horfa á ýmsa þætti t.d. köttinn
Felix, Bonansa, Combat, ofl.
Þegar kaninn var eina sjón-
varpsstöðinni þá var Ægir í upp-
setningum á loftnetum fyrir þá
stöð, sem leiddi svo til þess síðar
að hann opnaði verslun í Gunn-
arssundinu sem hét Radíóval,
þar seldi hann sjónvörp og ým-
iskonar skrautvörur t.d. kuðunga
og skeljar frá framandi löndum
sem ég hafði aldrei séð áður.
Þessi verslun flutti svo á Linn-
etsstíg 1. Þá byrjaði ballið fyrir
alvöru, Íslenska sjónvarpið boð-
aði komu sína, það vildu allir fá
loftnetsuppsetningar, ég var svo
heppinn að vera aðstoðarmaður
Ægis á þeim tíma, við vorum
uppi á þökum um allan bæ og
höfðum varla undan.
Ægir var mörgum kostum bú-
inn, hann var mjög músikalskur
spilaði á píanó og orgel listavel.
Hann var mjög tæknilega sinn-
aður, lærður loftskeytamaður og
vann í Loftskeytastöðinni í Gufu-
nesi. Þau ykkar sem þekktu
hann vel muna að hann var al-
gjör græjukarl átti allskonar
græjur: loftskeytatæki og risa-
loftnet þar sem hann hafði sam-
band við fólk um allan heim,
fyrsta torfæru hjól sem ég sá og
margt fleira sem ég tel ekki upp
hér.
Ægir var kvæntur Guðnýju
Arnbergsdóttur frá Borgarfirði
eystri, stórglæsilegri rauðhærði
konu sem var akkerið í lífi hans.
Þau bjuggu fyrst á Hringbraut,
síðan byggðu þau sér hús við
Þrúðvang voru reyndar með
þeim fyrstu sem byggðu í Norð-
urbænum.
Þau ráku fataverslunina Val í
Hafnarborgarhúsinu við Strand-
götu um nokkurt skeið. Síðustu
árinn svo Heilsubúðina við
Reykjavíkurveg þar sem þau
seldu ýmiskonar heilsu og gjafa-
vörur.
En eins og ég minntist á þá
var Ægir græju karl, hann var
með vél sem gat mælt heilsu
fólks. Þar var líka myndvél sem
tók myndir af áru fólks.
Það var eftir því tekið hvað
garðurinn á Hringbrautinni var
fallegur þegar þau bjuggu þar,
en það var bara létt æfing miðað
við hvernig þau gerðu garðinn
sinn á Þrúðvanginum, hann var
og er ævintýri út af fyrir sig,
margverðlaunaður.
Ég vil kveðja frænda minn
Ægi sem var bæði bóngóður og
hjálpsamur þeim sem leituðu til
hans.
Megi guð styrkja þig Guðný
og ykkur Stefanía, Lilja, Íris,
Ragnhildur, Ingveldur og fjöl-
skyldur ykkar.
Hvíl í friði Ægir Backmann
Bessason.
Bessi H. Þorsteinsson.
Kæri vinur minn.
Þakka þér fyrir þær stundir
sem við fenguð notið saman, árin
voru ekki mörg en stundirnar
ánægjulegar og minnisstæðar.
Mér eru sérstaklega minnis-
stæð þau orð sem þú sagðir mér
einn góðan daginn að ég væri
einn sá myndarlegasti maður
sem þú hafðir séð og þú hafðir
ekki sagt það við nokkurn karl-
mann áður. Þakka þér fyrir það
kallinn minn.
Það var mikill heiður að fá að
kynnast þér og alltaf mikil hlýja
og kærleikur í návist þinni. Dótt-
ir þín hún Inga talaði alltaf mjög
fallega til þín og sagði mér marg-
ar góðar og skemmtilegar sögur
af þér og þínum uppákomum á
árum áður mér til mikillar kát-
ínu.
Mér er einnig minnisstætt
þegar þú sást og hélst á Lovísu
okkar í fyrsta skiptið hvað þú
ljómaðir af hamingju og gleði.
Ég vil þakka þér fyrir þann hlý-
hug sem þú sýndir Lovísu og
okkur í hennar veikindum með
þínum bænum og fallegu hugs-
unum eins og þér einum var lag-
ið, það er mér mjög mikils virði.
Nú ert þú kominn á betri stað
elsku vinur og ég veit þú vakir
yfir okkur alltaf kallinn minn.
Hvíldu í friði Ægir minn og
takk fyrir samveruna.
Þinn tengdasonur
Kristinn Aðalsteinn
Eyjólfsson.
17. febrúar, fallegasti dagur
vetrarins. Snjó hafði kyngt niður
alla nóttina og dagurinn ein-
kenndist af heiðskíru veðri og
glampandi sólskini.
Þetta var líka dagurinn sem
elskulegur pabbi minn kvaddi.
Mér eru svo mörg orð í huga
þegar ég hugsa til pabba míns og
þegar mig langar til að lýsa hans
einstaka karakter, en ég ætla að
hafa þetta í hans anda, hógvært
og nokkuð látlaust.
Ég man eftir því sem krakki
þegar ég heyrði orðið þúsund-
þjalasmiður fyrst; já túlkunin á
því var manneskja sem kann
flestallt og lætur hluti leika í
höndum sér. Þar tengdi ég strax
við pabba minn. Já pabbi minn
er þúsundþjalasmiður, hugsaði
ég með mér. Fyrir utan akkúrat
þessa hluti sem snúa að hand-
lagni var hann líka einstaklega
úrræðagóður og gaf alltaf bestu
ráðleggingarnar. „Þú klárar það
sem þú byrjar á og að gefast upp
er aumingjaskapur.“ Og það var
svo sannarlega í hans anda. Bar-
áttan og þrautseigjan einkenndi
hann þrátt fyrir þungbær veik-
indin síðastliðin ár.
Vinnusemi og dugnaður var
pabba í blóð borið, hann stóð í
eigin fyrirtækjarekstri í tugi ára
sem hann sinnti af alúð og var
það hjálpsemin sem einkenndi
starf hans síðustu áratugina.
Fjölskyldan var svo punkturinn
yfir i-ið, sem hann hélt fast utan
um með sínu sterka, ákveðna og
trygga lagi.
Eitt sterkasta einkenni pabba
var húmorinn, hárbeittur og
hnyttinn og endalaust fyndinn.
Hló manna hæst í fjölskylduboð-
unum, yfir sjónvarpinu eða við
eldhúsborðið í einhverjum
skemmtilegum kjaftaganginum.
Nú ylja fallegar, skemmtilegar
minningar um allt sprellið og
brandarana, sögurnar, rímurnar
og símaötin.
Ég þakka elskulegum pabba
mínum fyrir kennsluna á lífið,
betri kennara hefði ekki verið
hægt að velja.
Gráttu ekki
yfir góðum
liðnum tíma.
Njóttu þess heldur
að ylja þér við minningarnar,
gleðjast yfir þeim
og þakka fyrir þær
með tár í augum,
en hlýju í hjarta
og brosi á vör.
Því brosið
færir birtu bjarta,
og minningarnar
geyma fegurð og yl
þakklætis í hjarta.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Þín dóttir,
Ragnhildur.
Það er með mikilli sorg og
söknuði sem ég minnist pabba
míns og vinar.
Orð fá því ekki lýst. Sökn-
uður að geta ekki farið til þín.
Minningarnar hellast yfir mig
hver á fætur annarri. Pabbi var
mín helsta fyrirmynd og besti
vinur.
Ég er endalaust þakklát fyrir
allt sem hann hefur kennt mér í
lífinu.
Þakklát fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum sam-
an.
Elsku pabbi minn, takk fyrir
allt og hvíldu í friði, þú átt það
svo sannarlega skilið.
Þótt minn elskulegi faðir
og kæri vinur
hafi nú kallaður verið heim
til himinsins sælu sala
og sé því frá mér farinn
eftir óvenju farsæla
og gefandi samferð,
þá bið ég þess og vona
að brosið hans blíða og bjarta
áfram fái ísa að bræða
og lifa ljóst í mínu hjarta,
ylja mér og verma,
vera mér leiðarljós
á minni slóð
í gegnum
minninganna glóð.
Og ég treysti því
að bænirnar hans bljúgu
mig blíðlega áfram munu bera
áleiðis birtunnar til,
svo um síðir við ljúflega
hittast munum heima á himnum
og samlagast í hinum eilífa
ljóssins yl.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Þín
Lilja.
Þessi kveðja okkar til þín er
ekki endanleg heldur þýðir hún
að við munum sakna þín þar til
við hittumst aftur síðar. Við
elskum þig, afi.
Lilja Björk Dennis-
dóttir og Ellen Björk
Dennisdóttir, Muncie
Indiana USA.
Elsku afi okkar, það sem við
vorum heppin að eiga þig að. Þú
varst svo mikil hetja, sterkur,
duglegur og alltaf tilbúinn til
þess að hjálpa öllum í kringum
þig enda algjört gull af manni.
Við söknum þín sárt en vitum
að þér líður betur núna.
Hún Máney Kamilla segist
elska þig svo mikið og veit að
núna ertu að fylgjast með henni
og Írisi Emblu og passa upp á
þær.
Takk fyrir allt og hvíldu í
friði, elsku afi og langafi okkar.
Silja Ýr, Guðný Rán
Írisardóttir og Ægir
Bachmann Írisarson.
Ægir Bachmann
Bessason
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Matthildur Bjarnadóttir,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann