Morgunblaðið - 27.02.2018, Side 26

Morgunblaðið - 27.02.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018 Sigríður LovísaJónsdóttir, ráðn-ingar- og þjálf- unarstjóri hjá Brim- borg, er fimmtug í dag, en hún hefur starfað hjá Brimborg í um 28 ár og sinnir einnig mannauðs- málum og launavinnslu hjá fyrirtækinu. Hjá Brimborg eru í dag um 240 starfsmenn í föstu starfi og er fyrir- tækið m.a. með umboð fyrir Volvo, Ford, Mazda, Citroën og Peu- geot ásamt því að reka átta verkstæði, bílaleigu og atvinnutækjasvið svo eitthvað sé nefnt. Lovísa er Volvo-aðdáandi og ekur að sjálfsögðu um á flaggskipi Volvo, XC90. „Ég hóf störf hjá Brimborg árið 1990 og ætlaði í upphafi að stoppa í eitt ár sem allt í einu eru nú orðin 28, enda líkar mér mjög vel hjá fyrirtækinu og hver dagur flýgur áfram. Ég hef sinnt fjölmörgum störfum innan fyrirtækisins og starfa í dag á mannauðssviði Brimborgar. Árið 2008 dreif ég mig í diplómanám í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands og þar kviknaði áhugi minn á frekari háskólamenntun og síðastliðin ár hef ég verið í námi samhliða vinnu í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og er að skrifa lokaritgerð um þessar mundir.“ Lovísa skrifar BS-ritgerð um jafnlaunavottun. „Jafnlaunavottun er af hinu góða, og er aðeins öðruvísi en fólk heldur. Jafnlaunavottun snýst ekki bara um jöfn laun karla og kvenna heldur jöfn laun og kjör allra fyrir sömu störf, með sömu menntun og reynslu ásamt því að vera frábært hálpartæki fyrir stjórnendur fyrirtækja.“ Lovísa hefur brennandi áhuga á kjaramálum og hefur setið í stjórn VR frá 2016 og sinnir þar formennsku í kjaramálanefnd og er einnig formaður starfs- menntanefndar og er núna í framboði til stjórnar VR en kosningar hefjast 6. mars næstkomandi. Afmælisdeginum eyðir Lovísa í faðmi fjölskyldunnar og verður villibráðarveisla með stórfjölskyldunni í kvöld og á döfinni er svo fimmtugsferð með vinkonum sem allar verða fimmtugar á þessu ári. Sonur Lovísu er Sveinn Aron Ævarsson, 20 ára. Mæðginin Lovísa og Sveinn Aron. Skrifar lokaritgerð um jafnlaunavottun Lovísa Jónsdóttir er fimmtug í dag I ngimar Sveinsson fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Hann lauk stúd- entsprófi frá MA 1948, BSc. with honor.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pull- man í Washington-ríki í Bandaríkj- unum 1952, dvaldi við nám í Dan- mörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerð- ist kennari við Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann hefur kynnt sér ýmsar er- lendar tamningaaðferðir hrossa sem hann hefur aðlagað fyrir íslenska hestinn og bætt inn í sína fyrri tamn- ingareynslu og þannig þróað sína eigin útfærslu eða frumtamninga- aðferð sem hann nefnir „af frjálsum vilja“. Hann hefur haldið fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis á undanförnum árum og eru þau mjög vinsæl og eftirsótt og einnig hefur hann flutt erindi og haldið fræðslunámskeið um íslenska hestinn, sérstöðu hans og þarfir, Ingimar Sveinsson, fyrrverandi bóndi og kennari – 90 ára Ljósmynd/Jón Kristjánsson Hjónin Ingimar og Guðrún í Egilsstaðaskógi, en Ingimar var bóndi á Egilsstaðabúinu í 34 ár. Hirðir hestana sína á hverjum degi Hestamaður Ingimar og Pilatus, sem var landsþekktur hestur. Hann var alinn upp á pela frá fyrsta degi eftir að hryssan drapst frá folaldinu. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.