Morgunblaðið - 27.02.2018, Blaðsíða 27
bæði hjá hestamannafélögum lands-
ins og erlendis.
Ingimar var stofnfélagi Hesta-
mannafélagsins Freyfaxa á Fljóts-
dalshéraði og sat í stjórn þess í tutt-
ugu og fimm ár, þar af formaður í
fimm ár. Hann var stofnfélagi og
fyrsti formaður ungmenna- og
íþróttafélagsins Hattar á Egils-
stöðum. Hann sat í stjórn Kaup-
félags Héraðsbúa, var í nokkur ár
formaður Bændafélags Fljótsdals-
héraðs, og í stjórn Ræktunarsam-
bands Austur-Héraðs og formaður
og framkvæmdastjóri þess um skeið.
Hann var fulltrúi á aðalfundum
Stéttarsambands bænda og Lands-
sambands hestamannafélaga, bú-
vörudeildar SÍS og Osta- og smjör-
sölunnar um árabil.
Ingimar hefur skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit og kennslu-
bækur í hrossarækt og loðkanínu-
rækt við Bændaskólann á Hvann-
eyri. Hann er gullmerkishafi
Landssambands hestamannafélaga
og voru veitt heiðursverðlaun LH
árið 2008. Hann ritaði bókina
Hrossafræði Ingimars, 334 blað-
síðna alhliða upplýsinga- og fræðirit
um hesta, sem kom út í nóvember
2010 en hún var tilnefnd til bók-
menntaverðlauna Hagþenkis það ár.
„Við félagi minn eigum hesthús í
hesthúsahverfinu við Varmá, en ég
bý núna í Mosfellsbæ. Ég er þar með
fjóra hesta á járnum og fer enn á
bak þegar veður leyfir, síðast núna
um helgina, annars væri ég kominn í
kör. Ég gef og moka skít á hverjum
degi. Það heldur manni geysilega vel
við að þurfa að fara í hesthúsið á
hverjum degi í stað þess að liggja í
leti. Það er mikið atriði fyrir eldra
fólk að hafa eitthvað við að vera.“
Fjölskylda
Ingimar kvæntist 25. desember
1956 Guðrúnu Gunnarsdóttur, hús-
freyju á Egilsstöðum og síðar gjald-
kera við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri, f. 7.9. 1933, d. 23.7. 2016.
Foreldrar hennar voru Gunnar Guð-
jónsson og Kristín M. Jóhanns-
dóttir, bændur á Gestsstöðum og
Hafþórsstöðum í Borgarfirði.
Börn: 1) Sigríður Fanney, f. 23.4.
1957, cand.techn.soc., búsett í Kaup-
mannahöfn, maður hennar er Lars
Christensen og börn þeirra Magnús
og María; 2) Gunnar Snælundur, f.
19.2. 1960, cand.agr., búsettur í
Kaupmannahöfn, kona hans er Anne
Mette Skovhus og börn þeirra Mar-
en Kristín, Markús Snælundur og
Anna Vigdís; 3) Kristín María, f.
31.3. 1962, myndlistarmaður og
kvikmyndateiknari, búsett í Mos-
fellsbæ, maður hennar er Jóhannes
Eyfjörð og börn þeirra Guðrún Ýr,
Matthías og Andri; 4) Ásdís, f. 7.11.
1967, d. 13.9. 2012, kennari, síðast í
Borgarnesi; 5) Sveinn Óðinn, f. 2.11.
1972, vélstjóri, búsettur á Selfossi,
en starfar eins og er í Grikklandi,
kona hans er Guðrún Halldóra
Vilmundardóttir skrifstofumaður og
börn þeirra Ingimar Örn og Hafdís
Rún.
Systkini Ingimars: Ásdís, f. 15.4.
1922, d. 15.8. 1991, fv. húsmæðra-
kennari og hótelstjóri; Jón Egill, f.
27.8. 1923, bóndi á Egilsstöðum.
Foreldrar Ingimars: Sveinn Jóns-
son, f. 8.1. 1893, d. 26.7. 1981, bóndi
og oddviti á Egilsstöðum, og k.h.,
Sigríður Fanney Jónsdóttir, f. 8.2.
1894, d. 14 september 1998, hús-
freyja og hótelhaldari á Egils-
stöðum.
Ingimar Sveinsson
Jórunn Magnúsdóttir
húsfreyja í Skildinganesi
Pétur Guðmundsson
bóndi í Skildinganesi
Ingunn Pétursdóttir
húsfreyja og kennari á
Strönd og víðar
Sigríður Fanney Jónsdóttir
húsfreyja og hótelstjóri á Egilsstöðum
Jón Einarsson
bóndi á Strönd á Völlum og víðar
Sigríður Ögmundsdóttir
húsfreyja í Breiðuvík
Einar Sigfússon
bóndi í Breiðuvík á
Borgarfirði eystri
ón Egill Sveinsson
óndi á Egilsstöðum
J
b
Gunnar Jónsson
bóndi á Egilsstöðum
Jón Bergsson bóndi
og hestamaður á
Ketilsstöðum í Vallahreppi
Bergur Jónsson
bóndi á Ketilsstöðum
í Vallahreppi
Ingunn Ásdísardóttir
þjóðfræðingur og
þýðandi
Ásdís Sveinsdóttir
húsmæðrak. og
hótelstjóri
Sigfús Einarsson söðlasmiður á Reyðarfirði
Pétur Einarsson bóndi á Hafursá á Völlum
Pétur Jónsson bóndi
og hestamaður á
Egilsstöðum
Jón Pétursson
dýralæknirAusturlands
Jón Þorsteinsson læknir
í Rvík og hestamaður
Þorgeir
orsteinsson
sýslumaður
Keflavíkur
flugvelliKatla Margrét
Þorgeirsdóttir
leikkona
Þ
á
Sigríður Þorgeirsdóttir
prófessor í heimspeki
Herdís Þorgeirsdóttir
lögmaður í Rvík
Þorsteinn
Jónsson
kaup
félags
stjóri á
Reyðar
firði
Ólöf Bjarnadóttir
húsfreyja í Vestdal
Pétur Sveinsson
bóndi í Vestdal í
Seyðisfirði
Margrét Pétursdóttir
húsfreyja á Egilsstöðum
Jón Bergsson
bóndi og kaupfélagsstjóri á Egilsstöðum
Sigríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Vallanesi
Bergur Jónsson
prestur í Bjarnarnesi í Hornafirði og síðar í Vallanesi
Úr frændgarði Ingimars Sveinssonar
Sveinn Jónsson
bóndi og oddviti á Egilsstöðum
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
102 ára
Axel Jóhannesson
90 ára
Ingimar Sveinsson
85 ára
Árni G. Jensson
Borghildur Þorgrímsdóttir
Garðar Sigurðsson
Ingveldur Stella G. Sveinsd.
80 ára
Anna Andrésdóttir
Auðunn Gestsson
Bjarki Gíslason
Ingibjörg Matthíasdóttir
Sigrún Steingrímsdóttir
75 ára
Ásta Benediktsdóttir
Hreinn Björgvinsson
Rósa Antonsdóttir
Steinunn G. Ingvarsdóttir
70 ára
Ásdís Birna Jónsdóttir
Helgi Hermannsson
Hólmfríður Böðvarsdóttir
Þórir Haraldsson
60 ára
Bergþóra Einarsdóttir
Bryndís Elín Hauksdóttir
Brynja Guðmundsdóttir
Danía Árnadóttir
Dóra Sjöfn Stefánsdóttir
Elísabet B. Vilhjálmsdóttir
Gerth Larsen
Hanna Björg Jóhannesd.
Jóhanna Ellen Valgeirsd.
Kristín Halldórsdóttir
Kristín Júlíusdóttir
Kristín Kui Rim
Mathieu Wierk Zevenhuizen
Ragnheiður Lára Jónsdóttir
Ragnhildur Ólafsdóttir
Sigmundur Eyþórsson
Sigrún Sigurðardóttir
Snæbjörn Heimir Blöndal
Unnur Eiríksdóttir
50 ára
Aðalheiður S. Hólmgeirsd.
Arndís Baldursdóttir
Ásmundur Jónas Guðjónss.
Eiríkur Haraldsson
Eiríkur Ingvar Ingvarsson
Elín Sigurðardóttir
Eva Dís Gunnarsdóttir
Hreiðar Þór Björnsson
Jóel Jónsson
Rafn Yngvi Rafnsson
Rósa Sigríður Ásgeirsdóttir
Sigríður Lovísa Jónsdóttir
Valdís Arnarsdóttir
40 ára
Ari Heiðmann Jósavinsson
Eva Ósk Þorgrímsdóttir
Halldóra Stefanía Birgisd.
Hilda Sigríður Pennington
Jóhanna Dagbjört Gilsdorf
Kristján Óli Pétursson
Margrét Lísa Sigþórsdóttir
Ólafur K. Guðmundsson
Sonja Sigurjónsdóttir
Sveinn Birgisson
30 ára
Agnes Ósk Gunnarsdóttir
Anna Lísa Ríkharðsdóttir
Arnþór Jóhannsson
Auður Guðbjörg Pálsdóttir
Árni Jakob Ólafsson
Ásbjörn T. Sveinbjörnsson
Claire Henriette
S. Thuilliez
Elín Pálmadóttir
Eva Kristín Drífudóttir
Gísli Líndal Karvelsson
Guðbjörg Krista Sesarsd.
Guðlaug Eydís Bjarnadóttir
Stefán Atli Jónsson
Steinunn Karlsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Lísa ólst upp á
Búastöðum í Vopnafirði
en býr í Kópavogi. Hún er
heimavinnandi.
Maki: Bjarki Hrannar
Bragason, f. 1970, bifvéla-
virki hjá Toyota.
Börn: Kristín Birta, f.
2003, Arna Rut, f. 2005,
Hrafnhildur Rán, f. 2007,
og Berglind Hrönn, f.
2012.
Foreldrar: Sigþór Þor-
grímsson, f. 1946, og
Hólmfríður Ófeigsdóttir, f.
1950, bús. á Búastöðum.
Margrét Lísa
Sigþórsdóttir
30 ára Elín er úr Mos-
fellsbæ en býr í Kópavogi.
Hún er viðskiptafræðingur
með master í endur-
skoðun og reikningsskilum
og vinnur hjá PriceWater-
houseCoopers.
Maki: Atli Þór Jóhanns-
son, f. 1988, löggiltur end-
urskoðandi hjá PWC.
Börn: Birkir Leó, f. 2013.
Foreldrar: Pálmi Stein-
þórsson, f. 1960, húsa-
smíðam., og Inga Jóna
Óskarsdóttir, f. 1964, við-
urkenndur bókari.
Elín
Pálmadóttir
30 ára Gísli er Skaga-
maður og vélfræðingur
hjá HB Granda.
Maki: Vilborg Inga Guð-
jónsdóttir, f. 1988,
sjúkraliði á Sjúkrahúsi
Akraness.
Börn: Styrmir Líndal, f.
2011, og Þórdís Katla, f.
2014.
Foreldrar: Karvel Líndal
Hinriksson, f. 1968, vél-
virki á Akranesi, og Hild-
ur Bernódusdóttir, f.
1969, sjúkraliði, bús. í
Garði.
Gísli Líndal
Karvelsson
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
VE SOFT
nge
WA
Lou
360° snúningur
Leður verð frá 249.000.-
Magdalena M. Stefaniak Viðarsson
hefur varið doktorsritgerð sína í mat-
vælafræði við Matvæla- og næring-
arfræðideild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin ber heitið: Mat á lífvirkni
fjölsykruútdrátta af sjávaruppruna
(Evaluation of bioactive properties of
marine-derived polysaccharide ext-
racts). Í doktorsnefnd sátu dr. María
Guðjónsdóttir, dósent í Matvæla- og
næringarfræðideild, dr. Ólafur Ey-
steinn Sigurjónsson, klínískur pró-
fessor við Læknadeild, dr. Kristberg
Kristbergsson, prófessor við Mat-
væla- og næringarfræðideild, og dr.
Sesselja Ómarsdóttir, prófessor við
Lyfjafræðideild.
Fjölsykrur sem upprunnar eru úr
hafinu hafa verið notaðar í ýmsum
tilgangi, s.s. við matargerð, til nær-
ingarefnagerðar og lyfjagerðar. Þrátt
fyrir miklar framfarir í rannsóknum á
sjávartengdum fjölsykrum er mörg-
um spurningum enn ósvarað hvað
varðar líffræðilega eiginleika þeirra.
Tilgangur verkefnisins var að rann-
saka fjölsykrur af sjávaruppruna og
afla frekari upplýsinga og þekkingar
á eiginleikum þeirra, með áherslu á
hugsanlega eiginleika þeirra til
ónæmisstýringar. Útdrættirnir sem
voru til rannsóknar voru fengnir úr
sjávarlífverum s.s. brúnþörungum,
ásamt rauðfóta
sæbjúgum. Út-
drættirnir voru
fengnir með ýms-
um útdráttar-
aðferðum sem
leiddi til afurða
með mikinn
breytileika í bæði
efnasamsetningu
og lífvirkni. Hefðbundnar efnamæl-
ingar voru notaðar til að mæla fjöl-
fenól og fjölsykrusamsetningu, en
einnig voru andoxandi eiginleikar út-
dráttanna metnir. Þar að auki voru
eiturefnaáhrif efnanna rannsökuð til
að meta öryggi útdráttanna gagnvart
THP-1-mónósýtum. Útdrættirnir úr
þaranum og sæbjúgunum juku losun
bólgumyndandi og bólguhamlandi
frumuboða, sem getur gefið í skyn að
efnin megi nota í ónæmisstýrandi til-
gangi. Ónæmisstýrandi eiginleikar
efnanna eru þó sterklega háðir fjöl-
sykrusamsetningu og fjölfenól sam-
setningu þeirra, ásamt andoxandi
eiginleikum þeirra. Greiningar á efna-
samsetningu efnanna samhliða
frumuprófunum tengir saman fjölda
vísindagreina og veitir því yfirgrips-
meiri þekkingu en áður á þeim efnum
sem finna má í fæðu manna og hvaða
áhrif þau hafa á líkamann.
Magdalena Stefaniak
Magdalena M. Stefaniak Viðarsson útskrifaðist með meistarapróf í Medical bio-
technology árið 2004 frá University of Wroclaw í Póllandi. Hún vinnur nú hjá
ónæmisfræðideild Landspítalans. Magdalena er gift Helga Viðarssyni og eiga
þau dótturina Elínu Maríu, sem er fædd 2011.
Doktor