Morgunblaðið - 27.02.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú munt hugsanlega flytja eða
skipta um vinnu á næstu tveimur árum.
Mundu: þú vilt bæta þig sama hvað það
kostar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur verið í sviðsljósinu um tíma
og nú er svo komið að þú þarft að halda
þér til hlés og leyfa öðrum að komast að.
Einangraðu þig samt ekki um of.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt það sé ágætt að hafa nóg
að gera verður þú að varast að taka að
þér of mörg verkefni í einu. Gerðu eitthvað
óvenjulegt í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fólk sem hagar sér heimskulega
veldur vandræðum, en reyndu að sjá
fyndnu hliðina á því. Einbeittu þér að því
að vera í frábæru skapi og taka hlutunum
eins og þeir koma.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samræður um daginn og veginn geta
gengið úr hófi. Gættu þess bara að tala
ekki of mikið og sýndu öðrum tillitssemi
og skilning.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eins oft og þú hefur verið varaður
við því að sóa ekki dýrmætum tíma er
ljóst að tíminn rennur þér úr greipum í
dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Áform þín um að bæta heimilið eða
fjölskylduna munu fá þann stuðning sem
þú hefur óskað eftir. Þú kaupir eitthvað
inn sem þig hefur lengi dreymt um.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Forðastu að gagnrýna sam-
starfsfólk þitt í dag og sættu þig ekki við
ósanngjarna gagnrýni frá því heldur.
Reyndu að leysa hvern hnút fyrir sig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Stundum á maður að taka eitt-
hvað til bragðs og stundum er best að
gera ekki neitt. Hafirðu eftirsjá geturðu
aðeins kennt sjálfum þér um.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú bíður í ofvæni eftir því að
þér verði hrósað fyrir góða frammistöðu.
Samræður við yfirboðara verða ein-
staklega upplýsandi í dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ættir að setja þér ný mark-
mið ef þú ert nálægt því að ná síðustu
markmiðum sem þú settir þér. Þér ætti að
reynast auðvelt að telja aðra á þitt band.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér finnast hlutirnir gerast fullhratt
í kringum þig. Hafðu gát á öllu, því þannig
kemstu hjá áföllunum. Sígandi lukka er
best.
Ólafur Stefánsson skrifaði í Leir-inn á laugardag að nú fór verr
en skyldi. – „Ég ætlaði að gera
þessar líka fínu helgarvísur og
brillera sem aldrei fyrr. En þá hellt-
ist yfir mig leti hvíldardagsins og
ég gerði bara fyrriparta en lét
gömlu skáldin og húsganga sjá um
að botna:“
Fór út áðan, fékk mér loft,
fannst það bara gaman.
„Þetta skeður ekki oft
að við kveðum saman.“
(Baldur Arason)
Er held ég mig í heimsins kró,
heyrist englasöngur.
„Eins mig fýsir alltaf þó
aftur að fara í göngur.“
(Jónas)
Álfamærin undurfín,
á sér hjá mér mötu.
„Er að mjólka ána sín
í ofurlitla fötu.“
(Þjóðvísa)
Mér í huga friðinn finn,
fönn þótt byrgi glugga.
„Þarna siglir einhver inn
ofurlítil dugga.“
(Sveinbjörn Egilsson)
Sól ei lengur sýnist föl
sunkar hafs í dreyra.
„Svo skal maður bæta böl
að bíða annað meira.“
(Kr. Fjallaskáld)
Kindur jarma, köttur malar,
kuldastroka fer um naust.
„Kári snjall á tindum talar
tekur allt sem þar er laust.“
(Jón Árnason)
Ekki dugir um að fást,
þó ætti sæng sér búna.
„Norðurljósa birtan brást
bóndanum með kúna.“
(Jón Halldórsson)
Að mér hafa svipir sótt
svona er það löngum.
„Halla kerling fetar fljótt
framaneftir göngum.“
(Gamall húsgangur)
Ef heims í vosi hrekkur gjörð,
og hrópar einhver – bíddu!
„Hugsaðu hvorki um himin né jörð
haltu þér fast og ríddu.“
(Þórður á Strjúgi)
Upp á hefðar hól og tind
hleyp ég röskur kringum.
„Ég er eins og kláðakind
í klóm á Húnvetningum.“
(Kr. Fjallaskáld)
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fyrripartar og gömlu
skáldin botna
AÐ TALA EINS OG STJÓRNMÁLAMAÐUR
– FYRSTA MERKIÐ UM AÐ MENN HALDI
EKKI REISN SINNI LENGUR.
„ÞÚ GETUR EKKI VERIÐ FARINN AÐ FITNA
STRAX! ÞÚ HÆTTIR BARA AÐ REYKJA
FYRIR 20 MÍNÚTUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skipuleggja
stefnumót númer tvö
áður en því fyrsta er
lokið!
AÐÓG
ÐIDLÖVK!
GO ÐIREV NIMOKLEV Í
KABÁRUTFA SÚHKIEL!
KKILK
ÉG HEF ÁHYGGJUR
AF VEIKLEIKUM Í
EINKAGEIRANUM.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÉRNA ER BÆKLINGURINN
FRÁ HÓTELINU OKKAR FÍNA
ÚR BRÚÐKAUPSFERÐINNI!
HA! VIÐ
FÓRUM EKKI ÚR
HERBERGINU Í
ÞRJÁ DAGA!
ÉG MAN AÐ ÞÚ GAST EKKI HÆTT AÐ PANTA
HERBERGISÞJÓNUSTU!
Eins sjálfsagt og það er að verð-launa okkar besta fólk á sviði
kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð-
ar eru Edduverðlaunin alveg öm-
urlegt sjónvarpsefni. Hver sigur-
vegarinn á fætur öðrum að þakka
kollegum sínum og ömmu sinni fyrir
velgjörð í sinn garð gegnum árin.
„Kvikmyndagerð er hópvinna!“
Hvers vegna þarf þetta fólk að
klappa hvert öðru á bakið frammi
fyrir alþjóð? Er ekki nóg að gera
það í lokuðum sal úti í bæ?
Auðveldlega má birta upplýsingar
um sigurvegarana eins fljótt og þær
liggja fyrir á netinu og sjónvarpið
getur svo sýnt „helstið“ á svona tíu
mínútum kvöldið eftir. Málið dautt.
Sjálfur skrapp Víkverji á hand-
boltaleik á sunnudagskvöldið og hélt
að hann hefði sloppið við Edduna að
þessu sinni. Ekki aldeilis. Dagskrár-
liðurinn sigldi þá bara meira en hálf-
tíma fram úr auglýstri dagskrá. Það
var engu líkara en þeir Eddungar
hefðu ákveðið að draga mál sitt til
að refsa Víkverja sem hlammaði sér
í sófann fyrir framan sjónvarpið
þegar hann kom heim.
x x x
Stundum getur raunar borgað sigað nenna ekki að standa upp úr
sófanum. Þannig sá Víkverji afar
óvenjulegan þátt á RÚV um daginn.
Hann var danskur og fjallaði um
konu sem orðið hafði fórnarlamb
svikara. Hún hafði kynnst banda-
rískum hermanni á stefnumótasíðu
á netinu og orðið ástfangin af hon-
um. Og hann af henni, að því er hún
hélt.
Í ljós kom að það var tóm vitleysa.
Maðurinn sem skrifaðist á við hana
var alls ekki maðurinn á myndinni
og áður en yfir lauk hafði svika-
hrappurinn haft af konunni árs-
launin. Hélt því fram að herinn hefði
fryst launin sín og að hann vantaði
peninga til að komast til sinnar
„heittelskuðu“ í Danmörku.
Konan áttaði sig á endanum á
svikunum en þá kom óvænt tvist í
söguna; hún fór að leita að mann-
inum á myndinni – og fann hann.
Hann átti enga aðild að málinu en
fann til með aumingja konunni og
bauð henni í heimsókn vestur um
haf. Ekki tókust með þeim ástir en á
hinn bóginn vinátta. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ef einhver er í Kristi er hann orðinn
nýr maður, hið liðna varð að engu,
nýtt er orðið til.
(Síðara Korintubréf 5.17)