Morgunblaðið - 27.02.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2018
Breska leikkonan Emma Chambers
lést á miðvikudaginn var, 53 ára að
aldri. Chambers lék m.a. í gaman-
þáttunum The Vicar of Dibley og
kvikmyndinni Notting Hill og hafa
margir samstarfsmenn hennar
minnst hennar með hlýhug, m.a.
leikkonan Dawn French sem lék á
móti henni í The Vicar of Dibley í
13 ár og leikarinn Hugh Grant sem
fór með eitt af aðalhlutverkunum í
Notting Hill. Samkvæmt frétt
breska ríkisútvarpsins lést leik-
konan af eðlilegum orsökum.
Paul Mayhew-Archer, einn
þeirra sem skrifuðu handrit The
Vicar of Dibley, er meðal þeirra
sem minnst hafa Chambers og
sagði hann í samtali á útvarpsstöð
BBC, Radio 5, að þó svo margir
gamanþættir skörtuðu vitleysingi
þá hefði Alice, sem Chambers lék í
þáttunum, verið einstakur vitleys-
ingur, þökk sé leikkonunni. Sam-
leikur Chambers og French hafi
verið óaðfinnanlegur.
Leikkonan Emma Chambers látin
Gleðigjafi Chambers í rómantísku
gamanmyndinni Notting Hill.
Íupphafi Fullra vasa er aðal-persónan, lygamörðurinnArnar Thor, í sjónvarps-viðtali að kynna nýjan
trampólínskemmtigarð sem hann er
í þann mund að setja á fót og talar
fjálglega um hversu gríðarleg vel-
gengni sé í kortunum. Í viðtalssen-
unni er stuðst við það sem kalla
mætti „snap-chat fagurfræði“, tíðar
og skarpar stökk-klippingar, per-
sónur tala beint við myndavélina og
reyta af sér brandara.
Arnar fær 40 milljónir lánaðar til
þess að hefja rekstur skemmti-
garðsins frá hinum alræmda Gulla
bílasala, á bílasölunni 100 bílar
(þetta nafn á bílasölunni er nota
bene fyndnasti brandarinn í mynd-
inni). Skemmtigarðurinn fer undir
eins á hausinn því að á opnunardeg-
inum slasast fjöldi manns. Arnar er
nú í rækilegri klípu, reksturinn á
hausnum og hann skuldar margar
milljónir. Hann tekur því til við að
svíkja peninga út úr vinum sínum
og kunningjum, undir því yfirskini
að hann muni ávaxta þá, og nær
þannig að safna helmingnum af
upphæðinni. Hann nær engu að síð-
ur að tapa öllum þeim peningum í
fjárhættuspilum. Að svo búnu kall-
ar Gulli bílasali Arnar á sinn fund
og segir tæpitungulaust að ef hann
útvegi ekki peningana innan
þriggja sólarhringa muni hann
steypa Arnar fastan í húsgrunn.
Þar með er komið að vendipunkti
sögunnar: Arnar skuldar peninga
úti um allan bæ og ákveður að
ræna banka til þess að redda mál-
unum og bjarga lífi sínu. Þessi
vendipunktur kemur þó allt of seint
og áhorfendur þurfa að bíða eftir
honum í gegnum margar misspenn-
andi senur. Fyrri hluti mynd-
arinnar er þó skárri en sá seinni,
því það er í það minnsta tiltölulega
skýrt hvað er að eiga sér stað. Það
sem tekur við eftir vendipunktinn
er einkar tilviljanakennt. Sem
dæmi um samhengisleysi má nefna
að þótt búið sé að gera það afar
skýrt að Arnar hafi þrjá daga til að
borga skuldina, verður ekki annað
séð en hann taki sér marga mánuði
til þess að skipuleggja bankaránið.
Endirinn er líka vægast sagt stutt-
aralegur.
Fullir vasar er óvönduð í hví-
vetna. Hljóð, myndvinnsla og tón-
list eru ekki upp á marga fiska en
það sem er verst er líkast til hand-
ritið, samtölin eru máttlaus og
framvindan klúðursleg. Klippingin
er afleit, leikstjóri myndarinnar
viðurkenndi í ræðu á undan mynd-
inni að teymið hefði klárað myndina
undir morgun á frumsýningardegi
og það sést: myndin er ekki tilbúin.
Kosið er að klippa senur úr endi
myndarinnar inn í upphafið, í til-
raun til að skapa Hitchcock-lega
spennu, sem misheppnast alveg og
ruglar áhorfendur bara í ríminu.
Kvikmyndin er líka of löng því
klipparar gáfu sér greinilega ekki
tíma til að framkvæma eðlilegan
niðurskurð á óþörfum atriðum.
Myndin er því uppfull af senum
sem þjóna engum tilgangi, eru ekki
fyndnar og gera ekkert annað en að
hægja á taktinum í myndinni. Fyrir
vikið tapast spenna og áhorfendum
leiðist. Ljósi punkturinn í þessu er
að sumir leikarar sýna fína frammi-
stöðu þrátt fyrir að hafa ekki úr
miklu að moða.
Fullir vasar er greinilega ekki
gerð af hreinum vanefnum, miðað
við hversu mörgum bílum er rústað
á skjánum, og hefði farið betur á
því að verja þessu fjármagni í
sæmilegt handrit og klippingu frek-
ar en að sprengja það í loft upp.
Slök Kvikmyndin Fullir vasar „byggist á hefðum breskra grín-spennumynda og efniviðurinn hefur alla burði til að
skila sér í skemmtilegri mynd. En úrvinnslan er ekki nógu góð, myndin er hvorki spennandi né sérstaklega fyndin,
sem skrifast aðallega á skort á sögubyggingu og samhengi“, segir m.a. í gagnrýni.
Innantómir vasar
Laugarásbíó, Smárabíó
og Háskólabíó
Fullir vasar bmnnn
Leikstjórn og handrit: Anton Sigurðs-
son. Kvikmyndataka: Gunnar Auðunn
Jóhannsson. Klipping: Stefanía Thors.
Aðalhlutverk: Hjálmar Örn Jóhannsson,
Aron Már Ólafsson, Þórhallur Sigurðs-
son, Hilmir Snær Guðnason, Egill Plod-
er, Nökkvi Fjalar Orrason. 96 mín. Ís-
land, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Viðræður um að selja fyrirtæki
Harvey Weinstein fyrir 500 millj-
ónir dollara hafa runnið út í sand-
inn og allar líkur orðnar á gjald-
þroti þess, að því er fram kemur á
vef dagblaðsins Guardian. Wein-
stein-fyrirtækið framleiðir kvik-
myndir og sjónvarpsefni og er nú
sökkvandi skip eftir að upp komst
um ítrekuð kynferðisbrot og kyn-
ferðislega áreitni framleiðandans
sem var einn af stofnendum þess og
einn valdamesti maður Hollywood.
Stjórn fyrirtækisins segist hafa
neyðst til að leggja fram beiðni um
gjaldþrotaskipti eftir að viðræður
um sölu á því til hóps fjárfesta fóru
út um þúfur. Fyrir hópnum fór
Maria Contreras-Sweet sem starf-
aði fyrir Barack Obama þegar hann
var Bandaríkjaforseti.
Ef orðið hefði af sölunni hefði ný
stjórn fyrirtækisins verið að meiri-
hluta skipuð konum og sérstökum
sjóði komið á laggirnar til að greiða
fórnarlömbum Weinstein bætur.
Weinstein-fyrirtækið hefur fram-
leitt margar margverðlaunaðar og
vinsælar kvikmyndir, m.a. The
King’s Speech, The Artist og
Django Unchained.
Ásakaður Harvey Weinstein hefur verið
ásakaður um kynferðislegt ofbeldi og kyn-
ferðislega áreitni af tugum kvenna.
Stefnir í gjaldþrot
Weinstein
ICQC 2018-20
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 7.50, 10.35SÝND KL. 8, 10.10
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 5.30SÝND KL. 8SÝND KL. 10.15
Nýlöguð
humarsúpa
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja