Morgunblaðið - 27.02.2018, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 58. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Eitt dýrasta hús Íslands …
2. Rán og Bergur Ebbi selja …
3. Ekið viljandi á bifreiðina
4. Ótrúlegar spurningar í viðtali
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tríó píanóleikarans Agnars Más
Magnússonar kemur fram á djass-
kvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30.
Auk Agnars skipa tríóið þeir Valdimar
K. Sigurjónsson á kontrabassa og
Scott McLemore á trommur. Tríóið
hefur leikið saman um árabil og mun
frumflytja nýja tónlist eftir Agnar.
Frumflutningur á
djasskvöldi Kex
Elísabet Þórð-
ardóttir heldur
tónleika í Hafnar-
fjarðarkirkju í há-
deginu í dag kl.
12.15 og mun hún
leika á bæði orgel
kirkjunnar. Elísa-
bet leikur sónötu
nr. 5 í C-dúr eftir
J.S. Bach, Andante con moto úr org-
elsónötu nr. 5 op. 65 eftir F. Mendels-
sohn og Scherzo og Toccötu eftir E.
Gigout.
Leikur á bæði orgel
Hafnarfjarðarkirkju
Tónlistarhátíðin Reykjavík Folk
Festival verður haldin í áttunda sinn
á Kex hosteli 1.-3. mars en markmiðið
með henni er að stefna saman helstu
þjóðlagatónlistar-
mönnum og áhuga-
mönnum um slíka
tónlist. Meðal
þeirra sem koma
fram að þessu sinni
eru Lára Rúnars-
dóttir og Bjart-
mar Guð-
laugsson.
Reykjavík Folk Festi-
val í áttunda sinn
Á miðvikudag Hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað með köfl-
um. Slydda og síðar snjókoma með köflum norðvestantil og einnig
norðaustantil seint um kvöldið. Kólnar í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt 8-15 m/s en hægari norðaust-
antil. Bjartviðri norðan- og austanlands en annars skýjað að mestu
og dálítil væta á köflum. Áfram milt í veðri en kólnar í kvöld.
VEÐUR
Morgunblaðið fylgist vel
með baráttunni um sæti í
karlalandsliði Íslands í
knattspyrnu fyrir HM í Rúss-
landi og mun fara reglulega
yfir stöðuna á þeim leik-
mönnum sem koma til
greina í landsliðið. Fyrsta út-
tektin er í blaðinu í dag en
valið er 11 manna byrjunarlið
og 23 manna hópur, sem
miðast við stöðuna á þessari
stundu, og að liðið væri að
hefja keppni á HM núna. »4
Hvernig stendur
HM-baráttan?
Aníta Hinriksdóttir mun ekki hlaupa
800 metra hlaup á HM í Birmingham
á Englandi um helgina heldur ein-
beita sér að keppni í 1.500 metra
hlaupi. Þetta eru nokkur tíðindi í ljósi
þess að þessi 22 ára Íslandsmethafi í
báðum greinum hefur hingað til haft
800 metra hlaup sem sína aðalgrein.
Aníta segir þó við
Morgunblaðið að
þessa ákvörðun
hafi hún aðeins
tekið vegna
HM. »1
Aníta ætlar í 1.500
metra hlaupið á HM
Aukin spenna er hlaupin í baráttuna
um efsta sætið í Olís-deild karla í
handknattleik eftir sigur ÍBV á FH í
Eyjum í gær. FH er þó enn í efsta sæti
en Valur og ÍBV eiga enn möguleika á
að elta FH-inga uppi. Þessi lið hafa
mæst undanfarið og vann FH leikinn
við Val en Valsmenn fóru til Eyja og
unnu ÍBV. Í gær fór svo að ÍBV vann
FH til að ljúka hringnum. »2-3
Spennan hlaupin í bar-
áttuna um efsta sætið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sigurður Sverrisson, einn helsti íslenski stuðn-
ingsmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool
í áratugi, hefur leigt hús í strandbænum
Formby, um 17 km norðan við Liverpool, og flyt-
ur þangað með fjölskyldu sinni á næstu vikum til
þess að bæta enn frekar þjónustuna við skipu-
lagningu ferða á knattspyrnuleiki á Englandi.
Undanfarin sjö ár hefur Sigurður aðstoðað Ís-
lendinga með kaup á miðum á leiki á Englandi
og verið fararstjóri í ótal hópferðum, sem hann
hefur skipulagt, fyrst og fremst til Liverpool.
Ferðirnar eru kynntar á vef Premierferða
(premierferdir.is), sem Sigurður heldur úti í
samvinnu við ferðaskrifstofuna Trans-Atlantic
Sport.
„Með þessum flutningum rætist áratuga gam-
all draumur minn,“ segir Sigurður, sem hefur
stutt Liverpool síðan 1968, í 50 ár. „Sigþór Ei-
ríksson, gamall vinur á Akranesi og stuðnings-
maður West Ham, kom því inn hjá mér á sínum
tíma að Liverpool væri ekki slæmur kostur, ég
fór að fylgjast með á BBC, þó ég kynni ekkert í
ensku, og tók Liverpool beint í æð í gegnum út-
varpið. Síðan hefur Liverpool verið mér kærara
en allt nema ástvinir.“
Skagamaðurinn fór fyrst til Liverpool 1973.
„Það var einhver þráður í fólkinu, viðmótið, hlýj-
an, hjálpsemin og fleira, sem hefur aldrei farið
úr mér,“ segir Sigurður, sem treysti enn böndin
við Bretland, þegar hann fór í mastersnám í
Skotlandi 2007.
Viðurkennd samstarfsfyrirtæki
Þeir sem hafa farið á leiki á Englandi kannast
margir við að töluvert brask er með miða. Sig-
urður og Helga Elín Briem, kona hans, eru ein-
göngu í samstarfi við viðurkennd endursölufyr-
irtæki hjá félögunum. „Á premierferdir.is
bjóðum við miða og pakkaferðir á nánast alla
leiki sem fólki dettur í hug,“ segir Sigurður og
bendir á að flestir miðar, sem þau bjóði upp á,
séu á góðum stað og stór hluti sætanna með að-
gengi að sérstöku veitingarými. „Í sumum til-
fellum eru þetta dýrir miðar en fólk fær líka
mikið fyrir sinn snúð, einstaka upplifun í góðum
sætum. Miðaverðið ræðst að stórum hluta af
markaðsaðstæðum hverju sinni en við erum
þessa dagana að undirbúa næstu leiktíð og semja
um fast verð á fjölda leikja. Það á að skila sér í
lægra verði til viðskiptavina,“ segir Sigurður.
Þegar Sigurður byrjaði að útvega miða og
skipuleggja ferðir á Anfield, heimavöll Liverpool,
sinnti hann samskiptum um kvöld og helgar.
„Eftirspurnin var mun meiri en mig hafði órað
fyrir,“ segir hann og bætir við að fljótlega hafi
aukastarfið því undið upp á sig. Frá því hann
hætti hjá ráðgjafarfyrirtækinu Athygli sumarið
2016 hefur hann ekki haft annan starfa og í vet-
ur hefur Helga Elín komið meira inn í starfsem-
ina.
„Það er auðveldara að sinna einstaklingum og
hópum með því að búa á staðnum,“ segir hann
en næst á dagskrá er seinni leikur Liverpool og
Porto í Meistaradeild Evrópu 6. mars. Auk þess
segir hann að til standi að bjóða upp á fjölbreytt-
ari ferðir í nágrenninu og af nógu sé að taka,
hvort sem er í íþróttum, sögu, listum, tónlist,
náttúru eða öðru.
„Það eru algjör forréttindi að geta sinnt og
haft atvinnu af áhugamálinu og við viljum út-
víkka ferðirnar enn frekar,“ segir Sigurður, sem
leggur áherslu á persónulega þjónustu, hvort
sem um er að ræða einstaklings- eða hópaferðir.
„Fyrir okkur Helgu er það er lykilatriði að fylgja
fólki eftir alla leið og vera alltaf til taks ef þörf
krefur,“ segir hann.
Liverpool í æð í 50 ár
Upplifun Skoðunarferð á Anfield er ómissandi hluti í hópferðum Premierferða til Liverpool. Stemning
er víða skemmtileg á fótboltavöllum og hún getur verið mögnuð á heimavelli Liverpool.
Sigurður Sverrisson og
fjölskylda flytja á svæðið og
skipuleggja ferðir á leiki
Í Formby Sigurður og Helga Elín á ströndinni
þar sem melgresishólar einkenna landslagið.