Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 51. tölublað 106. árgangur
HERA OG BEN
KINGSLEY Í
SVIÐSLJÓSINU
PAKKA-
FLUTNINGAR
AUKAST
FATAHÖNNUÐUR
Í HINUM STÓRA
HEIMI TÍSKUNNAR
VIÐSKIPTAMOGGINN ARNAR MÁR 52STOCKFISH 74
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kjarasamningar á almennum vinnu-
markaði munu gilda til loka samn-
ingstímans. Forystumenn Alþýðu-
sambands Íslands og aðildarfélaga
þess búa sig undir hörð átök næsta
vetur. Forseti ASÍ segir að vel geti
komið til verkfalla.
Samninganefnd Alþýðusambands
Íslands taldi að forsendur gildandi
kjarasamninga væru brostnar og
unnt væri að segja þeim upp. Tími til
þess rann út síðdegis í gær. Hins veg-
ar var tillaga þess efnis felld á fundi
formanna ASÍ í gær.
Það voru frekar formenn félaga á
landsbyggðinni sem voru á móti upp-
sögn, meðal annars mikill meirihluti
félaga í Starfsgreinasambandinu.
Björn Snæbjörnsson, formaður sam-
bandsins, segir að þar sem fólk er
mikið á lágmarkstöxtum hafi verið
vilji til að fá fram hækkun lágmarks-
launa í 300 þúsund krónur í maí.
Félagsmenn undirbúnir
Formenn verkalýðsfélaga sem
vildu segja upp samningum eru
óánægðir með niðurstöðuna. „Ég
held að þessi niðurstaða hafi veikt
hreyfinguna gríðarlega,“ sagði Ragn-
ar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, á
von á átökum á vinnumarkaði næsta
vetur. „Ég tel að það sé mjög mik-
ilvægt að forystumennirnir byrji nú
þegar að undirbúa okkar fé-
lagsmenn. Ég held að næstu samn-
ingalotu ljúki ekki án þess að fé-
lagsmenn komi að málum og því sé
hyggilegt að búa sig undir það,“ segir
Gylfi. Spurður um líkur á boðun
verkfalla segir hann að það gæti vel
gerst.
Búa sig undir átök á vinnumarkaði
Kjarasamningar gilda út árið eftir að meirihluta formanna innan ASÍ felldi að segja þeim upp
Vilja njóta hækkana í maí Forseti ASÍ segir að vel geti komið til verkfalla í næstu samningalotu
MMæta með alvæpni ... »4
Kauphöllin undir áhrifum
Úrslit í atkvæða-
greiðslu ASÍ
28. febrúar
Foreldrar og aðrir forráðamenn
langveikra barna þurfa að aðstoða
við umönnun þeirra á Barnaspítala
Hringsins vegna skorts á hjúkr-
unarfræðingum. Spítalinn glímir
við mikið álag og skort á starfs-
fólki, að sögn Ragnars Bjarnasonar
yfirlæknis sem kveðst ekki geta
tjáð sig um mál einstakra sjúklinga.
Lengst af hafi spítalinn getað ráðið
fólk í lausar stöður en sú sé ekki
reyndin lengur. Hjúkrunarfræð-
ingar sækja nú í önnur störf þar
sem vinnutími, aðstæður og laun
hugnast þeim betur. „Það er ekkert
launungarmál að hjúkrunarfræð-
ingar hafa í stórum stíl farið í flug-
ið og maður hittir nánast alltaf ein-
hvern sem maður þekkir í hverju
flugi. Vinnutími og aðstæður í því
starfi eru kannski eitthvað sem
hugnast fólki betur en á spítöl-
unum,“ segir hann.
Í grein í Morgunblaðinu í gær
segir Rósa Víkingsdóttir, móðir
langveikrar stúlku sem dvalið hef-
ur á Barnaspítala Hringsins, að
spítalinn eigi að geta brugðist við
þegar barn leggst inn með þunga
umönnun sem kalli á sólarhrings-
viðveru. Foreldrar eigi að fá að
vera í sínum hlutverkum. »6
Ljósmynd/Víkurfréttir-Hilmar Bragi
Mæðgur Rósa Víkingsdóttir og Jenný, dóttir hennar, hafa leitað til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eftir aðstoð.
Foreldrar
í hlutverk
starfsfólks
Rósa Víkingsdóttir, móðir langveikrar stúlku, gagnrýnir Barnaspítala Hringsins og stjórnvöld
Mikið álag og
skortur á starfsfólki
Lilja Björk
Einarsdóttir,
bankastjóri
Landsbankans,
segir nú góðan
tíma fyrir ríkið
að selja hlut í
bankanum.
Hann líti gríð-
arlega vel út
fyrir fjárfesta
um þessar
mundir sé litið á þróun rekstr-
arins í gegnum síðustu uppgjör og
framtíðarsýn.
„Þetta er stór eign fyrir rík-
issjóð og ríkið getur ráðstafað
peningunum vel í aðra málaflokka
heldur en að vera stofnfjárfestir í
banka,“ segir Lilja í viðtali í Við-
skiptaMogganum í dag. Hún segist
helst vilja sjá bankann í dreifðu
eignarhaldi. »ViðskiptaMogginn
Telur nú góðan tíma
til þess að selja
Lilja Björk
Einarsdóttir.
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
„Það skiptir auðvitað máli hvort
þú ert að kaupa bíl frá 2008 eða
2010. Hann getur hafa staðið í tvö
ár. Það getur verið í góðu lagi ef
þú færð að njóta þess í formi verðs.
En þú vilt vita að bíllinn sé af þess-
ari framleiðslulínu,“ segir Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Brögð eru að því að skráning bif-
reiða hér á landi gefi til kynna að
þær séu yngri en þær eru í raun.
Lesandi hafði samband við
Morgunblaðið nýverið og kvaðst
hafa rekist á KIA-bifreið sem skráð
væri árgerð 2010 en við athugun
kom í ljós að hún var framleidd
2008. »6
Bílar ranglega
skráðir yngri