Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Merkivélarnar frá Brother eru frábær lausn inná hvert heimili og fyrirtæki Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meirihluti fulltrúa á formanna- fundi Alþýðusambands Íslands samþykkti á fundi í gær að segja ekki upp kjarasamningum. For- menn með tvo þriðju félagsmanna ASÍ vildu nýta uppsagnarákvæði kjarasamninga en urðu undir í at- kvæðagreiðslunni. Samninganefnd ASÍ fer með ákvörðunarvald um uppsögn samninga. Samþykkti samninga- nefndin að vísa ákvörðuninni til formannafundar ASÍ og gera nið- urstöðu hennar að sinni. Á for- mannafundinum eiga sæti for- menn landssambandanna fimm innan ASÍ, fulltrúi félaga með beina aðild, formenn VR og Efl- ingar og forseti ASÍ. Í samninganefnd ASÍ þarf tvö- falda atkvæðagreiðslu þegar fjallað er um slík mál. Þarf bæði meirihluta formanna og meirihluta þess atkvæðavægis sem að baki þeim standa til að ráða málum til lykta. Sú regla var einnig notuð á formannafundinum. Við lok umræðu á formanna- fundinum var viðhöfð leynileg raf- ræn atkvæðagreiðsla um uppsögn kjarasamninga. Niðurstaðan varð sú að ákveðið var með atkvæðum meirihluta formannanna að segja samningum ekki upp. Reyndi því ekki á félagsmannafjöldann á bak við formennina. Fjölmenn félög vildu uppsögn Ekki er gefið upp hvernig hver og einn ver atkvæði sínu. Fyr- irfram höfðu tvö fjölmennustu að- ildarfélögin lýst yfir vilja til að nýta uppsagnarákvæði samninga, það er að segja VR og Efling. Það er ástæðan fyrir því hversu mikill meirihluti félagsmanna ASÍ er á bak við minnihlutann í málinu. Einnig lýstu forystumenn Verka- lýðsfélags Akraness, Rafiðn- aðarsambands Íslands, Stétt- arfélagsins Framsýnar í Þingeyjarsýslum og AFLs starfs- greinafélags á Austurlandi yfir vilja til að segja upp samningum. Mun Gylfi Arnbjörnsson hafa tek- ið undir þau sjónarmið á fundinum í gær. Meirihluti formanna í í Starfs- greinasambandi Íslands var aftur á móti á móti uppsögn samninga ásamt fjölda annarra fulltrúa. Þeir hafa þó aðeins þriðjung fé- lagsmanna ASÍ á bak við sig. Vildu halda hækkunum Í tilkynningu ASÍ kemur fram að þeir sem vildu segja upp hafi meðal annars rætt um að aðeins væru níu mánuðir eftir af samn- ingnum og hann tryggði 3% al- menna launahækkun 1. maí næst- komandi og rúmlega 7% hækkun lágmarkslauna. Nota ætti tímann til hausts til að móta kröfugerð og undirbúa næstu kjaraviðræður. Stjórnvöld gagnrýnd Þungt hljóð var í þeim sem vildu segja upp, að því er fram kemur í tilkynningu ASÍ, og sterk krafa um að verkalýðshreyfingin setti fótinn niður í samfélagi mis- skiptingar. Stjórnvöld voru harð- lega gagnrýnd fyrir að taka til sín ávinning af starfi verkalýðshreyf- ingarinnar sem hafi lagt mikla áherslu á hækkun lægstu launa en stjórnvöld tekið að stórum hluta til baka með skerðingu bóta. Úr- skurðir kjararáðs og hækkanir á launum æðstu stjórnenda banka og Landsvirkjunar hafi auk þess orðið mörgum fundarmönnum til- efni til gagnrýni. Meirihluti formanna innan ASÍ hafnaði uppsögn samninga  Formenn með tvo þriðju hluta af félagsmönnum ASÍ á bak við sig urðu undir í atkvæðagreiðslu um uppsögn samninga Niðurstaða formannafundar ASÍ 28.2. 2018 Alls greiddu 49 atkvæði Já, vil segja upp Nei, vil ekki segja upp 21 43% 28 Niðurstaða formanna 57% 79 þúsund félagsmanna Já, vil segja upp Nei, vil ekki segja upp 53 þúsund 67% 26 þúsund Atkvæðavægi 33% Í atkvæða- greiðslunni þurfti bæði meirihluta fundarmanna og meirihluta atkvæða- vægis sem að baki þeim stendur. Tillaga um upp- sögn samninga var því felld. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði munu því gilda til ársloka. Helgi Bjarnason Arnar Þór Ingólfsson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir „Nei, ég segi það ekki. Hafði á til- finningunni að þetta gæti legið ein- hvern veginn svona,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusam- bands Íslands, þegar hann var spurður að því hvort niðurstaða formannafundar ASÍ hefði komið honum á óvart. Á fundi formann- anna var tillaga um að segja upp kjarasamningum nú þegar felld með atkvæðum meirihluta fundar- manna. Kjarasamningarnir gilda því út samningstímann, til áramóta. Gylfi segir að hann hafi talið mikilvægt að fela formannafundin- um að taka þessa ákvörðun frekar en að taka hana í 8 manna samn- inganefnd. Hún hvíldi þá á herðum fleiri manna og niðurstaðan meira afgerandi. Gylfi segist hafa stutt uppsögn samninga á fundinum í gær. Tekur hann fram að hann telji að mark- mið gildandi kjarasamninga hafi um margt staðist en nefnir um leið neikvæðar afleiðingar þess sem hann nefnir kjararáðsupphlaupsins og nú síðast launahækkana stjórn- enda bankanna og Landsvirkjunar. „Ekki er hægt að vinna þetta verk- efni svona því við erum á sama tíma bundin af friðarskyldu,“ segir Gylfi og bætir því við að framganga stjórnvalda gagnvart félagsmönn- um ASÍ hafi verið með ólíkindum. Hann segist virða skoðanir þeirra sem vildu ekki segja upp samningum. Margir hafi viljað taka inn þær launahækkanir sem gert er ráð fyrir í gildandi samningum og eiga viðræður um næsta samning á þeim grunni. Nota síðan tímann til viðræðna. „Mér finnst hreyfingin þurfa að ná vopnum sínum og mæta með alvæpni til næstu samn- inga,“ segir Gylfi enda telur hann að það stefni í harðari átök á vinnu- markaði en verið hafi um langa hríð. Vilja fá 300 þúsundin „Mér fannst það einkenna fund- inn hvað samstaðan var mikil. Það var aðallega spurning um tímasetn- ingu, hvort menn vildu láta samn- ingana ganga til enda eða segja þeim strax upp,“ segir Björn Snæ- björnsson, formaður Einingar-Iðju við Eyjafjörð og jafnframt formað- ur Starfgreinasambands Íslands. Hann greiddi atkvæði gegn upp- sögn samninga og segist vera að framfylgja vilja sinna félagsmanna með því. Ekki hafi verið vilji til þess í félaginu að segja upp samn- ingum. Það hafi meðal annars kom- ið fram í atkvæðagreiðslu í trún- aðarmannaráði. „Fólk vill fá það sem samið var um að kæmi í maí, sérstaklega hækkun lágmarkslauna um 20 þúsund krónur. Það var að- alkrafa okkar í síðustu kjarasamn- ingum að hækka lágmarkslaun í 300 þúsund krónur og fólk vill fá það,“ segir Björn. Hann segir að fólk vilji einnig fá tíma í vor til að undirbúa kröfugerð og koma vel stemmt og klárt í samningaviðræður við atvinnurek- endur í haust. Björn telur ljóst, miðað við við- horf Samtaka atvinnulífsins, að það þurfi að taka á því í haust. Ekki séu líkur á að samningar náist án átaka. Gríðarleg vonbrigði „Þetta eru bara gríðarleg von- brigði,“ sagði Ragnar Þór Ingólfs- son, formaður VR, um niðurstöðu formannafundar. Hann var einn þeirra formanna sem mæltu með uppsögn kjarasamninga. „Mér finnst þessi niðurstaða senda þau skilaboð út í atvinnulífið og til hins opinbera að það sé bara allt í lukkunnar standi,“ segir hann og bætir því við að það sé alls ekki raunin. Ragnar telur fullreynt að setja forsenduákvæði inn í kjarasamn- inga, enda sé þeim ekki sagt upp þegar þau bresta. „Ég tel að þessi niðurstaða hafi veikt hreyfinguna gríðarlega, þrátt fyrir að það hafi verið mikill einhugur um það hvað þyrfti að gera. En ef verkin fylgja ekki óánægjunni þá veikir það okkar slagkraft, að mínu mati. Þannig að ég er mjög óánægður með þessa niðurstöðu,“ segir Ragnar Þór. Mæta með alvæpni til næstu samninga  Forseti ASÍ greiddi atkvæði með uppsögn samninga  Býst við harðari átökum á vinnumarkaði en verið hafi um hríð  Formaður VR telur að niðurstaðan dragi úr slagkrafti verkalýðshreyfingarinnar Morgunblaðið/Hanna Þungi Forystumenn kynna niðurstöðu formannafundar ASÍ, Sigurður Bessason, Eflingu, Gylfi Arnbjörnsson, for- seti ASÍ, Ragnar Þór Ingólfsson, VR, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, Rafiðnaðarsambandinu. Katrín Jak- obsdóttir for- sætisráðherra telur það já- kvætt að ASÍ ákvað að segja ekki upp kjara- samningum í gær. „Það gefur okkur meiri tíma til að halda áfram samtali á milli stjórnvalda og aðila vinnu- markaðarins. Ég tel að það hafi skilað töluverðum árangri,“ segir Katrín við Morgunblaðið. Vísar hún í því efni meðal annars til tillagna um ákvörðun kjara æðstu embættismanna, útvíkkun þjóðhagsráðs og hækkunar at- vinnuleysisbóta og fleiri aðgerða sem kynntar voru í fyrradag. „Ég vona að þetta samtal haldi áfram og við getum nýtt þann tíma sem skapast til að byggja upp betri um- gjörð um íslenska vinnumark- aðinn,“ segir Katrín. Hún nefnir einnig að tækifæri gefist til að ná fram aðgerðum til að auka fé- lagslegan stöðugleika. Hún segir að síðan komi að því að aðilar vinnumarkaðarins setjist niður til að ræða samninga. Það sé sjálfstætt verkefni og tíminn verði að leiða í ljós hvað út úr því komi. helgi@mbl.is Gefur meiri tíma til að ræða áfram saman Katrín Jakobsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.