Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Leitar þú að traustu Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 | www. motorstilling.is ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Lífslíkur bílsins margfaldast ef hugað er reglulega að smurningu.ENGAR tímapantanir MÓTORSTILLING fylgir fyrirmælum bílaframleiðanda um skipti á olíum og síum. inga til starfa. „Það er ekkert laun- ungarmál að hjúkrunarfræðingar hafa í stórum stíl farið í flugið og maður hittir nánast alltaf einhvern sem maður þekkir í hverju flugi. Vinnutími og aðstæður í því starfi eru kannski eitthvað sem hugnast fólki betur en á spítölunum, og launaseðillinn er örugglega síst verri,“ segir hann. Ragnar Bjarnason yfirlæknir nefnir einnig að sjúklingar sem dveljist á barnaspítalanum séu síelllt veikari, því allir sem mögulega geta dvalið heima séu sendir heim. „Það eykur álagið á starfsfólkið að þurfa að veita hverjum sjúklingi flóknari hjúkrun og meðferð,“ segir hann. geta ekki fullmannað stöðurnar,“ segir Ragnar. Hann segir að ástand- ið sé þannig nú að á nánast hverri vakt þurfi að hringja út eftir 2-3 starfsmönnum til að manna vakt- irnar. „Fólk hættir að lokum að svara til að verja sig,“ segir hann. Skilur vel foreldra „Ég skil vel foreldra sem lenda í þessari stöðu. Þeir búa við mikið álag heima og það batnar síst þegar komið er inn á spítalann,“ segir Ragnar sem ekki er bjartsýnn á lausn á næstunni. Hann bendir á að það taki alltaf nokkur ár að mennta hjúkrunarfræðinga og enn lengri tíma að fá reynda hjúkrunarfræð- „Við höfum lengi gagnrýnt stjórn- völd fyrir það hversu takmarkaðar upplýsingar koma fram í skráning- arvottorðum bifreiða. Við höfum farið á fund ráðherra vegna þessa og komið umkvörtunum reglulega á framfæri, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Brögð eru að því að skráning bif- reiða hér á landi gefi til kynna að þeir séu yngri en þeir eru í raun og veru. Og bílarnir séu seldir undir því yfirskini. Lesandi hafði samband við Morgunblaðið og kvaðst hafa rekist á KIA-bifreið sem skráð væri 2010- árgerð en hefði í raun verið fram- leidd árið 2008. Framleiðslu á téðu módeli hefði verið hætt árið 2009. Runólfur segir að tilvik sem þetta hafi reglulega komið upp síðustu ár. Vandamálið liggi í regluverkinu. „Það er nóg að vera með eitt af þessu þremur í skráningarvottorð- inu; fyrsta skráningardag, árgerð eða hönnunarár, eða framleiðsluár. Áður fyrr þurfti að koma fram ár- gerð, framleiðsluár og fyrsti skrán- ingardagur. Svo var regluverkinu breytt árið 1999 og fullyrt að það væri vegna framkvæmdar Evrópu- samninga. Það er ekki rétt. Mjög víða í nágrannalöndunum er skrán- ingin nákvæmari. Við fullyrðum að með þessari breytingu hafi verið að ganga erinda bílainnflytjenda,“ seg- ir hann. Runólfur segir að þrátt fyrir þetta séu skyldur seljenda bifreiða ríkar. Þeir þurfi að upplýsa allt varðandi bílinn. „Það skiptir auðvitað máli hvort þú ert að kaupa bíl frá 2008 eða 2010. Hann getur hafa staðið í tvö ár. Það getur verið í góðu lagi ef þú færð að njóta þess í formi verðs. En þú vilt vita að bíllinn sé af þessari framleiðslulínu.“ Hann segir að bílasölum beri sem hlutlausum milligöngumönnum að tilkynna kaupendum ef bifreið sé eldri en fyrsti skráningardagur gef- ur tilefni til. Deilumál um slíkt hafi farið fyrir úrskurðarnefnd og nið- urstaðan sé skýr. „Það eru samt sem áður of mörg mál af þessu tagi sem detta inn. Flestir bílasalar vanda sig enda get- ur þetta varðað starfsábyrgð- artryggingu þeirra. En það geta verið holur í prívatviðskiptum. Í grunninn eru það samt stjórnvöld hér sem eiga að hysja upp um sig buxurnar og taka upp fyrri skrán- ingarreglur. Það er einföld leið til að upplýsa neytendur um hvaða vörur þeir eru að kaupa.“ hdm@mbl.is Vilja ítarlegri skráningar bíla  Dæmi um ranga skráningu árgerða Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bílar Félag íslenskra bifreiðaeig- enda vill breyta skráningarreglum. Aron Þórður Albertsson Agnes Bragadóttir Sunna Elvira Þorkelsdóttir, sem lá hryggbrotin á sjúkrahúsi í Malaga á Spáni, frá því því seint í janúar fram til 23. febrúar, að hún var flutt á bæklunarsjúkrahús í útjaðri Sevilla, verður í dag flutt á endurhæfingar- sjúkrahús í Sevilla, þar sem endur- hæfing hennar mun hefjast í dag. „Ég verð flutt á annan spítala á morgun [í dag] hér í Sevilla. Þar mun ég byrja í endurhæfingu sem von- andi gerir mér kleift að setjast í hjólastól sem fyrst,“ sagði Sunna í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þetta er þriggja mánaða pró- gramm sem ég mun hefja hér sem mun síðan halda áfram þegar ég kem heim. Þetta er svona svipað og Grensásendurhæfingarstöðin heima, en þegar prógramminu er lokið á ég að geta séð alveg um mig sjálf,“ sagði Sunna enn fremur. Páll Kristjánsson, lögmaður Sunnu Elviru, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að vissulega væru þetta jákvæðar fréttir af Sunnu. „Á meðan Sunna lá í heilan mánuð á spítala í Malaga var hún raunar bara í eins konar geymslu. Hún var ekkert greind. Fyrst þegar Sunna var flutt frá Malaga til Sevilla, 23. febrúar sl., fór hún inn á þennan spítala í Sevilla, þar sem hún fékk greiningu og staðfestingu á því að hún væri varanlega lömuð. Á morg- un [í dag] verður hún svo flutt á þessa stofnun í Sevilla, sem sér um endurhæfinguna, þannig að hún er eiginlega að komast inn á stofnun sem gegnir svipuðu hlutverki og Grensásendurhæfingarstöðin gerir hér heima. Þar fer engin greining fram, heldur er unnið úr þeirri grein- ingu sem gerð var á bæklunar- sjúkrahúsinu í Sevilla. Vonandi verð- ur svo hægt að halda þeirri endur- hæfingu áfram á Grensás sem allra fyrst. Vitanlega vilja þeir sem lenda í svona slysum fá að vera með sínu fólki þegar tekist er á við svona erf- iðleika, en við bíðum enn eftir nið- urstöðu um hvenær má flytja Sunnu heim,“ sagði Páll. Endurhæfing Sunnu hefst í dag  Sunna Elvira flutt á endurhæfingarsjúkrahús í útjaðri Sevilla í dag  Greiningu lokið og því hægt að hefja endurhæfingu  Enn engin niðurstaða fengin í það hvenær má flytja Sunnu heim til Íslands Endurhæfing Sunna Elvira fer á nýjan spítala á Spáni í dag. „Ég kalla eftir tafarlausri lausn á heilbrigðisstefnu til handa langveikum börnum. Stefnan þarf að vera skýr og markviss. Hver á að sinna hverju? Hver á að greiða kostnaðinn?“ segir Rósa Víkingsdóttir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær, opnu bréfi til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigð- isráðherra, þar sem hún lýsir álagi og þreytu eftir að hafa sinnt langveikri dóttur sinni á Barnaspítala Hringsins dögum saman þar sem skortur er á starfsfólki. Rósa segir í greininni að Barnaspítali Hringsins eigi „að geta brugðist við þegar barn leggst inn með þunga umönnun sem kallar á sólarhringsviðveru“. Foreldrar eigi að fá að vera í sínum hlutverkum sem foreldrar. „Ég vil hafa orku til að veita barni mínu umhyggju í veikindum hennar í stað þess að vera örmagna af þreytu og vonbrigðum með kerfið,“ segir Rósa, en Jenný, dóttir hennar, dvelst nú á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja þar sem hún hefur starfsmann ávallt með sér. Foreldrar fái að vera foreldrar UMÖNNUN LANGVEIKRA BARNA Á SJÚKRAHÚSUM Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Mikið álag og skortur á sérhæfðu starfsfólki er ástæða þess að sjúkra- hús þurfa að fá aðstoð foreldra eða annarra aðstandenda við umönnun langveikra barna sem þar liggja. Þetta segir Ragnar Bjarnason, yf- irlæknir á Barnaspítala Hringsins, í samtali við Morgunblaðið í tilefni af aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær, þar sem Rósa Víkingsdóttir hjúkrunarfræðingur, móðir lang- veikrar stúlku á 18. ári, kvartar yfir því að hafa verið sett í þá stöðu að þurfa að sjá um umönnun hennar á spítalanum vegna skorts á starfs- fólki. Ragnar kveðst ekki geta tjáð sig um mál einstakra sjúklinga og að- standenda heldur aðeins um ástand- ið á Barnaspítalanum almennt. „Það er búið að vera geysimikið álag á spítalanum í langan tíma. Ofan á það bætist mönnunarvandi,“ segir hann. Áratugum saman hafi ekki verið menntaðir nægilega margir hjúkr- unarfræðingar til að anna eftirspurn heilbrigðiskerfisins. Á Barnaspítala Hringsins hafi menn lengst af verið í þeirri góðu stöðu að fá umsóknir um allar lausar stöður hjúkrunarfræð- inga, en það hafi ekki verið reyndin á öllum deildum Landspítalans. Nú hafi þetta breyst og umsóknir berist ekki um laus störf. „Það er mjög erfitt fyrir okkur sem höfum verið með yfirfulla deild af sjúklingum mánuðum saman að Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Veikindi Rósa Víkingsdóttir með Jenný, dóttur sinni, sem nú dvelur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Glímt við mikið álag og skort á starfsfólki  Foreldrar veikra barna þurfa að aðstoða við umönnunina
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.