Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Dásamleg nærandi og mýkjandi krem og serum sem
styrkja og yngja. Afsláttur af allri línunni.
Sothys
25%
afsláttur
lyfja.is
Tilboðsdagar í Lyfju
Kynntu þér veglegt úrval snyrti– og dekurvara á enn betra
verði dagana 1.–11. mars. Tilboðin gilda í öllum verslunum
Lyfju og í netverslun okkar á lyfja.is.
Ást er yfirskriftin hjá Alessandro, ekki láta þessa
fallegu liti fram hjá þér fara! Þú færð silkimjúkar
hendur með ManiQURE Rose handáburðinum.
Afsláttur af allri línunni.
Alessandro
20%
afsláttur
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jón Steinar Gunnlaugsson, fv.
hæstaréttardómari, gagnrýnir
Hæstarétt harðlega vegna dóma í
Landsréttarmálinu. Hæstiréttur
hafi „leitað logandi ljósi“ að brotum
af hálfu dómsmálaráðherra og borið
niður í rannsóknarreglu almenns
stjórnsýsluréttar. „Hvað átti hún að
rannsaka?“ spurði Jón Steinar og
vísaði til Sigríðar Á. Andersen,
dómsmálaráðherra, sem Hæstirétt-
ur dæmdi að hefði ekki rannsakað
dómaraval á fullnægjandi hátt. Á
þeim grundvelli fengu tveir um-
sækjendur um dómarastöður við
Landsrétt dæmdar bætur (mál 591
og 592/2017). „Hæstaréttardóm-
urinn er alveg svakalegur … Þarna
er dómstóllinn kominn, og þeir sem
þar standa að, í hávaða hagsmuna-
og valdabaráttu gegn ráðherran-
um,“ sagði Jón Steinar. Dómsmála-
ráðherra hefði ekki gert annað „en
það sem lögin heimiluðu honum“ við
skipan dómara við Landsrétt.
Fimm þáðu ekki fundarboð
Dómarnir féllu 19. desember en
þau tíðindi urðu í málinu 22. febr-
úar að dómari við Landsrétt var
metinn hæfur til að dæma við rétt-
inn.
Jón Steinar vék að Landsréttar-
málinu í fyrirlestri í Háskóla
Reykjavíkur í gær. Átti þar að vera
málþing en fimm fulltrúar dóms-
valdsins mættu hins vegar ekki.
Var Jón Steinar því einn ræðumað-
ur. Lögrétta stóð fyrir fundinum.
„Rétturinn hefur um langt árabil
viljað hafa mikið um það að segja
hverjir koma nýir inn í hópinn …
Dómarar í Hæstarétti eru í valda-
baráttu …Þeir hafa setið í réttar-
farsnefnd. Hugsið ykkur það. Rétt-
arfarsnefnd sem hefur það verkefni
að semja lagafrumvörp. Af hverju
eru dómarar í réttarfarsnefnd? Svo
hafa þeir verið að tilnefna í nefnd
sem metur hæfni umsækjenda um
dómaraembætti og komu svo fram
þeirri lagabreytingu … að ef þessi
nefnd, sem dómararnir sjálfir voru
ráðandi í og hópur í kringum þá,
setti einhvern í efsta sæti þá mátti
ráðherra ekki skipa annan en þann
sem í efsta sætið fór nema að hann
bæri það þá undir Alþingi. Auðvitað
fólst í þessu de facto vald dóm-
aranna til þess að velja inn í hópinn.
Ég hef sagt að í þeim endurbótum
sem við verðum að gera er þetta
eitt það þýðingarmesta, að skera á
þetta áhrifavald dómaranna.“
Standast ekki þrýstinginn
Jón Steinar fjallaði um bók sína
Með lognið í fangið: Um afglöp
Hæstaréttar eftir hrun og setti efni
hennar í samhengi við gagnrýni-
verða dóma Hæstaréttar á 20. öld.
Hæstiréttur hefði ekki staðist
þrýstinginn þegar almenningur
kallaði á sakfellingar í Guðmundar-
og Geirfinnsmálinu. Jafnvel Ólafur
Jóhannesson, þáverandi dómsmála-
ráðherra, hefði látið þau orð falla að
„þungu fargi er af þjóðinni létt“ áð-
ur en ákærur voru gefnar út. „Hálf-
gerðir götustrákar í þingliðinu á Al-
þingi höfðu ráðist á ráðherrann og
sakað hann um einhvers konar þátt-
töku í þessum verkum öllum saman.
Þannig að hann var illa leikinn af
þessu,“ sagði Jón Steinar um að-
draganda ummæla Ólafs.
Sakfellingarnar hefðu síðan ekki
reynst halda vatni. Nú þrýsti al-
menningur á sýknu. Skal tekið fram
að Jón Steinar er verjandi í málinu
sem hefur verið tekið upp á ný.
Jón Steinar nefndi líka sakfell-
ingu í bjórbruggsmáli og dóm yfir
Magnúsi Thoroddsen sem dæmi um
hvernig dómskerfið hefði látið
undan þrýstingi en ekki farið að
lögum. Til upprifjunar lét Magnús
af embætti forseta Hæstaréttar í
kjölfar áfengiskaupa. „Hann braut
engin lög,“ sagði Jón Steinar sem
var verjandi Magnúsar í málinu.
Jón Steinar vék því næst að
dómsmálum í kjölfar efnahags-
hrunsins.
„Þá var ákveðið hugarástand í
réttinum sem maður varð var við,“
segir Jón Steinar sem var dómari
við Hæstarétt 2004-12. Stjórnendur
fjármálafyrirtækja hefðu verið sett-
ir í gæsluvarðhald um tveimur ár-
um eftir að þeir létu af störfum í
kjölfar hrunsins. „Það voru auðvitað
engin skilyrði fyrir því að svipta
þessa menn frelsi í þágu rannsókn-
arhagsmuna á þessu stigi,“ sagði
Jón Steinar. Þá hefði verið framið
„dómsmorð“ í máli Baldurs
Guðlaugssonar, fv. ráðuneytisstjóra,
sem dæmdur var fyrir innherjasvik.
„Það var fyrsta [hrun]málið. Þá var
mönnum mikið mál,“ sagði Jón
Steinar sem rekur dóminn í bók-
inni.
Hæpnar forsendur dóma
Jón Steinar gagnrýndi líka dóma
yfir stjórnendum banka á grund-
velli umboðssvika, sem sé lýst sem
auðgunarbrotum í almennum
hegningarlögum. Í umræddum
dómum hafi „ekki einu sinni [verið]
vikið að því hvort þessu skilyrði var
fullnægt“.
„Í langflestum málanna, ekki
samt alveg öllum, var ekki sannað
að það væru nein skilyrði auðgunar-
tilgangs … Menn bjuggu til ein-
hverja hugmynd um að það væri
nóg að hafa skapað hættu á tjóni.
Það er ekki eftir lögunum,“ sagði
Jón Steinar og spurði hvernig dóm-
arar gætu „dæmt menn til margra
ára fangelsisvistar að ósekju“.
„Hvaðan eru þeir menn komnir sem
geta gert þetta og eiga að kunna
skil á þeim reglum sem þeim ber að
fara eftir? Það er ekki aðeins verið
að valda sakborningnum óbæt-
anlegu tjóni heldur öllum ástvinum
hans, fjölskyldu hans, börnunum
hans“.
Umræddir dómar Hæstaréttar
væru „misnotkun á ríkisvaldi“.
Jón Steinar gagnrýndi líka dóma
Hæstaréttar vegna meintrar mark-
aðsmisnotkunar forsvarsmanna
fjármálafyrirtækja. Sakborningum í
þeim málum hefði verið meinað um
aðgang að gögnum máls og Hæsti-
réttur jafnvel fundið nýjar for-
sendur dóms og dæmt annað mál
en í héraði.
Hæstiréttur sagður sveiflast með tíðaranda
Fyrrverandi hæstaréttardómari gagnrýnir Hæstarétt harðlega vegna dóms í Landsréttarmálinu
Hæstiréttur hafi teygt sig langt til að dæma dómsmálaráðherra brotlegan við skipan dómara
Morgunblaðið/Hari
Dómsmál Jón Steinar Gunnlaugsson flutti erindi á fundi Lögréttu í gær.