Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ég er ánægð með að hafa stokkið
á þetta tækifæri, en mig óraði ekki
fyrir því hversu mikil áhrif það
myndi hafa á líf mitt,“ segir Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari og
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en
hún sækist eftir endurkjöri í það
embætti á landsfundi flokksins,
sem haldinn verður helgina 16.-18.
mars næstkomandi.
Það má segja að ákvörðun Ás-
laugar að bjóða sig fram í ritara-
embættið hafi reynst afdrifarík, en
á þeim rúmlega tveimur árum sem
liðin eru hefur hún farið í prófkjör,
náð kjöri á þing, orðið formaður
allsherjar- og menntamálanefndar,
lokið laganámi, farið aftur í kosn-
ingaslag og er nú formaður utan-
ríkismálanefndar þingsins.
Þakklát fyrir tækifærið
Þetta hefur þó ekki verið eintóm-
ur gleðitími fyrir Áslaugu Örnu eða
Sjálfstæðisflokkinn. „Við misstum
fremstu stjórnmálakonu okkar,
Ólöfu Nordal,“ segir Áslaug. Hún
segist þakklát fyrir að hafa fengið
tækifæri til þess að vinna með
henni í forystu flokksins. „Ég lærði
margt af henni og leit mjög upp til
hennar. Á sama tíma var gaman að
vinna með Ólöfu, því hún hugsaði
málin alltaf til framtíðar, henni var
annt um flokkinn sinn og að sam-
félagið tæki jákvæðum breyt-
ingum,“ segir Áslaug og bætir við
að það skarð sem Ólöf hafi skilið
eftir sig verði ekki auðfyllt.
Talið berst að stöðu kvenna í
Sjálfstæðisflokknum, en nú sitja til
dæmis bara fjórar konur fyrir
flokkinn á þingi. Áslaug segir þetta
óásættanlegt. „Það þarf að efla
hlut kvenna í Sjálfstæðisflokknum.
Við erum með gríðarmikið af kon-
um í sveitarstjórnarmálunum, þar
eru þær næstum því helmingur
fulltrúa flokksins og það er gaman
að fylgjast með þeim en í landsmál-
unum þarf að bæta úr.“
Áslaug bætir við að þetta sé hluti
af framtíðarverkefnum Sjálfstæð-
isflokksins, hvernig hann geti laðað
fleiri til fylgis við sjálfstæðisstefn-
una. Það verkefni sé hins vegar
ekki bara einskorðað við konur.
„Núna gefst okkur tækifæri til
þess að hugsa, hvers konar flokkur
Sjálfstæðisflokkurinn vill vera til
lengri tíma,“ segir Áslaug. Hún tel-
ur lykilinn að velgengni flokksins í
gegnum tíðina liggja í þeirri fjöl-
breytni sem rúmast hafi þar. „Það
þurfa að rúmast fleiri en eitt sjón-
armið innan flokksins. Það hefur
verið styrkur Sjálfstæðisflokksins í
gegnum tíðina að þar hafa rúmast
fjölbreyttar skoðanir fólks sem að-
hylltist þó sömu grunnstefnuna,“
segir Áslaug.
Það er kraftur á landsfundi
Hún segir upplifunina á lands-
fundi vera einstaka. „Það er ótrú-
legt að finna kraftinn í fólkinu og
gaman að sjá það taka þátt í mál-
efnavinnu flokksins og móta stefn-
una,“ segir Áslaug. Sá kraftur birt-
ist þó ekki síst í því að á landsfundi
er tekist á, stundum hart. „Um
suma hluti er og hefur verið hug-
myndafræðilegur ágreiningur og
hart tekist á um skoðanir, kerf-
isbreytingar, frelsismál og utanrík-
ismál og svo mætti lengi áfram
telja, en það er styrkur flokksins
og bráðnauðsynlegt, að hafa þenn-
an umræðuvettvang,“ segir Áslaug
og bætir við að flokksmenn hafi
alltaf getað sameinast um grunn-
stefnuna þrátt fyrir þessi átök, og
farið samhentir af landsfundi.
Ályktanir fundarins hafi síðan ver-
ið hafðar til hliðsjónar þegar kosn-
ingaáherslur og stjórnarsáttmálar
þeir sem flokkurinn á aðild að eru
mótaðir.
„Sjálfstæðisflokkurinn er og á að
vera burðarafl í íslenskum stjórn-
málum. Hann hefur staðið að kerf-
isbreytingum, auknu frelsi og tekið
þátt í mikilvægustu ákvörðunum
sem teknar hafa verið hér á landi,
en við þurfum öll að gera betur til
þess að flokkurinn verði áfram
brautryðjandi fyrir nýjar hug-
myndir, sem þó byggjast samt
áfram á grundvallarstefnu Sjálf-
stæðisflokksins.“
Starf þingmannsins fjölbreytt
Áslaug Arna segir að staða sín
sem ritari flokksins hafi reynst sér
mjög lærdómsrík og hjálpað henni
í þingstörfunum. „Ég hef farið á
tugi funda út um allt land í störfum
mínum sem ritari flokksins, þar hef
ég talað við flokksmenn og fólk,
heimsótt ólík byggðarlög og heyrt
hvaða mál eru þar efst á baugi.“
Hún segir það vera ótrúlega
mikilvægt fyrir kjörna fulltrúa að
halda talsambandi við fólkið í land-
inu. „Það er fátt mikilvægara en að
spyrja fólk í sinni heimabyggð hvað
það vill. Það sem vantar mest upp
á, er að það þarf að fá okkur kjörnu
fulltrúana oftar þangað til þess að
ræða málefnin, en fólkið vill líka að
það sé betri upplýsingagjöf um það
sem við erum að gera,“ segir Ás-
laug. „Við erum að vinna fyrir fólk-
ið sem kýs okkur og þurfum að
hlusta vel á það og fylgja því eftir í
okkar vinnu.“
Hún segir ýmislegt í þingstörf-
unum koma fólki á óvart, sem ekki
hafi kynnst því hvað felist í þeim.
„Þegar ég kom sjálf inn í þetta um-
hverfi kom það mér kannski mest á
óvart hvað það er mikil og góð
vinna sem fer fram í nefndum
þingsins. Þetta er auðvitað sér-
stakt vinnuumhverfi, en það eru
gríðarlega mörg mál sem fara í
gegnum nefndirnar í fullri sátt, en
þeim málum er sjaldnast gert hátt
undir höfði í umræðunni, því að
átakamálin ná frekar athygli fjöl-
miðla og samfélagsins.“ Þá komi
það fólki oft á óvart hvað starfið sé
umfangsmikið. „Það felst ekki bara
í því að sitja inni í þingsal og
hlusta, heldur þurfum við líka að
gefa okkur tíma til að hitta fólk og
mæta á opna fundi, við erum að
vinna að breytingatillögum á frum-
vörpum, rita ræður og greinar,
taka svo þátt í þingstörfum og al-
þjóðastarfi, svo eru oft viðtöl og
umræðuþættir um helgar,“ segir
Áslaug. „Maður er einhvern veginn
alltaf í vinnunni, en mér líður þó
aldrei þannig því þetta starf er
skemmtilegt. Þetta tækifæri til
þess að hafa góð áhrif á samfélagið
er ómetanlegt, mér finnst ótrúlega
gaman að tala við fólk og heyra
hvernig við getum þróað umhverfi
okkar þannig að allir hafi það
betra.“
Menntakerfið er undirstaðan
Í því samhengi nefnir Áslaug að
eitt mikilvægasta málið sem ríki og
sveitarfélög geti unnið að fyrir
byggðir landsins sé að tryggja gott
menntakerfi. Stefna Sjálfstæð-
isflokksins snúist um að tryggja
öllum jöfn tækifæri til þess að fóta
sig í samfélaginu. „Góðir skólar eru
forsenda jafnra tækifæra fyrir alla
hvaðan sem þeir koma, hvernig
sem bakgrunnur þeirra er,“ segir
Áslaug.
„Við þurfum að vera óhrædd að
tala fyrir framförum og því hvernig
við getum gert betur í mennta-
kerfinu, því að það er langtíma-
verkefni. Þar eru miklar breyt-
ingar í vændum. Störf eru að
breytast hratt og kröfur sam-
félagsins til fólks munu breytast og
það þarf að tileinka sér nýja tækni
og nýja kunnáttu samfara því.“
Þá sé ekki síst mikilvægt að
grunnfögin séu í lagi, þannig að
fólk útskrifist ekki úr grunnskóla
án þess til dæmis að kunna að lesa
sér til gagns. „Ef þú getur ekki les-
ið þér til gagns geturðu ekki aukið
við kunnáttu þína og missir þannig
af ýmsum tækifærum á lífsleið-
inni,“ segir Áslaug.
„Menntakerfið er undirstaða
samfélagsins og öflugt menntakerfi
er forsenda lífskjara, forsenda fyr-
ir fjölbreyttu atvinnulífi og hag-
vexti og menntakerfið okkar má
ekki verða eftirbátur menntakerfis
annarra landa.“
Ekki endilega ævistarf
Talið berst að framtíð Áslaugar
sjálfrar í stjórnmálunum, hvort
hún sjái fyrir sér að vera þar til
lengri tíma. „Stjórnmálin hafa ver-
ið ákaflega skemmtilegur og gef-
andi vettvangur, og svo lengi sem
mér finnst þetta skemmtilegt, þá
verð ég þar, ef ég fæ fylgi og stuðn-
ing til,“ segir Áslaug. „Stjórnmálin
eiga hins vegar ekki endilega að
vera ævistarf. Við þurfum að vera
opin fyrir því að fá fólk inn í þau og
svo aftur út í önnur störf, og það
hafi þá jafnvel tækifæri til þess að
snúa aftur í stjórnmálin síðar. Við
þurfum bæði að fá nýtt fólk inn, og
einnig að halda í þá sem hafa víð-
tæka reynslu af stjórnmálastarfi.“
Áslaug segist njóta þess að ræða
málefni við fólk og reyna að hafa
áhrif á samfélagið. „Ég hef óbilandi
trú á því að Ísland geti verið leið-
andi land á svo mörgum sviðum, og
með það að markmiði óttast ég
ekki þau örlög að vera áfram í
stjórnmálum í einhvern tíma.
Tækifærin eru svo mörg sem við
getum gripið til þess að búa til hér
framúrskarandi samfélag. Svo
lengi sem ég get haft góð áhrif og
finn fyrir gleði í starfi mun ég gefa
kost á mér.“
Verðum að vera brautryðjandi
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, sækist að nýju eftir embættinu Segir
styrk flokksins felast í opinskáum skoðanaskiptum Það þarf að efla hlut kvenna í flokknum
Morgunblaðið/Hari
Burðarafl Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir Sjálfstæðisflokkinn hafa verið burðarafl í íslenskum stjórnmálum,
en að hann þurfi að gera jafnvel enn betur til þess að vera áfram brautryðjandi fyrir nýjar hugmyndir.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
17
4
6
36
4
Rekstrarland er hluti af Olís
Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt.
NILFISK VINNUR VERKIÐ
Á METHRAÐA
NILFISK háþrýstidælur og gólfþvottavélar
eru til í ýmsum stærðum og styrkleikum
jafnt fyrir heimili sem til iðnaðar- og
fyrirtækjanota. Með NILFISK vinnur þú
verk á svipstundu sem annars tæki mun
lengri tíma.