Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú stendur yfir mesta uppbygging
sem átt hefur sér stað í miðborg
Reykjavíkur frá upphafi. Stórhýsi
rísa hvert af öðru í Kvosinni og í
síðustu viku var kynnt til sögunnar
nýbygging sem mun setja mikinn
svip á miðborgina.
Um er að ræða nýjar höfuð-
stöðvar Landsbankans, sem munu
rísa við Austurbakka 2 í Austur-
höfn, í nágrenni Hörpu. Stefnt er
að því að hefja framkvæmdir í byrj-
un árs 2019. Bygging hússins verð-
ur boðin út. Lóðin er tilbúin til
framkvæmda og engin óvissa er um
skipulagsmál á svæðinu.
Landsbankinn tilkynnti í maí
2017 að bankaráðið hefði ákveðið að
byggja húsnæði fyrir starfsemi
bankans við Austurhöfn í Reykja-
vík. Landsbankinn eignaðist lóðina
árið 2014 í kjölfar útboðs. Seljandi
var Sítus. Markmið bankans með
kaupunum var að reisa þarna fram-
tíðarhúsnæði undir starfsemina. Í
kjölfar gagnrýni ákvað bankinn að
fresta áformum um hönnunarsam-
keppni sumarið 2015 og að farið
yrði yfir fram komin sjónarmið.
Bankinn skoðaði ýmsa kosti í
húsnæðismálum í samvinnu við ráð-
gjafarfyrirtækið KPMG og Mannvit
verkfræðistofu og var niðurstaða
greiningar KPMG sú að Austur-
höfn væri ákjósanlegasti kosturinn.
Meðal kosta sem voru sérstaklega
skoðaðir voru lóðir í grennd við
Borgartún, Kringlu og Smáralind.
Hið nýja hús verður 16.500 fer-
metrar. Bankinn hyggst nýta um
10.000 m2 í nýju húsi, um 60% af
flatarmáli hússins, en selja eða
leigja frá sér um 6.500 m2 sem
munu nýtast fyrir verslun og aðra
þjónustu.
Bankinn ætlar fyrst og fremst
að nýta efri hæðir hússins
Bankinn mun fyrst og fremst
nýta efri hæðir hússins þar sem
fermetraverð er metið sambærilegt
og á skrifstofuhúsnæði á öðrum
góðum stöðum á höfuðborgarsvæð-
inu. Verðmætustu hlutar hússins á
neðri hæðum verða að stærstum
hluta seldir og umframrými á efri
hæðum leigt út.
Sjö arkitektateymi voru í október
sl. valin til að skila frumtillögum að
hönnun hússins og í janúar bárust
bankanum tillögur frá sex teymum,
að viðhafðri nafnleynd. Þriggja
manna ráðgjafaráð var bankastjóra
og bankaráði til fulltingis við
ákvörðunina og mælti ráðgjafaráðið
með tillögu Arkþings ehf. og C.F.
Møller. Kletturinn var nafnið sem
höfundarnir völdu á tillöguna.
Arkitektateymin sex sem skiluðu
inn tillögum fengu hvert um sig
greiddar 2,5 milljónir króna auk
vsk. Ekki var um eiginleg verðlaun
að ræða heldur fengu þátttakendur
greidda þóknun fyrir tillögur sínar.
Þegar samningar við tillöguhöf-
unda liggja fyrir mun vinna við
fullnaðarhönnun hússins hefjast. Að
sögn bankans getur frumtillagan
tekið breytingum á hönnunarstigi,
þótt heildaryfirbragð hússins verði
óbreytt.
Að baki vinningstillögunni
standa: Helgi Mar Hallgrímsson
arkitekt, Klaus Toustrup arkitekt,
Julian Weyer arkitekt, Sigurður
Hallgrímsson arkitekt, Rune
Bjerno Nielsen arkitekt, Jonas Toft
Lehmann arkitekt, Kristian Græ-
bild Brandsen arkitekt, Eyrún Val-
þórsdóttir arkitekt, Davíð Sigurð-
arson arkitekt, Marte Aateigen
Marum arkitektanemi og Sarah
Grazia Nordengen arkitektanemi.
Í niðurstöðu segir að tillagan sé í
góðu samræmi við þær forsendur
sem lagt var upp með. Helsti kost-
ur tillögunnar sé heildstæð og
spennandi bygging með góðum inn-
byrðis tengslum. Yfirbragð sé stíl-
hreint og glæsilegt og hæfi starf-
semi bankans vel. Vinnurými
bankans sé til þess fallið að styðja
vel við starfsemi hans og stuðla að
örvandi samstarfi og góðu flæði
innan og milli eininga, bæði innan
hæða og á milli hæða í húsinu. Al-
menningsrými utandyra séu áhuga-
verð. Settröppur nyrst á bygging-
unni, móts við Hörpu, skapi skilyrði
fyrir margbreytilega starfsemi ut-
anhúss og geti orðið áhugaverður
áfangastaður almennings.
Í ráðgjafaráðinu sátu G. Oddur
Víðisson arkitekt, Halldóra Vífils-
dóttir, arkitekt hjá Landsbank-
anum, og Valgeir Valgeirsson,
verkfræðingur hjá Landsbank-
anum.
Samkvæmt mati Mannvits verk-
fræðistofu er kostnaður við að reisa
16.500 m2 hús tæpir 9 milljarðar
króna, að lóðarverði meðtöldu, að
því er fram kemur á heimasíðu
bankans. Að teknu tilliti til þess að
bankinn mun selja og/eða leigja
6.500 m2 er gert ráð fyrir að kostn-
aður bankans við þann hluta húss-
ins sem hann mun nýta verði um
5,5 milljarðar króna. Á móti kæmi
söluverðmæti þeirra fasteigna sem
bankinn getur selt við flutningana.
Árlegur sparnaður við að flytja í
nýtt hús er talinn nema um 500
milljónum króna á ári.
Landsbankinn er nú með starf-
semi í 13 húsum í miðborg Reykja-
víkur, að langstærstum hluta í
leiguhúsnæði. Núverandi húsnæði
bankans sé bæði óhentugt og óhag-
kvæmt fyrir rekstur bankans. Með
flutningi í nýtt hús mun starfsemi
sem nú fer fram á um 21.000 fer-
metrum rúmast á um 10.000 m2.
Verðmætasta eign bankans er
Austurstæti 11, höfuðstöðvar bank-
ans. Húsið er talið hafa mikið sögu-
legt og menningarlegt gildi, enda
friðað.
Tillagan Hamrar Höfundar A2F arkitektar/Gríma arkitektar/
Kreatíva teiknistofa. Byggingin er brotin upp í sex húshluta
og svokölluð „gjá“ tengir mismunandi húshluta saman.
Nýi Kletturinn í Kvosinni
Landsbankinn áformar að hefja byggingu nýrra höfuðstöðva í Austurhöfn í byrjun næsta árs
Byggingin er 16.500 fermetrar og hyggst bankinn nota 10.000 fermetra Kostar tæpa 9 milljarða
Tillagan Jökulís Höfundar Henning Larsen Architects og
Batteríið Arkitektar. Náttúra Íslands er uppsprettan, byggist
á jökli, svörtum klettum og iðjagrænum mosabreiðum.
Tölvuteikning/Arkþing ehf /C.F. Møller Danmark A/S
Vinningstillagan Kletturinn Höfundar Arkþing ehf /C.F. Møller Danmark A/S. „Heillandi heildarlausn sem nær að samtvinna einfalt en samt einstakt
borgarhús við ákjósanleg vinnurými,“ segir í niðurstöðu dómnefndar. Þessi bygging mun setja mikinn svip á mesta sögustað Reykjavíkur, miðbæinn.
Tillagan 28557 Höfundar Kanon arkitektar og Teiknistofan
Tröð. Tillagan hefur látlaust yfirbragð með fíngerðu útliti sem
skapar áhugaverða andstöðu við aðliggjandi byggingar.
Tillagan Öndvegi Höfundar Bjarke Ingels Group(BIG)/Arkiteó. Bygging
með grónum hallandi þökum sem ná alveg niður að jörðu og tengjast
gönguleiðum svæðisins, Arnarhóli, miðbænum Hörpu og höfninni.
Tillagan Flæðarmál Höfundar PkDM. Tillagan byggist á þrískiptri byggingu
með tveimur bryggjum, Kolabryggju og Fredriksensbryggju. Skemmtileg
hugmynd með vísan til upprunalegrar strandlengju Reykjavíkur.