Morgunblaðið - 01.03.2018, Page 40
Svalur Einn dáðasti
sonur St. Louis er
trompetleikarinn og
djassguðinn Miles
Davis. Upp-
eldishús
hans er í
borg-
inni og
þangað
er gam-
an að
kíkja –
með Kind
Of Blue í
eyrunum.
F
rakkarnir sem um ræðir,
skinnakaupmennirnir Pierre
Laclède and Auguste Chou-
teau, létu ekki þar við sitja
heldur skírðu hið nýstofnaða þétt-
býli St. Louis í höfuðið á Loðvík 9.
Frakkakonungi. Franskur andi svíf-
ur enda yfir borginni á ýmsan máta;
í janúar og febrúar á hverju ári er
haldin gríðarvinsæl Mardi Gras-
hátíð í borginni þar sem stuðið lifir
vikum saman. Í St. Louis er að finna
einstaklega fallegt gamalt íbúða-
hverfi sem heitir Lafayette Square
þar sem franskur stíll er ríkjandi.
Þá á borgin sinn eigin „Sigurboga“
og það sem meira er, hann er stað-
settur á Vinstri bakkanum. Hér er
vitaskuld ekki átt við hinn eina
sanna Sigurboga sem er að finna í
París, heldur Gateway Arch bogann
sem er að finna í borginni á vinstri
árbakka Missisippi, en þessi gríð-
armikli bogi táknar þá gátt sem St.
Louis var á tímum Vesturfaranna en
víðfrægur leiðangur Lewis og Clark
um óbyggðar víðlendur vestursins í
upphafi 19. aldar hófst einmitt í St.
Louis.
Stærsta mósaíkverk veraldar
Fleira kemur til en téður
sigurbogi. Helst er þar að
nefna hina forkunn-
arfögru dóm-
kirkju, Basilíku
heilags Loðvíks
sem vígð var ár-
ið 1907 í
býzans-rómverskum stíl
og dregur að sæg ferða-
manna sem fýsir að
berja augum mósaík-
listina sem er að finna
innandyra. Verkið sam-
anstendur alls af tæplega 42 millj-
ónum flísa í 8000 mismunandi litum
sem þekja alls um 7700 fermetra.
Eins og við má búast skilur verkið
engan sem séð hefur eftir ósnortinn.
Margar aðrar helstu byggingar
borgarinnar eiga sér beina fyr-
irmynd í þekktum húsbyggingum í
Frakklandi og nægir þar að nefna
að ráðhúsið er hannað með ráðhús
Parísar (Hôtel de Ville) í huga og
lestarstöðin St Louis Union Station
byggir á útliti virkisveggjanna víð-
frægu í Carcassonne. Loks má ekki
gleyma hinni ómótstæðilegu og
sögulegu sælkeraverslun Biss-
inger’s French Confections en það
er framleitt syndsamlegt konfekt
byggt á aldagamalli hefð. Karl Biss-
inger framleiddi handgert konfekt
sem gældi meðal annars við bragð-
lauka Napóleons Bonaparte og Loð-
vík XIV sæmdi hann heiðurstitlinum
„Konfektmeistari keisarans“. Biss-
inger flutti vestur um haf um miðja
19. öld og sonur hans og alnafni hélt
að lokum til St. Louis og opnaði þar
sælkeraverslun sína. Þar er hún enn
starfrækt, sælkerum til ómældrar
gleði, og þar má í dag fá hvers kyns
ljúffenga rétti auk goðsagna-
kenndra sætindanna. Bissinger’s
French Confections er til húsa að
1600 N. Broadway og þar er boðið
upp á heimsóknir með skoðunarferð,
sögustund og ómissandi smakki.
Æskuheimili Miles Davis – viltu
taka þátt í uppbyggingunni?
Það þarf ekki endilega að vera
djassgeggjari til að vita hver Miles
Davis var, en hafi maður á annað
borð smekk á djass er næsta víst að
trompetleikarinn sálugi er í guða-
tölu. Davis ólst nefnilega upp í húsi
við 1701 Kansas Ave., í austurhluta
St. Louis og þangað leggja djass-
áhugamenn leið sína í pílagríms-
ferðir til að votta meistaranum
ævarandi virðingu sína. Húsið hefur
aftur á móti staðið autt um árabil og
þarf sárlega á uppgerð að halda.
Áhugasamir geta lagt verkefninu
lið. til dæmis með því að kaupa múr-
stein sem notaður verður til að
byggja húsið upp á ný. Til stendur í
framhaldinu að gera húsið að safni
og djasstónlistarskóla í nafni Miles
Davis. Verkefnið er yfirstandandi og
víst er að málstaður fyrir end-
urreisn gamals húss verður ekki
mikið svalari en þetta.
50% stærri en Miðgarður N.Y.
Ef meiningin er að auðga bæði
andann og loftið í lungunum þá er
ein besta leiðin að taka dag í það að
spássera um Forest Park, almenn-
ingsgarð St. Louis. Þar þrengir
hvorki að huga manns né olnbogum
enda er garðurinn gríðarmikill að
flatarmáli, alls um 5,3 ferkílómetrar,
með ótal græn svæði, stíga til
göngutúra, hlaupatúra og hjólatúra.
Auk möguleika til útivistar má ekki
gleyma að nefna að í Forest Park er
að finna stórmerka viðkomustaði á
borð við Listasafn St. Louis, Vís-
indasafn St. Louis, Sögusafn St. Lo-
uis að ógleymdum hinum ótrúlega
dýragarði borgarinnar sem almennt
er talinn einn sá besti í gervöllum
Bandaríkjunum.
Í St. Louis er einnig að finna hinn
ævintýralega grasagarð Missouri
Botanical Gardens, sem er sá grasa-
garður Bandaríkjanna sem lengst
hefur verið opinn, og hinn samliggj-
andi Tower Grove Park sem hentar
sömuleiðis fullkomlega til útivistar.
Heimaborg bjórgerðarinnar
Eftir allt þetta labb, hlaup og
hjólastúss er ekki útilokað að ein-
hverjum hugnist að væta svolítið
kverkarnar. Það eru hæg heimatök-
in í St. Louis, svo ekki sé fastar að
orði kveðið því þar eru hvorki meira
né minna en aðalstöðvar Anheuser-
Busch, sem er einn allra stærsti
bjórframleiðandi heims og býr með-
al annars til frægasta bjór Banda-
ríkjanna, Budweiser. En fyrir þá
sem vilja eilítið efnismeiri bjór þá er
nauðsynlegt að heimsækja The St.
Louis Brewery þar sem Schlafly
bjórinn er á boðstólum, í öllum sín-
um rúmlega 50 bjórstílum; hvort
sem þér hugnast þurrhumlaður
IPA, bleksvartur eða flauelsmjúkur
oatmeal stout eða hvaða bjór sem
vera skal, þá er hann til á einum af
krönunum hjá Schlafly Tap Room.
Skoðunarferðir með snarli er svo
hægt að bóka hjá Schafly Bottle-
works.
Það er því með öllu óhætt að gera
titil einnar frægustu söngvamyndar
Judy Garland frá 1944 að einskonar
mottói þeirra sem hafa hug að
bregða sér vestur um haf á næst-
unni: Meet Me in St. Louis.
Hittu mig í St. Louis
Garðurinn Forest Park er gríðarmikill, um 5,2 ferkílómetrar að stærð, al-
menningsgarður þar sem hægt er að hreinsa hugann jafnt sem lungun,
bregða sér á safn eða í dýragarðinn, hlaupa eða njóta þess að skoða mannlífið.
Frönsk áhrif hafa
löngum verið áberandi í
St. Louis, helstu borg
Missouri-fylkis, reyndar
allt frá því borgin byggð-
ist fyrst árið 1764. Það
voru nefnilega Frakkar
sem settust þar fyrst að
á bökkum Missisippi-
árinnar og líkaði vel.
Vesturgáttin Sigurbogi
þeirra St. Louis-búa,
Gateway Arch, gnæfir yfir
borgina og er til minnis um
landvinninga 19. aldar til
vesturs, ekki síst könn-
unarferðir Lewis og Clark.
Sætindi Súkkulaði og konfekt sem
Bissinger’s hefur framleitt í meira
en 350 ár er frá St. Louis.
Franskt Það er auðséð hvaðan áhrifin eru í hinu litla en dæma-
laust sjarmerandi hverfi Lafayette Square.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
ÁSKRIFTARHAPPDRÆTTI MORGUNBLAÐSINS
St. Louis Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinningshafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum.