Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 42
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Norsk stjórnvöld tilkynntu í vik-
unni, að milljónasta frætegundin
hefði verið flutt í fræbankann á
Svalbarða.
Fræbankinn er hvelfing sem var
sprengd inn í fjall skammt frá Long-
yearbyen og þar er hægt að geyma
4,5 milljarða fræja. Fræbankanum
er ætlað að vera eins konar bak-
trygging fyrir um 1.400 aðra fræ-
banka víðs vegar um heim og þar er
geymt safn fræja til framtíðar ef
miklar náttúruhamfarir eða óáran af
einhverjum toga riði yfir jörðina.
Bankinn, eða „dómsdagshvelfing-
in“ eins og hann er stundum nefnd-
ur, var tekinn í notkun í febrúar árið
2008 og er því tíu ára um þessar
mundir. Í tilefni af afmælinu voru
fluttar þangað yfir 76 þúsund fræ-
sýni víða að úr heiminum. Þótt
bankinn sé í umsjón norskra stjórn-
valda eiga viðkomandi lönd fræin
sem þau senda þangað og geta feng-
ið þau til baka sé þess óskað.
Eftir þessa flutninga hafa
1.059.646 frætegundir verið fluttar í
hvelfinguna. Nú eru 967.216 tegund-
ir í bankanum en árið 2016 voru tug-
þúsundir fræprufa, sem á sínum
tíma komu frá Aleppo í Sýrlandi,
flutt frá Svalbarða til Líbanon og
Marokkó með það að markmiði að
endurrækta staðbundin afbrigði
nytjajurta sem höfðu eyðilagst í
stríðsátökunum í Aleppo.
18 gráðu frost
Framkvæmdir við hvelfinguna á
Svalbarða hófust árið 2007. Hún er
um 130 metra fyrir ofan sjávarmál
og yrði því á þurru þótt allur ís á
suðurskautssvæðinu bráðnaði, en
talið er að við það myndi sjávarmál-
ið hækka um 61 metra.
Langur, stálklæddur gangur ligg-
ur frá innganginum að þremur að-
skildum sölum sem eru 10 sinnum
27 metrar að stærð hver og á hverj-
um sal eru öflugar, loftþéttar og
brynvarðar dyr. Geysimikill loftkæl-
ingarbúnaður tryggir að kuldinn í
sölunum fari aldrei undir mínus 18
gráður en náttúrulegur sífreri á
Svalbarða er mínus fjórar gráður.
Fræin eru lifandi og tapa þrótti
með árunum, en með réttri þurrkun
og geymslu geta þau sterkustu lifað
í hundruð ára og baunir jafnvel í
þúsund ár.
Óvenjuhlýtt var á Svalbarða árið
2016 sem leiddi til þess að snjór
bráðnaði og vatn komst inn í göng
þar sem gengið er inn í hvelfinguna.
Engar skemmdir urðu á fræjunum
en nýir vatnsheldir veggir voru
reistir í göngunum og búnir til
skurðir fyrir utan til að taka við
leysingavatni.
Milljónasta frætegundin
komin í fræbankann
Tíu ár síðan „dómsdagshvelfingin“ á Svalbarða var tekin í notkun
Milljónasta frætegundin hefur verið flutt í hvelfinguna
Fræbankinn á Svalbarða
Heimild:
Global Crop Diversity Trust
Kostaði Getur geymt
9
milljónir
dala
4,5
milljarða
frætegunda
NORÐUR-
ÍSHAF
Norðurpóllinn
N O R E G U R
KANADA
GRÆNLAND
RÚSSLAND
Svalbarði
Markmið: að varðveita
jurtategundir ef náttúruham-
farir eða óáran ríða yfir
Grafin undir sífreranum
Inn-
gangur
Loftræsting
Göng
120 m
Hvelfingar
(-18°C)
Stjórnstöð
Er 130 metra yfir núverandi
sjávarmáli til að tryggja að
hvelfingin skemmist ekki
ef ísinn á norðurslóðum
bráðnar
Fræin eru eign ríkja og stofn-
ana sem leggja þau inn í
fræbankann
Longyearbyen
Ekkert lát er á kuldakastinu á meginlandi Evrópu. Ótt-
ast er að heimilislaust fólk sem ekki hefur leitað í neyð-
arskýli eins og þessi maður í Strassborg í Frakklandi,
geti orðið úti.
Vitað er að tæplega fimmtíu hafa látið lífið í Evrópu
frá því kólna fór fyrir alvöru um síðustu helgi. Þar af
hafa 18 orðið úti í Póllandi, sex í Tékklandi, fimm í
Litháen og fjórir í Frakklandi og Slóvakíu. Flest er
þetta heimilislaust fólk.
Víða í Evrópu mældist yfir 20 stiga frost í fyrrinótt. Í
Austurríki hafa tveir starfsmenn þarlendu veðurstof-
unnar komist í fréttirnar en austurrískir fjölmiðlar
segja þá vinna kaldasta starf landsins. Mennirnir tveir
starfa í Sonnblick veðurstofunni, sem er í 3109 metra
hæð yfir sjávarmáli. Þeir þurfa að lesa af hitamælum
þrisvar á dag og sú aðgerð tekur um klukkustund í
hvert skipti. Frostið í Sonnblick hefur mælst 32 stig og
þá er vindkælingin ekki tekin með í reikninginn.
AFP
Tugir hafa frosið í hel síðustu daga
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
Laguna Park I
Apartments
Stökktu
SBH Monica Beach
Resort Hotel
Stökktu
Occidental Jandia
Playa Hotel
Bi
rt
m
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th
.a
ðv
er
ðg
etu
rb
re
ys
tá
nf
yri
rva
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
8
6
6
8
9
Frá kr. 99.730
m/hálft fæði innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 89.995
m/ekkert fæði innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 110.945
m/allt innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 79.995
m/ekkert fæði innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Frá kr. 116.845
m/hálft fæði innifalið
Netverð á mann m.v. 2
fullorðna í gistingu.
5. mars í 10 nætur.
Bókaðu sól
TENERIFE &
FUERTEVENTURA
Frá kr.
79.995
2FYRIR1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
FY
RI
R2 1
TENERIFE
FUERTEVENTURA