Morgunblaðið - 01.03.2018, Page 44

Morgunblaðið - 01.03.2018, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er ekkertað því aðtelja að betra hefði verið fyrir alla að um- ræða á Alþingi um einn þátt stóra akstursmálsins hefði verið sýnd í lokaðri dagskrá. Ekki vegna þess máls, heldur vegna þingsins sjálfs og nærri ellefu alda sögu þess og æru. Kjósendur hafa vissulega með- tekið að Ásmundur þingmaður hefur flengst „alla daga utan stans“ fram og aftur um sitt víð- feðma kjördæmi. Og þeir höfðu áttað sig á því að þingbræður hans og -systur teldu að eftir 15 þúsund ekna kílómetra væri talið betra að Alþingi leigði fyrir hann bílaleigubíl, svo hans bíll næði að hvíla lúin dekk í hlaðinu heima. Ekki var þó augljóst hvernig Al- þingi græddi á því. En vandinn við að sýna frá fyrrgreindum umræðum í opinni dagskrá frá þinginu var sá, að á daginn kom að ýmsir þingmenn voru miklu meira úti að aka en Ásmundur víðförli og það hefði örugglega ekki verið hjálpræði fyrir þá að skáka sér í bíla- leigubíl. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra dóms- og menntamála og þingreyndur maður mjög, rakti umræðurnar, þegar svo var komið að þingbræður Ásmundar og -systur tóku að væna hann um saknæmt atferli, án þess að hafa neitt fyrir sér. Í pistli Björns segir: „Í um- ræðunum um óvarleg orð Þór- hildar Sunnu benti Brynjar Níelsson, Sjálfstæðisflokki, á að hún hefði ekkert til síns máls þegar hún talaði um „rökstuddan grun“ í tengslum við aksturs- greiðslur til Ásmundar Friðriks- sonar, þingmanns Sjálfstæð- isflokksins. Brynjar sagði: „Og svo komið þið öll hér, hv. þingmenn, og blaðrið um þetta með þessum hætti, að hér sé ein- hver misskilningur eða einhver orðhengilsháttur. Þetta er ekki orðhengilsháttur. Verið er að saka menn um alvarleg brot og menn eiga að skammast sín fyrir það.“ Þá kvaddi Andrés Ingi Jóns- son, þingmaður Vinstri grænna, sér hljóðs og sagði: „Ég velti því fyrir mér hvort styttist í það að við hlustum ekki á þingkarl standa í þessari pontu og segja að þingkona úti í salnum noti hér hugtök sem hún ráði ekki alveg við, með leyfi forseta. Ég vona að það sé bráðum liðin tíð.“ Skyldi þingmaðurinn átta sig á hvað felst í þessum orðum hans? Afstaðan er í raun niðurlægjandi fyrir konur. Það megi ekki lýsa vel rökstuddri skoðun um að Þórhildur Sunna fari með rangt mál af því að hún er kona. Í þess- um umræðum vildu þingmenn Pírata telja öðrum þingmönnum trú um að „rökstuddur grunur“ væri eitthvað ann- að en „rökstuddur grunur“. Að benda á rökþrot þeirra er síðan túlkað af þingmanni VG sem árás á konur.“ Nú er rétt að benda á, eins og sést á pistli Björns Bjarnasonar, að Brynjar Níelsson þingmaður segir „Og svo komið þið öll hér, hv. þingmenn, og blaðrið um þetta með þessum hætti, að hér sé einhver misskilningur eða einhver orðhengilsháttur.“ Hvernig lesa má úr þeim orðum árás á þingmann, vegna þess að hún sé kona, er örðugt að sjá. En Björn Bjarnason heldur greinargerð sinni áfram: „Á fundi Alþingis þriðjudaginn 27. febrúar steig Þórhildur Sunna í ræðustól til að réttlæta forkast- anlega framgöngu sína. Ræðan hófst á þessum orðum: „Að gæta orða sinna er góðra gjalda vert í flestum tilfellum. Þó ætti okkur í frjálsu lýðræð- isríki að vera frjálst að viðhafa stór orð, jafnvel móðgandi eða særandi, sérstaklega þegar kemur að pólitískri og sam- félagslegri umræðu á opinberum vettvangi.“ Ræðunni lauk á þessum orð- um: „Því vil ég mælast til þess af öllum þingmönnum sem hafa ásakað þá sem hér stendur um að gæta orða sinna og vanda að virðingu þingsins að fara sér- staklega varlega með það þegar verið er að draga úr rétti t.d. út- lendinga hér eða annarra minni- hlutahópa í samfélaginu í þess- ari pontu að gæta að því lýðræðislega hlutverki að allir skuli jafnir fyrir lögum og öll njótum við mannréttinda. Því að þar þarf að gæta orða sinna.“ Þessi texti er torskilinn. Þing- maðurinn er þó greinilega að verja rétt sinn til að móðga og særa aðra, sýnist henni svo. Þingflokkur Pírata er sundur- leitur hópur. Hann sameinast þó um mál þar sem hann getur látið eins og hann sé betri og heið- arlegri en aðrir.“ Það er mildilegt hjá Birni Bjarnasyni að telja tilvitnaðan texta torskilinn. Að svo miklu leyti sem þetta stórmál þingsins fjallaði enn um akstur Ásmund- ar þingmanns, þá er ljóst að hann telst varla með sem útlend- ingur. En hins vegar má sjálf- sagt segja hann tilheyra „minni- hlutahópi“ ef horft er til þingmanna utan af landi sem þurfa að hafa samband við um- bjóðendur sína í kjördæmi sem er stærra en Ísrael. En á meðan þetta fór fram í þinginu var settur punktur aftan við lokakaflann við að gefa vog- unarmönnum og kröfuhöfum Ar- ionbanka. Um það urðu litlar umræður á þingi enda var sárlít- ill akstur í kringum það mál, því íslensk yfirvöld fóru, því miður, út af strax í upphafi þess. Hvers vegna telur þingmaður VG að ekki megi umgangast þing- konur sem jafningja? } Forgangsröðin söm við sig E rtu hægri eða vinstri, er oft spurt. Svarið ætti að vera ein- falt því það eru bara gefnir tveir kostir en þegar betur er að gáð þá flækist málið mjög fljótt. Það eru nefnilega ekki allir sem svara „hægri“ sammála um öll mál. Sama á auðvitað við um þá sem svara „vinstri“. Í undanförnum kosn- ingum hefur kjósendum verið boðið upp á ým- iskonar kosningapróf sem staðsetja fólk á ás- um stjórnmálanna. Til þess að gera þessi próf nákvæmari þá hefur stundum verið bætt við öðrum ás sem bendir í aðra áttina á frjálslyndi og í hina áttina að forræðishyggju. Mig langar hins vegar að bæta við þriðja ásnum, gagnsæi og leyndarhyggju. Leynd- arhyggja þýðir ekki að allt eigi að vera leynd- armál, aðgengi að upplýsingum er bara gert erfiðara, til dæmis með því að krefja fólk um greiðslu fyrir gögn. Gagnsæi þýðir heldur ekki að öll gögn séu alltaf aðgengileg. Það þykir til dæmis eðlilegt að upplýs- ingar um hvaða vefsíður fólk skoðar eða í hvaða lífsskoð- unarfélög það er skráð séu ekki almennar aðgengilegar upplýsingar. Á undanförnum árum hefur krafan um gagnsæi aukist og þar af leiðandi hefur þessi ás stjórn- málanna farið að skipta meira máli en hann gerði áður. Spillingarmál á undanförnum árum hafa knúið á að stjórnmálin snúi sér í átt gagnsæis og frá leyndarhyggju en kerfið er tregt til breytinga. Stórt skref var hins vegar stigið í áttina að auknu gegnsæi í stjórnmálum í vikunni þegar opnaður var vef- ur með upplýsingum um greiðslur til þing- manna. Þar með er fyrsta skrefið í áralangri baráttu tekið en fjölmiðlar hafa lengi viljað upplýsa almenning um notkun kjörinna full- trúa á almannafé í eigin þágu en aldrei hefur fyrirspurnum þeirra verið svarað. Fyrstu svörin fengust fyrir um ári síðan þegar ég bað um sundurliðun þingfararkaupsins. Í því svari komu ýmsar tölur á óvart, ekki síst þær háu upphæðir sem þingmenn fengu fyrir akstur skv. akstursdagbók. Með það að markmiði að upplýsa hvort það væru fáir eða margir sem fengu þessa upphæð spurði ég fleiri og nákvæmari spurninga sem enduðu að lokum í því að ónafngreindur listi þeirra 10 sem keyrðu mest var birtur. Þar sem áður var leynd eru nú gögn sem sýna að fáir nýttu sér þann möguleika að fá endurgreiðslu á akstri. Með gögnin að vopni sjáum við hvort farið var að reglum án þess að þurfa að treysta því hvort þingmaður afsalaði sér einhverri greiðslu eða ekki. Við þurfum ekki að treysta því að einhver á skrifstofunni standi vaktina. Við og fjölmiðlar getum skoðað og spurt sjálf. Leyndarhyggjan á alveg rétt á sér, alveg eins og vinstri eða hægri. Gagnsæi er hins vegar gríðarlega mik- ilvægt, sérstaklega gagnvart valdhöfum. Því hef ég lagt fram fleiri fyrirspurnir sem opna á sömu gögn hjá ráð- herrum og stjórn þingsins. Ég býst við góðum viðtökum. Björn Levi Gunnarsson Pistill Með gögnin að vopni Höfundur er þingmaður Pírata bjornlevi@gmail.com STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Það virðast vera tengsl á millihreysti rjúpna og stofn-breytinga rjúpnastofnsins,“sagði Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur hjá Náttúru- fræðistofnun Íslands (NÍ). Hann sagði að svo virðist sem lífvænleiki rjúpna, eða hreysti þeirra, ákvarðist yfir sumarið í júlí, ágúst og sept- ember. Aðstæður fuglanna frá lokum júní til loka september ráði miklu um hreysti þeirra. Ólafur hélt í gær erindi um stofnbreytingar rjúpu og heilbrigði á Hrafnaþingi NÍ. Hann greindi m.a. frá niðurstöðum rannsókna sem gerð- ar voru á rjúpum á Norðausturlandi á tólf ára tímabili, það er frá 2006 til 2017 að báðum árum meðtöldum. Veiddar voru 100 rjúpur í fyrstu viku október ár hvert í þágu rannsókn- arinnar eða 1.200 fuglar alls. Á hverju ári voru veiddir 60 ungfuglar og var veitt jafn mikið af hvoru kyni. Einnig voru veiddar 40 fullorðnar rjúpur og var kynjahlutfall þeirra 59% karrar og 41% kvenfugl. Söfnun fugla og sýnataka tók 100 manndaga á hverju ári. Allir fuglarnir voru mældir, vegnir og krufðir. Mældir voru marg- ir þættir sem lýstu heilbrigði fuglanna, þar á meðal stærð og þyngd hvers fugls, fituforði og prótínforði, stærð meltingarvegar, tíðni og um- fang nýrnasteina, fæða, sníkju- dýrabyrði, streitustig, ástand fjað- urhams, arfgerð og fleiri þættir. Samtímis var safnað öðrum gagnaröðum um rjúpur, það er um þéttleika og aldurssamsetningu varpstofnsins, frjósemi, veiði þ.e. fjölda fugla og aldurssamsetningu og um afrán fálka. Gott holdafar mikilvægt Fyrri rannsóknir á íslensku rjúpunni höfðu sýnt að afföll sem fuglarnir urðu fyrir að vetrinum, það er frá nóvember til apríl, ráða miklu um stofnbreytingar. Mælingarnar sem gerðar voru í umræddri rann- sókn gáfu góða hugmynd um ástand fuglanna í upphafi þessa mikilvæga tímabils í ársferli rjúpunnar. Ástand fuglanna í byrjun október end- urspeglaði lífslíkur þeirra yfir vet- urinn. Ólafur sagði að holdafar rjúpn- anna, það er holdastuðull, réði vænt- anlega miklu um hreysti þeirra. Ís- lenskar rjúpur safna ekki fituforða og dugar fituforði þeirra ekki nema 2-3 daga að hámarki. Flugvöðvarnir og lærvöðvarnir eru stærsti prótínforði fuglsins. Rjúpur í góðum holdum hafa mikla vöðvafyllingu. Fuglar sem eru í góðum holdum standa væntanlega betur af sér veð- ur, komast frekar undan rándýrum, geta betur varist sóttkveikjum, eiga betra með að krafsa í snjó og ná til fæðu á veturna og hafa betur í átök- um við aðrar rjúpur. Marktækur munur var á milli ára og aldurshópa rjúpna varðandi holdafar. Þá sáust marktæk jákvæð tengsl holdafars unga og fullorðinna fugla. Einnig komu í ljós marktæk já- kvæð tengsl stærðar og holdafars hjá ungum rjúpum. Rjúpan er líka útsett fyrir ýms- um sníkjudýrum og sóttkveikjum og er vitað um meira en fimmtán teg- undir sóttkveikja sem leggjast á rjúpuna. Sem kunnugt er hafa reglu- bundnar sveiflur í stofnstærð ein- kennt íslenska rjúpnastofninn. Frá árinu 2003 hefur fjöldi rjúpna á Norðausturlandi náð hámarki þrisvar sinnum. Fyrst var það árið 2005, þá 2010 og nú síðast árið 2015. Hreysti rjúpna og stofnbreytingar Morgunblaðið/Ómar Rjúpa á hreiðri Rjúpan eignast marga unga. Hvernig þeim reiðir af yfir sumarið virðist ráða miklu um ástand rjúpnastofnsins í framhaldinu. Rjúpan er hánorræn og jurtaæta. Kvenfuglinn verpir mörgum eggj- um og kemur venjulega upp mörgum ungum. Afföll eru líka mikil. Margir afræningjar leggj- ast á rjúpnastofninn. Rjúpan er mikilvægasta fæðutegund ís- lenska fálkans. Einnig eru hrafnar drjúgir við að ræna eggj- um og ungum og eins refir. Þá eru stundaðar umtalsverðar rjúpnaveiðar hér á landi og rjúpur veiddar í tugþúsundatali á hverju hausti. Rannsóknin á heilbrigði rjúp- unnar var samvinnuverk- efni Náttúrufræðistofn- unar Íslands, Háskóla Íslands, Háskólans á Ak- ureyri, Náttúrustofu Norðausturlands, RAMÝ, háskólans í Tromsö, Idaho-háskóla og áhugamanna um líffræði rjúp- unnar. Heilbrigði rannsakað ÍSLENSKA RJÚPAN Ólafur K. Nielsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.