Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 RAFVÖRUR Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk gæða heimilistæki Þvottavél tekur 17 kg og þurrkari tekur 10 kg Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. Frá árinu 2000 hefur kvíði meðal unglings- stúlkna farið stigvax- andi á Íslandi sam- kvæmt niðurstöðum frá Rannsóknum og grein- ingu. Á fjórum árum frá árinu 2000 jókst meðaltalið yfir landið um 10%. Samkvæmt þeim niðurstöðum finna um 17% stúlkna oft eða stöðugt fyrir alvar- legum kvíðaeinkennum. Í Vesturbæ Reykjavíkur voru 3% drengja og 20% stúlkna í 9. bekk haldin kvíða árið 2012 en 27% stúlkna í Breiðholtinu árið 2015, sem er 20% hækkun frá árinu 2009. Kvíði meðal stúlkna er einnig að aukast í mörgum öðrum vestrænum samfélögum, svo sem í Bandaríkjunum, Ástralíu, Nýja Sjá- landi og á Bretlandseyjum. Mælingar á Bretlandseyjum sýndu meðal ann- ars að þriðjungur stúlkna væri með einkenni kvíða sem ykjust milli ára, á meðan niðurstöður sýndu að kvíði meðal drengja stóð í stað. Í þeirri rannsókn kom einnig í ljós að stúlkur sem áttu vel menntaða foreldra upp- lifðu meiri kvíða en aðrar. Þar var sett fram sú tilgáta að þessar stúlkur væru undir meiri pressu frá sam- félagsmiðlum og upplifðu meiri kröf- ur frá foreldrum um að standa sig vel í námi. Tilgáta annarar rannsóknar var á sömu leið. Hún var sú að stúlkur sem eru aldar upp af foreldrum með minni menntun hefðu þróað með sér seiglu sem umhverfi þeirra hefði ýtt undir. Einnig var rætt um þann möguleika að for- eldrar með minni menntun gerðu minni kröfur til dætra er varða frammistöðu í námi. Hvort þetta á einnig við á Íslandi hef- ur ekki verið skoðað mér vitanlega. Hvað ýtir undir kvíða hjá ungum stúlkum? Notkun snjalltækja hefur aukist í takt við kvíða meðal unglingsstúlkna. Hér á landi hefur ekki verið rann- sakað hvort kvíðnar stelpur noti tæk- in meira eða hvort notkunin geri þær kvíðnar, nema hvort tveggja sé. Snjalltækin og öll þau forrit sem þau hafa að geyma, svo sem Musically, Snapchat, Instagram og Facebook geta haft mikil áhrif á líðan stúlkna. Algengt er að einelti eigi sér stað í hinum rafræna heimi, án þess að for- eldrar hafi nokkra hugmynd um það og vil ég nefna nokkur dæmi því til stuðnings. Börn, mörg frá átta ára aldri, eru inni á forritinu Musically en þar eru börn að taka upp myndbönd af sér við að leika að þau séu að syngja lög. Við frammistöðuna geta önnur börn skrifað ýmar at- hugasemdir, misuppbyggjandi eða niðurlægjandi og getur forritið því orðið ákjósanlegur vettvangur fyrir rafrænt einelti. Snapchat getur einn- ig haft skaðleg áhrif á börn og ung- linga. Í starfi mínu sem sálfræðingur hef ég fengið til mín vinalausar stúlk- ur, sem sumar hafa lent í því að vera hafnað af vinkvennahópi sínum. Þær tala um að Snapchat valdi þeim mik- illi vanlíðan. Ástæðan er sú að þær eru í sífellu að fá „snöpp“ til dæmis frá fyrrverandi vinahópi, þar sem all- ar fyrri vinkonurnar eru saman að gera eitthvað skemmtilegt. Það veld- ur viðkomandi kvíða og sárri höfn- unartilfinningu. Vinalausar stúlkur fá „snöpp“ frá hinum stelpunum í bekknum sem eru að gera eitthvað saman, á meðan þær vinalausu eru einar heima og aldrei boðið með. Það versta við Snapchat í aðstæðum eins og þeim sem ég nefni hér að ofan er að skilaboðin geta verið að koma oft á dag, allan daginn. Þessar stúlkur fá stöðuga áminningu um að þær eigi ekki vini. Þetta er ekki eins og var hér áður. Þá var hægt að fara heim úr skólanum og skilja vinavandamálin eftir þar og fara að hugsa um og gera eitthvað annað. Með aukinni snjall- símanotkun eru stúlkur í þeirri stöðu að vera mun berskjaldaðri gagnvart höfnun en áður og geta sífellt verið minntar á að þær séu hafðar útundan. Facebook getur einnig verið kvíða- og streituvaldandi fyrir stúlkur. Þær eru margar hverjar að setja sjálfsmyndir af sér á Facebook í von um að fá sem flest „like“. Ekki nóg með það, heldur skiptir það víst einnig miklu máli á hversu stuttum tíma þær ná að fá sem flest „like“. Þarna ríkir mikil samkeppni eins og algengt er á þess- um aldri. Þessi eftirsókn eftir því hve mörgum öðrum líkar myndin þín og á hve stuttum tíma „like“-in koma inn getur haft slæm áhrif á sjálfstraust stúlknanna. Tökum dæmi, ef tvær bestu vinkonur setja sjálfsmynd af sér á Facebook á sama tíma og önnur fær miklu fleiri „like“ en hin og á styttri tíma, það gæti haft slæm áhrif á sjálfsmynd stúlkunnar sem fær færri „like“. Stúlkur sem setja af sér mynd á Facebook geta borið sig sam- an við fjölda annarra stúlkna og séð að fleiri eru að „líka“ við myndir ann- arra. Þær geta í kjölfarið farið að draga ýmsar ályktanir um eigið ágæti, fundist þær minna virði en aðrar stúlkur, upplifað vanlíðan, höfnun, og lægra sjálfsmat. Ef við setjum okkur í spor þessara stúlkna getum við skilið að þetta er mikið álag á þær, þar sem bæði útlit og vinsæld- ir virðast því miður skipta miklu máli hjá stórum hluta unglingsstúlkna. Ungar stúlkur bera sig einnig saman við hinar ýmsu netstjörnur sem vinna við að láta taka af sér myndir sem þær birta á netinu. Myndirnar hafa oftar en ekki verið lagaðar með „pho- toshop“. Ungu stúlkurnar elta þessar netstjörnur á internetinu, bera sig saman við þær og geta farið að þróa með sér lægra sjálfsmat. Þær geta farið að gera mjög óraunhæfar kröfur til sín og ná aldrei að finnast þær vera eins fullkomnar og netstjörnunar sem þær líta upp til. Hvað er til ráða fyrir stúlkurnar? Þessum skaðlegu áhrifum snjall- tækja og samfélagsmiðla ber að taka mjög alvarlega og við hin fullorðnu þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir þau áhrif. Foreldrar þurfa að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir því að þau þurfa að vera góðar fyrirmyndir. Mikilvægt er að foreldrar séu vak- andi fyrir líðan dætra sinna og eigi opinskáar umræður um þær hættur sem fylgja rafrænum heimi og þeim skilaboðum sem þar kunna að leyn- ast. Mikilvægt er að styðja stúlk- urnar til að móta með sér heilbrigða sjálfsmynd og ákveðið sjálfstæði gagnvart þessum nýja veruleika sem snjallheimar og upplýsingar þaðan bjóða upp á. Til þess að hjálpa þeim stúlkum sem nú þegar þjást af kvíða mætti auka aðgengi barna og ung- linga að sálfræðingum. Nú þegar eru nokkrar heilsugæslustöðvar komnar með sálfræðinga til starfa en biðlistar þar eru yfirleitt langir. Ríkið þarf að sjá til þess að greiningar og öll viðtöl barna og unglinga á einkastofum séu niðurgreidd. Þjóðfélagið þarf að taka höndum saman og sporna gegn útlits- dýrkun meðal barna og ungmenna. Þar þurfa foreldrar einnig að líta í eigin barm og gæta þess sem sagt er að barninu viðstöddu. Að fá mikið af neikvæðum skilaboðum frá for- eldrum eða nánum aðstandendum getur haft slæm áhrif á barnið. For- eldrar ættu ekki að tala neikvætt um eigið útlit, þau þurfi að fara í megrun, hvað þá að börn eða unglingar séu bú- in að bæta á sig. Börn og unglingar eiga að læra að þykja vænt um sig eins og þau eru, sætta sig við eigið út- lit, einblína á styrkleika sína og stunda heilbrigðan lífsstíl. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Hvað fæ ég mörg like í dag? Eftir Sigrúnu Þórisdóttur » Þessum skaðlegu áhrifum snjalltækja og samfélagsmiðla ber að taka mjög alvarlega og við hin fullorðnu þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir þau áhrif. Sigrún Þórisdóttir Höfundur vinnur með börnum, unglingum og ungmennum hjá Sálfræðingunum Lynghálsi. Íslendingar ættu að standa sem einn maður að baki leið- toga eins og Sig- mundi Davíð Gunn- laugssyni sem þorir að sýna fjár- glæframönnum að hlutverk lýðræðislega kjörinna embættis- manna er að stjórna ríkinu í stað kjör- dæmalausra fursta vogunarsjóða. Á tíma útrásarvíkinganna þekktu flestir til hatrammrar deilu og ofsókna Baugsmanna á hendur Davíð Oddssyni og Geir Haarde. Þeir sem síðar urðu vitni að því hvernig Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson settu vogunarsjóð- unum leiðréttingarstólinn fyrir dyrnar, þekkja einnig ofsóknir á hendur þeim – sérstaklega Sig- mundi Davíð Gunnlaugssyni. Var honum bolað úr embætti for- sætisráðherra og alþjóðamiðlum sigað á Ísland til að níða niður land og þjóð. Vogunarsjóðirnir voru sárir eftir Icesave-tapið. Vogunarsjóðirnir hafa eyðilagt grundvöll venjulegrar banka- starfsemi. Smásparendum hefur verið breytt í fjárfesta og bank- ar geyma ekki lengur græddan eyri heldur er sparnaður skil- greindur sem innlán. Að Ísland var hætt komið með tólf sinnum stærri veltu útrásarvíkinga mið- að við þjóðarframleiðslu landsins er samt lítið í samanburði við veltu vogunarsjóða í Skandinav- íu og víða á Vesturlöndum. Dr. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Akureyrarháskóla, skýrir í grein á socialeurope.eu muninn á útkomu fjármála- kreppunnar hjá litlum ríkjum miðað við hvort ríkið eigi aðild að ESB eins og Lettland eða standi fyrir utan ESB eins og Ísland. Bendir hann á að enginn hafi viljað koma íslensku bönk- unum til aðstoðar sem féllu á nokkrum dögum. Annað var upp á teningnum í ríkjum Eystra- salts eins og t.d. Lettlandi, þar sem framkvæmdastjórn ESB og ríkisstjórnir Norðurlanda, að- allega Svíþjóðar, lögðu sig fram um að „bjarga bönkunum“. Í bók Valdis Domborvskis fv. forsætis- ráðherra Lettlands um fjár- málakreppuna kemur fram hvernig þáv. fjármálaráðherra Svíþjóðar Anders Borg hafi leitt samninga um upptöku Eystra- saltslanda á evru sem var skil- yrði fyrir björgun bankanna. Á grundvelli fasts gengis græddu sænsku stóru bankarnir óhem- jufé og lögðu upp í áhættuferð sem fær útrás íslensku víking- anna til að líkjast mýflugu sam- anborið við fílahjörð. Íbúar Eystrasaltsríkjanna voru 7,8 milljónir við fall Sovétríkjanna en eru í dag um 6,2 milljónir og í skuldafjötrum. Miklar umræður hafa verið í Svíþjóð um áhættu ríkisins af stórbönkum eins og Nordea. Flestir bankar telja við- skiptavinum sínum trú um að innlán allt að 1 milljón sek séu tryggð með ríkistryggingu sem er vægast sagt innistæðulaust loforð. Sænska ríkið setti lög um tryggingasjóð innistæðueigenda líkt og Íslendingar gerðu fyrir 2008 og sér sjálft um rekstur sjóðsins í samvinnu við bankana. Í dag er sjóðurinn um 23 millj- arðar sek sem er einungis brot af 6 þúsund milljarða efnahags- reikningi Nordea í lok 2016. Fyrir fjóra stærstu bankana eru samanlagðar skuldir og eignir yfir 12 þús. milljarðar sek sem slagar hátt í þrefalda þjóðarframleiðslu Svía upp á 4 400 milljarði sek á árs- grundvelli. En eins og fjár- málaskríbentarnir Mats Lönnerblad og Ulf Sandmark hafa bent á þá hafa afleiðuviðskipti bankanna ekki verið tekin með í reikninginn sem einungis hjá Nordea „eru upp á svimandi 74 þúsund milljarða sænskra króna og bankinn samtals því með um 18 sinnum árlega þjóðarfram- leiðslu Svíþjóðar“ (realtid.se 14. júní 2017). Þannig þyrfti 3.217 sænska tryggingasjóði til að standast áhættuna af Nordea. Benda þeir á að þótt Nordea sé talinn kerfisþýðingarmikill banki sem ekki megi verða gjaldþrota, þá eru tryggingasjóðir ESB í enn lakara ásigkomulagi en í Svíþjóð. Eftir stendur að ekkert ríki get- ur ábyrgst þá áhættu sem stórir bankar taka, þegar þeir hegða sér eins og vogunarsjóðir og breyta starfseminni í spilavíti. Eina leiðin til að koma í veg fyrir stórslys er að skipta upp bönk- unum í tvo hluta (Glass-Steagall) og láta vogunarsjóði lönd og leið svipað og Ísland gerði með neyð- arlögunum 2008. Fjármálafurstinn George Soros varð alheimskunnur svarta mið- vikudaginn 16. sept. 1992 þegar hann græddi yfir 1,5 milljarða dollara á einum mánuði í árás á breska Seðlabankann og pundið. Nokkru síðar setti hann Seðla- banka Svíþjóðar á kné og skildi landið eftir í mestu efnahags- sárum eftir stríð. Stærsti vog- unarsjóður heims Bridgewater veðjar núna 22 milljörðum doll- urara á lækkandi verðbréf stórra fyrirtækja í Evrópu eins og Alli- anz, Siemens, Deutsche Bank, Total, Adidas og Unilever. Verði sjóðnum að ósk sinni er fjár- málahrun framundan í Evrópu og úti um allan heim. Vogunarsjóðir eru rándýr og verður að meðhöndla sem slík. Aðskilja verður starfsemi þeirra frá eðlilegri bankastarfsemi og ekki hvika einn millimetra í þeirri baráttu. Gjaldmiðillinn er þjóðarinnar og illa fengið fé ekki það sama og heilbrigður ágóði. Eini þingmað- ur Íslendinga sem virðist hafa næga staðfestu til að taka slaginn við fjármálafursta vogunarsjóð- anna er Sigmundur Davíð Gunn- laugsson. Íslendingum væri hollast að kjósa hann aftur upp í brú til að ljúka leiðréttingunni og verja efnahagslíf Íslands og heilbrigða frjálsa samkeppni. Allt það sem þjóðin vann í Iceave-baráttunni getur að öðr- um kosti glatast og hrægammar drottna yfir Íslandi. Vogunarsjóðir breyta bönkum í spilavíti Eftir Gústaf Adolf Skúlason Gústaf Adolf Skúlason » Vogunarsjóðirnir hafa eyðilagt grund- völl venjulegrar banka- starfsemi. Smáspar- endum hefur verið breytt í fjárfesta. Höfundur er smáfyrirtækjarekandi og fv. ritari Smáfyrirtækjabandalags Evrópu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.