Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Sá erlendi siður að bjóða upp á skiptipoka í verslunum hefur loks- ins skotið rótum hér á landi. Tvær verslanir bjóða upp á þetta, sam- kvæmt heimildum Matarvefsins; Melabúðin í Reykjavík og Nettó á Húsavík. Í báðum tilfellum er um utanaðkomandi framtak að ræða. Í Melabúðinni er það Pokastöðin sem stendur að baki verkefninu en það eru fjórar stúlkur í 10. bekk í Hagaskóla sem eiga heiðurinn af því. Á Húsavík er það Miðjan, sem er dagþjónusta fyrir fatlaða, sem reið á vaðið og hefur það verkefni gengið vonum framar og mælst vel fyrir hjá heimamönnum. Verk- efnið kalla þau Boomerang Bags en pokarnir þykja sérlega skraut- legir og flottir. Skiptipokarnir virka þannig að viðskiptavinir geta tekið poka sér að kostnaðarlausu undir matvöru. Eina kvöðin er að skila þarf pok- unum þegar kostur gefst. Auðvit- að má nota pokana aftur en bann- að er að eigna sér þá eða nýta undir annað. Dregur þetta mikið úr notkun plastpoka og er í alla staði hið þarfasta framtak enda hafa vitök- urnar verið frábærar. Að sögn Guðnýjar Karlsdóttur sem starfar í Nettó á Húsavík hafa pokarnir verið í boði frá því í október. Fyrst hafi fólk ekki almennilega vitað hvernig þetta virkaði og oft gleymt að skila en starfsfólk hafi verið duglegt við að leiðbeina fólki og nú væri þetta að ganga afskaplega vel og Húsvíkingar væru afskaplega ánægðir með framtakið. Skiptipokar slá í gegn Endurvinnsla Pokarnir erusaumaðir úr afgangsefnum eða því sem fellur til. Heimilistóna skipa þær Katla Mar- grét Þorgeirsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir, en hljóm- sveitin var stofnuð árið 1997 þegar þær störfuðu allar í Þjóðleikhúsinu. Halldóra Björnsdóttir var ein af stofnmeðlimum en hún setti svuntuna í skúffuna árið 2003 og tók Katla Margrét þá við. Uppákomur þeirra og böll þykja sérlega skemmtileg og þátttaka þeirra í Söngvakeppninni í ár þykir bráðskemmtileg og vel heppnuð. Vart er það barn í landinu sem ekki hefur heyrst raula „kúst og fæjó“ og spennandi verður að sjá hvernig úrslitin verða á laugardag- inn. Ekki spillir fyrir að þær eru af- skaplega heimilislegar og því var ekki úr vegi að fá þær til að deila sínum uppáhaldshúsráðum með lesendum Morgunblaðsins. Rispubaninn Við notum alltaf valhnetur til að pússa rispur á viðarhúsgögnum og parketi. Þá er afar mikilvægt að nudda hnetunni í rispuna og bíða í smátíma áður en þurrkað er yfir með þurrum klút. Rispan hverfur eins og dögg fyrir sólu. Frosin vínber Eitt skothelt húsráð er að frysta vínber og nota í staðinn fyrir klaka. Þetta er bæði afskaplega elegant og snjallt því þetta kemur í veg fyrir að það komi vatnsbragð af drykknum, sem er auðvitað afskaplega mik- ilvægt. Táfýlutöfrabragðið Besta leiðin til að til að losna við leiðinda táfýlu er að setja vel af mat- arsóda í skóna. Lyktin hverfur eins og dögg fyrir sólu en passið að þurrka innan úr skónum áður en þið farið í þá þannig að þið verðið ekki þakin mat- arsóda á fótunum. Það er ekki smart. Of þröngir skór Margur lendir í því að kaupa of þrönga skó eða þrútna um of á fót- unum. Besta leiðin til að víkka skóna er að setja vatn í poka, setja svo pok- ann ofan í skóna og stinga í frysti. Súpan of sölt! Ef súpan verður of sölt þá er frá- bært að setja út í hana hráa kartöflu eða epli. Svo er súpan látin sjóða í tíu mínútur eða svo áður en kartaflan eða eplabitinn er veiddur upp úr. Virkar alltaf! Ostaveisla Það er ákaflega snjallt að frysta af- ganga af ostum. Ef maður kaupir til dæmis úrval af vönduðum ostum í Frakklandi er afar gáfulegt að frysta þá. Fyrir vikið á maður alltaf úrvals- osta fyrir kósíkvöld með stelpunum. thora@mbl.is Heitustu húsráð Heimilistóna Morgunblaðið/Hanna Hljómsveitin Heimilistónar þykir með þeim skemmtilegri á landinu en á laugardaginn keppir hún til úrslita í undankeppni Söngvakeppninnar en hún samanstendur af fjórum stórleikkonum sem almennt þykja afskaplega lekkerar og yrðu sannarlega verðugir fulltrúar lands og þjóðar í aðalkeppninni sem fram fer í Portúgal í maí. Huggulegar Heimilistónar eru án efa húslegasta hljómsveit landsins. SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.