Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 61
61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
07:08 Snúsa símavekjarann.
07:12 Snúsa hinn símavekjarann (er með
þrjá mismunandi tíma stillta á hann).
07:14 Snúsa símavekjarann.
07:20 Rís úr rekkju. Fer inn í barna-
herbergin og vek megnið af liðinu.
07:21 Bursta tennur.
07:25 Vek þau aftur og reyni að draga
fram. Læt þau bursta tennur og tek til
morgunmat.
07:35 Geri nesti fyrir börnin. Skelli í mig
einum Nocco með koffeini.
07:50 Kyssi konuna og börnin sem verða
eftir og legg af stað með þrjú börn. Byrja á
að skutla tveimur í Sjálandsskóla og enda
svo á Laufásborg með þá næstminnstu.
09:00 Mæti í vinnuna á RÚV.
09:15 Fundur Framkvæmdastjórnar
Söngvakeppninnar með snillingunum og
vinkonum mínum Ragnhildi Steinunni,
Birnu Ósk og Saló.
11:00 Klippivinna með Christian á Fjör-
skyldunni 2. seríu. Fyrsti þáttur að verða
klár fyrir 10. mars.
12:30 Matur í mötuneytinu.
13:15 Kíki á póstana sem hafa hrannast
upp og svara.
15:00 Hitti Rikku og Loga í Hádeg-
ismóum. Hugarflug fyrir þáttinn Ísland
vaknar sem hefur göngu sína 1. mars kl.
6.45. Þau eru bæði hrikalega skemmtileg
og ég hlakka til að vinna með þeim.
16:30 Sæki Sigurrós Ylfu í leikskólann.
Fer og kaupi í matinn.
17:15 Kem heim og heilsa upp á Guðrúnu
Jónu mína og Breka Frey 3ja mánaða.
18:00 Elda Rétt.
19:00 Borða kvöldmat.
19:30 Leik við börnin og hjálpa til á heim-
ilinu.
20:00 Fer í sund í Vesturbæjarlaugina.
Heiti, kaldi, gufa, armbeygjur.
21:00 Kem heim og er með drenginn á
meðan mamman svæfir stúlkuna. Tölva og
sjónvarp og hin börnin, Gísli Björn, Natalía
Mist, Linda Ýr og Selma Rún.
23:00 Allir (flestir) að sofa og ég og Guð-
rún fáum smá næði.
00:00 Vinn í tölvunni.
00:30 Horfi á þátt af 30 Rock, 2. sería.
Soldið mikil vitleysa en ég hef gaman af
þessu.
01:00 Hlusta á podcast og loka augunum.
Ég er mjög hrifinn af „Here’s the thing
with Alec Baldwin og „Í ljósi sögunnar“
með Veru Illuga en núna er ég límdur við
þætti Gísla Marteins á Rás 1 um Tinna. Al-
veg frábærir.
01:40 Sofna.
Dagur í lífi Rúnars Freys
Ljósmynd/GassiÍsland vaknar
Rikka, Logi og
Rúnar stjórna
þættinum.
Dagarnir í lífi Rúnars Freys eru í lengra lagi
þessa dagana enda að mörgu að huga þar
sem okkar maður fer í loftið með nýjan
morgunþátt, Ísland vaknar, á K100 í dag
ásamt þeim Loga Bergmann og Rikku.
Rúnar Freyr er auk þess verkefna-
stjóri Söngvakeppninnar 2018 en
næstkomandi laugardag verður ljóst
hvert framlag okkar Íslendinga verður
í undankeppni Söngvakeppni
evrópskra sjónvarps-
stöðva sem haldin verð-
ur að þessu sinni í
Portúgal 8. maí.
Spennustigið er því
í hámarki hjá hon-
um um þessar
mundir eins og
annasamur
dagur lífi
Rúnars
Freys gef-
ur til kynna.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
VOR 2018
COLOUR 5
NÝ SENDING!
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11– 17
K
V
IK
A