Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 64

Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 64
64 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 ✝ HólmfríðurGísladóttir fæddist í Reykjavík 23. júlí 1923. Hún lést á Landspít- alanum 16. febrúar 2018. Hún var dóttir hjónanna Ástrósar Jónasdóttur, f. 1880, d. 1959, og Gísla Guðmunds- sonar mótorista, f. 1873, d. 1944, sem bjuggu á Hverfisgötu 96 í Reykjavík. Hólmfríður var yngst sjö systkina sem öll eru látin, en systkini hennar voru Viggó Ein- ar, f. 1905, Jónmundur, f. 1907, Sigurjóna Guðríður, f. 1912, Sig- rún Laufey, f. 1916, Ása Guð- laug, f. 1917, og Björg, f. 1921. Þann 16. júní 1956 giftist Hólmfríður Magnúsi Þorvarð- arsyni verslunarmanni, f. 7. október 1920, d. 1. mars 2008. Foreldrar hans voru hjónin Friðsemd Magnúsdóttir, f. 1891, d. 1973, og Þorvarður Guð- mundsson gasvirki, f. 1888, d. 1968. Hverfisgötu 96 í Reykjavík. Hún lauk barnaskólaprófi frá Austurbæjarskólanum og stundaði síðan nám í Kvöld- skóla KFUM. Hún hafði yndi af tónlist, sótti píanótíma og söng í kórum á sínum yngri árum. Hún aðstoðaði systur sínar þeg- ar þær voru með ung börn og þegar Viggó bróðir hennar missti eiginkonu sína frá fjór- um ungum börnum sá hún um heimilið fyrir hann um tveggja ára skeið. Hólmfríður sinnti ýmsum störfum en lengst starfaði hún við bókband hjá Bókfelli, þar til hún giftist en þá tóku við heim- ilisstörf og barnauppeldi. Síðar tók Hólmfríður að sér sauma- skap fyrir Henson og vann einnig við skúringar í Lands- bankanum á Laugavegi 7 þar til hún fór á eftirlaun. Hólmfríður og Magnús bjuggu lengst af í Heiðargerði 100 og um skeið bjuggu for- eldrar Magnúsar einnig í Heiðargerðinu. Árið 1964 keyptu þau hjónin sumarbú- staðaland í Grímsnesi og nokkr- um árum síðar sumarbústað sem staðið hafði í Árbæj- arhverfi og fluttu hann austur. Hólmfríður verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í Reykja- vík í dag, 1. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Hólmfríður og Magnús eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Friðsemd Rósa, f. 1955, gift Pétri Eysteinssyni, f. 1955, börn þeirra eru Eysteinn, f. 1980, Magnús, f. 1985, og Fríða Margrét, f. 1989. 2) Þorvarður Hjalti, f. 1957, kvæntur Sig- ríði Maríu Sverrisdóttur, f. 1958, dætur þeirra eru Hólm- fríður Ásta, f. 1997, og Þóra María, f. 1999. Dætur Sigríðar Maríu af fyrra hjónabandi eru Ragnheiður Þórdís, f. 1979, sonur hennar er Ingólfur Örn og Þórhalla Sigríður, f. 1984, gift Þresti F. Gíslasyni, dætur þeirra eru Sandra Sif og Krist- jana Lind. 3) Steinunn Ásbjörg, f. 1958, gift Georg Eggertssyni, f. 1958, börn þeirra eru Björg, f. 1990, Eggert, f. 1993, og Gísli, f. 1994. Hólmfríður fæddist og ólst upp á mannmörgu heimili for- eldra sinna og systkina á Fríða frænka, Hólmfríður Gísladóttir, föðursystir mín og mikil sómakona, hefur kvatt þessa hérvist á nítugasta og fimmta aldursári, síðust sjö systkina en faðir minn var elst- ur þeirra. Fríða frænka, eins og hún var jafnan kölluð, var sam- einingartákn ættar okkar og fram undir það síðasta var hún hress, minnug og veisluglöð, þannig verður hennar minnst. Mikil samheldni ríkti hjá föð- urfólki okkar, fjölmenn barna- afmæli voru tíð og voru það ógleymanlegar samkomur. Þungamiðjan var jafnan á Hverfisgötu 96 en þar réð ríkj- um Ástrós amma og stjórnaði af myndarskap. Hún gætti þess vel að halda sístækkandi hjörð þétt saman. Fríða vann hjá Þorbirni í Kjötbúðinni Borg á stríðsárun- um og það var þá sem hann fór þess á leit við ömmu Ástrós að sjóða fyrir sig slátur til að selja. Þetta var nýlunda. Amma vann hjá honum sem verktaki og síð- an hafa verslanir selt slátur. Samheldni föðurfólksins hafði afgerandi þýðingu fyrir mig og systkin mín þegar móðir okkar féll frá. Um tíma passaði Fríða frænka okkur fjögur, Hilmar (12), Gísla (8) mig (5) og Sigrúnu Vigdísi (3). Hún var þá ógift og þau Magnús Þorvarðarson, síð- ar eiginmaður hennar, voru að draga sig saman. Næstu árin komu Fríða og Magnús við heima og tóku okkur tvö þau yngstu með í sunnudagsbíltúra. Þá var alltaf farið vestur á Hagamel og keyptur ís í bestu ísbúð bæjarins. Magnús var mikill áhugamað- ur um bíla og fólk. Hann þekkti um tíma alla bíla í bænum, bíl- númerin og einhver deili á eig- endum þeirra. Magnús byrjaði ungur sem sendisveinn hjá einu virtasta fyrirtæki landsins, Heildverslun Sig. Þ. Skjald- berg, og vann sig upp í for- stjórastöðu. Eftir að Magnús féll frá kom í ljós að Fríða frænka var bílstjóri af guðs náð og ók sínum bíl eins og herfor- ingi á meðan sjónin leyfði. Alla tíð var gestrisni mikil á heimili Fríðu frænku og Magn- úsar, lengst af í Heiðargerði 100 og ævintýri líkast var að heim- sækja þau í sumarbústaðinn þeirra í Þrastaskógi. Jafnan var rætt um landsins gagn og nauð- synjar og að sjálfsögðu voru góðar kökur á borðum. Fríða frænka fylgdist grannt með frændfólki sínu, ungu sem öldnu. Hún fagnaði hverjum áfanga í lífi ættingja og var óþreytandi að telja upp kosti hvers og eins. Sjaldan sá hún löst á neinum, alla vega ekki á sér skyldu fólki. Fríða frænka var sterk kona, hafði sínar skoðanir og var óhrædd að láta þær í ljós. Samheldni föðurfólks okkar og veislugleði hefur haldist og hittumst við frændsystkinin reglulega. Það var engin alvöru veisla nema Fríða frænka mætti. Af og til hafa verið haldin ættarmót að sumarlagi en frá aldamótum 2000 hafa verið ár- leg fjölskyldumót á milli jóla og nýárs, haldin í Grafarvogskirkju hin síðari ár. Oft hafa komið 80- 140 manns og er alltaf jafn gam- an að hittast, til að spjalla og dansa í kringum jólatré með yngstu börnunum. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til barna og barnabarna. Minning Fríðu frænku og systkina hennar verður best heiðruð með því að mæta í árlegan jólafagnað og önnur fjölskylduboð svo lengi sem stætt er. Björn Viggósson. Elsku besta amma mín. Nú ertu farin frá okkur eftir langa og góða ævi. Þú náðir að verða 94 ára og varst alltaf sjálf- stæð og bjóst heima í húsinu þínu í Grafarvoginum frá því áð- ur en ég byrjaði að muna eftir mér. Þú varst yngst af sjö systk- inum og varst orðin ein eftirlif- andi af þeim. En þú varst alltaf í góðu sambandi við alla afkom- endur systkina þinna og þeim þótti vænt um þig. Það var því oft mikill gestagangur heima hjá þér, sem kemur ekki á óvart þar sem þú varst svo indæl og gaman að vera í kringum þig. Þú áttir mjög góða æsku og sagðir mér oft frá foreldrum þínum og systkinum, og það var auðvelt að sjá hversu mjög þér þótti vænt um þau öll. Þú áttir ekkert nema góðar minningar um þau, það sagðir þú mér. Þú kynntist afa Magnúsi í gegnum samkór- inn og þið áttuð hvort annað að í langan tíma, alveg þar til hann fór frá okkur fyrir 10 árum. Einn af þínum kostum var að þú varst alltaf svo lífsglöð og já- kvæð, líka þó að öll systkini þín og afi Magnús væru farin frá þér. Þú varst samt þakklát fyrir lífið og hamingjusöm með börn- in þín og barnabörnin. Stuttu áður en þú fórst frá okkur og þú varst á spítalanum, þá sagði ein hjúkrunarkonan við þig: „Þú ert alltaf svo jákvæð!“ Og þá svar- aðir þú: „Já, maður lifir ekki svona lengi nema maður sé já- kvæður.“ Þess vegna var svo gott að vera í kringum þig, því þú varst svo jákvæð og skemmtileg. Ég verð að viðurkenna það, amma mín, að mér þykir erfitt að þú sért farin. Þú hefur alltaf verið svo mikið til staðar, þú varst svo til í að gefa okkur barnabörn- unum og öðrum sem þér þótti vænt um af tíma þínum. Þú sótt- ir okkur Þóru Maríu stundum eftir skóla og leyfðir okkur að vera hjá þér og afa þangað til mamma og pabbi voru búin í vinnunni. Þú kenndir okkur að spila ólsen-ólsen og lönguvit- leysu og mikið fannst mér nú gaman að spila við þig. Tónlistin var rík í þér, þú ólst upp við að pabbi þinn spilaði á orgel og svo lærðir þú sjálf á píanó síðar meir, og þú spilaðir oft þér til gamans á píanóið á meðan þú gast. Þú hvattir mig því áfram í tónlistarnáminu og okkur Fríðu Margréti til að spila fyrir þig á píanóið þitt, sem okkur þótti mjög gaman, enda fínasta píanó. Þú varst alltaf svo hress og til í að spjalla og það var augljóst hversu vænt þér þótti um okkur barnabörnin þín. Mikið erum við heppin að hafa fengið að þekkja þig og eiga þig að. Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem ég fékk að deila með þér. Það er sárt að missa þig, en ég veit að þú ert ham- ingjusöm þar sem þú ert núna, nú ertu loksins með afa Magnúsi og systkinum þínum, foreldrum og vinum á ný, fólkinu sem þú hefur sagt mér svo margar sög- ur af og sem þér þykir svo vænt um. Einn daginn mun ég hitta þig aftur og þá munu verða fagnaðarfundir, en þangað til mun ég minnast með hlýju allra yndislegu stundanna sem við áttum saman og segja öllum sem heyra vilja frá frábæru ömmu minni sem ég elska svo mikið. Þín Hólmfríður Ásta. „Af hverju er þér svona kalt á höndunum?“ er örugglega sú spurning sem amma spurði mig hvað oftast. Svo voru hendurnar „straujaðar“ þangað til einhver hiti komst í fingurgómana. Svona var amma, hún tók málin í sínar hendur þangað til hlut- irnir voru orðnir eins og þeir áttu að vera. Amma var blíð, skemmtileg, ákveðin og stolt kona. Alltaf var hún tilbúin til að gera allt fyrir mann, hlusta og veita ráð. Hún hafði óþrjótandi þolinmæði og væntumþykju fyrir manni og hafði ótrúlegt lag á að gera allt betra. Hún hafði líka svo mikla sjálfsbjargarviðleitni, og fannst óþarfi að gera vandamál úr hlut- unum eða kvarta, eins og þegar heyrnin og sjónin fóru að bregð- ast henni þá fékk hún sér bara heyrnartæki og gekk í Blindra- félagið – vandamálið leyst – eða a.m.k. allt reynt til að gera það besta úr aðstæðunum. Amma var fyrst og fremst fjölskyldumanneskja og hún var stolt af fólkinu sínu nær og fjær, svo stolt í raun og veru að oftar en ekki fór maður hjá sér við það eitt að fara með henni út úr húsi, því það skipti engu máli hvort maður var með henni í bankanum eða í kaffiboði, ein- hvern veginn tókst henni að koma því að hvað hún væri ánægð með okkur barnabörnin, börnin og tengdabörnin. Sam- band ömmu við systkinabörnin var líka einstaklega fallegt og naut hún þess að eiga sín reglu- legu símtöl og kaffiboð með þeim hópi. Jólaboð stórfjöl- skyldunnar var svo hápunktur hvers árs og maður dáðist að því hversu vel amma þekkti allt fólkið sitt og fylgdist vel með lífi þeirra, mundi alla afmælisdaga, nöfn og gat jafnvel þulið upp símanúmer eins og ekkert væri sjálfsagðara fyrir 94 ára gamla konu. Það er skrýtið til þess að hugsa að maður fari ekki aftur í heimsókn til ömmu, fái kaffi úr mávastellsbolla, köku úr fryst- inum og konfekt, spjalli um lífið, tilveruna og hvað sé helst að frétta af frændfólkinu, áður en naglalakkið er dregið fram og ættjarðarlögin spiluð á píanóið á meðan amma syngur. Við þessa kveðjustund er þó þakklæti efst í huga, þakklæti fyrir að hafa átt yndislega ömmu og vinkonu sem alltaf stóð styrk í báða fætur og var manni fyrirmynd, stóð með sínu fólki og fékk að lifa sínu lífi með reisn, sóma og gleði. Að lokum vil ég kveðja hana ömmu mína með sálminum sem var alltaf sunginn þegar ég gisti hjá ömmu og afa í Heiðargerð- inu. Afi gekk úr rúmi fyrir litlu drottninguna og amma söng mann í svefn. Ekkert var nota- legra en að sofna með ömmu sér við hlið raulandi sálminn á með- an takturinn var blíðlega sleg- inn með lófanum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Þín Fríða Margrét. Elsku Fríða „amma mín“, eins og þú vildir og leyfðir mér alltaf að kalla þig. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur, þú varst orðin fullorðin en mér fannst það samt aldrei skipta máli þegar við töluðum saman. Þú varst alltaf svo hress þegar við hittumst, t.d. þegar ég heim- sótti þig á spítalann, þá spjöll- uðum við mikið saman. Þú vildir alltaf vita hvað ég væri að gera, fylgdist vel með píanónáminu mínu og mér fannst ómissandi að spila fyrir þig á píanóið þegar við komum í heimsókn í Fanna- foldina. Þú komst oft að hlusta á mig á tónleikum, mér þótti svo notalegt að eiga „ömmu“ í saln- um, ég var alltaf svo stolt af þér. Þú sagðir mér svo margar skemmtilegar sögur af Guðrúnu Steinunni ömmu, þegar þið vor- uð ungar að bralla ýmislegt saman, mér þótti alltaf svo vænt um að heyra að þið voruð bestu vinkonur gegnum árin. Ég sakna þín óendanlega mikið en það er samt svo gott að eiga allar góðu minningarnar frá liðnum árum, þú gafst mér svo mikið og fyrir það er ég þér svo þakklát. Hvíldu í friði. Þín Guðrún Steinunn. Fríða frænka hefur kvatt. Hún var yngst af systkinunum sjö á Hverfisgötu 96 og nú eru þau öll farin en eftir er stór systkinabarnahópur sem syrgir frænku og höfuð ættarinnar til margra ára. Systkinin á Hverf- isgötunni, þau Viggó, Jónmund- ur, Jóna, Laufey, Ása, Björg og Fríða voru samhentur hópur. Ein venjan sem fylgdi hópnum var að hittast og halda gamla- árskvöld saman á Hverfisgöt- unni. Þá var sungið og spilað fram á rauðanótt, sprengdir stórir skipaflugeldar sem bræð- urnir komu með. Yngstu börnin fengu svo að sofna í rúmum hús- ráðenda. Minningarnar um Fríðu eru margar og góðar. Ég man eftir henni fyrst sem glæsilegri ungri konu, yngstu systur móður minnar. Meðan hún bjó enn í foreldrahúsum var herbergið hennar uppi á lofti á Hverfisgöt- unni og fengum við krakkarnir stundum að líta þar inn. Það var einhver ævintýraljómi yfir því og ekki dirfðumst við að snerta neitt eða hreyfa við neinu. Svo flutti hún að heiman er hún stofnaði sitt eigið heimili með manni sínum, Magnúsi Þorvarð- arsyni, og strax fór það orð af heimili þeirra að þangað væri gott að koma og vel tekið á móti gestum. Var enda ævinlega gestkvæmt hjá Fríðu. Fríða var myndarleg húsmóð- ir, eins og þær systur allar. Hún saumaði á börnin sín og vann um tíma við saumaskap. Alltaf átti hún heimabakaðar kökur með kaffinu þegar gesti bar að garði. Hún tók slátur og hanter- aði heilu skrokkana í Heiðar- gerðinu, oft með systrum sínum og þá fékk ég stundum að taka þátt sem aðstoðarkona og lær- lingur hvernig ætti að bera sig að við svo stór verkefni. Fríða var einstaklega fé- lagslynd og naut samvista við fólkið sitt. Hún fylgdist vel með og mundi t.d. afmælisdaga allra systkinabarna sinna auk ann- arra í stórfjölskyldunni. Hún var aufúsugestur í hverjum stórviðburði í ættinni og ekki var haldin sú veisla sem hún væri ekki heiðursgestur í. Hún stundaði veitingahús borgarinn- ar reglulega, bauð út að borða eða henni var boðið. Humarsúpa var hennar uppáhald og höfum við prófað marga humarsúpuna á hinum ýmsu veitingastöðum. Ef humarsúpa var ekki í boði kom þorskurinn sterkur inn. Eftir veitingahúsaferðirnar var svo gjarnan haldið heim til hennar þar sem hún bauð upp á kaffi og konfekt. Hún var virk í félagsstarfi eldri borgara í Graf- arvogskirkju hin síðari ár og eignaðist þar nýja vini og vin- konur, hún mætti á hittinga í blindrafélaginu og hafði gaman af. Því miður missti hún sjónina að mestu fyrir nokkrum árum. Við göntuðumst með það okkar á milli eftir að ég fótbrotnaði sl. sumar að haltur leiddi blindan er við skruppum eitthvað sam- an. Við sem þekktum Fríðu dáð- umst að dugnaði hennar og sjálfstæði. Hún hélt sitt heimili með reisn og sóma til síðasta dags. Hún lifði lífinu og var með í öllu sem hana langaði til. Við frændsystkinin hittumst mán- aðarlega. Engan óraði fyrir því í janúar sl. að sá fundur yrði hinn síðasti með Fríðu frænku. Ég votta börnum hennar, Rósu, Hjalta og Steinunni, og fjölskyldum þeirra innilega samúð mína. Sigrún Sighvatsdóttir. Hólmfríður, sem ávallt var kölluð Fríða frænka, var yngst systkinanna sjö sem ólust upp á Hverfisgötu 96, en foreldrar þeirra systkina voru þau Ástrós og Gísli mótoristi. Þau systkini héldu mjög vel saman og Hverf- isgata 96 varð samastaður stór- fjölskyldunnar. Á Hverfisgöt- unni voru haldnar stórar og fjölmennar veislur og þá einkum um hver áramót. Ég kynntist Fríðu fyrst þeg- ar hún tók að sér heimili okkar systkina um tíma, fyrir bróður sinn Viggó, eftir að mamma okkar dó. Þetta voru erfiðir tímar og skildi ég það síðar hve mikið var þá lagt á hennar herðar. Fríða og Magnús eign- uðust síðar fallegt heimili í Heiðargerði 100. Tímarnir liðu og lengdist tím- inn milli heimsókna, barnabörn- in urðu fullorðin og eignuðust fjölskyldur, systkinin sjö týndu tölunni hvert af öðru, en Fríða frænka lifði þau öll. Síðustu 10 árin, eftir að Magnús féll frá, hefur Fríða búið ein í Fannafold 127a þar sem hún bar aldurinn óvenju vel, bæði hressari og kát- ari en flestir á hennar aldri með afburðagott minni en sjónin far- in að gefa sig undir lokin. Fríða frænka hélt gríðarlega vel utan um alla ættingja sína frá Hverfisgötunni, fylgdist með og vildi fræðast um alla afkom- endur, mundi alla afmælisdaga og var stöðugt að hringja í okk- ur og minna okkur á afmæli og ýmsa atburði. Þannig tengdi Fríða frænka þennan stóra ætt- legg saman og því komu, eins og af sjálfu sér, jólaboðin sem hald- in voru síðari árin í safnaðar- heimilinu í Grafarvogskirkju þar sem Fríða frænka var höfuð ættarinnar. Nú þegar þessi 94 ára gamla frænka lá banaleguna vildi hún eingöngu heyra eitt- hvað hressandi og þannig var það þegar við Guðmundur sonur minn heimsóttum hana, en þau Guðmundur náðu einkar vel saman með leiftrandi bein- skeyttum samtölum. Fallega furan sem hún gaf mér um árið lifir góðu lífi og dafnar vel austur í sumarbú- staðnum okkar. Fríða mín, þakka þér kærlega fyrir okkar samleið, með kveðju frá Kristínu eiginkonu minni og sonunum, Guðmundi, Ásbirni, Kjartani og fjölskyldum. Gísli Viggósson. Í dag stöndum við á tímamót- um, afkomendur systkinanna á Hverfisgötu 96, þegar við kveðj- um Fríðu frænku. Fríða frænka átti stað í hjarta okkar allra fyr- ir margra hluta sakir. Fyrst skal nefna að hún hefur verið aldursforseti ættarinnar um nokkurra ára skeið og sinnt því hlutverki af alúð og festu. Hlut- verki hennar má líkja við hlut- verk Heimdallar í norrænni goðafræði, hún vissi allt og kunni ráð við flestu. Eins og gefur að skilja geng- ur mikið á í stórri fjölskyldu, af- mæli, útskriftir, brúðkaup, fermingar, barnsfæðingar, skírnir og andlát og skipst hefur á gleði og sorg eins og gengur. Fríða frænka hefur ætíð staðið sem klettur í lífi okkar, ætíð hægt að leita til hennar með hvað sem okkur lá á hjarta. Fríða frænka hefur kennt okkur margt í gegnum tíðina, kannski ekki með orðum heldur gjörðum. Staðfesta, réttlætis- kennd, frændrækni og trú á eig- in sannfæringu eru allt hugtök sem geta lýst þessari einstöku frænku sem við kveðjum nú. Árið 1972 þegar Björg, systir Fríðu, lést gekk hún mér og fjöl- skyldu minni því sem næst í Hólmfríður Gísladóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.